Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Síða 2
2 DV. FIMMTUDAGUR10. OKTOBER1985. MorðtilrauniníOsló: ISLENDINGURINN NEITAR AÐ TALA Islendingur, sem ákæröur er fyrir morötilraun í Osló og hefur verið úr- skurðaöur í fimm vikna gæsluvarð- hald, hefur ekki viljað mæla eitt aukatekiö orð við lögregluna í Osló. Að sögn rannsóknarlögreglunnar í Osló er ráögert aö senda hann til lög- reglulæknisins til aö kanna andlegt ástand hans. Þaö var sl. laugardag sem lögregl- an fékk tilkynningu um að maöur væri að reyna aö brjótast inn í ein- býlishús í úthverfi Oslóar. Lögregl- an handsamaði innbrotsþjófinn sem reyndist vera Islendingur. Islending- urinn geröi sér lítið fyrir og miðaöi hlaðinni byssu á einn af lögreglu- þjónunum. Hann tók í gikkinn en sem betur fór reið ekkert skot af. Lög- reglunni tókst siðan að afvopna manninn og koma honum bak við lás og slá. Að sögn rannsóknarlögreglunnar í Osló fannst nokkurt magn af peningum á manninum og einnig efni sem talið er vera eiturlyf. Nú er verið aö kanna feril þessa manns. DV fékk þær upplýsingar aö þessum Islendingi hefði verið vísað úr landi 1983 í Noregi. APH. Mikill fiskafli íseptember Fiskaflinn í septembermánuði síðastliðnum var 143.697 lestir miöað við 40.665 lestir í sama mánuði í fyrra. Ástæöan er fyrst og fremst loðnuaflinn sem reyndist 96.636 lestir en enginn í september í fyrra, en einnig var þorskaflinn og annar botnfiskafli nokkru betri en í fyrra. Heildarafli það sem af er árinu er 975.955 lestir og ekki hefur eins vel fiskast síðan 1980. Aflinn á sama timabili í fyrra var 924.570 lestir. Heildarþorskafli það sem af er árinu er 268.564 lestir en var í fyrra 225.073 lestir. Annar botnfiskafli er nokkru minni en á sama tima i fyrra eða 207.309 lestir en var í fyrra 231.258 lestir. -KB. Fjaðrafok á Akureyri: Sautján hænur á milli nefnda og í bæjarstjórnina Frá Jóni G. Haukssyni, blaöamanni DV áAkureyri: Sautján hænur er aö finna í kjallara hússins Hafnarstræti 3 á Akureyri. Hænur þessar eru orðnar frægustu hænur sem um getur á Akureyri vegna þess að þær hafa „gengið” fyrir hverja nefndina af annarri. Að Iokum komust þær í bæjarstjórn. Akureyringar eru almennt hissa á vinnubrögðum bæjaryfirvalda í mál- inu. Einn sagði: „Þetta er ga-ga í orðs- ins fyllstu merkingu. Þú ættir frekar að mynda nefndarmennina sem fjöll- uöu um málið en sjálfar hænurnar. ” Svo mörg voru þau orð. En allt byrj- aði þetta á því að eigandi hænanna sótti þann 23. maí sl. um að fá aö hafa þær heima hjá sér, í húsinu nr. 3 við Hafnarstræti. Leið og beið. Loksins tók jarðeigna- nefnd máliö fyrir. Það var 17. ágúst sl. Fljótafgreitt þar, máli hænanna var vísað til bygginganefndar. Mánuði síðar tók bygginganefnd svo máliö fyrir. Erindi eiganda hænanna var synjaö og var vísað til heilbrigðisreglugerðar í því sambandi. En hænurnar voru þar með alls ekki búnar aö verpa síðasta egginu í bæjar- kerfinu. Bæjarstjórn staðfesti nefni- lega á fundi sínum þann 1. október sl. synjun bygginganefndarinnar. Málið er því loksins leyst og virðist úr sögunni — í bili að minnsta kosti. Þær eru ennþá í kjallaranum í Hafnar- strætinu, hafa nóg af byggi og eru í góðu yfirlæti. Það telst ekki algeng sjón að sjá hænur i gluggum íbúðarhúsa i kaupstöðum. En ekki er hægt að segja að óprýði só að þessum föngulega fiðurfénaði á meðfylgjandi mynd. DV-myndir JGH. Hænurnar i Hafnarstræti 3 eru státnar að sjá, enda hafa þær nóg af byggi. Kvikmyndahatíð kvenna: 26 kvikmyndir sýndar Listahátíð kvenna lýkur með kvik- myndahátíð þar sem kynntar verða kvikmyndagerðarkonur víös vegar úr heiminum. Kvikmyndahátíðin verður haldin í Stjörnubíói dagana 12.