Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1985, Page 12
12
Fógetinn
DV. LAUGARDAGUR 5. OKTOBER1985.
Útlitið eitt
erekki nóg
Gaman væri, ef verulega gott
veitingahús væri í hinni rúmlega
tveggja alda gömlu vefnaöarstofu
Innréttinganna í Aðalstræti. And-
rúmsioftiö innan dyra hentar róiegu
veitingahúsi með vandaðri mat-
reiðslu handa svo sem 40 gestum í
einu. En bjórkráin Fógetinn er svo
sem betri en ekki neitt.
Menn Fógetans hafa staðið si{
mjög vel við innréttingu og endur-
lifgun hins gamla húss, sem komið
var í niöurníöslu. Gólf og loft hafa
fengið aö hallast í friöi, svo og hinar
gömlu súlur og loftbitar. Klætt hefur
verið með viði upp á miðja veggi. Á
ljósum veggjum þar fyrir ofan eru
brúnleitir, samstæðir lampar, sem
og á bláum súlum og í ljósu lofti.
Dökkbrúnn litur einkennir staöinn
í þiljum, massífum borðum og
stólum, tveimur barborðum og
gluggagrindum, sem varna sýnis
utan af götu. Gamall ofn er á palli
milli efra gólfs og neðra og gamalt
skattholeríefri sal.
Vefnaöarstofan er eina húsiö, sem
eftir er af lnnréttingum Skúla
fógeta. Hún var fyrst reist 1750 og
síöan endurreist eftir bruna 1764.
Fullorðnir Reykvíkingar muna eftir
nýlenduvöruverzlun Silla & Valda,
sem áratugum saman var hér til
húsa.
Nú er þessi hreinlegi og
þreytulausi staöur þétt skipaður
veitingaboröum, fyrir 48 manns á
fremra gólfi og 44 á hinu aftara.
Samtals er því hægt aö koma
rúmlega 90 manns í sæti, ef mikið
liggur viö.
Gamlar teikningar, og ýmsar
aðrar myndir, sem skreyttu híbýli
manna fyrr á öldinni, auka við varð-
í
K88
Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og
blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en
krónupeningarnir tákna verðlagið.
veizlu hins gamla andrúmslofts, sem
hin skakka burðargrind vekur. Þetta
er mun betur heppnað en til dæmis
Laxdalshús á Akureyri, þar sem nýtt
hús hefur verið smíðaö innan í
gamalt.
Hávært segulband truflaði
nokkuð. Að kvöldi voru kertaljós á
boröum. Bæði í hádegi og aö kvöldi
voru pappírsþurrkur af þeirri stærö,
sem notuö er í teboöum. Þær ónýtast
á súputímanum og mynda síðan
ófagra hrauka á berum borðunum.
Ef pappír er notaöur, verður hann að
vera efnismikill og draga til sín
raka, en því er ekki til að dreifa hér.
Auk þess er verölagiö svo hátt á
kvöldin, að þá væru klæðisþurrkur
viðhæfi.
Búin kaka og horfin súpa
Þjónusta viö matargesti var
frambærileg á köflum, en ekki eins
skóluð og búast mætti við í verðflokki
MÁ BJÓÐA ÞÉR
að taka þátt í stórkostlegu ævintýri?
Við viljum gefa þér kost á að starfa við framleiðslu á
heimsins besta fiski. Þó þú hafir ekki starfað við fisk-
vinnslu áður — Ekki hætta að lesa!!!
Þú skapar þjóðarbúinu mikil verðmæti og sjálfum þér
góða tekjumöguleika. Lífið er jú fiskur hjá okkur Íslend-
ingum. Framleiðsla þessi fer fram á Höfn, snyrtilegum
bæ í mjög fögru umhverfi. Þú gistir í góðum verbúðum
og mötuneyti okkar er mjög gott. Upplýsingar veita verk-
stjórar okkar í síma 97-8200 og mundu: Íslenski fiskurinn
er sá besti.
Fiskiðjuver KASK,
Höfn Hornafirði.
HÚSBYGGJENDUR
Þeim húsbyggjendum, sem þurfa á rafmagnsheimtaug
að halda í hús sín í haust eða vetur, er vinsamlegast bent
á að leggja inn umsókn um hana sem allra fyrst til þess að
unnt sé að leggja heimtaugina áður en frost er komið í
jörðu.
