Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Blaðsíða 41
DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985.
53
Sviðsljós_____________Sviðsljós______________Sviðsljós______________Sviðsljós
í Haferninum sögðu fiskverkunarkonur mestu skipta hvað i
bókinni stæði og kynntu sér málið í hvelli.
Forstjórinn í Nótastöðinni var fljótur að ákveða sig - keypti
eina bók á hvern starfsmann og þá var jólagjöfin í höfn.
DV-myndir Arni S. Árnason.
Meðal lesenda
og kjósenda
Sá þekkti pólitíkus og skríbent
Jónas Árnason var á ferð um sitt
gamla kjördæmi á dögunum í til-
efni nýútkominnar viðtalsbókar
við hann sjálfan sem Rúnar Ár-
mann Arthúrsson skráði. Þeir fé-
lagar fóru meðal annars inn á
vinnustaði á Akranesi þar sem
meðfylgjandi myndir voru teknar.
I viðtalsbókinni er komið víða
við, spannað yfir sextíu og tveggja
ára tímabil á hinum ýmsu vígstöðv-
um. Jónas var þingmaður Vestur-
landskjördæmis í tólf ár og var því
á heimavelli í ferðinni, gamlir
kunningjar fílósóferuðu um lífið
og tilveruna jafnframt því sem
bókin sjálf var seld og árituð.
Hjá Þorgeiri og Ellert á Akranesi var tekið sameiginlega í nefið
- Hallgrímur Magnússon og Jónas Árnason í miðri athöfn.
Stóra stundin
ífebrúar
Samsetningin eldri kona og yngri
maður er það sem gengur hjá stór-
stirnunum í dag - hreinlega í topp-
tísku. Olivia Newton-John hefur
aldrei látið það um sig sannast að
hún fylgi ekki dægurtaktinum og á
því ungan mann sem geymdur er á
búgarðinum stóra í Kaliforníu.
Drengurinn heitir Matt Lattanzi og
saman eiga þau hjónakornin von á
erfingja í febrúarmánuði. Þar sem
eiginkonan er að nálgast fertugt
þykir varla von til þess að barnahóp-
urinn verði fjölmennur, eitt barn
jafnvel látið duga þótt Matt vilji
hafa þau fleiri. Hann er alinn upp í
stórfjölskyldu, systkinin samtals níu,
og lengi vel var heitasta óskin að
geta búið einn um aldur og ævi.
Hann var orðinn tuttugu og sjö ára
þegar Olivia varð á veginum og þá
gleymdust snarlega öll áform um
einlífi og líklega hugleiðingar um
aldursmuninn fallið í sama
gleymskubrunninn að auki. „Hvað
eru lika tiu ár milli vina?“ segja þau
svellköld og benda á keimlík pör í
öllum hornum máli sínu til stuðings.
Þeir svínslegu glotta kuldalega
Blaðamenn urðu áþreifanlega var-
ir við það að bókstaflega allt var
lagt í sölurnar til þess að halda
sambandinu leyndu í upphafi. Þá
fannst þeim að slúðursögurnar
myndu verða sambandinu óyfirstíg-
anleg hindrun en núna er það einnig
gleymt. Búgarðurinn og samlífið er
það sem máli skiptir, heilsurækt og
heimilislíf tekur allan tíma beggja.
Hollívúddliðið stynur af velþóknun
yfir öllu saman því einhver verður
að halda andlitinu út á við meðan
brakar í innviðum kvikmyndaborg-
arinnar. Aidsveiran er stóra skelf-
ingin og því eru heilbrigðar fjöl-
skyldur og skírlífi það sem menn
vilja lesa um sér til hugarhægðar á
síðkvöldum.
Heilsan gengur fyrir öllu þegar erfinginn er á leiðinni og þá er ekki
siðra að geta stýft úr hnefa maísstöngla af eigin akri.
ff/acksOecker
DN 418
heftibyssa
B/acks. Decker
B/acks ffecker
D 984hjólsög
f. borvél
B/acksffecker
D 140 RT
borvél
D 986
stingsög
f. borvél
B/acksOecker
D 988hristipúði
f. borvél
B/acks Oecker
DN 83
beltaslípivél
B/acksOecker
DN 228 H
v hjólsög
B/acks Decker
B/acksOecker
VM 626
vinnuborð
B/acksOecker
HG 991
hitabyssa
B/acks Decker
Borvélar
Loðfóðraðir
kuidagallar
Topplyklasett, margar
stærðir, ásamt úrvali af
hand- og loftverkfærum.
ísbrot sf., verslun fyrir
iðnaðarmanninn og þá laghentu.
V/SA
Bíldshöfða 18,
sími 672240.
Næsta hús vid Húsgagnahöllina.
Docmxi
<u