-18. okt. og verða alls 26 kvik- myndir sýndar. / Ýmsir þekktir kvikmynda- gerðarhöfundar koma þarna við sögu, s.s. þýski kvikmynda- leikstjórinn Margarethe von Trotta, sem verður gestur hátíðarinnar, Marguerite Duras frá Frakklandi, en hin fræga mynd hennar, India Song, verður sýnd á hátíðinni, og franski leikstjórinn Agnés Varda sem hlaut gullljóniö í Feneyjum í ár fyrir nýjustu kvikmynd sína „Sans toit ni loi”. Agnés Varda verður jafnframt gestur hátíðarinnar. Margarethe von Trotta hlaut gullljóniö í Feneyjum árið 1981 fyrir mynd sína „Die bleiberne Zeit”, en þaö mun vera virtustu verðlaun sem veitt eru fyrir listrænt framlag á þessu sviði. Safnað hefur veriö saman íslenskum kvikmyndum sem gerðar hafa verið af konum hér og verða þær sýndar á hátíöinni. Margarethe von Trotta opnar kvikmyndahátíð kvenna með mynd sinni „Heller Wahn” eða Algjört óráð. Agnés Varda mun síöan loka hátíðinni og vonast er til þess að nýjasta mynd hennar, „Sans toit ni loi”, berist í tæka tíð, en hún verður ekki sýnd í kvikmyndahúsuin í París fyrr en í janúar á næsta ári. -KB. Æskan að drukkna í áfengi? — Tíundi hver unglingur byrjar áfengisneyslu 12 ára eða yngri — níu af hverjum tíu 15-20 ára eru áfengisneytendur Fjölmörg börn eru byrjuð að drekka áfengi 12 ára eða yngri. Ur árganginum frá 1968, sem nú er 16—17 ára, byrjaði nær tíundi hver drykkju á þessum aldri. Þeir sem fæddust 1964 byrjuðu mun færri svo ungir, aðeins þrír af hverjum hundrað. Upphaf áfengisneyslu færist því ört niður aldursstigann. Af 2.136 skólanemendum, fæddum 1964, 1966 og 1968, sem svöruðu í ítarlegri skoðanakönnun í fyrra spurningum um vímuefnanotkun, reyndust níu af hverjuun tíu neyta á- fengis. 6—7 af hverjum tíu höfðu notað áfengi á síðustu þrem vikum fyrir könnunina, 2—4 af hverjum tíu á síðustu sjö dögum, eftir kynjum og búsetu. Almenn drykkja Könnunin segir til um neysluvenjur allra unglinga úr árganginum 1968 og þeirra úr árgöngunum 1966 og 1964, sem voru í framhaldsskóla. Af 2.136 höfðu 86,6% allra neytt áfengis og gerðu það misoft. Flestallir höfðu „ oft verið undir áhrifum vegna áfengis- drykkju”. I árganginum 1968 drekka 81,7% pilta og 80,9% stúlkna, í árganginum 1966 88,7% pilta og 87,6% stúlkna og í árganginum 1964 94,7% pilta og 91,2% stúlkna. Þar með er ljóst að áfengis- neysla breiðist út með hverju árinu sem árgangarnir eldast um. Nokkur munur er á milli landshluta, utan Reykjavíkursvæðisins eru ekki alveg eins margir við drykkjuna. Það munar þó ekkimiklu. Hins vegar reyndust áfengisnot- endur í eldri árgöngunum utan Reykjavíkur drekka öllu oftar en þeir á Reykjavíkursvæðinu. Meirihluti drykkjuæskunnar neytir áfengis mánaðarlega eða oftar, flestir 2—3 mánuði. Um 10% úr árganginum frá 1968 nota áfengi vikulega eða oftar, um 16% árgangsins 1966 og 25% árgangsins 1968. Um 40% allra höfðu notað áfengi næstu viku fyrir könnunina. Áfengisdauði Ekki vildu allir tjá sig um það hvort þeir hefðu dáið áfengisdauða, 15—16% svöruðu því ekki. Af svörum hinna varð markað að 30—50% höfðu dáið 1— 2 sinnum. I árganginum 1966 höfðu 12% pilta dáiö oft og 11% stúlkna, 13,2% pilta og 1,4% stúlkna í árganginum 1966 og 16,1% pilta og 4,7% stúlkna í ár- ganginum 1964. I ljós kom að útvegun áfengis er auðveld fyrir unglinga á þessum aldri, eftir ýmsum leiðum. Yfir helmingur þeirra yngstu kvaðst geta útvegað á- fengi samdægurs og nær allir þeir elstu. 40—70% sögöu foreldra sína vita um áfengisnevslu sína, 12—34% sögðu svo ekki vera en 15—26% vissu það ekkí. Þá sögðu 16—17% að erfiðleikar væru á heimilum þeirra vegna áfengisneyslu foreldra eða systkina, þar af sögöu 6— 7% slíka erfiðleika algenga. 76-78% sögðu engum slíkum vanda til að dreifa. Könnunin Sú könnun sem hér er vitnað til var gerð á vegum landlæknis og fleiri aðila í apríl í fyrra. Hún náði til framangreindra árganga skóla- nemenda. Af 3.000 sem spurðir voru svöruðu 2.136,1.241 í Reykjavík og ná- grenni, 895 í öðrum landshlutum. Um notkun annarra vímu- og fíkniefna birti DV helstu niðurstöður í forsíðufrétt í gær. Gerö verður frekari grein fyrir þeim á næstu dögum. -HERB.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.