Gætið þess að jarðvegur sé kominn í sem næst rétta
hæð, þar sem heimtaug verður lögð, og að uppgröftur úr
húsgrunni, byggingarefni eða annað hindri ekki lagningu
hennar.
Heimtaugar verða ekki lagðar, ef frost er komið í jörðu,
nema gegn greiðslu þess aukakostnaðar sem af því hlýst.
Nánari upplýsingareru gefnará heimtaugaafgreiðslu Raf-
magnsveitunnar, Suðurlandsbraut 34, ísíma 686222.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Fógetans. í bæði skiptin, sem
staðurinn var prófaöur, komu fyrir
slys.
1 fyrra skiptiö vorum viö mætt
næstfyrst gesta rétt fyrir 19. Þegar
kom aö eftirrétti, var okkur tjáð, að
pöntuö eplakaka væri „búin”. Var þó
enginn í salnum búinn aö fá
eplaköku. Mér finnst liggja í augum
uppi, að eplakaka kvöldsins hafi
aldrei verið til. Þaö var hvimleitt,
þar sem ekki var boðið upp á aðra
eftirrétti en ísa og ost.
I hitt skiptiö stóð á hádegis-
seðlinum, aö súpa væri innifalin í
verði rétta dagsins. Hún birtist samt
aldrei. Að vísu hefði ég getað bent á
þetta, þegar aðalrétturinn kom
óvænt á borðið. Þá hefði ég líklega
fengið súpuna éftir nokkurt hlé. Svo
sem títt er í hádegi, hafði ég ekki
tíma til að bíða eftir slíku og get því
ekki sagt, hvernig spergilkálssúpan
var.
Hrátt hangikjöt var ánægjulega
þunnsneitt og afar gott á bragöiö,
ekki of salt eins og stundum hættir til
viö slíkar aðstæður. Melónan, sem
fylgdi, var hálffrosin, eins og hún
heföi veriö of snöggt inni í örbylgju-
ofni eftir aö hafa verið tekin úr
frysti. Melónur eru nógu vondar
beint úr kæliskáp, þótt þær séu ekki
hálffrosnar. Þær á að bera fram við
stofuhita. Sýrði rjóminn koníaks-
blandaði var skemmtilega bragð-
sterkur. Með fylgdi ristað
heilhveitibrauö með smjöri í áli.
Þurrkaö piparlamb var alveg mis-
heppnaö og meira aö segja fúlt á
bragðið. Meölætið ' ar hiö sama og
með hangikjötinu, aö viðbættum
mörgum sneiðum af kiwi, líklega til
yfirbóta. Sýrði rjóminn var í þessu
tilviki blandaöur piparrót.
Soðnar rauösprettur tvær voru
bornar fram heilar, en án hauss og
dekkra roösins. Þær voru sæmilegar,
ekki tiltakanlega mikiö soðnar.
Meðlætiö var allt nærfærnislega
soðið, annars vegar gulrótarstrengir
og hvítar kartöflur og hins vegar
smjörkraumað grænmeti, sem fól í
sér seljustöngla, blaölauk, rauða
papriku og lauk. Smjörinu var
réttilega í hóf stillt.
I hádeginu fylgdi frambærilegt
salatborð aðalréttunum. Því var
ekki glæsilega stillt á boröiö, en þaö
gerði samt sitt gagn. Sumt var þar
ómerkilegt, svo sem rauörófur og
ananas úr dósum. Flest annaö var
ferskt, sveppir, tómatar, gúrka, hvít-
kál og rauð paprika. Með voru
sinnepssósa og mjög góð gráöaost-
sósa, sterk. Ennfremur ferns konar
brauð, þar á meöal rúgbrauð, einnig
þrjár tegundir síldar, allar góðar, en
tómatmaukið með einni var
óblandað úr dósinni. Um kvöldið,
þegar enginn var salatbarinn, var
boðiö fremur ómerkilegt hrásalat
með aöalréttunum.
Salt og pipar
mikið notað
Glóðaðar lambalundir voru
miðlungi sterkar og ineyrar, en of
mikið kryddaðar, bornar fram með
ferskum sveppum, smjörsteiktum og
góðum, miðlungi soðnu blómkáli og
gulrótum, svo og skrauti.
Rjómapiparsósan var sterk og góð,
hveitilaus.
