Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Side 25
DV. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985. 25 Lisa i Litlu hryllingsbúðinni: — Tímar á sólbaðsstofu og krítarkort, Björgúlfur á sviði: — Þetta getur verið erfiðara en vera á netum á ís- landsmiðum. JR grætur við gröf Bobbys —og kvennastóðið fær samkeppni f rá James Bond-stúlku JR fær taugaáfall við jarðarför Bobby, bróður síns, og grætur af því- líkum krafti að einsdæmi þykir í kvikmyndasögunni. Miss Ellie reyn- ir að draga hann frá gröfinni en JR heldur sér í kistuna og segist hvergi fara. Á milli grátekkanna hrópar hann í sífellu: „I’ve gotta stay, momma! I have to. ” Ný erfðaskrá Bobby Ewing er sem sagt látinn. Patrick Duffy var boðin hálf milljón islenskra króna aukalega fyrir hvern þátt ef hann héldi áfram aö leika í Dallas en hann var búinn að fá nóg af Bobby. Enda hefði hann elst um átta ár á Southfork. Því var ekki um ann- að að ræða en að grafa kappann og það þótti að vonum ákaf lega sorglegt og grétu flestir en JR þó mest. I erfðaskrá Bobbys kemur áiit hans á samferðamönnunum vel í ljós. Hann arfleiðir Kristofer son sinn að hlut sínum í Ewing-olíufélag- inu, Ray Krebbs fær landareignim- ar, Gary bróðir hans, sem vart hefur sést á Southfork eftir að hann drakk sig þar út úr húsum, fær uppáhalds- hestana en JR ekki nema eina hagla- byssu. Nýr Bobby Framleiðendur Dallas-þáttanna vita þó sem er að ekki þýðir að bjóða áhorfendum eingöngu upp á ill- mennskuna í JR og því hefur nýr maður verið kvaddur á vettvang. Jack Ewing heitir sá og er fjarskyld- ur þeim bræðrum en virðist hafa fengið flesta eðliskosti Bobbys í vöggugjöf. Hann er myndarlegur, góðviljaður og vill leysa hvers manns vanda. Sérstaklega reynist hann Miss Ellie vel í þeim ósköpum sem dynja yfir hana með reglulegu millibili. í þessari kistu liggur Bobby, ískaldur og út úr myndinni. Grátkast JR við kistu Bobbys þykir eitt það átakamesta i kvik- myndasögunni. Hann er gersam- lega óhuggandi og á frummálinu æpir hann, er Miss Ellie reynir að draga hann á braut: ,,1've gotta stay, mommal I have to." Connery í James Bond-kvikmynd- inni Never Say Never Again. Þykir hún líkleg til stórræða meðal karl- mannanna, því bæði er hún fallegri og yngri en Victoria Principal og Linda Gray. Svo ekki sé minnst á frú Ray Krebbs, eða ekkju Elvis Presley, sem situr á sundlaugar- Dack Rambo leikur Jack Ewing, fjarskyldan ættingja sem hlotið hefur flesta eðliskosti Bobby Ewings i vöggugjöf. barmi alla daga og er orðin hrukkótt á bakinu. Dallasþættirnir hafa átt undir högg að sækja vegna vinsælda Dynastyþáttanna að undanförnu þar sem fjöldamorð í kirkju einni hafa átt hugi og hjörtu Bandaríkjamanna upp á síökastið. Vonast Dallasfram- leiðendurnir til að grátstafir JR við kistu Bobbys eigi eftir að gera sitt gagn í samkeppninni. -EIR. Bobby er látinn. Fékk bil á sig miðjan er hann var að kveðja Pamelu i hinsta sinn á leið til nýrrar kærustu. ,,Eg elska þig enn," voru síðustu orð Pamelu og svo kom billinn. . . Nýtt barn Þá fer töluverður tími í að lýsa sorg Pamelu sem kemst að því skömmu eftir dauða eiginmanns síns aö hún er kona ekki einsömul. Bobby hefur þá látið það verða sitt síðasta verk hér á jörðu að gera hana ófríska og mátti það ekki seinna vera. Sue Ellen á að sjálfsögðu eftir að skilja við JR og nú þróast málin þannig að hún þjarmar að eiginmanni sínum, þroskuð og sterkari kona en áður. Færist verulegt fjör í leikinn þegar Dusty birtist aftur, búinn að ná sér að fullu eftir flugslysið fræga og fer að gera hosur sínar grænar fyrir Sue Ellen. Hún stenst að sjálfsögðu ekki mátið. Ný kona Bæöi hún og Pamela, mágkona hennar, svo ekki sé minnst á Lucy litlu, eiga eftir að fá harða sam- keppni frá nýrri leikkonu sem ráðin hefur verið til starfa í þáttunum. Sú heitir Barbara Carrera, fædd og upp- alin í Nicaragua og gerði fyrst garð- inn frægan er hún lék á móti Sean Barbara Carrera, fyrrum James Bond-stúlka, á eftir að hrista verulega upp í Southfork og í nágrenni. K- x

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.