Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Blaðsíða 36
48
DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985.
Andlát
Jóna Hallsteinsdóttir frá Skorholti
v lést í Sjúkrahúsi Akraness að morgni
miðvikudagsins 18. desember.
Björgvin Samúelsson húsasmiður,
Brekkuseli 29, Reykjavík, andaðist á
Grensásdeild þann 18. desember.
Þórhallur Jónasson, fyrrverandi
bifreiðarstjóri, Hafnarstræti 33,
Akureyri, sem andaðist 15. desember
sl., verður jarðsunginn frá Akur-
eyrarkirkju laugardaginn 28. des-
emberkl. 11.
Ásta Sigríður Ólafsdóttir, sem lést
í sjúkrahúsi Vestmannaeyja 13. þ.m.,
verður jarðsungin frá Landakirkju
laugardaginn 21. desember kl. 14.
* Steinunn Jónsdóttir, Hliði, Eyrar-
bakka, sem andaðist 13. desember,
verður jarðsungin frá Eyrarbakka-
kirkju laugardaginn 21. desember kl.
13.30. Rútuferð verður frá Umferðar-
miðstöðinni kl. 12.
Sigmundur Friðriksson vörubif-
reiðarstjóri lést 10. desember sl.
Hann fæddist í Reykjavík 10. nóv-
ember 1898. Foreldrar hans voru
Ingveldur Hafliðadóttir og Friðrik
Sigmundson. Lengst af stundaði
Sigmundur vörubifreiðaakstur og
var með sína eigin bifreið hjá Eim-
skipafélagi íslands í hartnær 40 ár.
Eftirlifandi eiginkona hans er Vil-
borg Þorvarðardóttir. Þau hjón eign-
uðust fjórar dætur, ein lést nýfædd.
Útför Sigmundar verður gerð frá
Neskirkju í dag kl. 15.
Guðmundur Guðmundsson,
sparisjóðsstjóri lést 13. desember sl.
Hann fæddist i Hafnarfirði 2. des-
ember 1914. Foreldrar hans voru
hjónin Guðmundur Guðmundsson og
Vilborg Þorvaldsdóttir. Guðmundur
var verslunarstjóri við Verslun Þor-
valdar Bjarnasonar í Hafnarfirði
árin 1934—46. Síðan framkvæmda-
stjóri Fiskveiðifélagsins Stefnis og
skrifstofustjóri hjá Jóni Gíslasyni,
útgerðarmanni í Hafnarfirði, til árs-
ins 1958. Þá tók hann við störfum
framkvæmdastjóra Lýsis & mjöls og
gegndi þeim fram til ársins 1966 er
hann réðst til Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar. Þar var hann ráðinn spari-
sjóðsstjóri þann 1. ágúst 1967 og því
starfi gegndi hann til dánardægurs.
Eftirlifandi eiginkona hans er Elísa-
bet Magnúsdóttir. Þeim hjónum varð
þriggja bama auðið. Útför Guð-
mundar verður gerð frá Hafnarfjarð-
arkirkju í dag kl. 13.30.
80 ára verður sunnudaginn 22. des-
ember Sigurður Pétursson, bifreið-
arstjóri á Seyðisfirði. Hann tekur á
móti vinum og vandamönnum að
Miðtúni 2 þann dag.
Tilkynningar
Frímerkjaútgáfur 1986
Tekin hefur verið ákvörðun um eftir-
taldar frímerkjaútgáfur á næsta ári.
1. Frímerki með íslenskum fuglum,
samtals fjögur, verðgildi: 6 kr.
maríuerla, 10 kr. grafönd, 12 kr.
smyrill og 50 kr. álka. Útgáfudag-
ur 19 mars 1986.
2. Evrópufrímerki í tveimur verð-
gildum, 10 kr. og 12 kr. Þau eru
að þessu sinni helguð umhverfis-
vernd og er myndefni íslensku
Evrópufrímerkjanna sótt í þjóð-
garðana að Skaftafelli og í Jökuls-
árgljúfrum. Útgáfudagur er 5. maí
1986.
3. Norðurlandafrímerki í tveimur
verðgildum, 10 kr. og 12 kr., og
er sameiginlegt myndefni þeirra
að þessu sinni tengt vinabæja-
hreyfingunni. Myndefni íslensku
Norðurlandafrímerkjanna verður
frá Seyðisfirði og Stykkishólmi.
Útgáfudagur 27. mai 1986.
4. Frímerki í tilefni aldarafmælis
Landsbanka Islands í tveimur
verðgildum, 13 kr. og 500 kr.
Útgáfudagur 2. júlí 1986.
5. Fjögur frímerki í tilefni tveggja
alda afmælis Iteykjavíkur. Út-
gáfudagur 18. ágúst.
