Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Blaðsíða 3
DV. FIMMTUDAGUR10. OKTOBER1985.
3
VERTU
MED
Gerum föstu-
daginn
að slysa-
lausum degi
— er kjörorð umferðar-
vikunnar í Reykjavík
Hápunktur umferöarvikunnar í
Reykjavík verður á morgun en þá er
stefnt aö „slysalausum degi” í Reykja-
vík. Þaö verður mikiö um aö vera viö
götur og á götum borgarinnar. Lög-
reglan leggur áherslu á hraöamæling-
ar þennan dag og Slysavarnafélag Is-
lands veröur meö sérstaka gang-
brautavörslu í borginni.
Umferðarvikan hefur vakiö mikla
athygli og umtal en umferðaróhöpp
hafa ekki minnkað frá því á sama tíma
á sl. ári. Á mánudaginn uröu 27 um-
ferðaróhöpp (tvö slys) en sama dag
1984 uröu umferðaróhöppin 15 (þrjú
slys). Á þriöjudaginn urðu 11 um-
ferðaróhöpp (eitt slys) en fyrir ári 14
umferðaróhöpp (eittslys).
-sos.
Nýtt rit um
kjarnorkuvetur:
Kuldi, myrkur
ogútfjólu-
bláttljós
Niðurstööur nýrra rannsókna á
„kjarnorkuvetri”, áhrifum kjarnorku-
styrjaldar á lífríki og veöurfar, sem
framkvæmdar voru af nefnd á vegum
alþjóöaráðs vísindamanna, voru birtar
nýlega. Þar segir aö hiti á
meginlöndum á noröurhveli muni
lækka um 15—35 stig á nokkrum vikum
í kjölfar kjarnorkustyrjaldar og aö
kuldi, myrkur og útf jólublátt ljós muni
hafa mjög alvarleg áhrif á dýralíf og
gróöur.
Hitafalliö yröi þó minna á strand-
svæöum og eyjum þannig að viö
Islendingar yrðum líklega ekki eins
illa úti vegna hræðilegra afleiöinga
kjarnorkustríðs.
I eftirmála ritsins Kjarnorkuvetur,
sem nýlega er komið út á íslensku, er
fjallað um hugsanleg áhrif
„kjarnorkuvetrar” á Island.
Samtök íslenskra eðlisfræðinga og
samtök lækna gegn kjarnorkuvá
hyggjast nú beita sér fyrir aukinni
fræðslu í þessum efnum og geta þeir
sem áhuga hafa á slíkri fræðslu leitaö
til þessara samtaka.
________________________-KB.
Kynna almenningi
skólastarfið
Laugardaginn 2. nóvember næst-
komandi fer fram sérstök kynning
á almennu skólastarfi í grunnskólum
landsins. Aö þessari kynningu stendur
Kennarasamband Islands í samráöi
við menntamálaráðuneytið.
Markmiöiö er aö kynna aðstand-
endum barna og öðrum þaö starf sem
fer fram í grunnskólum landsins og
vinnuaöstööu kennara og nemenda.
Mánudaginn 4. nóvember fellur
niður kennsla en kennt verður sam-
kvæmt stundaskrá þess dags á laugar-
deginum.
Brottreksturinn í Kvennaathvarf inu:
VERIÐ AÐ SOA
FÉ ALMENNINGS
Sú ákvöröun félagsfundar æösta
ráös Kvennaathvarfsins um aö rifta
ráðningarsamningi Steinunnar
Bjarnadóttur hefur mælst illa fyrir
meðal margra. Bent hefur veriö á aö
ekki hafi veriö skýrt frá því hvers
vegna hún var rekin og einnig að
Kvennaathvarfiö sé fjárvana og meö
þessari uppsögn sé í raun veriö aö
kasta út um gluggann 3 til 4 mánaða
launum sem Steinunn á kröfu á.
Aöalheiöur Bjarnfreösdóttir, for-
maður starfsmannafélagsins Sókn-
ar, er ekki hress yfir þessari upp-
sögn. Hún segir aö Sókn líti svo á aö
félagiö sé einn af aðstandendum
Kvennaathvarfsins, m.a. vegna þess
aö þaö hafi stutt þaö með f járgjöfum.
„En það er ljóst aö svona lagað
getur ekki gengið aö starfsmaður
skuli vera hrakinn frá störfum. Með
þessu er hreinlega veriö aö kasta
peningum. Þetta getur oröiö til þess
aö fólk missir trúna á Kvennaat-
hvarfið,” segir Aðalheiöur. Hún
bendir einnig á að fulltrúum félaga-
samtaka, sem stutt hafa Kvennaat-
hvarfiö, hafi verið meinaö aö greiöa
atkvæði á fundinum. Slikt sam-
ræmist ekki venjulegum félagsstörf-
um.
Björg Einarsdóttir var ein þeirra
kvenna sem mættu á félagsfundinn.
Hún gekk af fundi vegna þess aö eng-
ar skýringar fengust á því hvers
vegna víkja ætti Steinunni úr starfi.
Hún segir aö eölilegast hefði veriö aö
kalla til óháöan aöila til að leita sátta
í þessari deilu. Tillaga þess efnis á
fundinum var felld.
