Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Side 9
DV. FIMMTUDAGUR10. OKTOBER1985.
9
Yul Brynner dá-
inn af krabba
fjögur börn þeirra voru við banabeð
hans þegar hann skildi við. — Þótti
læknum hans hann bregðast karl-
mannlega við dauöa sínum, af styrk
og virðuleik, sem fáum væri gefiö.
Það fréttist fyrst um veikindi Yul
Brynners, sem voru krabbamein í
lungum, í september 1983. Þá haföi
hann rétt lokið við endurgerð
„Konungurinn og ég”, sem á sínum
tíma geröi hann frægan. — Brynner
hlaut óskarsverðlaunin 1956 fyrir
hlutverk konungsins í Síam í sam-
nefndri kvikmynd.
Brynner var fæddur á Sakhalin-
eyju, sem er milli Japans og Síberíu,
þar sem nú er mikil herbækistöð
Sovétmanna. Faðir hans var að hálfu
Svisslendingur og aö hálfu mongóli,
en móðir hans var að sögn Brynners
hreinræktaður sígauni frá Bessara-
bíu við Svartahaf. Móðirin dó viö
fæðingu Brynners og honum var
komið til fósturs hjá ættmennum i
Frakklandi.
Brynner gekk ungur í fjölleikahús
til loftfimleika en varð fyrir slysi 17
ára og átti við bakmeiðsli að stríða
síðan. Meö hópi sígauna hóf hann
feril sem skemmtikraftur við nætur-
klúbba.
Flutti hann síðar til New York og
varð þáttagerðarmaður hjá CBS á
fyrstu árum sjónvarps og þar fékk
Oscar Hammerstein augastað á
honum til hlutverksins í „Konungur-
innogég”.
Yul Brynner eins og vifl þekkjum
hann: sköllótt hörkutól.
Yul Brynner, kvikmyndaleikarinn aldri. Dánarorsökin var krabba-
frægi, sem innleiddi skalla í hártísku mein.
karla, andaðist í morgun, 65 ára að Eiginkona hans, Kathy Lee, og
Útlönd Útlönd Útlönd
Úgandamenn fagna
blóðugu sjálfstæði
Það var fyrir 23 árum að ungur her-
foringi, Idi Amin að nafni, tók niður
breska fánann yfir landi sínu og reisti
rauöan og gulan frelsisfánann í stað-
inn. I gær héldu Ugandamenn upp á
sjálfstæðisafmæli sitt á tvískiptum
blóðvelli.
Við hátíðahöldin fyrir 23 árum var
staddur Milton Obote, forsætisráð-
Nakasone
til New York
Yasuhiro Nakasone, forsætisráð-
herra Japans, ætlar að þekkjast boð
Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta aö
hitta hann að máli í New York ásamt
öðrum leiðtogum vestrænna ríkja.
Reagan bauö leiðtogum Bretlands,
Japans, Frakklands, Italiu, Kanada og
Vestur-Þýskalands að hitta sig fyrir
viðræður Reagans við Mikhail Gorbat-
sjov, leiðtoga Sovétríkjanna.
Frökkum mislíkaði tilkvaöningin og
Mitterrand mun ekki mæta. Nakasone
móðgaöist hins vegar ekki að því er
virðist.
herra hins nýsjálfstæða lands. Amin
átti eftir að steypa honum af stóli en
Obote átti síðan eftir að taka við á ný.
Nú nýlega var Obote aftur steypt og
herinn tók völdin.
Allan þennan tíma hefur verið háð
skæruliðastríð í landinu. Fá Afríkulönd
hafa þurft að búa við svo stöðugt blóð-
blað, stöðug víg. Kirkja og stjómmála-
menn í Uganda segja að búast megi við
hinu sama ef ekki komi eitthvað út úr
viðræðum skæruliða og hersins sem
hafa farið fram að undanförnu í
Kenýa.
Hermennirnir eru flestir frá
ættbálkum Nílarhéraða, en
skæruliðarnir eru bantúmenn frá
Suður- og Austur-Úganda.
