Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Qupperneq 18
18
DV. FIMMTUDAGUR10. OKTOBER1985.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Keflvíkingar sækja að körfu Valsmanna i gærkvöldi.
DV-mynd Guðmundur Franz Jónasson
Wile sagði
nei, takk
— og lan Green verður
nú líklega boðin
stjórastaðan hjá WBA
Frá Sigurbirni Aöalsteinssyni,
fréttaritara DV í Englandi:
John Wile, framkvæmdastjóri
Peterborough, neitaði í gær boði
um að gerast stjóri WBA. Neitun
Wile kom mönnum vægast sagt
mikíð á óvart en Wile lék á sínum
gullaldarárum með WBA-liðinu.
Likiegastur i stjórastólinn
þykir nú Ian Green sem var áður
stjóri hjá Wolves, en er nú hjá
Mansfieid.
-fros
Hartwig
f rá Köln
— Austria
Salzburgkeypti
Frá Atla Hilmarssyni, frétta-
ritara DV í V-Þýskalaudi:
Jimmy Hartwig var í gær
seldur frá Köln til austurríska
félagsins Austria Salzburg.
Kaupverðið var ekki gefið upp.
Hartwig var löngum
umdeildur sem leikmaður hjá
Köln. Hann þótti nokkur vand-
ræðagripur lengst af dvöi sinni
þar en í vetur fannst mönnum
sem piltur hefði mikið batnað.
Salan á honum kom því nokkuð á
óvart.
-fros.
Sex 3-stiga körff ur
Hreins dugðu ekki ÍBK
Valsmenn reyndust seigari í úrvalsdeildarleik liðanna í gærkvöldi og sigruðu, 86:77
Frá Magnúsi Gíslasyni, fréttaritara
DV á Suðurnesjum:
Siæmur kafli nýliða ÍBK gerði út um
vonir liðsins er það mætti Val í úrvals-
deildinni í körfubolta í gærkvöldi.
Leikið var í Keflavik og það var ekki
fyrr en um miðjan síðari hálfleikinn
að Vaismenn náðu frumkvæðinu.
Keflavík var þá stigalaust á sjöttu
minútu og á meðan skoraði Valur tólf
stig. Eftir það var aldrei spurning um
úrslit. Lokatölur 86—77 Val í hag.
Hreinn Þorkelsson, þjálfari og leik-
maður IBK, byrjaði leikinn á þriggja
stiga skoti en hann átti eftir að reynast
iðinn við þau áður en leiktíminn var
úti. Skoraði sex þriggja stiga körfur í
leiknum þrátt fyrir að hafa lítið getaö
breytt sér vegna villuvandræða.
Hreinn hreppti sína þriðju villu strax á
áttundu mínútu leiksins.
Leikurinn var í járnum lengst af.
Bæöi liöin léku oft ágætlega og
nýliöarnir virtust eiga i fullu tré viö
Valsmennina. I hálfleik höfðu þeirstigi
betur, 47—46, þrátt fyrir aö Keflvíking-
ar heföu um tíma haft fimm stiga for-
skot.
Hinn slæmi kafli heimamanna kom
síðan er ellefu mínútur voru til leiks-
loka. Staðan var þá 62—61 Keflavík í
hag. Valsmenn juku þá við hraðann og
liðsmenn ÍBK hreinlega sátu eftir.
Þegar þeir komust á lappir aftur var
staðan 73—62 og sigur Vals komst
aldrei í hættu eftir þaö. Keflavík
skoraði þr jár síðustu körfur leiksins og
voru það allt þriggja stiga körfur.
Valsmaðurinn Einar Olafsson var
tvímælalaust maður þessa leiks. Þá
var Tómas Holton þrælhittinn og Torfi
Magnússon stjórnaði vörn Vals af
miklu öryggi.
Guðjón Skúlason átti bestan leik
Keflvíkinga en frammistöðu Hreins
ber einnig hátt. Þá átti Jón Kr. Gísla-
son góðan leik en greinilegt er aö
breiddin er ekki nægjanleg hjá liöinu.
