Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Side 18
62
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985.
Spámenn og stjörnufræðingar eru á einu máii um að
Rosanna Arquette sé stjarna sem enginn komist hjá að
taka eftir ■ framtíðinni. Hún er ekki nema tuttugu og fimm
ára gömul en á að baki þekktar kvikmyndir eins og The
Executioners Song og Baby It's you og á þessu ári bættust
einar þrjár við, Desperatly Seeking Susan, Silverado og
After Hours.
Ættfræðingar furða sig ekki á
velgengni Rosönnu því faöir hennar,
Lewis Arquette.var leikari með rót-
tækum leikhópi og móðir hennar,
Mardi Arquette, er ljóðskáld og leik-
ritahöfundur. Stúlkan ákvað
snemma að verða kvikmyndastjarna
og á barnsaldri hengdi hún myndir af
Marilyn Monroe upp hjá sér líkt og
aörir krakkar lima Andrés önd og
Mikka mús á vegginn.
Hlutverk ruglar
einkalífið
Draumurinn er oröinn að
veruleika og leikstjórar eiga varla
nógu sterk orð til aö lýsa Rosönnu.
Lawrence Schiller, leikstjóri The
Executioners Song, var aö hugsa um
hverja hann ætti að fá í hlutverk
Nicole Baker, unnustu morðingjans
Garry Gilmore, og spáði í Mariel
Hemingway, Anette O’Toole,
Diane Lane. . . Engin dugði þar til
hann rakst á Rosönnu. Hún hafði allt
sem til þurfti og lagði sig alla fram.
„Það var mér til góðs sem leikstjóra
hvað hún lifði sig inn í hlutverkiö,”
sagði Schiller í viðtali við bandaríska
timaritiö American Film, „en ég
held að henni hafi liðið eins og í víti
og hún hljóðaöi og lokaöi sig inni í
herberginu sínu dögum saman.”
Sjálf segist Rosanna leggja sig alla
fram um að draga persónumar, sem
hún leikur, ekki inn í sitt eigiö líf, en
Schiiler segir aö Rosanna hafi hagað
sér alveg eins og Nicole gerði viö
Garry Gilmore þegar leikkonan hitti
Steve Porcaro úr hljómsveitinni
Toto. Hún fylgdi honum hvert sem
var, stóð og beið að tjaldbaki á
hljómleikum og til að sýna
umhyggju sína mætti hún með
sælgæti í upptökustúdíó hljóm-
sveitarinnar klukkan f jögur aö nóttu
ef henni þurfa þótti. Meðlimir Toto
endurguldu umhyggjuna og ljóðlínumar
Meet you all the way, Rosanna, Ros-
anna, hljómuðu vítt og breitt
Dóttir róttækra
foreldra
Rosanna neitaði mörgum tilboöum
um hlutverk á þessum tíma og ferill
hennar virtist í hættu þar sem hún
eyddi öllum tímanum í aðra. „Nú, þú
ert sú Rosanna, Rosanna kærasta,”
sagöi fólk. Hún var reyndar ekkert
óvön því aö aðrir væru teknir
framyfir hana, elst af fimm
systkinum. Rosanna er fædd 10.
ágúst 1959 og óx úr grasi í friðar-
göngum, sumarbúöum helguðum
ræktun hugans og söngvar um ást og
friö komu í stað hefðbundinna
vögguvísna.
Rosanna ólst upp við umræður um
kommúnisma, sósialisma,
feminisma og aktívisma, frjálsar
ástir, lögleiöslu fr jálsrar sölu á eitur-
lyfjum, stríöið gegn fátækt og bar-
áttu fyrir friði.
Hún reyndi sitt af hverju af eitur-
lyfja tagi og fimmtán ára gömul
sagöi hún foreldrum sínum aö hún
hefði þörf fyrir meira frelsi, Frelsis-
ást var Arquettehjónunum ekki
framandi hugtak og þau báöu dóttur
sína blessaöa aö drífa sig út um
dyrnar ef hún teldi sig þurfa.
