Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Qupperneq 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Litlir fingur hafa mjög gaman af því að föndra úr trölladeigi. Systurnar horfa áhugasamar á litla
bróður sinn í sköpunarstarfinu.
Jólaskraut úr
trölladeigi
Hægt er að búa til alls konar hluti úr trölladeigi, t.d. upplagt
að nota myndakökuformin til þess að stinga út hina ýmsu hluti.
Trölladeig er mjög sniðugt til
þess að búa til alls kyns skraut úr.
Það er hins vegar ekki til þess að
borða - rétt að taka það skýrt fram!
Til eru ýmsar uppskriftir að slíku
deigi. Eina rákumst við á í jóla-
blaði Húsfreyjunnar, en hún er
svona:
3 hlutar hveiti, 1 hluti borðsalt,
1 hluti sjóðandi vatn, 1-2 mat-
skeiðar edik og 2 dropar matar-
olía.
Notið fínt salt og látið saman við
hveitið og bætið vatninu út í og
hnoðið þar til deigið er orðið mátu-
legt. Ef ekki á að nota deigið strax
er ráðlagt að geyma það í plast-
poka.
Deigið er flatt út með kefli, þykkt
eða þunnt, og má nota myndaköku-
mótin til þess að skera út myndir.
Einnig er hægt að búa til fléttu-
brauð, kringlur og kransa, allt eftir
því hvað hverjum dettur í hug.
Nota má blöndu af ediki og vatni
fyrir „h'm“ og einnig til þess að
slétta áferðina á listaverkunum.
Trölladeigsmyndirnar þarf að
baka í bakarofninum við ca 150
Hægt er að búa til fíngerðasta
hár eða þræði með því að þrýsta
trölladeiginu i gegnum hvít-
laukspressuna.
gráður C í um það bil eina klukku-
stund.
Hlutina má síðan mála með skil-
talitum og þegar þeir eru þurrir er
lakkað yfir með glæru lakki. Það
virðast nokkrar uppskriftir að
trölladeiginu vera í gangi. Hér er
önnur sem við sáum í norsku blaði:
2 bollar hveiti
2 bollar salt
1 bolli vatn
2 matskeiðar veggfóðurslím
Þegar deigið hefur verið hnoðað
er það geymt í plastpoka í kæli-
skápnum þar til það er notað.
Hægt er að geyma það í nokkra
daga.
Breiðið smjörpappír yfir það sem
þið hafið búið til og látið þoma í
einn sólahring. Ef hlutirnir eiga
að vera með deiglitnum á að pensla
þá með mjólk áður en þeir eru
bakaðir í ofninum.
A.Bj.
Þeir sem eru sérlega lagnir geta
búið til svona kertakransa úr
trölladeigi. Þeir eru svo málaðir
í rauðu og grænu þegar búið er
að baka þá í ofninum.
DV-myndGVA
Hagsýnasta hús-
móðirin deilir
stórinnkaupunum
á allt árið
„Ég biðst afsökunar á því hvað
bókhaldsseðillinn er seint á ferðinni
hjá mér, en hér kemur hann.
Ég hef ekki gert grein fyrir haust-
innkaupunum okkar en við keyptum
okkur bæði slátur og kjöt. Ég deildi
kostnaðinum niður á 12 mánuði. Ég
býst við að þetta dugi okkur með
kaupum á fiski (söltuðum) og unnum
kjötvörum sem við kaupum endrum
og eins, saltkjöti, hangikjöti, bjúgum
o.fl. sem maður hefur á borðum til
tilbreytingar," segir í bréfi frá vin-
konu okkar i Grindavík sem við
höfum stundum nefnt „hagsýnustu
húsmóður landsins" hér á neytenda-
síðunni.
Þessi húsmóðir hefur verið með
lægstan meðaltalskostnað í heimilis-
bókhaldinu. Enn er hún með lægstu
upphæðina, um 3 þús. kr. á mann í
dagleg matarinnkaup í nóvember-
mánuði.
Grindavíkurhúsmóðirin hefur gef-
ið okkur skýringar á þessum lágu
meðaltalstölum. Daglegur neyslu-
fiskur er frír, lítið er keypt af unnum
mjólkurvörum, eins og t.d. jógúrt,
ekki keyptir aðrir ávextir en epli og
appelsínur og fyllsta sparnaðar gætt
á öllum sviðum.
Og bréfið heldur áfram:
„Kartöflur, rófur og gulrætur erum
við enn að borða upp úr lóðinni hjá
okkur.
Liðurinn „annað“ er upp á 12.500
kr. í því er enginn fatnaður, en ljós
og hiti, tóbak, meðul, áskrift dag-
blaðs og ýmis smáútgjöld eins og
happdrættismiðar sem alltaf er verið
að betla.
Svo óska ég ykkur á DV gleðilegra
jóla!
- G.J.“
Sælkeramatur helgarinnar:
Hleypt súkkulaði
með appelsínusafa
Ábætisrétturinn á að vera sætur,
en eitthvað bragðsterkt, eins og
dökkt súkkulaði og ristaðar möndl-
ur, gefa ábætisréttinum sérstakt
bragð. Ef einhverju súru er bætt út
í verður rétturinn ferskari.
Hér er uppskrift að súkkulaðibúð-
ing með möndlukökum.
50 g dökkt súkkulaði
peli rjómi
safi úr 3 appelsínum
rifinn börkur af einni appelsínu
Stífþeytið rjómann. Rífið appels-
ínubörkinn og blandið saman við
rjómann. Bræðið súkkulaðið í vatns-
baði og látið út í rjómann. Þegar
heitt súkkulaðið kemur út í kaldann
rjómann hleypur súkkulaðið. Búið
til litlar kúlur úr súkkulaðinu með
tveimúr teskeiðum og berið fram í
litlum skálum með appelsínusafa.
Möndlukökur fara mjög vel með
þessum rétti:
30 g smjör
150 g möndluspænir
3 eggjahvítur
25 g hveiti
130 g sykur
Bræðið smjörið. Blandið öllu nema
eggjahvítunum út í. Þeytið þær létt
og látið saman við. Smyrjið bökunar-
plötu og látið deigið með tveimur
teskeiðum á plötuna. Bakið í 200
gráðu heitum ofni í ca 10 mín., eða
þar til þær eru ljósbrúnar.
Kökurnar renna dálítið út, þannig
að gott er að hafa rúmt um þær á
plötunni.
Framfærslan
farið fram úr
kaupmættinum
„Hjálagður upplýsingaseðill þarf
aðeins skýringar við,“ segir m.a. í
bréfi frá „Einni úr Grindavík" sem
oft hefur skrifað okkur áður.
„Matarliðurinn einkennist af kjöt-
útsölunni en liðurinn annað af hús-
næðisláni sem er á gjalddaga í nóv-
ember ár hvert.
Þar sem verðlækkunin á kjötinu
var allveruleg ákváðum við að birgja
okkur vel upp því okkur finnst
hækkun á framfærslukostnaði hafa
farið talsvert fram úr kaupmætti nú
upp á síðkastið."
Tæp 5 þús. á mann
Þótt þessi vinkona okkar úr
Grindavík hafi birgt sig upp af út-
sölukjötinu var meðaltalskostnaður-
inn hjá henni ekki nema rétt tæplega
5 þús. kr. á mann.
Liðurinn „annað“ var upp á tæpar
35 þús. kr. Það er ekki hægt að segja
annað en að þær séu hagsýnar, fjöl-
skyldurnar í Grindavík. A.Bj.