Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1985, Side 38
50
>
*
V
j.
HJÁLPUM ÞEIM - ÍSLENSKA
HJÁLPARSVEITIN
Sennilega hafa margir verið
vantrúaðir á að íslenskt Band-
Aid lag þyldi samanburðinn við
lög stórpopparanna í Bretlandi
og Bandaríkjunum. Sá ótti reynd-
ist ástæðulaus. Lag Axels Einars-
sonar hæfir þessum fjöldasöng
einkar vel og íslenskir popparar
geta verið stoltir af þátttöku
sinni í hjálparstarfmu.
MY HOMETOWN/SANTA CLAUS
IS COMING TO TOWN - BRUCE
SPRINGSTEEN (CBS)
Aldrei þessu vant er það béhlið-
arlagið á þessari smáskífu sem
selur plötuna og vekur athygli.
Þetta er tíu ára gömul upptaka á
jólaperlunni: Santa Claus is
Coming to Town. Springsteen
ferst þetta vel úr hendi og
skemmtir sér manna best sjálfur.
Það er alltaf góðs viti.
MERRY C-HRISTMAS EVERYONE
-SHAKIN STEVENS (EPIC)
Þrátt fyrir afleitar umsagnir í
bresku popppressunni get ég ekki
annað en haft gaman af þessu
nýja jólalagi Stebba. Merry
Christmas Everyone er svo gríp-
andi að allir ættu að geta sungið
með, hafandi heyrt það einu
sinni. Svona eiga jólalögin að
vera: hressileg, mátulega hátíð-
leg, einföld - og óskaplega leiðin-
leg þegar til lengdar lætur. Þá
eru jólin líka búin!
FEGURÐARDROTTNING- RAGN-
HILDUR GÍSLADÓTTIR (SPOR)
Eftir að hafa heyrt þetta lag í
sjónvarpsþætti síðastliðið vor
(eða var það í sumar?) taldi ég
víst að lagið kæmi fljótt út á plötu
og yrði rosasmellur. Nú drukknar
það í jólaplötuflóðinu - illu heilli.
Lagið, textinn og söngurinn er
fyrsta flokks en undirspilið hefði
mátt vera fjölskrúðugra.
WEST END GIRLS - PET SHOP
BOYS (PAARLOPHONE)
Sum lög tekur óratíma að ná
vinsældum og þetta ku fyrst hafa
komið út fyrir hálfu öðru ári.
Ekkert tímamótaverk en gletti-
lega heillandi við nánari kynni
og eitt besta lagið á breska listan-
um þessar vikurnar.
SJÁ OG SIGRA - BOGART
(SPOR)
Minnugur þess að gagnrýni eigi
að vera jákvæð tek ég þá afstöðu
að fæst orð beri minnstu ábyrgð.
DON’T YOU JUST KNOW IT -
AMAZULU (ISLAND)
Ég kann ekki að útskýra svona
poppglundur sem virðist saman-
sett af lítilli kunnáttu og engum
metnaði. Popp í sinni verstu
mynd.
- -Gsal
Frumleg og virkilega góö
Öðru hvoru kemur út íslensk plata
þar sem virkilega kveður við nýjan
tón og þá oftar en ekki látið í léttu
rúmi liggja hvort hún selst eða ekki.
í slíkum tilfellum fæst yfirleitt eng-
inn útgefandi, enda ekki nema alvin-
sælustu plötur sem standa undir sér
hér á landi, svo menn gefa út á eigin
ábyrgð og eru síðan ár og daga að
borga víxla og skuldir. Það er því
ofur skiljanlegt hve fáir leita nýrra
fanga en að sama skapi ákaflega
virðingarvert þegar það er gert og
markaðslögmálum haldið utan við
listsköpunina.
Plata Smartbandsins er af þessum
toga, hún er frumleg og talsvert
öðruvísi en þær plötur sem best selj-
ast. En hún er ekki bara frumleg
heldur líka virkilega góð. Á henni
eru fjögur gæðalög, öll eftir Kjartan
Ólafsson sem jafnframt er útgefandi.
Auk hans er hljómsveitin á þessari
plötu skipuð þeim Kristjáni unga
Eldjárn, Magnúsi Ragnarssyni, Pétri
Grétarssyni og Skúla Sverrissyni.
Fyrsta lagið, sem jafnframt er
poppaðast, heitir Ég Vil Vera Bláu
Augun og er stórskemmtilegt, sungið
með drynjandi djúpri rödd, og svona
til að laða að hlustendur vil ég jafna
þessu lagi við gott Stuðmannalag þó
stíllinn sé ekki ýkja líkur. Eða hvað?
