Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Blaðsíða 5
DV. FIMMTUDAGUR10. OKTOBER1985. 5 Hitnar í kolunum hjá Hitaveitu Reykjavíkur: „LÆT EKKILEGGJA HALD Á MÍNAR EIGUR ÁTAKALAUSr’ — segirÞórhallurGunnlaugsson verktaki semsakar hitaveituna um samningsrof Það er mikill hiti viðar en í borholunum á Nesjavöllum. „Rannsóknarlögregla ríkisins haföi samband viö mig og tilkynnti mér aö búiö væri að vísa kæru minni frá — taldi málið einkamál mitt. Þetta sýnir að þaö er hægt aö leggja hendur á eignir annarra manna, án þess aö neitt sé aöhafst. Næsta skref hjá mér er aö leita aðstoðar lögfræö- ings,” sagöi Þórhallur Gunnlaugsson verktaki sem kæröi Jóhannes Zoega hitaveitustjóra og Árna Gunnarsson, yfirverkfræðing hitaveitunnar, fyrir samningsrof. Þórhallur var verktaki mötuneyt- isins við framkvæmdir Hitaveitu Reykjavíkur viö Nesjavelli. „Eg byrjaöi fyrst sem starfsmaöur hita- veitunnar en síöan tók ég að mér einkarekstur á mötuneytinu viö Nesjavelli. Um síðustu helgi hringdi Árni í mig og sagöi aö búiö væri aö segja samningnum viö mig upp og sagöi mér jafnframt aö mér væri heimilt aö fara að Nesjavöllum og taka persónulega hluti,” sagöi Þór- hallur. „Þetta eru vægast sagt furöuleg vinnubrögö því aö í samningi mín- um segir að rifta veröi samningum með eins mánaöar fyrirvara. Þá hef- ur hitaveitan lagt hald á lager minn sem hefur aö geyma vörur upp á hundruð þúsunda. Eg er ekki sáttur viö aö þaö sé hægt aö leggja hendur á mínar eignir á þennan hátt,” sagöi Þórhallur. Hverja telur þú ástæðuna fyrir því að samningnum var sagt upp? „Þaö hefur veriö lítið um að vera á Nesjavöllum frá 1. september þann- ig aö þaö getur veriö ástæðan fyrir samningsrofinu. En þaö réttlætir ekki aö eigur minar séu teknar traustataki. Ég hef heyrt aö Árni Gunnarsson hafi sagt að einkaskuld- ir mínar úti í bæ sverti nafn hitaveit- unnar. Ég skulda um fjögur hundruö þúsund krónur. Þaö er ekki óeðlilegt aö fyrirtæki, sem veltir fimmtán milljónum á ári og er með fljótandi lager, skuldi peninga,” sagöi Þór- hallur. „Ég er ákveöinn aö fá tjón mitt bætt og mun fara lagalegu leið- úia.” -SOS „Hefur valdið okkur miklum óþægindum” — segir Árni Gunnarsson, yf irverkf ræðingur Hitaveitu Reykjavíkur „Jú, þaö er rétt aö viö höfum sagt upp samningum viö Þórhall Gunn- laugsson. Astæðan fyrir því er aö hann hefur valdiö okkur miklum erfiðleikum — skuldar fyrirtækjum stórfé og þaö sem verra er að hann hefur notaö nafn hitaveitunnar í viö- skiptum sínum. Þetta hefur oröiö okkur til mikilla óþæginda,” sagöi Árni Gunnarsson, yfirverkfræðingur Hitaveitu Reykjavíkur. „Þessi vandræöi byrjuðu í sumar og leiddu til þess aö samningi viö Þórhall var sagt upp í júlí. Þá var hann búinn aö stofna til skulda hjá verslunum hér í Reykjavik. Viö héld- um aö hann myndi bæta ráð sitt þeg- ar hann fór aö versla viö Höfn hf. á Selfossi og var þá ákveðið aö fram- lengja samninginn. Síðan kom hann sér út úr húsi hjá Höfn. Viö sendum í sumar út bréf til ýmissa fyrirtækja og tilkynntum aö Þórhallur heföi ekki leyfi til að taka út vörur á nafni hitaveitunnar en hann haföi látið aö því liggja aö hann væri aö versla á vegum hitaveitunnar,” sagöi Árni. „Það má vel vera aö viö höfum ekki fariö eftir settum reglum þegar viö sögöum upp samningnum. En okkur fannst nóg komið af því góöa — vorum orönir langleiöir á ýmsum viðskiptavinum Þórhalls sem komu