Stig Vals: Einar Olafsson 24, Tómas
22, Torfi og Sturla Örlygsson 11, Leifur
Gústafsson 10, Sigurður Bjartmarz,
Jóhannes Magnússon, Páll Arnar og
Björn Zoega 2.
Stig IBK: Hreinn 27, Guðjón 20, Jón
19, Ölafur Gottskálksson 6, Matti
Oswald 4 og Pétur Jónsson 2.
Jón Otti Jónsson og Omar Scheving
áttu í litlum vandræðum með dóm-
gæzluna. Áhorfendur voru 205. -fros.
Draumabyrjun Stuttgart
dugði skammt í Mannheim
Ásgeir Sigurvinsson skoraði eftir tvær mínútur en það var ekki
Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara DV
íÞýskalandi:
Þrjú skaliamörk Thomas Remark
fyrir Mannheim á fimmtán minútna
kafla í byrjun seinni hálfleiks slökktu
allar vonir Stuttgart, liðs Ásgeirs
Sigurvinssonar. Liðin mættust í gær-
kvöldi í Bundesligunni og þrátt fyrir
draumabyrjun Ásgeirs og félaga þá
þurftu þeir að sjá á bak báðum
stigunum í 5—3 tapi.
Knattspyrnudeild
Fylkis
óskar að ráða þjálfara fyrir meistaraflokk karla.
Tilboð merkt „Fylkir" sendist til auglýsingaþjónustu
DV, Þverholti 11, fyrir þriðjudaginn 15. okt.
Það var Ásgeir Sigurvinsson sem
skoraði strax á 2. mínútu fyrir Stutt-
gart mark úr vítaspyrnu eftir að brotið
hafði veriö á Andreas Muller. Gaudinio
svaraði fyrir heimaliðiö með marki
skoruöu af stuttu færi. Markakóngur
Stuttgart, Karl Allgöver, var síðan á
ferðinni fyrir hlé er hann skoraði sitt
tíunda mark í deildinni á þessu
keppnistimabili.
Vörn Stuttgart svaf sínu værasta í
byrjun seinni hálfleiks. 1 þrígang var
Thomas Remark einn á auðum sjó og
hann nýtti sér það til hins ýtrasta.
Alfreð Schön bætti við fimmta marki
Mannheim en Jurgen Hartman átti
lokaorðið fyrir Stuttgart.
Ásgeir átti ekkert sérstakan dag
með Stuttgart að þessu sinni. Lítið bar
á honum í leiknum.
Karl Allgöver: Markahæsturi
Bundesligunni.
5reknirútaf
Brasilískir knattspyrnumenn
láta ekki að sér hæða. Þannig
var deildaieikur Sao Paulo, liðs
Falcao, gegn Paulista heldur
sögulegur. Fimm leikmenn
Paulista liðsins voru reknir af
velli. Þurfti þá að stöðva ieikinn
vegna þess að ekki mega færri cn
sjö vera í knattspyrnuliði. Ekki
fóru neinar sögur af úrslitum
lciksins.
-fros.
Coeck
látinn
Ludo Coeck dó í gær af völdum
meiðsla er hann varð fyrir í
biisiysi. Coeck iá á sjúkrahúsi í
Brussel en ekki tókst að gera að
meiðslum hans.
Coeck lék 46 landsleiki með
Belgíu. Hann lék lengst af með
liði Anderlecht en var seldur í
fyrra til ítalska félagsins Inter
Milano. Coeck gat lítiö leikið með
því vegna meiðsla í ökkla. Hann
varþrituguraðaldri.
-fros.
Allgöverog
Remark
— eru markahæstir
íBundesligunni
Frá Atla Hiimarssyni, frétta-
ritara DV í Þýskalandi:
Kari Allgöver, Stuttgart, og
Mannheimleikmaðurinn Thomas
Remark eru nú markahæstu ieik-
mennirnir í v-þýsku Bundeslíg-
unni. Hafa báðir skoraö tíu mörk.
Werder Bremen leikmaðurinn
Rudi Völler kemur þeim svo
næstur mcð átta mörk.
-fros.