Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Side 9
DV. LAUGARDAGUR12. OKTÓBER1985. 9 VandamáHn ekki leyst með hókus pókus Tilfæringarnar á sjálfstæöisráö- herrunum mælast misjafnlega fyrir. Það þarf engum að koma á óvart. Pólitískar athafnir og ákvarðanir orka alltaf tvímælis. Enginn er óum- deildur, enda væri í rauninni lítið varið í þann stjómmálamann sem öllum stæöi á sama um. Ýmsir heföu kosið að formaður Sjálfstæöisflokksins lýsti frati á stjómarsamstarfið og efndi til kosninga til að stokka upp spilin. Aðrir heföu viljaö aö hann tæki fleiri með sér inn í ríkisstjómina. Það gæfi henni ferskari blæ og vekti vonir um einhverja stefnubreytingu. Þriðji kosturinn var auðvitaö sá að hafast ekki að og láta þá sem fyrir eru i ríkisstjóminni glíma áfram við landsstjórnina. Mér býður í grun aö það hafi lengi verið ætlan Þorsteins Pálssonar, enda hefur hann hvað eftir annað lýst því yfir aö hann sækt- ist ekki eftir ráðherrastól. Einfaldari menn en Þorsteinn Pálsson gera sér fulla grein fyrir því aö ríkisstjórnin er á fallandi fæti, ef ekki sökkvandi skip. Þetta veit Þor- steinn og sér og hafa sjálfsagt veriö nógir um að vara hann við því hættuspili að eyðileggja pólitiskt mannorð sitt með því að stökkva um borð. Framundan eru margir brim- garðar og jafnvel sjálfir ráðherr- amir hafa haft stór orð um endalok stjómarinnar. Bjarnargreiði A hinn bóginn hafa þær kröfur verið háværar innan Sjálfstæðis- flokksins, allt frá þvi aö Þorsteinn Pálsson var kosinn formaður, að hann tæki sæti í ríkisstjóminni. Má fullyrða að stuöningur sjálfstæöis- manna hafi lengstum veriö blendinn við stjómina, einmitt fyrir þá sök Gagnrýnin hefur magnast eftir því sem á hefur liðið og sennilega hefur flestum ráðherrum flokksins verið ljóst að lífdagar ríkisstjómarinnar, og þá þeirra eigin ráðherradómur um leið, væru senn taldir, ef ekki yrði breyting á. Upp úr sauð á þingflokks- og mið- stjómarfundi í Stykkishólmi á dögunum og var þá ekki lengur komist hjá þvi að taka af skarið. Þannig má segja að Þorsteinn hafi ekki átt annarra kosta völ, hvað svo sem hann sjálfur taldi sér fyrir bestu. Hann varð leiksoppur at- burðarásarinnar og ráðherradómur hans afsprengi þess hávaða, sem flokksmenn sjálfir hafa magnað upp. Hvort honum sem formanni sé greiði gerður með þátttöku í ríkis- stjórninni, nú á miðju timabili og í miðju feninu, er mjög til efs. Það má eiginlega oröa það svo að hann hafi verið hrakinn inn í rikisstjómina, nauðugurviljugur. Auðvitað er það skiljanleg afstaöa sjálfstæðisfólks að forrtiaður flokksins eigi sæti í ríkisstjóm sem flokkurinn á aðild að. Auðvitað er þaö skiljanlegt sjónarmið að störf ríkisstjómarinnar veröi markviss- ari þegar formaðurinn er innan dyra en ekki utan. Auðvitaö er líklegt að staða hans verði sterkari inn á við og út á við, þegar hann er þátttakandi en ekki áhorfandi að stjómar- störfum. En allt er þetta háð þeirri for- sendu að eftirleikurinn og framvind- an á næstu mánuöum veröi stjórninni og Sjálfstæðisflokknum hagstæð. Ef ekki, þá getur fariö illa fyrir ungum og óreyndum manni, sem má ekki alltaf við margnum — og í þeirri áhættu er bjarnargreiðinn fólginn. Tók sór húsbóndavald Það er aö heyra á götuhornum að tilfæringarnar á öðrum ráðhermm Sjálfstæðisflokksins þyki litt sannfærandi. Sumum finnast þær klúðurslegar, jafnvel hlægilegar. Stjórnarandstæðingar tala um farsa og almenningur talar um sama grautinn í sömu skálinni. Eg held þó að þetta hafi verið sniöug leikflétta, úr því ekki var ráðist í að skipta um fleiri en Þor- steinístaðGeirs. Ráðuneytin fá nýja menn í forsæti og nýir vendir sópa best. Hreyfing veldur straumkasti og það má vel vera að ráðherratilfærslumar skapi rót sem leiði til góðs. Allavega skyldi enginn afskrifa þann möguleika fyrr en í full hnefana. Aðalatriðið er þó hitt að þessar breytingar eru verk Þorsteins. Hug- myndin er eflaust hans, framkvæmd hennar og tiltölulega snurðulaus samþykkt hennar sömuleiðis. 