Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Side 15
DV. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985.
nefndarinnar þar sem viö sitjum aö-
eins tvö. Þannig aö þetta er hagkvæmt.
En kannski erum viö ástfangin,” segir
Valgerður Bjarnadóttir og handleikur
flugmiöa frá Flugleiðum. Ekki svo aö
skilja aö þau skötuhjúin séu aö flýja
land þó svo þaö hvarfli stundum aö
Kristófer aö einfaldast væri aö drífa
sig burt úr allri þessari vitleysu. Val-
gerður er yfirmaður allra hótela Flug-
leiöa og það tilheyrir starfinu aö vera
með flugmiða í vasanum í tíma og
ótíma.
Samveran
„Okkur þykir einfaldlega betra aö
vera hvort meö öðru,” segir Valgerö-
ur. „Ætli upphafið hafi ekki veriö þaö
aö ég hitti allt í einu mann sem ég gat
talað viö um stjómmál, einhvern sem
hugsaöi eins og ég, viö skildum hvort
annað.”
Þau heföu aö sjálfsögöu getaö haldið
áfram aö hittast í hádeginu. En þau
geröu þaö sem þau töldu réttast. Þau
fóru líka aö hittast á kvöldin og nú eru
þau saman öllum stundum. Þau eru
sammála um aö pólitísk staöa þeirra
sé veikari fyrir bragöiö, eöa eins og
Valgerður oröar þaö: „Við hefðum get-
að haldiö áfram aö hittast í hádeginu
en það er svo helv... leiöinlegt. ”
Skilnaðurinn
Sjálfur er Kristófer Már kaþólskur
og hann á konu og börn. Og eins og
frægt er úr lifi ítalskra kvikmynda-
stjarna eru hjónaskilnaöir ekki litnir
hýru auga í Vatíkaninu. „Maður verö-
ur aö velja og hafna og það er ekki allt-
af sársaukalaust. Eg vil vera með Val-
geröi,” segir Kristófer Már. „Þaö hef-
ur lengi tíökast i minni kirkjudeild að
menn taki konur frillutaki en framhjá-
hald er mér ekki aö skapi. Viö hefðum
getaö fariö á bak viö fólk en þaö gerum
viðekki.”
— En hversu lengi varir ástin?
„Við erum þroskað fólk og vitum að
ekkert varir aö eilífu,” segja þau ein-
um rómi. „Þetta er spurning um tíma-
bil, þetta geta verið vikur, mánuöir
eöa jafnvel 50 ár. Það veit enginn hvað
veröur.
Viðbrögðin
Valgeröur Bjarnadóttir er fræg fyrir
flest annaö en vera þegjandaleg. En
þar sem húnsitur viðhliðina á Kristó-
fer Má vekur þaö óneitanlega athygii
aö hún þegir á meöan hann lætur dæl-
una ganga. Hann talar mikiö og er
haröoröur í garð andstæðinganna.
Kallar þá meira aö segja baviana sem
sættu færis, þegar einkamál þeirra
Valgerðar voru á viökvæmu stigi, og
létu höggin ríða á sér: „Þetta er búiö
aö vera erfitt sumar. Á tímabili leiö
mér eins og valtari hefði keyrt yfir
mig.”
„Eg held aö viö höfum komiö fólki á
óvart,” segir Valgeröur. „Einhvern
veginn hef ég þaö' á tilfinningunni aö
þeir sem mest hafa smjattaö á sam-
bandi okkar hafi búist viö aö annað
hvort okkar drægi sig inn í skel sína til
aö fá friö. En við bitum frá okkur. Við
ætlum aö vera saman.”
Framboðið
Annars er Kristófer Már nýgræðing-
ur í stjómmálum. Hann var aö kenna
unglingum í Borgarfiröinum þegar
Bandalag jafnaöarmanna var stofnaö
og botnaði eiginlega ekkert í því hvaö
mennimir ætluðu að gera án sín. Og
svo hringdu þeir allt í einu í hann og
buöu sæti á framboðslista; aftarlega
að vísu, og Kristófer sagöi já, takk. S vo
hringdu þeir aftur og sögöu aö hann
væri kominn upp í fimmta sæti. Allt í
lagi meö þaö en Kristófer tók sér fimm
mínútna umhugsunarfrest þegar hon-
um var tilkynnt aö hann væri kominn í
fyrsta sætið í Vesturlandskjördæmi.
Hann varð varaþingmaður, fór suöur,
— og hitti Valgeröi um síðir.
Róttæknin
Þau neita því ekki aö samdráttur
þeirra hefur vakiö töluveröa athygli.
Þaö er horft á þau á götu og þau sjá
vangana velta hjá fólki. „Þaö er sem
betur fer ekki Utiö á okkur eins og
AIDS-sjúklinga ennþá,” segir Vaigerö-
ur. „En fólk horfir.”
„Tímarnir hafa breyst og þar með
ímynd stjómmálamannsins. Myndin
af manninum í sófanum heima hjá sér
meö eiginkonu, börn og hund er ef til
viU ekki dæmigerð í dag,” segir Kristó-
fer og Valgerður bætir við: „Við í
Bandalagi jafnaöarmanna berjumst
fyrir stjórnkerfisbreytingum, við
erum í raun og veru róttæk. Eg held aö
róttækni í skoðunum endurspeglist
gjarnan í einkalífinu. Kannski er þetta
róttækt hjá okkur Kristófer aö vera
ástfangin.”
Þau Kristófer og Valgerður stefna
bæði í framboð í næstu kosningum ef
allt fer ekki í háaloft hjá Bandalagi
jafnaöarmanna áöur. „Eg hef nú frek-
ar trú á því að deilurnar fjari út áöur
en langt um Uöur. Þetta er búiö aö vera
haUærislegt þras,” segir Kristófer sem
þessa dagana er aö taka til á skrifstofu
sinni þar sem hann var starfsmaöur
BJ. Þaö er hann ekki lengur og er
þannig í vissum skilningi atvinnulaus.
Þaö rætist þó úr því í lok mánaöarins
þegar hann fer á þing í heilan mánuö.
— En hvaö er þaö annaö sem tengir
þau Valgeröi og Kristófer saman aö
póUtikinni frátaldri?
Löng þögn.
— Hvað finnst ykkur skemmtilegast
að gera?
„Verasaman.”
— Og hvað leiðinlegast?
„Aö vera ekki saman.”
-EIR.
Valgerður Bjarnadóttir og
Kristófer Már Kristinsson.
Eftir sumarið leið honum
eins og valtari hefði ekið
yfir hann. Og Valgerður
segir: — Þeir sem mest
hafa smjattað á sambandi
okkar bjuggust við að ann-
að hvort okkar drægi sig
inn í skel sína. En við bitum
frá okkur. Við ætlum að
vera saman.
DV-mynd GVA.
%