Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1985, Síða 40
FR ÉTTASKOTIÐ
Simi ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, simi 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sém birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1985.
Securitas
að semja?
Ýmislegt benti til þess i morgun.
aö samningar gætu tekist í dag i
kjaradeilu öryggisvaröa Securitas
viö fyrirtækiö. Framkvæmdastjóri
Securitas, Jóhann Oli Guðmunds-
son, átti í nótt óformlegan og
óvæntan fund meö fulltrúum
starfsmanna.
Skriöur var þegar farinn aö
komast á málin í gærkvöldi eftir að
öryggisverðir gáfu fyrirtækinu
auknar undanþágur frá verkfall-
inu. 1 staö eins manns var Securit-
as heimilaö aö hafa þrjá menn í
vinnu til aö sinna neyðarþjónustu
og lágmarksgæslu.
I framhaldi af undanþágunum
hófust þreifingar sem leiddu til
óformlegs fundar í nótt milli klukk-
an fjögur og sex. Samkvæmt heim-
ildum DV gerðist þar ýmislegt
jákvætt. -KMU.
Líkið fannst
íHelguvík
Lík björgunarsveitarmannsins
úr Keflavík fannst í gærkvöldi í
Helguvík, á 27 m dýpi — stutt frá
þeim stað þar sem maðurinn féll
útbyrðis. Þaö voru menn úr
Hjálparsveit skáta í Njarðvík sem
fundu líkið meö aöstoð neðan-
sjávarmyndavéla. Hinn látni hét
Eyjólfur Ben Sigurðsson. Hann var
21 árs, ókvæntur. -SOS
Flutninga-
bifreið valt
Vöruflutningabifreið frá Dalvík
fór út af veginum og valt í Arnar-
neshreppi við Eyjaf jörð í morgun.
Þetta óhapp átti sér stað laust fyrir
kl. sex. Ekkert alvariegt slys varð
á mönnum. Verið var að vinna að
þvi að koma bifreiðinni á réttan
kjöl i morgun en bifreiðin er 20—30
lestirfulllestuð. -SOS
EINANGRUNAR
GLER
666160
LOKK
Sko Albert, enn skorar
hann á siðustu mínútun-
um!
5000 stolnar norskar
bækur á leið hingað?
Hugsanlegt er að Islendingar fái
5000 bækur sendar frá Noregi á næst-
unni. Þessar bækur veröa sendar af
„skæruliðaskáldum” í Noregi sem
tóku þær ófrjálsri hendi á bókasafni
einu þar í landi.
Skæruliðaskáld þessi eru hópur
skálda sem una hag sínum illa í
Noregi. Þau hafa undanfariö ár ver-
ið með ýmsar uppákomur til að
vekja athygli á slæmum kjörum sín-
um. Ein þessara aögerða fólst í því
aö taka þessar 5000 bækur frá bóka-
safni einu. Bækurnar voru reyndar
komnar í geymslu og stóð til að kasta
þeim. Meöal þessara bóka var ein
bók sem núverandi menningarmála-
ráöhérra Noregs, Lars Roar
Langslet, gaf út fyrir 20 árum. Hún
hafði aðeins einu sinni verið lánuð út
af safninu og segjast skáldin hafa
heimildir fyrir því að það hafi verið
frænka hans sem fékk bókina að láni.
I ágúst sl. voru bækurnar afhentar
Islendingum til varðveislu því að
skáldin telja að þessar bækur séu bet-
ur komnar í höndum Islendinga því
þeir hafi mun meiri áhuga á bók-
menntum en Norðmenn. I frétt í
norsku dagblaði segir að þar hafi tvö
íslensk skáld tekið á móti bókunum
og segir ennfremur að þau hafi verið
send út af örkinni af forseta Is-
lands. Þessu neitaði síðan forsetinn í
viötali við sama blað þegar hún var
stödd í Bergen.
„Eg var ekki beint útnefndur af
Vigdísi en skáldin útnefndu mig sem
fulltrúa Islands,” segir Kristján
Hreinsson skáld sem búsettur er í
Bergen og var annar þeirra Islend-
inga sem tók við þessum bókum.
Hinn var Jón Sveinbjörn Jónsson.
Kristján segist ekki vita hvað orðiö
hafi af bókunum en segir að skáldin
norsku hafi ætlað að sjá um að senda
bækurnar tii Islands.
APH.