„Mér er annt um þetta Kvennaat-
hvarf og þaö hefur sýnt sig aö þaö er
mikil þörf fyrir það. Þessi starfsemi
má ekki leggjast niður. Hins vegar
sýnist mér aö ef á aö fá allt starfsfé
úr opinberum sjóöum eigi að meö-
höndla þetta athvarf eins og hverja
aöra stofnun,” segir Björg. Hún
bendir á aö að þaö sé vafasamt að
skattborgararnir veiti fé til meö-
höndlunar án eftirlits. En þaö er ein-
mitt eitt af því sem hefur veriö gagn-
rýnt í sambandi við Kvennaathvarfið
aö ekki sé nægilegt eftirlit með því
hvernig peningar þess eru notaöir.
APH.
Þinghaldið
hefstídag
I dag verður 108. löggefandi þing Is-
lendinga sett. Setningin mun fara fram
með hefðbundnum hætti.
Þingmenn, ásamt forseta Islands,
munu hlýöa messu í Dómkirkjunni
sem hefst klukkan 14. Aö henni lokinni
fara þingmenn í þingsal þar sem þeir
munu hlýða á forseta Islands flytja for-
setabréf. Þá verður einnig minnst lát-
inna þingmanna.
Skki er ljóst hvort forsetar þingsins,
varaforsetar og ritarar veröa kosnir í
dag eöa hvort þingi veröur frestaö
fram til mánudags aö loknum hefö-
bundnumsetningarstörfum. APH
Hvalvíkin
meðfarm
tilS-Afríku
Hvalvík, skip í eigu skipafélagsins
Víkur, er nú á leið frá Englandi til
Durbin í Suður-Afríku meö farm sem
mun vera efni til iönaöarframleiðslu.
Að sögn Finnboga Kjeld, forstjóra
Víkur, bauð skipafélagið í þetta verk-
efni sem breskt fyrirtæki hefur milli-
göngu um. Hvaöa aöilar í S-Afríku eru
að kaupa farminn af Bretum liggur
ekki fyrir. Finnbogi sagði að einungis
hefði verið samiö um þessa einu ferð
og engir langtímasamningar í uppsigl-
ingu við þessa bresku aðila.
„Viö hjá félaginu tökum enga af-
stöðu til málefna í S-Afríku. Hvalvíkin
var stödd í Englandi þegar þessir
flutningar áttu aö fara fram og því
hentuðu þessi viðskipti okkur ágæt-
lega,” sagði Finnbogi.
Samkvæmt upplýsingum frá utan-
ríkisráöuneytinu eru þessi viðskipti
skipafélagsins ekki brot á neinum
formlegum alþjóölegum skuldbinding-
um sem Islandi ber aö framfylgja.
Hins vegar sé matsatriöi hvort þær
samræmist anda þeirrar refsistefnu
sem Islendingar fylgja gagnvart gangi
mála í Suður-Afríku. KB
Frakkar og Italir kynna íslendingum nýja flugvél:
Bjóða fyrirmönnum þjóðarinnar í flug
DV-mynd Bj. Bj.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti Is-
lands, Albert Guömundsson fjár-
málaráöherra og Jóhannes Nordal
seölabankastjóri eru í hópi þeirra
sem sérstaklega hefur veriö boöið í
flugferð meö hinni nýju frönsk-ít-
ölsku flugvél ATR 42 næstkomandi
mánudag.
Sölumenn flugvélarinnar ætla sér
greinilega aö taka Islandsmarkaö
meö trompi. Þeir veröa hérlendis á
sunnudag og mánudag til aö kynna
Islendingum gripinn. Einkum ein-
beita þeir sér aö Flugleiðamönnum.
Þeir hafa boðið um sextíu manns í
flugferö. Auk fyrrnefndra fyrir-
manna eru á gestalistanum fleiri
ráðherrar og bankastjórar, alþingis-
menn, ráöuneytisstjórar og fleiri
ráöuneytismenn, frammámenn í at-
vinnulífinu, ritstjórar og blaðamenn
og auövitað frammámenn í flugi,
bæði hjá hinu opinbera og hjá flugfé-
lögum, og ýmsir fleiri. Hvort allur
þessi hópur þiggur boöið er svo ann-
aö mál.
ATR 42 flugvélin er væntanleg til
landsins á sunnudag klukkan 15. Síö-
degis þann dag veröur fariö meö
Flugleiöamenn í reynsluflug. ATR-
menn vita sem er aö Flugleiðir eru
aö huga aö endurnýjun innanlands-
flugflotans. ATR 42 svipar til Fokker
Friendship í útliti og stærö og er talin
henta vel aðstæðum hérlendis.
Meö flugvélinni koma þrettán
Likan af ATR 42 i litum Flugleiða.
manns, þar á meöal æöstu ráöamenn
Aerospatiale og Aeritalia flugvéla-
verksmiðjanna en þær standa saman
aö smíði ATR 42. Frá Islandi heldur
flugvélin til Kanada og Bandaríkj-
anna og verður þaö hennar fyrsta
ferö út fyrir Evrópu.
Gestir á heimilissýningunni í
Laugardalshöll í haust hafa væntan-
'ega skoðaö sýningarbás Aerospati-
ale en þar var ATR 42 flugvélin
kynnt. -KMU.