Rosanna pakkaöi niður í bakpoka og
fór á puttanum vestur til Hollywood.
er ein hæfileikarík-
asta unga leikkonan
í Hollywood, ein sú
orðhvatasta og á að
baki litríkan feril
Rosannfl
Popp Kvikmyndir Popp Kvikmyndir Popp Kvikmyndir Popp Kvikmyndir Popp
Mörgum þykir víst erfitt aö henda reiður á því hvers konar persóna hún er
þessi Madonna sem lagt hefur poppheiminn aö fótum sér síðustu mánuöina. Er
hún skyni skroppin gála sem kann aö vefja karlmönnum um fingur sér og sigrar
vegna kynþokkans eða er hún klók og kæn, dugleg og hæfileikarík söngkona sem
veit nákvæmlega hvað hún vill — og nær settu marki? Eöa er hún kannski eitt-
hvað allt annaö — bara bóla?
Ekki spyrja mig. Þrátt fyrir aö
Madonna hafi ööru poppfólki meira
verið í sviðsljósinu undanfarnar vik-
ur og mánuði hafa fáar lærðar grein-
ar birst um hana á prenti. Hún er
dæmigert slúðurdálkaefni og flestar
greinar um hana eru brenndar því
marki að höfundarnir hafa meiri
áhuga á útliti hennar og vafasamri
fortíö en hæfileikum hennar og fram-
tíð. Hún er sexí skvísan sem allt
snýst um.
Skærasta stjarna
sumarsins
Því verður ekki á móti mælt aö vin-
sældir Madonnu eru miklar. Hún er
óneitanlega skærasta stjarna sum-
arsins ef tekið er mið af vinsældalist-
um og hefur skráð nafn sitt skýrum
stöfum í poppsöguna með því að ná
árangri á vinsældalistum sem engri
konu annarri hefur áöur tekist.
Tvennt er markverðast í þessu sam-
bandi: i síðasta mánuöi fór lagið Into
The Groove í fyrstu viku beint í
fjórða sæti breska listans, hærra en
nokkurt annaö lag frá kvenmanni á
svo skömmum tíma — og það sem er
kannski enn merkilegra: Madonna
átti í lok ágústmánaðar tvö vinsæl-
ustu lögin í Bretlandi, Into The
Groove í fyrsta sæti og Holiday í
öðru. Aðeins þrír aðrir flytjendur í
sögunni hafa leikiö þennan fágæta
leik að hreppa tvö efstu sætin, Bítl-
amir, John Lennon og Frankie Goes
to Hollywood.
Ef við höldum aöeins áfram með
upprifjun á svona popplegum stað-
reyndum er því við að bæta að
Madonna var fyrsta konan í sögu
breska poppsins sem átti þrjú lög
samtímis á topp þrjátíu.
Kemur víöa við
Madonna hefur ekki aöeins haldið
sér í sviðsljósinu í sumar fyrir skín-
andi árangur á vinsældalistunum.
Þrennt annað kemur til. Hún hefur
slegiö sér upp á leik sínum í kvik-
myndinni Desperatly Seeking Susan,
við getum kannski orðað það svo að
hún hafi þá slegið sér „niöur” á nekt-
armyndunum sem karlablöðin Pent-
house og Playboy birtu um daginn og
étnar hafa verið upp af Samúel og
öðrum sómakærum ritum — og síð-
ast en ekki síst skondraöi hún upp að
altarinu með leikaranum Sean Penn
á afmælisdaginn sinn 17. ágúst. Það
er því að vonum að Madonna hefur
fengið nokkra athygli upp á síökast-
ið.
Madonna er sexí skvtsan sem
V-'
allt snýst um í poppinu
upp á síðkastið. En hún hefur
ekki bara verið í sviðsljósinu
fyrir framúrskarandi árangur í
poppinu, kvikmyndir, karla-
blöð og hjónaband koma þar
líka við sögu