Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Side 39
DV. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985. BfJ 39 Iþyrna unglinga — Knattspyrna unglinga — Knattspyrna unglinga—Knattspyrna unglinga — Knattspyrna Þátttakendur í hinni Norrænu ráðstefnu tækninefndarmanna knattspyrnusambands Norðurlanda, sem í fyrsta sinn er haldin á Íslandi. — Á myndinni eru frá vinstri: Birgir Sandberg, Svíþjóð, Sören Hansen, Danmörku, Páll Júlíusson, frkvstj. KSÍ. Erling Mathisen, Noregi, Lárus Loftsson unglingalandsliðsþjálfari, Jens Erik Magnusson, Færeyjum, Sigbjöm Engebertsson, Noregi, Nils Stjernfeldt, Svíþjóð, Sveinn Sveinsson, form. tæknin. KSÍ, Max Rassmussen, Danmörku, Androas Moriback, Noregi, Jens Hedemark, Danmörku, Karl Erik Hult, Svíþjóð, Magnús Jónatansson, tæknin. KSI, Henning Enoksen, Danmörku (þjálfaði eitt sinn ísl. landsliðið), Guðmundur Ólafsson, tæknin. KSI, og Jon Risa, Noregi. Á myndina vantar finnsku fulltrúana, sem farnir voru heim, þá Jukka Vakkila og Pekka Luhtanen. (DV-myndir HH). Umsjón: Halldór Halldórsson í fyrsta sinn á íslandi TækninefndirNorðurianda þinguðu í Reykjavík Dagana 22.-24. september sl. var haldin ráðstefna tækninefnda allra knatt- spymusambanda Norður- landa í fyrsta sinn á ís- landi. Ákveðið hafði verið fyrir nokkm af stjórn KSÍ að af þessari ráðstefnu yrði hér á landi í ár. Má segja að þessi atburður marki tímamót í sam- skiptum íslands við hin Norðurlöndin á sviði tæknimála. I samtali viö Svein Sveinsson, for- mann tækninefndar KSl, kom fram aö hingaö til höfum við verið þiggj- endur hvað þetta varöar þar til nú. Eg spuröi Svein hvert væri megin- markmiö ráöstefnu sem þessarar? — Menn bera saman bækur sínar, og fróölegt er í meira lagi aö frétta hvað er aö gerast á þessum sviðum á hinum Norðurlöndunum. Þjálfara- málin voru rædd á breiðum grunni. Fulltrúar kynntu þessi mál í sínum löndum og voru umræður á eftir. Danir ekki með knattþrautir Eitt athyglisvert kom til dæmis fram í málflutningi Dana, sem eru mjög framarlega í tækni og grunn- þjálfun almennt, — aö þeir eru ekki meö knattþrautir í neinni líkingu viö hin Norðurlöndin. Þetta vekur auð- vitað athygli, þegar frammistaöa Dana í alþjóðlegri knattspyrnu er höfðíhuga. Nú, Norðmenn eru aö gera góöa hluti í unglingamálunum, en ákveðn- ir erfiöleikar hjá þeim eins og okkur, þegar leikmenn nálgast meistara- flokksaldurinn, þá er útkoman ekki nógu góö. Síðasta skeiðið i þjálfun og undir- búningi virðist því ekki vera í lagi? — Einmitt. Eg vil tvímælalaust halda því fram að það sé mikið gagn að ráðstefnum sem þessari. Að vita hvað hinir eru að aðhafast er geysi- legt atriði. -HH. Sveinn Sveinsson, formaöur tækninefndar KSÍ, sagði að mikið heföi verið fjallað um unglingaknattspyrnu ó róöstefnunni. (DV-mynd HH). Gústi „sweeper": „Ég er alveg harfl- ákveðinn að skipta um félag'll I L r I I trúai úr aganefnd KSI, einnig móta- nefnd og fulltrúi úr dómarastétt. Nánar verður fjallað um væntanlegt ráðstefnuhald síðar. 60 4. fl. strákar valdir til keppni á gervigrasinu I í dag og á morgun kl. 10.20—14.00 J I IUnglingastarfiA er i fuilum gangi hjá KSl þessa dagana. Æfingar og landsleikir Idrengja nýgengnir yfir. UnglingalandsliAið ieikur gegn lrum og Skotum 11. og 14. nóv. Ink. (úti).Nónar síðar. Já, það er í mörg hom að líta, — og það _ nýjasta er að búið er að safna saman 60 4. ! fl.-strákum úr Reykjavík og nágrenni til | keppni á gervigrasinu í dag og á morgun kl. _ 10.20—14.00 báða dagana. Raðað verður í 4 I Uð. * „Memingin með þessu er að fá fram kjarna 18—20 stráka sem líklegir væru til að skipa næsta drengjalandsUð og halda þeim við efnið í vetur. Ákveðið verður með ieiki á Norður- og Austurlandi næsta vor. 1 Þetta er besta leiðin til að fá strákana nógu fljótt inn í myndina,” sagði Lárus Loftsson I þjálfari. ■ Leikimir standa frá kl. 10.20—13.00 í dag I og á morgun. Þið, sem hafið gaman af að I fylgjast með unglingaknattspyrnu, sleppið I ekki þessu einstæða tækifæri. -HH. 1 Tveir með þeim efnilegustu. Fré vinstri Rúner Kristinsson, KR, og Ólafur Viggösson, Þrótti, Nesk. Drongirnir fengu tilboð fró Glasgow Rangers um að staldra við og œfa hjá fólaginu. Þeir félagar voru sammála við heimkomuna frá Skotlandi sl. þriðjudagskvöld að gaman hefði verið að verða eftir úti, en hver veit, kannski i vetur. Leikurinn fór 3—1, Skotum i vil. BODIÐ AÐ ÆFA MED GLASGOW RANGERS „Þetta er einn besti leikur liðs, sem ég hef stjórnað. Strákarnir áttu stór- kostlegan dag. Eftir leikinn sögðu Skotamir umbúðalaust að við hefðum alveg eins átt að sigra. Þetta var mlkil upplifun fyrir strákana því 5—6000 áhorfendur fylgdust með leiknum og hvöttu þeir leikmenn óspart,” sagði Lárus Loftsson, þjálfari drengjanna. Eftir leikinn kom fram vilji þeirra hjá Glasgow Rangers að þeir Olafur Viggósson og Rúnar Kristinsson yrðu eftir til æfinga hjá félaginu, og þá upp á væntanlega samninga, eins og milli- göngumaður þeirra, David Moyes, tjáði forystumönnum íslenska liðsins. Helgi Þorvaldsson, form. ungiinga- nefndar KSI, sagði að það hefði aldrei komið til greina að drengirnir yrðu eft- ir. En boðið stendur og aldrei að vita hvað skeður í vetur. Það verður að fara að öllu með gát, sagði Helgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.