Nokkuð hefur verið um að gangandi vegfarendur hafi orðið fyrir bifreiðum siðustu daga. Þessi mynd var
tekin á Njálsgötunni i gær en þar hafði kona orðið fyrir bifreið. DV-mynd S.
Mikil fjölgun
umferðaróhappa
— þrátt fyrir áróður í umf erðarvikunni
. Þrátt fyrir mikinn áróður og I Frá kl. sex í gærmorgun til kl. sex í | ar (5 slys) en á sama tíma í fyrra voru
upplýsingastarf þessa dagana er ekk- morgun uröu sautján árekstrar í 44árekstrar (5slys).
ert lát á umferðaróhöppum í Reykjavík og þrjú umferðarslys. I I SOS
höfuðborginni. þessari viku hafa því orðið 55 árekstr-
Kauphækkun BSRB:
Annað launa-
m r || m rm
folkfai
þetta líka
„Rikisstjómin er greinilega að
gera ráðstafanir til þess að mæta
þeim verðhækkunum sem orðið
hafa umfram það sem gert var ráð
fyrir við samningagerð,” sagði As-
mundur Stefánsson, forseti ASI, í
samtali við DV í morgun um kaup-
hækkun BSRB-launþega.
„Ríkisstjórnin hlýtur að ætlast
til að þessi hækkun komi einnig til
fólks á almennum vinnumarkaði.
Miðað við síðustu spár virðist raun-
ar sem þessi hækkun muni varla
duga til að halda þeim kaupmætti
sem samningar gerðu ráð fyrir 1.
desember.” -ÞG
Staðgreiðsla til
bændatryggð
„Eg tel að næsta greiðsla verði
svipuð og nú eða um tuttugu
milljónir króna og komi niunda til
tíunda nóvember,” sagði Gunnar
Guðbjartsson, framkvæmdastjóri
Framleiðsluráðs landbúnaðarins, í
samtali við DV í morgun. Til að
standa við ákvæði í nýju
búvörulögunum hefur fjármála-
ráðuneytið gengiö frá lántöku í
Seðlabankanum vegna
staðgreiðslu búvöruverðs.
600 milljónir króna er láns-
upphæðin. Fyrsta greiðsla til
bænda fór fram í gær eða 20
milljónir króna vegna mjólkur-
verðs. Nóvembergreiðslan verður
einnig til greiðslu mjólkur. En í
desember þarf aö greiða bænduin
kjötverð og áætlaði Gunnar að það
yrðiumhálfmilljónkróna. -ÞG.
Folsunarmál í flugtumi
Rannsóknarlögreglan á Kefla-
víkurflugvelli hefur nú til rannsókn-
ar fölsunarmál sem upp er komiö hjá
Flugmálastjórn og Kaupfélagi
Suðurnesja. Vörur voru teknar út hjá
Kaupfélaginu og skrifaöar á reikning
Flugmálastjórnar með falsaöri
undirskrift aö því er virðist.
Upphaf málsins er það aö í sumar
barst Flugmálastjórn á Keflavíkur-
flugvelli reikningur fyrir úttekt á
ýmsum ferðavörum, útigrilli og
fleiru, að fjárhæð um sex þúsund
krónur. Sá sem tók út vörurnar
skrifaði undir nafn ungs flugum-
ferðarstjóra.
Viðkomandi flugumferöarstjóri
kannast ekki viö vöruúttektina.
Heldur hann því fram að einhver
annar hafi vísvitandi falsað hans
nafn. Bendir flugumferðarstjórinn á
aö undirskrift nótunnar sé ólík hans
eigin.
Mál þetta er viðkvæmt í flugturn-
inum á Keflavíkurflugvelli þar sem
töluverður styr hefur staðið um
ráðningu umrædds flugumferöar-
stjóra þangað. Ekki er talið útilokað
að annar flugumferðarstjóri hafi
falsað undirskriftina í þeim tilgangi
að koma samstarfsmanni sínum í
klípu. Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar liggur þó enginn undir grun.
Starfsmenn Flugmálastjórnar
hafa reglulega farið í Kaupfélagið og
keypt þar kaffi og ýmsar smávörur
fyrir kaffistofu flugturnsins og skrif-
að þaö á stofnunina. Sá sem skrifaði
útigrillið á Flugmálastjórn hefur vit-
að að stofnunin er í reikningsvið-
skiptum í Kaupfélaginu.
-KMU.