Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Qupperneq 8
8 DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985. Útlönd Útlönd UtJönd UUönd Jólasveinninn handtekinn.Lögregla í borginni Saeramento í Kali- forníu handtekur hér konu eina uppáklædda sem jólasvein eftir mótmælaaðgerðir fyrir framan verslun eina í borginni. Tilefni mótmælastöðunnar var að verslunin selur loðdýrafeldi og var, jólasveinninn" að mótmæla drápi loðdýra. Hafa dómarann og gísla á valdi sími Þrír skothvellir heyrðust í morgun úr réttarsalnum í Nantes í Frakk- landi þar sem byssubófar höfðu þrettán manns á valdi sínu í alla nótt og biðu þess að lögreglan yrði við kröfum þeirra um að útvega þeim langferðabíl. Mennirnir þrír, vopnaðir hríð- skotabyssum og handsprengjum, höfðu ráðist inn í réttarsalinn í gær síðdegis og tekið nær 30 gísla. Sautj- án gíslanna slepptu þeir í gærkvöldi. Þegar lögreglan varð við óskum þeirra undir morgun og kom með langferðabíl að dómhúsinu framan- verðu var af einhverjum ástæðum hætt við og hann fluttur að bakhlið. Heyrðust þá þrír skothvellir innan úr byggingunni en enginn vissi, þegar síðast fréttist, hvað skeð hefði. - Ræningjarnir höfðu hótað að taka gísla sína af lífi ef kröfum þeirra yrði ekki fullnægt eða ef lögreglan gerði tilraun til þess að ráðast á þá. Það var látið eftir þeim í gær að koma fram í beinni sjónvarpssend- ingu þar sem sást að þeir höfðu handjárnað dómarann, sem var að störfum í réttarsalnum, þegar þeir gerðu árásina. í sjónvarpsútsending- unni fordæmdu mennirnir réttarfarið í Frakklandi. Þeir sögðust vera fé- lagar i frelsishreyfingu Palestínu- araba. Franska lögreglan bar þó kennsl á einn mannanna sem losnaði nýlega úr fangelsi þar sem hann hefur af- plánað dóm fyrir rán. Shultz uppsigað við lygamælapróf George Shultz utanríkisráðherra svo gott sem hótaði í gær að segja af sér ef honum væri skipað að gang- ast undir lygamælispróf sem er liður í öryggisráðstöfunum er Reagan for- seti hefur fyrirskipað. Blaðamenn spurðu hann hvort hann mundi gangast undir slikt próf en hann svaraði stutt og laggott: „Einu sinni!“ forseti hefði fyrirskipað að beitt skyldi meira en áður lygamælapróf- um við eflingu öryggisráðstafana til að hindra upplýsingaleka. Larry Speakes, blaðafulltrúi hans, sagði að líklega mundu einhverjir ráðher- ranna þurfa að gangast undir prófið eins og annað starfsfólk en í gær sagði hann að hvert ráðuneyti fyrir sig yrði látið ráða hvernig að örygg- isráðstöfunum þessum væri staðið. Danir skiptu um skoðun Þá var hann spurður hvort hann mundi hætta ef honum yrði skipað að gangast undir prófið og Shultz svaraði: „Um leið og mér er sagt það í þessari ríkisstjórn að mér sé ekki treyst þá stend ég upp og fer.“ Uppvíst varð í síðustu viku, í kjöl- far njósnahneykslanna í Bandaríkj- unum að undanförnu, að Reagan Gunnlaugur A. Jónsson, DV, Lundi: Strax eftir áramótin munu hefjast viðræður um aðild Danmerkur að norræna sjónvarpsgervihnettinum Tele ex. Paul Schluter, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í gær að það væri mjög þýðingarmikið að Danir tækju þátt í þessu norræna samstarfi og er þar með ljóst að stjórn hans hefur skipt um skoðun í málinu. Er endanleg ákvörðun var tekin um Tele ex í haust stóðu Danir einir Norðurlandaþjóðanna utan við sam- komulagið. Tele ex verður skotið á loft haustið 1987. Laugavegi 26 - Sími 13300-Glæsibæ- Sími 31300.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.