6. Tvö frímerki í tilefni af því að 80
ár verða liðin frá því síminn kom
til landsins og að símakerfi lands-
ins verður allt orðið sjálfvirkt.
Útgáfudagur 29. september 1986.
7. Smáörk (blokk) á degi frímerkis-
ins, 9. október 1986.
8. Jólafrimerki í tveimur verðgild-
um. Þau teiknar að þessu sinni
Björg Þorsteinsdóttir. Útgáfudag-
ur 13. nóvember 1986.
Landssöfnun Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar,
Brauð handa hungruðum heimi,
gengur mjög vel. Svo virðist sem það
sé orðin föst hefð hjá mörgum í jóla-
undirbúningnum að taka þátt í
hjálparstarfi kirkjunnar. Enda er
þörfin nú ekki síður brýn en áður.
Munaðarlaus börn í Eþiópiu og af-
ganskt flóttafólk treystir á skilning
og samstöðu íslendinga fyrir þessi
jól. Söfnunarfé verður varið til hjálp-
arverkefna í þágu þessa fólks.
Nú síðustu dagana fyrir jól verður
áhersla lögð á lokaátakið í söfnun-
inni og treyst á að sem flestir skili
söfnunarbaukum og framlögum í
söfnunina.
Hægt er að koma framlögum og
söfnunarbaukum til skila í banka,
sparisjóði og póstafgreiðslur, á skrif-
stofu Hjálparstofnunarinnar, Suður-
götu 22, og Kirkjuhúsinu, Klappar-
stig 27.
Þá munu flestar kirkjur í kaupstöð-
um, kauptúnum og á höfuðborgar-
svæðinu verða opnar sunnudag kl.
14-17 og á Þorláksmessu kl. 20-22
og taka á móti söfnunarbaukum og
framlögum.
Söfnunarbílar verða á verslunar-
tíma föstudag, laugardag og Þorláks-
messu í Reykjavík við Hlemm, í
Austurstræti, við Laugaveg nýja,
Kjörgarð, Hagkaup og Miklagarð.
Á Akranesi verður söfnunarbíll við
Akratorg á Þorláksmessu og um
kvöldið verður tekið við framlögum
og baukum í safnaðarheimilinu. í
Keflavík verður söfnunarbíll á Þor-
láksmessu við verslunina Stapafell
frá kl. 13-23. Á Akureyri verður
söfnunarbíll á Þorláksmessu í
göngugötunni og tekur við söfnunar-
baukum og framlögum.
Þá verður þeim sem greiða vilja
framlag með greiðslukorti gefinn
kostur á því með því að hringja á
skrifstofu Hjálparstofnunarinnar í
síma 91-26440 og 91-25290.
Alafossbæklingar
fyrir árið 1986
Nýlega komu út Álafossbæklingar
fyrir árið 1986.
Að þessu sinni eru bæklingarnir
tveir, einn sem sýnir kvenfatnað og
annar sem fjallar eingöngu um fatn-
að fyrir karlmenn.
Báðir bæklingarnir endurspegla þá
stefnu Álafoss hf. að hanna og fram-
leiða fatnað sem fylgir ráðandi tísku
á hverjum tíma. Litagleðin er nú
allsráðandi og hafa hinir hefð-
bundnu sauðalitir nú að mestu leyti
lotið í lægra haldi.
Á fundi í Kaupmannahöfn fyrir
viku voru umboðsmenn Álafoss frá
14 löndum samankomnir til þess að
skoða fatnaðinn fyrir 1986. Umboðs-
mennirnir voru sammála um það að
Álafoss-fatnaðurinn og bæklingarnir
fyrir árið 1986 væru með því besta
sem komið hefði frá Álafossi.
Bjartsýni ríkir því og hefur kaldur
vetur í Evrópu gert sitt til þess að
ýta undir hana.
Umboðsmennirnir voru einnig
ákaflega stoltir og ánægðir yfir því
að á forsíðu bæklingsins er mynd af
ungfrú heimi, Hólmfríði Karlsdóttur.
Þess má geta að þetta er í annað
skiptið sem myndir af Hólmfríði birt-
ast í Álafossbæklingi.
Prentsmiðjan Oddi sá um alla gerð
bæklinganna og hafði Halldór Þor-
steinsson umsjón með framkvæmd
fyrir Odda. Upplag bæklinganna er
50.000 eintök og verður þeim dreift
til söluaðila Álafoss hf.
IEI-DFAXI5
Eiðfaxi, 12. tbl. 1985,
erkominn út.
Þar er um að ræða þykkt jólablað.
