Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Blaðsíða 16
16 DV. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1986. Spurningin Tekur þú lýsi? Kolfinna Knútsdóttir farðari: Nei, alls ekki, ég gerði það í gamla daga, en það er vont, agalega vont. Bárður Bárðarson, starfsmaður Reykjavíkurborgar: Já, ég tek það reglulega og hef gert það í lengri tíma. Mér fínnst það gott. Þór Sæbjörnsson nemi: Nei, ég hef ekki gert það nýlega. Mér fannst það vont en finnst það ekki lengur. Guðbjörg Gunnarsdóttir skrifstofu- stúlka: Já, eða það er að segja lýsispillur. Lýsi finnst mér sko ekki gott. Einar Magnússon kennari: Nei. Ég gerði það fram eftir aldri, en það er komið upp í vana að drekka það ekki. Anna Ingólfsdóttir tónlistarmaður: Já, ég tek lýsispillur, en lýsi er hræðilegt, ég gæti eins reynt að taka olíu. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Jón og séra Jón okrari Kona í austurbænum skrifar: Mikið er rætt um vaxtaokur og fjársvik í okkar landi og er þar víst ekki ofsögum sagt, en af hveijju þetta óréttlæti í sambandi við þessa glæpastarfsemi, t.d. nafnleyndina? Má fólk ekki vara sig á hættunum þar sem okkur er sagt í fjölmiðlurn 14. þ.m. að þetta séu mikils metnir menn í háum stöðum, jafnvel opin- berir starfsmenn? Það eru ættingj- amir og stóri vinahópurinn sem alls ekki má særa með því að nafngreina glæpamennina. En öðrum hópi fólks er ekki hlíft við nafhgreiningu: for- eldrum, systkinum, vinum sem sjá dag eftir dag staglast á því að krakk- amir þeirra lendi í klandri, brjótist inn og steli lítilræði. Þeir hafa líka tilfinningar og svona er ekki meiri glæpur en stór fjárdráttur gegnum lánastarfsemi. Þangað leitar fólk út af neyð í sökkvandi skuldum, er að reyna að klóra sig út úr vandræðum, missir sitt í verðbólgunni og á ekk- ert eftir nema skrokkinn á sjálfu sér, sært á sál og líkama. Hugsið ykkur þetta þjóðfélag okk- ar, rotnunin grefur enn betur um sig, okraramir hafa úr nógu að moða og halda áfram að reyna að ná síð- ustu krónu smælingjanna. En passið ykkur á nafiileyndinni, það er ekki sama að heita Jón og séra Jón. Bréfritari ræðir um okurlánara og m.a. hvemig þeir hagnast á vanda annarra, svo sem húsbyggjenda. Brjálaðir Grænlendingar „Þess vegna gerum við það að kröfu okkar að Grænlendingunum verði ekki leyft að vera hér í landi þegar dansleikir eru. Eða þá að fjölgað verði verulega í lögregluliðinu á meðan á veru þeirra stendur.“ Arnar Þ. Stefánsson, Oddur Ámason, Pálmar S. Gunnarsson og Guðmundur Fylkisson lögreglumenn skrifa: Laugardaginn 15.03 klukkan 03.30 var hringt firá Uppsölum og tilkynnt um að mikil slagsmál væm við pylsu- vagninn við Austurveg. Ofanritaðir fóm á staðinn og vom þá fjórir til fimm hópar í slagsmálum, vom það Græn- lendingar annars vegar og íslendingar hins vegar. Var mannskapurinn mjög æstur og áttum við í erfiðleikum með að hemja hópinn. Ef við tókum ein- hvem Grænlendinginn til hliðar og ætluðum að reyna að ræða við hann og jafnvel að reyna að koma honum til skips þá urðu hinir Grænlending- amir brjálaðir og ef við hefðum ekki sleppt viðkomandi þá hefðum við lík- lega fengið heila áhöfn í átök við okkur. Þama vom einir 6-8 menn úr hvorum hópi orðnir blóðugir og sumir ansi illa famir. Fjórir menn geta ákaflega lítið gert í svona málum og virðist okkur sem Grænlendingamir séu famir að átta sig á því að þeir geta vaðið uppi hér með alls konar skrílslátum því að við getum ekki og reynum ekki að taka þá föstum tökum, eins fámennir og við erum. Þess vegna gerum við það að kröfu okkar að Grænlendingunum verði ekki leyft að vera hér í landi þegar dansleikir em. Eða þá að fjölgað verði vemlega í lögregluliðinu á meðan á vem þeirra stendur. Islendingamir sjá það að Grænlendingamir fá næstum því að vaða hér uppi með alls konar látum án þess að við gerum neitt í málinu og gerir það okkar vinnu mjög erfiða. Flóttamenn Jónina Sveinsdóttir skrifar: Eins og kunnugt er náðu nasistar einhverjum áhrifum hér á landi á fjórða áratugnum. Ekki urðu áhrif þeirra mikil þótt ýmsir dugmiklir ein- staklingar væm í þeim hópi. Enda munu flestir þessara manna fljótt hafa séð að þama vom þeir á rangri leið. Hafa og margir þeirra viðurkennt sína villu og afneitað Hitler & co. Öðm máli gegnir um kommana. Þrátt fyrir margsannaða glæpi Stalíns & Samlede Venner hafa fæstir þeirra játað villu síns vegar. (Aftur á móti urðu margir kommanna að játa á sig villur, innan flokks, á meðan flokks- aginn var þar harðastur, eins og þegar einn flokksfélaginn játaði villur „fé- laga Steinþóm" - en það var raunar eiginkona hans). En aðra leið hafa kommar reynt mjög ákaft. Hún er sú að reyna að flýja upprunann og fortíð- ina. T.a.m. láta mjög margir komma- leiðtoganna í það skína - og segja jafhvel berum orðum - að þeir hafi alist upp á hógvæmm íhalds-, jafnað- ar- og framsóknarheimilum, en síðar hafi þeir bara hrifist af vinstri kenn- ingunni og því lent hjá Alþýðubanda- laginu? Oft koma þessar söguskýring- ar bamalega og broslega út, eins og t.d. hjá ritstj. Þjóðviljans og formanni Alþýðubandalagsins (sem kjörinn var „leiðinlegast þingmaðurinn" af starfs- hópi á Alþingi). Þessir menn láta óspart í það skína að þeir séu nú eigin- lega að hugsun og lífsskoðun eins og danskir og sænskir kratar, ellegar svipaðir jafhaðarmönnum sunnar í Evrópu, t.d. í Frakklandi eða Grikkl- andi, sbr. hinar kostulegu skeytasend- ingar Svavars Gestssonar tif Mitterrands og Papandreou. Allar líta þessar flóttatilraunir næsta kynlega og kjánalega út, ekki síst hjá þeim mönnum sem kunnir em alþjóð af málflutningi um innanlands- mál, sem oft einkennist af glórulausu ofetæki. „T.a.m. láta mjög margir kommaleiðtoganna í það skína - og segja jafnvel ber- um orðum - að þeir hafi alist upp á hógvæmm íhalds-, jafnaðar- og framsóknar- heimilum, en síðar hafi þeir bara hrifist af vinstri kenningunni og því lent hjá Alþýðubandalaginu?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.