Merkilegt nokk detta mér gjarnan
Stuðmenn í hug þegar ég hlusta á
Smartbandið og svo er, veit ég, um
fleiri sem heyrt hafa plötuna. Það
eru þá helst þeir Stuðmenn sem eitt
sinn völsuðu um á Sýrlandi. Annars
skil ég ekki alveg af hverju umrædd
hljómsveit kemur upp í hugann en
ef til vill er það bara vegna ferskleik-
ans sem einkennir Smartbandið og
einnig gömlu Sýrlandsplötuna.
Seinna lagið á síðu 1 heitir Morg-
unn og byggist upp á fallegri melódíu
sem leikin er aftur og aftur á píanó.
Inn á milli heyrist í hálfsofandi
manni sem vill ekki vakna. I þessu
lagi er mikill friður og það er svo
myndrænt að hugurinn heldur
ósjálfrátt inn á draumalendur.
La Líf er sérstæðasta lagið á plöt-
unni og í einu orði sagt yndislegt.
Það er rólegt og skemmtilega fram-
andi, sungið á máli sem ég átta mig
ekki á hvað er. Mér dettur helst í
hug að svipuð lög hafi verið samin í
Mið-Evrópu á 18. öld, annars er það
ólíkt öllu sem ég hef heyrt.
Platan endar á lagi sem heitir
Veiðimaðurinn og enn kveður við
svolítið skrítinn tón. Aðalhljóðfærin
eru trommur og pípuorgel. Eins og í
laginu Morgunn er hér um margfalda
endurtekningu að ræða en öðru
hvoru uppbrot og síðan lætur sama
dimma röddin, hálf draugsleg, í sér
heyra. Það verða allir að heyra þá
rödd.
- JSÞ.
MAGNUS THOR - CROSSROADS
Metnaðurhjá Magnúsi
Með nýjustu plötu sinni, Crossro-
ads, ætlar Magnús Þór sér greinilega
meira en að vinna hug og hjörtu
íslendinga. Gott ef hann ætlar ekki
að sigra heiminn! Það verð ég þá að
segja að aldrei hefur hann verið jafn
sigurstranglegur og nú. Það hafa
margar ómerkari plötur slegið í gegn
um víða veröld og mér finnst ósann-
gjarnt ef þessi selst ekki að minnsta
kosti í milljón eintökum!
Það er allavega ferskur blær yfir
henni þrátt fyrir að hún sé afskap-
lega vönduð og mikil hugsun að baki
útsetningum. Þá er hljóðfæraleikur-
inn slíkur að unun er að hlusta á
hvert einstakt hljóðfæri, enda eru
þau öll í öruggum höndum; það
kemur skýrt fram að Crossroads er
gerð af fagmönnum.
En platan er meira en vönduð
vinnubrögð, á henni eru níu full-
boðleg lög, flest margskipt og sum
er örugglega óhætt að kalla góð lög.
Þegar þau eru öll flutt á jafn meist-
aralegan hátt og áheyrn ber vitni get
ég ekki annað en hrifist af plötunni
og verið ánægður með Magnús.
Hann semur allt efni plötunnar að
undanskildum tveim textum sem eru
eftir John O’Connors og reyndar
þeir besí sömdu. En Magnús semur
líka býsna góða texta og honum
lætur vel að tjá sig á ensku.
Hann er prýðis söngvari og með
skýran framburð, í sumum lögum
minnir rödd hans mjög á Elton John.
Mér dettur reyndar í hug að sá kappi
sé í talsverðum metum hjá Magnúsi
því að minnsta kosti The Blind Man
og Ghostwriters eru þessleg. Hvort
tveggja frekar róleg og síðara lagið
alveg sérstaklega ljúft, textinn annar
af tveimur eftir O’Connors. Annars
er platan nokkuð fönkuð og vafa-
samt að nokkur íslendingur hafi
fengist við þess konar tónlist með
sambærilegum árangri.
Að lokum vil ég nefna þá sem sjá
um hljóðfæraleikinn á Crossroads,
því allir skila þeir sínu hlutverki af
mikilli list. Þeir eru: Ásgeir Óskars-
son, Skúli Sverrisson, Vilhjálmur
Guðjónsson, Þorsteinn Jónsson og
Þórður Ámason.
JSÞ
DÚNDUR -ÝMSIR FLYTJENDUR
Plata sem stendur undir nafni
Það sætir ekki lengur tíðindum þó
út komi safnplötur með svo glænýj-
um lögum að sigurganga þeirra á
vinsældalistum sé rétt að hefjast á
útgáfudegi plötunnar. Síðasta safn-
plata ársins - ef að líkum lætur - er
Dúndur frá Spori þar sem meðal
annars er að fmna tvö lög nýútgefin
á smáskífum í útlöndum, lag Söndm,
In the Heat of the Night og lag Go
West, Don’t Look Down.
Svona snaggaralegum viðbrögðum
plötuútgefenda er ástæða til að hrósa
því eins og oft áður hefur verið bent
á koma smáskífur hingað sjaldan og
stopult. Safnplötur einsog Dúndur
ber því að líta á sem safn af smáskífu-
lögum og sé miðað við verð jafngildir
heil plata með fjórtán lögum verði
þriggja smáskífa - og þarf því ekki
frekar að undrast vinsældir þessara
platna.