meö innheimtur til okkar. Þaö er ekki rétt aö viö séum að ræna frá manninum lager þeim sem hann var meö að Nesjavöllum. Þaö er nú veriö aö vinna aö því aö telja vörur á lagernum. Eftir þá vörutaln- úigu veröur gert upp viö Þórhall. Hann fær allt þaö sem hann á á lag- ernum greitt. Það er ekki verið aö stela einu né neinu frá honum,” sagöi Árni. -sos. „Stóð ekki við gefin loforð” — segir Kolbeinn I. Kristinsson hjá Höfn hf. á Selfossi „Ég hef alltaf haft þaö fyrir stefnu aö veita viöskiptavinum okkar sem besta þjónustu — eins góða og viö mögulega getum. Ég verð aö segja eins og er aö viö höfum ekki áður lent í svona ævintýramanni,” sagöi Kol- beinn I. Kristinsson, framkvæmda- stjóri verslunarinnar Hafnar hf. á Selfossi, þegar viö spuröum hann hvort Þórhallur Gunnlaugsson skuld- aöi versluninni háar peningaupp- hæöir. „Jú, Þórhallur skuldar okkur þó- nokkrar peningaupphæðir sem hann fékk hér á röngum forsendum. Hann tjáöi okkur að Hitaveita Reykjavíkur stæöi bak viö hann. Hann stóö ekki viö gefin loforð — loforð á loforö ofan, sem ekki stóöust. Það endaði meö því aö viö lokuðum á viöskipti mannsins,” sagöi Kolbeinn. „Hitaveita Reykjavíkur sendi okk- ur bréf þess efnis aö Þórhallur væri henni óviökomandi og ekki á hennar vegum. Þetta bréf kom til okkar eftir að Þórhallur var byrjaöur að versla viö okkur. Viö munum senda þessar skuldir til innheimtu. Málið er nú á frumstigi,” sagöi Kolbeinn. -sos. Hlaðvarpinn ekki undir hamarinn í fyrradag greiddu forráðamenn Vesturgötu 3 hf. 1.350 þúsundir króna í afborgun af húsum þeim er konur keyptu nýlega viö Vesturgötuna. Hús- úi, sem ganga nú undir nafninu Hlað- varpinn, fara því ekki undir hamarinn eins og sögusagnir voru um. Fyrir helgi var reyndar útlit fyrir aö ekki tækist aö greiða þessa afborgun. „Okkur tókst þaö og þaö á réttum tíma,” sagöi Helga Bachmann, for- maöur Vesturgötu hf., við DV. Hún sagöi að hlutabréfasala heföi stórauk- ist undanfarna daga. Fólk væri nú aö komast að þvi hvers konar húsi væri verið aö fjárfesta í og þaö hefði trú á þessu. Næsta og jafnmikil útborgun stendur fyrir dyrum eftir einn mánuö. Helga sagöist vera mjög bjartsýn á aö það tækist aö safna saman nægilegu fé í þá útborgun. APH. Þettaer útvarpsklukku landsliðið LED-11 Falleg dlgltal útvarpsklukka, meÖ FM (Rás 2) og MW. Fyrlr rafstraum og rafhlööur. Vekur meö tónl eöa útvarpi. Litur: Blár, rauður og beige. LED-22 Kr. 2.150 Lítil og snotur dlgltal útvarpsklukka. Meö FM (Rás 2) og MW, á ótrúlegu veröl. Lltur hvítur. Vekur meö tónl eða útvarpl. Kr. 1.990 LED-35 Nýjasti meðllmurinn I útvarpsklukku-landsllö- Inu. Með FM (Rás 2) og MW. Vekur meö tóni eöa l útvarpl. Fyrlr rafstraum i* og rafhlöður. Nýtiskulegti útllt og gott verð. Kr. 2.250 LED-44 Lagleg dlgltal útvarpsklukka í þremur lltum: rauöum, bláum og belge. Með FM (Rás 2) og MW. Vekur með tónl eða útvarpl. Fyrlr rafstraum og rafhlóður. Kr. 2 JbOO LED-888 Fágað og stílhrelnt útllt. Lltur: dökk-brún. FM (Rás 2| og MW. Vekur með tónl eöa útvarpi. Fyrlr rafstraum og rafhlöður. Kr. 2.990 LED-999 Dlgltal útvarpsklukka hlnna vandlátu! Útvarp með FM stereo (Rás 2) og MW. Vekur með útvarpl eða tónl. Fyrlr rafstraum og rafhlöður. Frábær tóngæði og klassa útllt. Kr. 3.500 m Póstkröfusendingar samdægurs. SJONVARPS BUÐIN Lágmúla 7 — Reykjavík Simi 68 53 33

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.