Glóðuð lambalærissteik var einnig
miðlungi steikt og meyr, en allt of
mikiö pipruö og of mikið söltuð. Salt
og pipar virtist óhóflega mikiö notað
í þessu eldhúsi. Meðlæti var hið sama
og með lambalundunum og að auki
voru vínlegnar kiwisneiðar. Ostsós-
an var of mikið pipruð, en að öðru
leyti góö, brún sósa, afar áfeng af
portvíni. Ostur flaut ofan á henni.
Tartarabuff var gott, ekki
hakkað, heldur vélskorið meö hníf í
Jónas Kristjánsson
skrifar um
veitingahús
blandara, boriö fram með hráum
lauk, eggjarauðu, rauörófum,
kapers, síld og rúgbrauði.
Is Melba með dósaperu og
súkkulaðisósu var ekki merkilegur.
Kaffi var í góðu lagi. Einnig fékkst á-
gætt Fógetakaffi með Tia Maria og
brandí. Vínlistinn er afar
dapurlegur.
Hið óvenjulega á matseðlinum var
þurrkaða lambakjötiö og hráa
hangikjötiö. Margt annaö var
hefðbundið, svo sem djúpsteikingar
á rækju, skötusel og dalayrju,
frönsk lauksúpa, síldarþrenna og
ísar. Síldin, svo og fógetabakkinn,
Guömundarsalatið og hörpusalatið
fela þó í sér tilraun til að bjóða
tiltölulega ódýrt bjórkrársnarl.
Fógetinn er fremur dýr staöur á
kvöldin. Miðjuverö á þríréttuöum
mat meö hálfri flösku af fram-
bærilegu víni og kaffi var 1212 krónur
á mann. Fyrir sama verð er betri
matur í Torfunni. I hádeginu var
stuttur og breytilegur seðill dagsins,
mun ódýrari. Þá var hliöstætt verð
838 krónur. Fyrir sama verö er
margfalt betri hádegisverður í
Arnarhóli.
Þaö er ekki alltaf nóg að hafa út-
litið með sér.
Jónas Kristjánsson.
Fastaseðill
495 Rjómahvítvmskraumaður humar meö heitu hvítlauks-
brauði
370 Djúpsteiktarrækjurmeðhvítiauks/dilldýfu
485 Þurrkaðþiþarlamb með kiwi og melónu
345 Hrátt hangikjöt með koníaks karrífraiche ug melónu
165 Rjómalöguðfiskisúþa meðskelfiski
155 Italskt kjötseyði með hleyþtu eggi og tómötum
175 Innbökuðlauksúþa meðportvíni og hrárri eggjarauðu
345 Ýsa Orly með hrísgrjónum, ristuðum ananas og karrtsósu
390 Hvítvínssoðin smálúða/rauðsþrettuflök með dillsósu
430 Djúþsteiktur skötuselur með ristuðum svepþum og hvít-
vínssósu
345 Hnetubakaður karfi meðgrófu brauði
385 Gratineruðsmálúðu/rauðsþrettuflök með dillsósu
425 Smjörsteikturskötuselur meðþiþarávaxtasósu
630 Buff tartar með hráum lauk, eggjarauðu, rauðrófum, kap-
ers, síld og óseyddu rúgbrauði.
345 Danskt buff með sþældu eggi, steiktum Lauk og skýsósu
595 Glððuð lambabuffsteik meðþortvínsostasðsu
595 Glóðaðar lambalundir með rjðmaþiþarsósu
525 Grísakótelettur með súrsætri sósu og mjólkursoðnum
makkarónum
140 Is Hawai
140 Is belle Helena
140 fs Me/ba
215 Djúþsteikt dalayrja með ristuðu brauði
160 Dönsk eþlakaka með þeyttum rjóma
235 Sildarþrenna
175 Síldarrðs
310 Fógetabakki með öh
240 Guðmundarsalat
260 Hörþusalat
Hádegisseðill
135 Sþergilkálssúþa
400 Kryddsoðin nautasteik með kartöflum greifynjunnar
350 Pönnusteikt smálúða meðsinnepssósu
330 Soðin rauðspretta með smjörkraumuðu grænmeti
— súþa innifalin íofangreindum réttum
345 Danskt buff með steiktum lauk, eggi og skýsðsu
240 Guðmundarsalat
260 Hörpusalat
140 Is Hawai
250 Súpa og salatbar