Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Side 38
38
DV. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985.
Knattspyrna unglinga—Knattspyrna unglinga — Knattspyrna unglinga — Knattspyrna unglinga—Knatt
yyEins og barn
sem fær f lautu
i I íafi næl ■ ■ ■ ■ ISgJO f!”
Rabbað víð Magnús V. Pétursson
knattspyrnudómara
Ert þú ennþá starfandi dómari,
Magnús?
— Ég hætti sern dómari 1. deildar í
knattspymu þegar ég varö
fimmtugur. Þetta er gott út af fyrir
sig. Þaö gefur yngri mönnum tæki-
færi. Annars var ég aö dæma um
daginn leik Landsbankans og
Áburöarverksmiðjunnar. Svo ég er
svo sannarlega með ennþá.
Þér er sjálfsagt kunnugt um hið
slæma ástand dómaramála yngri
flokka knattspyrnu hjá okkur. Átt þú
einhverja „hókus pókus” lausn á því
máli?
„Ég hef lengi flutt inn í-
þróttavörur, eins og
flestum er kunnugt. Þa5
skeði fyrir nokkrum árum
að ég dsmdi handboltaleik
milli Fram og KR. Ingólf-
ur Oskarsson (Puma-kaup-
maður), leikmaður með
Fram, braut illa af sér og
dæmdi ég réttilega brot á
drenginn. Ingólfur brást
aftur á móti illa við þessu
og mælti hátt og hvellt, svo
nærstaddir heyrðu:
—Ég kaupi aldrei af þér
buxur aftur!!
Ég svaraði um hæl:
—Þá verð ég að vísa þér út
af, væni minn, og benti
Puma-kaupmanninum til
búningsklefans.”
— Sjálfsagt er ekki svo létt aö
leysa þetta mál. Viðhorfin hafa
breyst. Efnahagur ungra manna í
dag leyfir ekki þaö tómstundastarf
sem hefur fylgt því að vera dómari.
Nauösynlegt er því aö finna leið út úr
þessu. Mér dettur í hug hvort ekki sé
hægt t.d. aö hafa ákveðinn hóp ungra
dómara og borga þeim ákveðiö fyrir
leikinn. I dag fá þeir ekki neitt nema
ánægjuna sem hrekkur skammt.
Þaö verður að athugast að enginn
leikur veröur án dómara. Því er þaö
hagsmunamál knattspyrnu-
félaganna að hlúð sé vel aö dómara-
stéttinni. Það er ööru eins bruðlaö
þótt eitthvaö sé látið hrökkva til
þeirra mála.
„Eitt sinn fékk ég þann
dóm í einu dagblaðanna að
ég væri eins og barn sem
fær flautu í afmælisgjöf.”
Þaö kostar sem sé að vera
starfandl dómari?
— Hvort þaö gerir. Ef hægt er aö
borga þjálfara fyrir hans störf hlýtur
aö vera hægt aö greiða dómara fyrir
r
dómgæslustörf. Dómarastarfiö er
ekki síður mikilvægt. Tíminn er
peningar, eins og hlutirnir eru í dag.
Hvaðan eiga þeir peningar að
koma?
— Nú. Til dæmis með þátttöku-
gjaldi félaganna sem nægöi til aö
dekka þann kostnað. Fleiri leiðir eru
sjálfsagt til. Viö skulum skoða annan
möguleika. Þegar íslenskur leik-
maöur hverfur suöur í Evrópu í at-
vinnumennsku hefur heyrst aö
íslensku félögin hafi fengið allt upp í
1 milljón ísl. kr. fyrir ómakið. Því
ekki aö láta hluta af slíkum
greiðslum ganga til dómaramála.
Magnús. Þú talar mikið til
leikmanna þegar þú ert aö dæma. Er
þaö ekki rétt? Hver er tiigangurinn?
— Jú, þaö er rétt. Ég geri þaö
oftast til að róa leikmenn. Eg get
sagt þér dæmi um slíkt. Þannig var
aö Haukur Oskarsson (Vík), sem
varð fyrstur íslenskra dómara til aö
dæma á erlendri grund, í leik milli
Skotlands og Noregs og sem fór fram
í Glasgow, var í stökustu vandræðum
með einn Skotanna, sem var mjög
uppivöðslusamur í leiknum og sá sitt
óvænna og vatt sér aö kauða og
mælti' Taktu þaö rólega. herra minn.
(Take it easy, sir) Nú, Skotinn var
hinn ljúfmannlegasti til loka leiksins.
Eftir leikinn kom hann til Hauks og
sagði: Ég hef aldrei veriö ávarpaöur
herra fyrr. Hér um slóðir hef ég
ávallt veriö kallaöur amlóöi og
„Það var rétt fyrir leik
Fram og Fylkis á Fylkis-
velli fyrir mörgum árum, í
4. flokki. Ég var á leið út á
völlinn í flunkunýjum
dómarabúningi. Þá varð
einum Fylkisstrákanna að
orði: „Loksins kemur
alvöru dómari”.”
þaðan af verra. Þama sérðu hvaö
orö dómara geta haft mikil áhrif.
Góö róð handa yngri dómurum?
— Læra reglurnar vel og skilja
þær, sá þáttur dómgæslu er 50%. Hin
50% eru persónuleiki dómarans.
Vera ávallt vel klæddur við dómara-
störf. Hefja leik stundvíslega. Og
dæma alla leiki eftir bestu getu —
sama hvort um er aö ræða leik hjá 6.
Qokki eða mfl.
Horfir þú á unglingaleiki,
Magnús?
— Já, mjög oft. Þaö er frábær
skemmtun. Enda sumir hverjir
strákanna hreinir listamenn.