Kynbótabúið á Hólum er heimsótt
og grannskoðað, sagt er frá íslenska
hestinum í keppni í Kanada, birtur
kappreiðarannáll Sigurbjörns Bárð-
arsonar fyrir árið 1985, unglingar í
Kópavogi kynna félagsstarf sitt í
þættinum Folahlaup, ættbók
hryssna nr. 6239-6357 er birt, sagt
er frá Gufuneskappreiðunum árið
1948, Mörður frá Staðarstöðum er
kynntur, sagt frá hestaþingi Loga í
Biskupstungum, sagt frá Vallarmót-
inu, sem er hestamót Trausta í Laug-
ardal og Grímsnesi, sagt frá enskum
töltara af smáhestakyni, sagt frá
aðalfundi Félags hrossabænda og
aðalfundi Félags tamningamanna.
Einnig er birtur ritdómur um bæk-
urnar Hestar og Með reistan makka.
Jóladagatalshappdrættl
Kiwanisklúbbsins
Heklu
Dregið hefur verið í jóladagatals-
happdrætti Kiwanisklúbbsins
Heklu.
Eftirtalin númer komu á eftirtöldum
dögum: 1. des. 1115 13. des. 2450
2. des. 0959 14. des. 1793
3. des. 2231 15. des. 0385
4. des. 2419 16. des. 1502
5. des. 0043 17. des. 0154
6. des. 2287 18. des. 1026
7. des. 0547 19. des. 1233
8. des. 0591 20. des. 1429
9. des. 0156 21. des. 1967
10. des. 2230 22. des. 1644
11. des. 1291 23. des. 0588
12. des. 0456 24. des. 0401
Flugbjörgunarsveitirnar efna til
landshappdrættis í fyrsta sinn
Landssamband flugbjörgunarsveita
efnir um þessar mundir til lands-
happdrættis til styrktar starfsemi
flugbjörgunarsveita víðs vegar um
landið. Stærsta verkefnið sem safnað
er til er bygging nýs húss undir starf-
semi Flugbjörgunarsveitarinnar í
Reykjavík sem búið hefur við ófull-
nægjandi húsakost um iangt árabil.
1 landshappdrætti flugbjörgunars-
veitanna eru alls 194 vinningar að
verðmæti um sjö milljónir króna. Þar
af eru þrjár bifreiðar af gerðinni
Toyota Tercel 4WD, þrjár bifreiðar
af gerðinni Toyota Corolla DeLuxe
og þrfr Yamaha vélsleðar af gerðinni
XLV sem er tveggja manna vélsleði.
Auk þessara stóru vinninga eru
tölvur, myndbandsupptökuvélar,
myndbandstæki, ferðahljómtæki,
utanlandsferðir og Soda-Stram tæki
meðal vinninga.
Sá háttur verður hafður á í þessu
happdrætti að fyrst verða dregnir út
fimm aukavinningar þann 23. des-
ember en aðrir vinningar verða
dregnir út 17. febrúar næstkomandi.
Þannig geta fallið tveir vinningar
á sama miðann því vinningsnúmerin
í aukadrættinum 23. desember verða
aftur með í aðaldrættinum 17. febrú-
ar.
Vinningarnir sem dregnir verða út
23. desember eru tvö myndbands-
tæki, tvær myndbandsupptökuvélar
og ein heimilistölva.
Myndböndmeð
leikfimiæfingum
Heilsa og sport sf. hefur nýlega
sent á markaðinn þrjú klukkustund-
arlöng myndbönd með leikfimiæfing-
um.
Það er Hanna Ólafsdóttir Forr-
est íþróttakennari sem leiðbeinir.
Skýrir hún æfingarnar jafnóðum og
er notaður þráðlaus hljóðnemi við
upptökurnar ásamt tónlistarundir-
leik afplötum.
Hanna hefur verið með eigin
leikfimiþætti í sjónvarpi í 33 fylkj-
um Bandaríkjanna sl. 15 ár. Þar að
auki hefur hún skrifað rit um leik-
fimi sem selst hafa í milljónaupplagi
og nú rekur hún eigin heilsuklúbb í
Columbus, Ohio, USA.
Hanna hefur lagt sérstaka
áherslu á að hjálpa fólki sem af
einhverjum orsökum hefur misst
í nótt varð stjórnarfrumvarp, um
að hæstiréttur skipi 3ja manna nefnd
til að kanna viðskipti Hafskips, að
lögum. Það voru 27 þingmenn sem
voru samþykkir í neðri deild, einn
var á móti og fjórir sátu hjá.
Allir stjórnarþingmennirnir
studdu frumvarpið. Þeir fengu stuðn-
ing frá þingmönnum Alþýðuflokks
og þremur þingmönnum Alþýðu-
bandalagsins, þeim Garðari Sigurðs-
syni, Geir Gunnarssyni og Guðmundi
J. Guðmundssyni. Guðmundur Ein-
arsson, BJ, var einn á móti. Hins
vegar sátu Svavar Gestsson, Stein-
grímur J. Sigfússon og Guðrún
Helgadóttir hjá og það sama gerði
Guðrún Agnarsdóttir.
