Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Page 13
r
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985.
Josepha Rickman, fatagerðarkona á eftirlaunum, nýtur heimsókna Christophe Billot, 13 ára, og Michael
Fox, 14 ára. Unglingarnir og eldra fólkið er vandlega valið saman af stjórnendum Ættleiddu œttforeldri
áœtlunarinnar.
OLDUNGAR
ÆTTLEIDDIR
Thelma Dry, 83 ára, og Jeannie
Hutchinson, 15 ára, hafa orðið miklir
vinir með aðstoð áætlunar sem geng-
ur undir nafninu „Ættleiddu ættfor-
eldri” og er rekin af einkastofnun í
Santa Monica í Kalifomíu.
„Jeannie ... ja ... hún er mér til
ánægju. Við tölum saman, etum ís og
fáum okkur snarl. Þetta hefur verið
mjög ánægjulegt,” segir Dry.
Þrátt fyrir 68 ára aldursmun eiga
þær eitt sameiginlegt, þeim líkar vel
hvorrivið aðra.
Fyrir nokkrum árum dó amma
Jeannie. Jeannie segir um Dry:
„Það er gott að hafa ömmu til að tala
við.”
„Ættleiddu ættforeldri” áætlunin,
sem hófst fyrir sjö árum, kynnir
reglulega fólk á sjötugs- og áttræðis-
aldri fyrir unglingum á aldrinum
12—17 ára. Stofnunin, sem vinnur
með skólunum á staönum, ætlast til
að nemar, sem taka þátt í áætlun-
inni, ræði einu sinni í viku við sam-
hæfendur aðgerðanna um árangur
kynnanna.
Síðdegis á hverjum föstudegi fer
Jeannie i heimsókn til Dry en Dry
er bundin íbúðinni vegna aldurs. Sól-
brúnn skólaneminn og ritarinn á eft-
irlaunum fá sér snarl og ræða saman
um það sem gerst hefur hjá þeim.
„Eg bý ein og mér er ekki vel við
þaö en þessar aðgeröir hafa haldið
mér ungri,” segir Dry.
Jeannie hefur kynnt Dry fyrir f jöl-
skyldu sinni og tókst það mjög vel.
Þaö er athyglisvert að þessi starf-
semi hefur sýnt fram á að í sam-
skiptum ungra og aldraðra eru minni
erfiðleikar og samskiptin opinskárri
en yfirleitt meðal „fullorðinna”.
Maggie Saylor, sem var starfandi
skipuleggjandi aðgerðanna í upp-
hafi, segir:
„Það yndislega við stráka og stelp-
ur á þessum aldri er að þau geta enn
verið sá einstaklingur sem þau eru.
Þeim finnst í lagi að segja hvað þeim
líkar eða líkar ekki og hvernig þau
skynja ákveðna atburði. Þetta gerir
öll tjáskipti miklu auðveldari.”
Unglingunum og öldungunum er
vandlega blandað saman og þess
gætt að þau passi saman. „Eg reyni
að forðast að láta feiminn ungling
með hlédrægum öldungi,” segir
Saylor. „Á hinn bóginn má ekki láta
yfirþyrmandi persónuleika með hlé-
drægum persónuleika. Það gengur
ekki.”
Tveir unglingar eru kynntir fyrir
hverjum öldungi, bæði til baktrygg-
ingar ef til veikinda kemur og svo
þeir fái stuðning hvor af öðrum.
Saylor fylgdi unglingunum í fyrstu
heimsóknina. Hún minnist fyrstu
kynna Josepha Rickman fatagerðar-
konu og Cristophe Billot, 13 ára, og
Michael Fox, 14 ára. „Kynnin tókust
svo vel að ég lét mig hverfa eftir tutt-
ugu mínútur.”
Mörgum mánuöum seinna fara
drengirnir enn reglulega til Jo>-
sephu og spila við hana á spil og
dóminó. „Eg hef hugsað mér að
heimsækja hana eins lengi og hún
vill fá mig í heimsókn,” segir
Christophe.
Saylor telur að aðgerðirnar geri
unglingum kleift að skynja að elli er
eðlilegt framhald æviferilsins.
„Þetta er oft fyrsta raunverulega
myndin sem þau fá af öldrun,” segir
hún.
Hjá Thelmu Dry brúaöi áætlunin
ekki kynslóðabilið, hún þurrkaði það
út.
„Það er ekkert kynslóðabil á milli
mín og Jeannie og hefur aldrei ver-
ið,”segirhún.
Þátttakendur í „Ættleiddu ættfor-
eldri” áætluninni, Jeannie Hutchin-
son, 15 ára, og Thelma Dry, 83 ára,
njóta samvistanna vegna áætlunar
sem miðar að því að koma á sam-
skiptum milli unglinga og roskins
fólks. Stjórnendur aðgerðanna telja
að samskipti unglinganna við öld-
ungana stuðli að opinskáum og
ánægjulegum vinskap á milU þátt-
takendanna.
57
Lærið frönsku hjá
Alliance Francaise
— Kvöldnámskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
— Bókmenntaklúbbur.
— Upplýsingar og innritun á skrifstofu Alliance
Francaise alla virka daga frá 16. til 27. sept. kl. 15 til
kl. 19.
— Kennslan hefst 30. sept.
— 15% afslátturfyrir námsmenn.
Alliance Francaise,
Laufásvegi 12,
sími 23870.