Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Page 17
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985. 61 Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð Hinn sski eftir dóminn — hann biður flutnings í ríkisfangelsi til að afplána þar lífstíðardóm. sagöi hún: „Eg skal sjá til þess aö þú verðir gómaöur, Jonah.” Og skellti á.” „Gastu rakið símtalið?” spuröi Feldmann og var nú risinn á fætur. Lögreglumaöurinn hristi höfuðið. „Hún hringdi úr sjálfsala.” Tíu mínútum síöar voru þeir Feld- man og aöstoöarmaöur hans komnir á sjúkrahúsiö. „Eg var aö heyra, Jonah, að hringt heföi verið í þig í morgun,” sagöi Feldmannk „Rétt er þaö,” sagöi Jonah og varö óstyrkur og roðnaöi. „Þiö hafiö hlustaö, ha? Þaö er nógu erfitt að standa í þessu öllu úr sjúkra- rúminu, þótt einhverjir bjálfar séu ekki aö hlera símann manns. Ég held að þiö ættuö aö sjá sóma ykkar í aö láta mig í friöi.” Rödd hans var skjálfandi, enda maðurinn afar æstur. „Ég hef ekki áhuga á aö heyra meira um hvaö einhverjum finnst. Þið vitið hvað gerð- ist. Ég sagöi ykkur sólarsöguna... og svo er alltaf einhver brjálaður sem setur sig inn í máhö og reynir að spilla fyrir... bráðum fer allur bærinn að tala um þetta mál, dreyma um þetta mál.. . égþoliþettaekki!” „Geturöu ímyndaö þér hvers vegna einhver ætti að hringja í þig og segja þetta viö þig?” „Ég sagöi ykkur aö þetta væri bara br jálæðingur! ” æpti Jonah. „Þú hefur ekki gleymt neinu varö- andi þetta mál — eins og yfirskegg- inu?” „Ég sagði ykkur hvernig þetta geröist! Æthö þiö þá ekki aö láta mig í friði?” Feldmann og aöstoöarmaöur hans horföust í augu, en yfirgáfu Jonah. „Hvaö finnst þér?” spuröi Feld- mann. „Þaö var ljóta ástandiö á hon- um, ekki hægt aö tala viö hann.” „Hann virðist í kUpu. En maður veit aö svona atburður getur alveg fariö meðfóUi.” „Sérstaklega ef sagan er sönn,” sagöiFeldmann. „Heyrðu. Faröu nú aftur út fyrir bæinn þar sem hann stöövaöi bílinn og yfirheyröu hvern einasta mann sem býr þar nærri í tveggja kílómetra radíus. Einhver hlýtur aö hafa heyrt eöa séö eitthvað þetta kvöld — eitthvaö sem viö vitum ekki enn um. ” „Helduröu—” „Ég veit ekki hvaö skal halda. En Roberts virtist undarlegur áöan og mér fannst þetta líka skrítið með yfir- skeggiö — aö hann skyldi skyndilega muna eftir því, þegar viö komum með unglingana. Og ég ætla aö grafast ögn fyrir um Jonah Roberts.” Feldmann fór og spjallaöi viö yfir- mann Jonah í Barre-verksmiðjunni. Já, yfirmaðurinn sagöist hafa hitt Mary Roberts. Voru þau hamingjusöm? Þau virt- ust það, já. Var Jonah góður starfs- maður? Já, einkar góöur. Átti hann marga góöa vini í verksmiðjunni? Hann átti nokkra vini. Var líklegt aö hann tæki upp puttamenn á vegum? Tja, Jonah virtist þokkalega skynsam- ur maöur sem ekki tekur ónauðsynlega áhættu — en maður veit aldrei. „Segöu mér,” hélt Feldmann áfram. „Geröist eitthvaö óvenjulegt í verksmiðjunni þennan dag í sambandi viö Roberts? Virtist hann spenntur eöa úr jafnvægi?” „Nei,” sagöi yfirmaðurinn. „Ég minnist þess ekki. Ég man aö ég baö Jonah daginn áöur aö fara og sækja tvær konur sem hjá okkur vinna. Hann á bíl og er svona altmuligmaður hér — ég bað hann um þetta, því að þær kom- ust ekki hingað með ööru móti. Þau komu hingað