Það kom fram að þingmenn voru
óángæðir með að enginn hljóm-
grunnur væri meðal meirihlutans um
að þingmenn fengju að fylgjast með.
Svavar Gestsson skýrði frá því að
Samningur um kaup á frystum
fiskafurðum frá fslandi var undirrit-
aður í Sovétríkjunum á þriðjudag.
Samningurinn gildir fyrir allt næsta
ár. Samið var um að Sovétmenn
keyptu af íslendingum fjórtán þús-
und tonn af karfaflökum, sex þús-
und tonn af ufsaflökum og sama
magn af heilfrystum fiski.
Heildarsöluverðmæti umsamdra
afurða er um 37 milljónir dollara, eða
Nýttverkstæði
Nýlega var opnað Verkstæðið Þing-
holtsstræti 7b. Þar eru til sölu nýst-
árlegar vörur úr íslenskri ull og
lambsskinni í ýmsum litum unnar á
Verkstæðinu eftir eigin hönnun og
hugmyndum. Á boðstólum eru ýmsar
gerðir af flíkum, jakkar, hattar, húf-
ur, treflar, múffur, barnaföt o.fl.,
unnið úr skinnum. Verkstæðið Þing-
holtsstræti 7b er opið alla virka daga
kl. 1-6, en sýningargluggi er á horni
Bankastrætis og Þingholtsstrætis.
Eigendur eru Edda og Iðunn Óskars-
dætur.
líkamsþrótt sinn og heilsu vegna
slysa eða veikinda. Æfingarnar eru
ákaflega fjölbreyttar og ættu allir
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Leikfimi I: Æfingar ætlaðar fólki
sem þjáist af bakveiki, vöðvabólgu
og/eða gikt.
Leikfimi II: Æfingar ætlaðar byrj-
endum og eldra fólki.
Leikfimi III: Æfingar ætlaðar
fólki í góðri líkamlegri þjálfun.
Kostirnir við myndbandaleikfimi
eru margir, en aðallega sá að leið-
.beinandinn er alltaf við höndina,
hvenær sem tóm gefst til æfinga.
Ráðlegt er að fara hægt af stað í
byrjun, taka t.d. 10 mínútur í fyrstu
og bæta við æfingum eftir því sem
þrekið eykst.
Útsölustaðir eru Hagkaup
Reykjavík, Akureyri og Njarðvík.
skiptaráðandi, Markús Sigurbjörns-
son, hefði komið á fund þingmanna.
Hann hefði upplýst að rannsókninni
lyki eftir 3 til 5 mánuði. Einnig
skýrði hann frá því að ekkert væri
því til fyrirstöðu að þingnefndir
fengju að glugga í gögn sem kæmu
frá skiptaráðanda áður enn rann-
sókn lyki endanlega. Þessari hug-
mynd hafnaði Matthías Bjarnason
bankamálaráðherra algjörlega.
Það hefur vakið athygli hvernig
atkvæði alþýðubandalagsmanna
hafa fallið í þessu máli. í efri deild
greiddu allir þingmenn flokksins
frumvarpinu atkvæði. Þó mun Skúli
Alexandersson hafa verið andvígur
því á þingflokksfundi. Einnig klofn-
aði Bandalag jafnaðarmanna í af-
stöðu sinni. Skýringin á því mun
vera sú að Kolbrún Jónsdóttir áttaði
sig ekki á með hverju hún var að
greiða atkvæði. -APH
sem næst einum og hálfum milljarði
íslenskra króna. Meðalhækkun sölu-
verðs frá síðasta samningi er 11,6%.
Hækkunin er í samræmi við verð-
hækkanir þessara fisktegunda á
öðrum mörkuðum.
Um samningsgerðina sáu Benedikt
Guðmundsson,fyrir hönd Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna og Ólaf-
ur Jónsson fyrir hönd Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga.
-HGÍ
Hsnna Ölafsdðttlf FonttsJ er
útskúf»(ð |rá Iþrótta-
kennaraskóta IsLafrda áríö
1958. Hör» ítefur vttriÖ meö
leikffrnfþæUS I
LEIKFIMII
Æfíngar ætlaöar gtgtv«ikum, bakvcikum c
þeím sem þjést af
Skiptaráðandi í Hafskipsmálinu:
Rannsókn lýkur
eftir 3-5 mánuði
— Alþingi samþykkir 3ja manna nefnd
til að annast rannsókn
SamiðíMoskvu:
Sovétmenn kaupa
karfa og uf sa