Það hefur færst í vöxt að íslenskum
lögum sé skotið inn á safnplötumar
í bland við vinsælu útlendu lögin.
Hér eru þrjú íslensk lög: This is the
Night með Mezzoforte, Fegurðar-
drottningin með Ragnhildi Gísla-
dóttur og Sjá og sigra með Bogart -
tvö síðastlóldu lögin áður óútgefin.
Það er einmitt kostur þessa safn-
plötuforms að íslenskum smellum er
hægt að koma á framfæri með þess-
um hætti án þess að gefa út 2ja laga
plötur eins og tíðkast á stærri mörk-
uðum.
Dúndur er býsna heilsteypt af safn-
plötu að vera og helgast af því að
lögin em langflest bresk ef undan
eru skilin íslensku lögin þrjú og
þýskættuðu lögin með Söndru og
Michael Cretu. Ómerkilegustu dæg-
urflugunum af breska listanðum er
líka sleppt og bitastæðustu lög síð-
ustu vikna hér flestöll, þar á meðal
lögin Alive and Kicking með Simple
Minds,-When Love Breaks Down
með Prefab Sprout, A Good Heart
með Feargal Sharkey, Don’t Break i
My Heart með UB40 og See the Day |
með Dee C. Lee. Af þessari upptaln-
ingu er ljóst að Dúndur er plata sem
stendur undir nafni.
-Gsal
Sælnú! Það hefur gefisf
misvel að reisa virtar láln-
ar hljómsveitir upp frá
dauðum. Nú herma fregnir
að Donald Fagen og Walter
Becker hafi ákveðið að
blása lifi í Sleely Dan fimm
árum eftir að sú hljómsveit
var siðast með lifs-
marki. .. Það sætir tæpast
iiðindum lengur þó fréttist
af góðgerðarstarfsemi
poppara. Lionel Richie hef-
ur nú látið uppskátt um
áform sem hann og um-
boðsmaöur hans hafa á
prjónunum; þeir ætla 25.
mai á næsta ári að fá fólk
til þess að mynda keðju
þvert yfir Bandarikin frá
New York til Los Angeles
og þeir sem vilja vera með
í þessari keðju verða að
greiða fyrir þátttöku sína.
Fénu veröur svo varið til
hjálpar hungruðum og
heimilislausum - ekki i
Eþiópiu - heldur i Banda-
rikjunum sjálfum . ..
Norska tríóið A-ha fylgir
eftir vinsældum Take On
Me með smáskífunni The
Sun Always Shines on
TV .. . i gáér átti að bjóða
upp á uppboði i Lundúnum
Rolls Royce sem var i eigu
John heitins Lennons og
keyptur áriö 1966 af Bitlin-
um þáverandi. Á uppboð-
inu i gær var fleira merki-
legt úr safni stórpoppara,
meðal annars brúöarkjóll
söngkonunnar Lulu .. .
Stærsta unglingapoppblað
Breta. No. 1, hefur birt nið-
urstöður könnunar meðal
lesenda sinna um eitt og
'annaó í heimi poppsíns og
ættu úrslitin aö vera i
nokkru samræmi við skoð-
'anir islenskra unglinga ef
marka má vinsældalista
rásar tvö: besta hljómsveit-
in var kjörin Duran Duran;
besti söngvarinn Simon Le
Bon; besta söngkonan
Madonna; besta smáskífan
A View To A Kill; besta
breiðskifan Like A Virg-
in .. . Ef við lítum snöggt á
aðra liði kosningarinnar:
besta myndbandið Take On
Me með A-ha (þess má
geta aö nossararnir voru
kosnir fjóröa besta hljóm-
sveitin): versta lagið: The
Power of Love með Jenni-
fer Rush; versta breiðskif-
an Make it Big meö Wham!;
besta kvikmyndin Desper-
ately Seeking Susan og
bjartasta vonin: A-ha; at-
burður ársins: Live-Aid ...
Popparar snúa sér æ meir
að myndböndum einsog
mörgum er Ijóst og þeir
sem ekki gefa út plötu i
þessum mánuði til þess að
selja i jólaösinni gefa sumir
hverjir út myndbönd: til
dæmis má kaupa mynd-
band sem heitir Portrait of
Julian Lennon þar sem
hann syngur þrettán lög á
hljómleikum þar á meöal
tvö sem faöir hans söng á
sinni tið, Day Tripper og
Stand By Me .. . Style
Counsil hefur lika gefið ut
myndband með safni af
smáskífulögum sem kall-
ast: What We Did The
Following Year .. . Látum
gott heita . ..
-Gsal
DV. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985.
SMARTBAND
SMÆLKI