1 rauninni má segja að í fyrsta skipti í formannstíð Þorsteins hafi hann komið, séð og sigrað. Fram að þessu hefur forystan á stundum verið fálm- kennd, jafnvel mislagöar hendur. Að minnsta kosti hefur hún ekki veriö sú sterka og ótvíræða forysta, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur löngum búiðvið. Ellert B. Schram skrifar: Þorsteinn hefur átt í vök að verjast og aldrei látið til skarar skríða opinberlega svo almennilega hafi verið eftir tekið. Hvað svo sem mönnum finnst um tilfærslurnar og hver svo sem út- koman verður, þá verður að færa Þorsteini Pálssyni það til tekna, að nú hafa kjósendur það á tilfinningunni, að formaður Sjálf- stæöisflokksins ráöi. Hann hefur tekið sér húsbóndavald. Besta manninum fórnað Fómarlamb þessa umróts er Geir Hallgrímsson. Hann gengur úr ríkis- stjóminni um næstu áramót. Stund- um fóraa skákmenn peði til að skapa sér rýmri stöðu. Jafnvel manni, ef vinningur fylgir í kjölfarið. Ekki verður þó sagt að Geir Hallgrimsson sé peð á skákborði stjómmálanna. Ekki er hann kóngur lengur, en hann er vissulega maður, sem hefur verið mikilvægur á taflboröinu. Vonandi verður fómin á Geir ekki til þess að formaðurinn sitji uppi með tapað tafl. Það yrði stærri fingurbrjótur en svo aö Sjálfstæðisflokkurinn bæri sitt barr á eftir. Ut af fyrir sig má segja að það hafi staðið Geir Hallgrímssyni næst að draga sig í hlé. Hann er sá ráð- herranna, sem ekki á sæti á þingi og sennilega verður það að teljast mór- alskt réttast að hann víki fyrir þeim, sem tók við formennskunni. En kald- hæðni örlaganna er fólgin í því, að Geir Hailgrímsson hefur reynst far- sæll utanríkisráöherra, sennilega sá besti sem Islendingar hafa átt í þrjá áratugi. Ef mæia á afrek og frammi- stöðu einstakra ráðherra, var Geir sá síðasti sem átti að víkja. Hann hefur reynst traustur í framkvæmd þeirri utanríkisstefnu, sem Isiend- ingar og Sjálfstæðisflokkurinn fylgja. Það kemur engum á óvart. En hann var einnig og ekki síður miklum mun frjálslyndari og víð- sýnni en hörðustu andstæðingar hans áttu von á. Hann sló vopnin úr hönd- um þeirra þegar síst skyldi. Ég nefni aðeins sem dæmi afstöðu hans til við- horfa um þátttöku Islendinga í viö- ræðum um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Fyrir tilstilli hans og Eyjólfs Konráðs Jónssonar, for- manns utanrikisnefndar, náðist í fyrra full samstaða á alþingi um þingsályktun um þau mál. Fyrir þá afstöðu hlaut Geir Hallgrímsson ákúrur í Morgunblaöinu en virðingu annarra. Eg er ekki í nokkrum vafa um aö meö þeirri afstöðu mátaði Geir andstæðinga sina svo gjörsam- lega að afgreiðslan á byggingu radarstöðvanna koðnaði niður í hjá- róma væl. Hégóminn hefur forgang Hinar dramatisku bollaleggingar um ráðherravixlin hafa dregið aö sér alla athygli. en enginn flýr sjálfan sig. Ekki ríkisstjómin heldur. Vandamálunum verður ekki eytt með hókus pókus. Og þau eru vissulega ærin. Fjárlagafrumvarpið nær ekki endum saman nema með nýrri skattaholskeflu. Frystihúsin hóta stöðvim nema gengið verði rétt skráð. Viðskiptahallinn er upp á marga milljaröa, sem þýðir aö viö eyðum meir en aflað er. Húsnæðis- málin eru komin i óefni, stóriöjan er strand, kaupmátturinn fer þverrandi og heimilin eiga hvorki til hnifs né skeiðar. Og áfram sullast Framsókn í stjóm og áfram sitja kerfiskarlar við völd. Og áfram erum við föst í stöðnuðu flokkakerfi, sem er þrándur í götu allra eðlilegra fram- fara. Og áfram heldur unga fólkið að fjarlægjast staurblinda og staðnaöa stjómmálaflokka sem lofa öllu en breyta engu. Er það ekki dæmigert fyrir ástandið að nú snýst allt um völd og valdastöður, kapphlaup um mann- virðingar og ráðherrastóla, hégóm- ans glys og glingur? Er það ekki táknrænt fyrir Hruna- dansinn aö allt sé undir því komiö að gjörvileiki manna standi og falli meö frama þeirra en ekki manndómi? Er þaö ekki átakanleg staðreynd, að stjómarandstaðan er máttlaus og magnlaus, þegar óréttlætiö, mis- skiptingin og ófremdin færist í auk- ana? Hvar er ríkisstjórnin sem ætlaöi að kveða niður verðbólguna, iækka skattana og brjóta okkur leið til betri iífskjara?*Hvar er Sjálfstæðisflokk- urinn sem hét þvi að stétt stæði með stétt? Og hvar er pólitikin og þjóðmálabaráttan sem á að leysa úr læðingi frelsi unga fólksins til athafna og áhuga? Og hvenær fáum við ríkisstjóm og alþingi sem losar þjóöina við fjötra flokka og tregðu- lögmála. Meðan þessum spurningum er ósvarað hefur enginn trú á hæstvirtri ríkisstjóm — jafnvel þótt ráðherrar skipti um stóla hver um annan þveran. EllertB. Schram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.