Viðræðurnar í Kenýa hafa legið
niðri í um það bil mánuð, en heimildar-
menn segja að þær muni líklega hefj-
ast að nýju eftir eina viku. Stjórn
landsins segist vilja að allir herhópar
landsins leggi niður vopn og friðar-
gæslumenn Sameinuðu þjóðanna sjái
um öryggisgæslu. Skæruliðar segjast
ekki munu láta vopn sín af hendi. Þeir
vilja sína menn í her Uganda.
Sérfræðingar segja að margar kyn-
slóðir hafi alið á vantrausti fólks úr
suðri á fólki úr norðri. Það taki margar
kynslóðir aö komast yfir slíkt van-
traust.
LITLIJÚGÓ
STÓR í
AMERÍKU
Eftirspurn eftir Júgó-bílnum frá
Júgóslavíu er orðin svo mikil í
Bandaríkjunum að Júgóslavar
hafa ekki undan að smíða bíla á
Bandaríkjamarkaö. Júgó-bílarnir
eru þeir ódýrustu sem hægt er að fá
þar í landi, kosta ekki nema 3.990
dollara eða um 160.000 krónur ís-
lenskar.
Það er Zastava fyrirtækið sem
framleiðir Júgó. Yfirmenn inn-
flutningsfyrirtækisins í Bandaríkj-
unum hafa beðið kollega sína .ijá
Zastava að „nota svipuna” á roenn
sína svo þeir geti framleitt 7.000
bíla á mánuði í félitla Bandaríkja-
menn.
ER ÞINN BILL
. KLAR
IVETURINN?
VETRARSKDDUNI
38 ATRIÐUM FYRIR
SK0DA
ALFAR0ME0
CHRYSLER
Vélarþvottur
Stilltir ventlar
Platínur stilltar eöa skipt um
Ath. kveikjuhamar
Ath. kveikjulok
Mældir kveikjupræðir i
Kveikja smurö
Kerti ath. Skipt ef parf
Stilltur Plöndungur
Hreinsuö eöa skipt um Pensínsíu
Hreinsuö eöa skipt um loftsíu
Mæld hleösla
vélarstilling
Ath. bensínslöngur
Ath. viftureimar
Smurö vatnsdæla
Mældur frostlögur
Ath. þéttingar kælikerfis
Mæld vélarolía
Ath. vélarpéttingar
Mæld gírkassaolía
Ath. gírkassapéttingar
Mældur rafgeymir
Hreinsuð geymasambönd
Stillt kúpling
Smurö kúplingslega
Mældur hemlavökvi
Ath. hemlar
Ath. handhemill
Ath. höggdeyfar
Ath. stýrisgangur
Smurö Pensíngjöf
Ath. bensíninnsog
Ath. þurrkublöö
Ath. rúöusprautur
Ath. hjólbaröar
Ljósaskoöun
Reynsluakstur
VERÐ M. SÖLUSKATTI:
0SKODA KR. 2.145
í/í/í/’ Ú^crrrct/' KR. 2.860
■TjMf 4 CYL. 6 CYL. IchryslerI R rvi KR. 2.145 KR. 2.470 KR. 2.860
SIÐLAUS TRYGGING?
Norski félagsmálaráðherrann og
norskt tryggingafélag komu sér í
klandur þegar ráöherrann leyfði
tryggingafélaginu aö tryggja hjón
gegn því að börn þeirra fæddust hreyfi-
hömluð.
Foreldrar hreyfihamlaðra barna
mótmæltu kröftuglega og sögðu for-
dómalykt vera af tryggingunni. Hún
gæti líka haft það í för með sér að í
framtíöinni færu tryggingafélög sem
versluðu með slíkar tryggingar aö
heimta þaö aö ófrískar konur létu
kanna hvort fóstur þeirra væru heil-
brigð. Slíkt myndi síðan auka á fóstur-
eyðingar.
Ráðherrann sá sig um hönd og eftir
að hann hafði talað við trygginga-
félagiö dró það tryggingu sína til baka.
EJ
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI2
KÓPAVOGI
SÍMI 42600
Þóra Dal, auglýsingastofa