Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Blaðsíða 3
DV. FÖSTODAOUK 1,8. APKÍD,198(>. Fréttir Fréttir Fréttir Dreffing á klórefni stöðvuð - vegna ófull- nægjandi leiðbeininga á brúsum Stöðvuð heíur verið dreifing á klór- efninu sem olli slysinu í Alifuglaslát- urhúsinu Dímoni á Hellu. Vinnueftir- lit ríkisins hefur farið fram á það við þann aðila, sem dreifir efiiinu, að ítar- legar leiðbeiningar á íslensku verði settar á umbúðir efrnsins. Ófullnægj- andi leiðbeiningar voru á klórbrúsan- um sem notaður var á Hellu. Klórgasið, sem myndaðist á Hellu, myndaðist þegar tveim klórtegundum var blandað saman. Eiturgufu lagði þá um sal sláturhússins með þeim af- leiðingum að fimmtán starfsmenn hússins komust í hættu. Vinnueftirlit ríkisins hefur haft sam- band við þá aðila sem hafa nýja klóreftiið undir höndum. Einn af þess- um aðilum hafði báðar tegundir klóreftiisins, en efnin eru afar hættu- leg ef þeim er blandað saman, eins og fram kom á Hellu. Fjórir af þeim starfsmönnum Dím- ons, sem lagðir voru inn á Borgar- spítalann, voru útskrifaðir í gær. Þeir tveir, sem lagðir voru inn á gjörgæslu, eru á batavegi og hafa þeir verið flutt- ir af gjörgæsludeild. -SOS Háskólamenn hjá ríkinu: Tæknifræðingar með hæsta kaupið - félagsráðgjafar bera minnst úr býtum í nýútkomnu fréttabréfi Háskóla íslands er að finna töflu yfir meðal- laun í aðildarfélögum Bandalags háskólamanna á árinu 1985. Taflan sýnir þó aðeins laun og aðrar greiðslur, sem frá ríkisféhirði koma. Er hún byggð á útskrift launadeildar fjármálaráðuneytisins. Samkvæmt töflunni er stéttarfélag tæknifræðinga með hæstu heildar- laun háskólamanna hjá ríkinu. Háskólakennarar hafa að jaftiaði hæstu dagvinnulaun. Fréttamenn og tæknifræðingar hafa hæst hlutfall yfirvinnutekna en prestar og dýra- læknar fá minnstar yfirvinnutekjur. Stéttarfélag Dagvl Heildarl. Stéttarfélag Dagvl Heildarl. Tæknifræðingar 34.956 59.326 Háskólakennarar 39.958 42.982 Verkfræðingar 38.685 59.163 Hjúkrunarfræðingar 28.373 42.085 Lyfjafræðingar 39.447 57.804 Sálfræðmgar 35.745 39.919 Fréttamenn 33.094 56.478 Fél.ísl.fræða 35.413 39.804 Viðsk. og hagfr. 36.184 52.564 Sjúkraþjálfarar 30.996 37.524 Lögfræðingar 34.692 51.675 H.Í.K. grunnskóla 28.806 36.851 Arkitektar 35.586 51.528 Prestar 35.037 36.622 Tækniskólakennarar 34.877 50.247 Iðjuþjálfar 31.714 36.185 Héraðslæknar 34.713 49.709 Bókasafhsfræðingar 31.811 35.585 Náttúrufræðingar 34.779 49.495 Dýralæknar 33.353 35.229 Kennaraháskólinn 36.698 46.453 M atvælafræði ngar 28.750 34.857 H.Í.K. 31.031 45.802 Félagsráðgjafar 30.680 33.722 Otgarður 33.223 45.424 Þjóðfélagsfræðingar 31.420 43.325 -KMU Prestar eru neðarlega á listanum. Þeir hafa mþmstar yfirvinnutelgur. Hinir nýju heiðursfélagar Skógræktarfélags Reykjavikur sem sæmdir voru gull- merki félagsins: Birgir ísleifur Gunnarsson, Gunnlaugur Briem, Ingólfur Davíðsson, Hákon Bjamason og Davíð Oddsson. Heiðursfélagar Skógrækt- arfélags Reykjavíkur Fjörutíu ár eru liðin á þessu ári frá stofhun Skógræktarfélags Reykjavík- ur. Stjóm félagsins hélt hátíðafúnd í Fossvogsstöð af því tilefhi og bauð til sín gestum. Þar vom kjörnir fimm heiðursfélagar og þeir sæmdir heiðurs- merki félagsins. Þetta vom þeir Hákon Bjarnason, fyrrverandi skóg- ræktarstjóri, Ingólfur Davíðsson grasafræðingur, Gunnlaugur Briem, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, Birgir ísleifur Gunnarsson alþingismaður og Davíð Oddsson borgarstjóri. Fundurinn í Fossvogsstöð fór hið besta fram undir stjóm formanns fé- lagsins, Jóns Birgis Jónssonar. Fundur þessi var hluti af afinælis- dagskrá félagsins og er von á fleiri dagskrárliðum síðar. Verð frá kr. 4,200.- Tjöld í miklu úrvali Svefnpokar frá kr. 1.480 til kr. 3.985 -15° til +15° Verð kr. 2.400 Verð kr. 2.995 Verð kr. 1.619 Verð kr. 2.090 Verð kr. 2.533 VORUM AÐ FÁ svefnpoka og bakpoka í miklu úrvali Meint ölvun við akstur á Sauðárkróki: Frá Gunnari Guðjónssyni, fréttaritara DV á Sauðárkróki: Það sem af er þessu ári hafa sjö manns verið teknir á Sauðárkróki, grunaðir um ölvun við akstur, sam- kvæmt upplýsingum sem fengist hafa hjá lögreglunni. Á árinu 1985 vom samtals 36 ökumenn teknir af sömu ástæðum. Sauðkrækingar virðast því mega nokkuð vel við una i þessum efnum því samkvæmt þessum tölum virðist þeim heldur fara fækkandi sem leika þann háskaleik að hafa Bakkus í för með sér þegar þeir setjast undir stýri. Svefnpoki kr. 3.985 -15° til +15'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.