á réttum tíma og allt virt- istrílagi.” „Má ég tala við konurnar?” spuröi Feldmann. Konurnar voru þær Edith Batey og Gloria Fisher. Feldmann talaði fyrst viö Edith — sem kvaöst ekki minnast neins sérstaks varðandi Roberts þenn- an dag. „En,” sagöi hún . „Þú ættir frekar aö spyrja Gloriu um þaö, því aö hún þekkir hann betur en ég.” „Hvað áttu viö?” „Þau voru nánir vinir — verðum viö aö segja.” Gloria, Fisher var aðlaðandi blondína, kornung og Feldmann kom í hug aö sennilega heföu margir karlmenn framiö morð einmitt vegna þannig stúlkukindar. Hún var óstyrk þegar hún kom til Feldmanns — en sagöi svo sögu sem varpaði nýju ljósi á máhö. „Þetta byrjaði fyrir fimm mán- uðum. Hann fór aö aka mér til og frá vinnu. Og svo aö koma til mín á laugar- dagsmorgnum.” „Varstu ástfangin af honum?” „Þetta var ekki ástarsamband. Við fórum bara í einn af þessum kofum utan viö bæinn — og töluðum.” „Talaði hann aldrei um hjónaband viöþig?” „Jú, hann nefndi það nokkrum sinn- um.” Og nú fóru hjólin loks aö snúast í þessu máU Jonah sómakæra Roberts. Lögreglumaöur einn kom með Ut- inn, sköllóttan mann til Feldmanns og sagði aö sá hefði selt Jonah skamm- byssu í apríl þaö sama ár. „Hvaö heitir þú?” „Horace Forster. Ég hef ekki gefið mig fram vegna þessa máls, þar eö ég hef ekki leyfi til aö selja skotvopn. Ég seldi honum byssu og útvegaði honum skotfæri.” „Og?” „Jonah baö mig aö koma til sín á spítalann dag nokkurn skömmu eftir atburðina. Hann sagöi aö ef einhver spyröi um skammbyssuna ætti ég að segja aö ég heföi selt hana tveimur puttaferöalöngum. ..” Jonah Roberts var ákærður fyrir morö. Hann neitpöi ákærunni, en kvið- dómur skipaður sjö karlmönnum og fimm konum dæmdi hann í lífstíðar- fangelsi. A ÍÞRÓTTAFJRÉTTIR HE NNAR lEÍ'j afl /fleAwi . * >an/ Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar sem hafa skemmst í umferðaróhöppum. Mitsubishi Pajero Diesel 1984 Volvo 244 1978 Volkswagen 1200 1973 Renault sendif. 1984 Lada 1600 1980 Ford Escort 1973 Mazda 818 1978 Volvo 142 1970 Mitsubishi 1500 GLX 1984 IMissan Sunny 1500 GL . 1983 Datsun 140 1974 Citroén CX 25 D st. 1985 Bifreiðarnar verða til sýnis mánudaginn 23. sept. í Skip- holti 35 (kjallara) frá kl. 10-12 og 14-16. Tiiboðum óskast skilað fyrir kl. 17.00 sama dag til bifreiðardeildar Tryggingar h/f, Laugavegi 178, Reykjavík, sími 621110. ¥ 1Í5W <K 1M <3 9 ^?/ Laugavegi 178, sími 621110. ^JRARIK RAFMAGNSVEITUR RlKISINS Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir að ráða starfsmann til starfa á framkvæmdaáætlanadeild stofnunarinnar. Deildarstjóri Starfið er fólgið í stjórn framkvæmdaáætlanadeildar, m.a. gerð 2ja og 5 ára framkvæmdaáætlana, kerfisat- hugunum og hagkvæmnisathugunum. Hér er um fjöl- breytt og sjálfstætt starf að ræða sem krefst alhliða þekk- ingará raforkukerfum. Leitað er að aðila með próf í raforkuverkfræði/-tækni- fræði eða aðila meðsambærilega menntun. Upplýsingar um starfið veitir yfirverkfræðingur áætlana- deildar tæknisviðs RARIK í síma 91 -17400. Umsóknum er greini menntun og fyrri störf ber að skjlg til starfsmannadeildar Rafmagnsveitna ríkisins fyrir 1. október 1985. Rafmagnsvaltur rikMns, Laugavsgi 118, 106 Raykjavik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.