Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Side 21
DV. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985.
21
Mannaveiðar í
Kaupmannahöfn
íslendingar flytja inn drykkjusjúka Dani
og láta þá borga fyrir þurrkinn
Eiffel Bar á Kristjánshöfn i Kaupmannahöfn. Á fáum stöðum er bjórinn
ódýrari og vertinn skrifar fúsiega hjá þeim sem drekka reglulega.
„Við tókum með okkur 10 Dani
heim og settum þá á sjúkrastöðina
Von,” sagði Fritz Hendrik Berndsen
blómaskreytingamaður og einn af
forsvarsmönnum SAA í samtali við
DV. „Og það er von á fleirum.”
F. H. Bemdsen, þekktari undir
nafninu Binni í Blómum og ávöxtum,
er nýkominn úr Norðurlandaferö
ásamt Skúla Thoroddsen lögfræðingi
og framkvæmdastjóra sjúkra-
stöðvarinnar Von þar sem áfengis-
sjúklingar eru til meðferðar.
Feröuðust þeir vítt og breitt um
Norðurlönd, kynntu sér ástandiö í
áfengismálum og eigin aðferðir við
lækningu áfengissjúklinga.
„Við settum meðal annars
auglýsingu í dönsk dagblöð og
fengum feikilegar góðar undirtektir.
Um 200 manns hringdu í okkur og
enn fleiri höfðu samband bréflega,”
sagði Binni í Blómum og ávöxtum.
„Þá fórum við inn á heimili
alkóhólista aö beiðni aðstandenda og
sáum margt dapurlegt. Til dæmis
heimsóttum við mann sem
bersýnilega hafði ekki farið út fyrir
hússins dyr í fleiri vikur vegna
drykkju en samt bjó hann í ákaflega
snyrtilegri blokk í almennilegu
hverfi.”
Að sögn Binna er viðhorf Dana til
áfengissjúklinga allt annað en
Islendingar eiga aö venjast. Þeir
loka augunum fyrir vandamálunum
eins og best kemur fram í því að
danska sjúkrasamlagið tekur engan
þátt í kostnaði vegna meðferðar
vegna ofdrykkju en er hins vegar
tílbúið til að hlaupa undir bagga með
geðsjúkum og bækluðum hvenær
sem er.
„Meðferðarmálin hjá Dönum eru í
molum. Þeir standa í dag í sömu
sporum og við vorum fyrir 10 árum
þannig að þeir geta ýmislegt af
okkurlært.”
Þrátt fyrir skilningsleysi danska
sjúkrasamlagsins voru 10 Danir
reiöubúnir til aö koma í meöferö alla
leið til Islands þó svo hún taki 28
daga og kosti 760 danskar krónur á
dag (rúmlega 3000 ísl. krónur). Og
þá er flugfarið ekki talið með.
„Þá erum viö búnir aö þurrka upp
100 Færeyinga og starfsemi AA-
samtakanna í Þórshöfn stendur með
miklum blóma. Grænlendingarnir,
sem við höfum komið á réttan kjöl,
eru þó ekki nema 3—4. Það er eins og
þessi aðferð okkar gangi ekki vel í
Grænlendinga. Þeir eru alltaf
hræddir um að annað vandamál taki
við þegar eitt hefur veriö leyst,”
sagði Fritz Hendrik Berndsen. 1
framhaldi af því má geta þess að fátt
þykir Dönum verra en hitta drukkinn
Grænlending í öngstræti eftir að
skyggja tekur. Það næstversta er
fullur íslendingur.
Danir eru löngu frægir fyrir
drykkjusiði sína sem eru í flestu frá-
brugðnir þeim íslensku. Þeir drekka
þess vegna heilan kassa af öli á dag
en eru svo famir í háttinn snemma
kvölds. I venjulegri byggingarvinnu
í Kaupmannahöfn er algengt að
drukknir séu 10 bjórar á mann í
vinnutímanum. Og þá er kvöldið
eftir. Timburmennimir eru svo
lagaðir með einum morgunbjór eins
og það heitir.
— En finnst Dönum ekki dýrt að
borga 3000 krónur á dag í 28 daga til
að láta renna af sér á Islandi?
„Það hefur enginn kvartað enn.
Þeir segjast vera fljótir að drekka þá
upphæð út á kránum í Kaupmanna-
höfn,” sagði Binni í Blómum og
ávöxtum.
-EIR.
Skúli Thoroddsen og Fritz Hend-
rik Berndsen auglýstu i dönskum
dagblöðum og fluttu síðan 10
danska drykkjusjúklinga með sór
yfir hafið.
olxtike:
|EJBET
*4«r i nor-1
Billige
penge
Forbruget atiger, isœr af
store og dyre ting. Samti-
dig er bankemes og spare-
kassemes pengetanke ved
at revne. Der er udsalg ',f
penge for tiden.
Gæv gu
og sk*
Med udsap”'
tegn'"
SMIÐUM ALLAR
GERÐIR STIGA
Trábarg hf.
Sími 84730
BRAUTARHOLTI 33 - SÍMI: 6212 40
Volvo 740 GLE, árg. 1984, skinn MMC Pajero, órg. 1983, blár,
15.000 km, steingrár. Verð kr. ekinn 33.000 km. Verð kr.
1.200.000,- 620.000,-
MMC Tredia GLS, árg. 1983,
sjálfsk., rauður, ekinn 25.000
km. Verð kr. 370.000,-
MMC Sapporo 2000, árg. 1982,
hvitur, ekinn 66.000 km. Verð
kr. 420.000,-
loyota Cressida DX disil, árg.
1981, rauður, ekinn 112.000 km.
Verð kr. 330.000,-
MMC Colt árg. 1982, gullsans.,
ekinn 29.000 km. Verð kr.
250.000,-
Mikið úrval nýlegra
bíla á staðnum.
RÚMCÓÐUR SÝNINCARSALUR
— REYNDIR SÖLUMENN —
OPIÐ:
Mánud.—föstud.kl. 9.00—19.00.
Laugard. kl. 10.00—19.00.