1 lokin, Magnús. Hvemig á leik-
maður að koma fram við dómara?
— Leikmenn eiga að fara eins
langt og dómari leyfir. Fari þeir
lengra eru þeir komnir í ógöngur.
Svona byggja Skotar upp
Ros8 Mathie, framkvœmdastjöri skoska
I drengjalandsliösins, fyrrverandi leikmaður
" með Kilmarnoc í Skotlandi, upplýsti
■ unglingasíðuna um eftirfarandi: „Ég er bú-
■ inn að vera viðriðinn skosk unglingaliö sl. 4
I ár ásamt því að annast þjálfaranámskeið á
■ hinum ýmsu stöðum í Skotlandi. Okkar
| vinna byrjar strax á 13—14 ára strákum.
Þeir eru látnir œfa í grúppum, í hinum
ýmsu héruðum Skotlands, nokkurs konar
úrvalslið héraöanna og er mikil og g6ð
samvinna við þjálfarana úti á landsbyggð-
inni, sem er undirstaða þessa alls. Síðan er
hðpur valinn úr þessum grúppum og eru
þeir þá orönir meðlimir í Knattspyrnuskóla
skoska sambandsins. Þaðan liggur svo leið
þeirra til atvinnufélaganna, en ekki fyrr en
drengurinn er tilbúinn, að okkar mati."
t. ' \
n
I
I
I
I
I
I
I
I
i
I
i
Magnús V. Pétursson, stjórnarmaður i Knattspyrnudómarasambandi
íslands (KDI), er einn af okkar þekktustu dómurum gegnum tiðina. Tony
Knapp landsliðsþjálfari sagði eitt sinn að Magnús vœri „guðfaðir"
íslenskra dómara. Annars hafði Knapp, ef ég man rétt, frekar litið álit á
islenskum knattspyrnudómurum, en hvað um það. Magnús segir að i
stjórnartíð Alberts Guðmundssonar i KSÍ hafi verið unnið vel að málefnum
dómara: Sem dœmi um aðhald og vinnubrögð sagði Albert eitt sinn á fundi
hjá okkur dómurum: „Ef þið dómararnir náið ekki að leysa ykkar vanda þá
sé ég ekki annað en að stjórn KSÍ verði sjálf að sinna dómarastörfunum."
(DV-mynd HH).
Einkennilegt
misræmi!
Gætt hefur svolítils misræmis í
sambandi viö keppnisreglur varð-
andi5.og6. fl:
I úrslitaleik 5. fl. (A) í haustmót-
inu sl. sunnudag milli Vals og
Fram fengust ekki úrslit eftir
venjulegan leiktima og ekki mátti
framlengja um 2x5 min. vegna
heilsu barnanna — ekki mátti
heldur hafa vítaspymukeppni því
það telst vera framienging (ath.
þetta var eini leikur strákanna
þann daginn). Ekki hef ég neitt á
móti þvi aö heilsu barnanna sé
gætt. En hvað með 6. fl.? Getur það
talist heilsusamlegt að hespa af
móti á 2 dögum eins og oft er gert i
6. fl. Enda hafa börnin í sumum til-
vikum veriö ansi rislág undir lokin.
Viö skulum gera samanburö: 15. fl.
má ekki framlengja eftir venjuleg-
an leiktíma í 2X5 min., en i 6. fl. má
leika svo til stanslaust í móti í 2
daga í röð frá morgni til kvölds. —
Hugsum!
-HH.
Myndin var tekin þegar Framarar skoruðu fyrsta markið í 3—1 sigri gegn KR í
úrslitaleik 2. flokks (A) í haustmóti KRR. Markið skoraði Gauti Laxdal (sést ekki á
myndinni) með skalla eftir fyrirgjöf frá hægri kanti.
(DV-mynd HH).
O ° ÍMARKTEIG o c
Haraldur Ingélfsson, hinn efnilegl drengja-
landsliéspUtur ofan af Akranesi.
Marksækinn
Skagamaóur
Hinn bráöefnilogl drengjalandsliðsmaður
ofan af Akranesi, Haraldur Ingölfsson, hefur
vorið iðlnn vtð að skora i leikjum liðsins i
sumar. Haraldur er mlkill baráttujaxl og fylg*
inn mað afbrigðum. Auk þess sem tækni
har«s er góð hefur hann gott auga fyrir spili. i
8 síðustu leikjum drengjalandsliösins i sumar
hofur Haraldur skoraö 7 mörk, sem er frá-
baert. Nú siðast i leikjunum gegn Skotum
skoraði hann bæði mörkki í 1 -2 og 1 -3 tapi
islenska liðsins (heima og heiman). — Har-
aldur er alhliða mjög góður knattspyrnumað*
ur sem miklar vonir eru tengdar viö.
(DV-myndir HH).
2. flokkur KR (B) vakti óskipta athygli á dögunum þegar leikið var gegn Vikingum í haustmóti
KRR. Drengirnir mættu búningslausir til leiks. Það var því skrautlegur hópur KR-inga sem hljóp út á
völlinn, að vísu var birtu tekið að bregða en litadýröin leyndi sér ekki. Ég man ekki eftir atviki sem
þessu í gegnum árin. Það ætti aö vera metnaður knattspyrnufélaganna að leikmenn spili i réttum
búningum, ekki síst þar sem um opinber mót er að ræða. í raun átti þessi leikur aldrei að fara fram
við þessar aðstæður og KR aö tapa stigunum. Á myndinni sést hvar KR-strákarnir halda til búnings-
klofa eftir leikinn, sem þeir töpuðu 1 — 3 og Víkingar því haustmeistarar 1985.
(DV-mynd HH).