Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Blaðsíða 7
DV. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1986. 7 Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Segja Flug- leiðamenn ganga á bak orða sinna Tveir ráðherrar, Matthías Bjamason og Steingrímur Her- mannsson. lýstu því opinberlega yfir í fyrradag að forráðamenn Flugleiða hefðu gengið á bak orða sinna með því að selja 44 prósent hlut sinn í Amarflugi ekki til þeirra níu aðila sem boðist höfðu til að leggja fram 60 milljónir króna í nýtt hlutafé til að reisa við félagið. Matthías samgönguráðherra var harðorður í garð Flugleiðamanna, sagði framkomu þeirra ómerki- lega. Hyggst hann taka orðum þeirra framvegis með fyrirvara. Flugleiðamenn segjast ekki líta svo á að þeir hafi gengið á bak orða sinna. Eðlilegt hafi verið að taka hæsta tilboði. -KMU Sauðárkrókur: Skipakomum fer fjöigandi Frá Gunnari Guðjónssyni, fréttaritara DV á Sauðárkróki: Skipakomum til Sauðárkróks hefur farið íjölgandi á síðustu árum ef marka má 9amantekt sem gerð hefur verið þar að lútandi. Tekur hún til fjölda flutningaskipa sem komið hafa til staðarins en togarar em ekki taldir með. A árinu 1984 vom skipakomur samtals 135 en 151 árið 1985. Það sem af er árinu 1986 em skipakom- ur orðnar 60 talsins. Tæki Nýs lífs til kvikmyndagerðar auglýst til sölu: „Held engu eftir nema stól og borði“ - segir Þráinn Bertelsson sem þó fékk 2 milljónir í styrk „Ég held engu eftir nema stól og skrifborði, allt annað verð ég að selja,“ sagði Þráinn Bertelsson, kvikmyndagerðarmaður hjá Nýju lífi. Nýtt líf auglýsti í gær til sölu öll tæki til kvikmyndagerðar sem félagið á. Að sögn Þráins hefur fé- lagið nú hætt kvikmyndaframleiðslu fyrst um sinn. Nýtt líf fékk á dögunum tveggja milljóna króna styrk úr Kvikmynda- sjóði til að undirbúa mynd sem á að heita Góðir fslendingar. Einnig sótti félagið um styrk til að framleiða myndina en fékk ekki. Eftir þá nið- urstöðu var ákveðið að selja eigur félagsins. „Vissulega þýða þetta þáttaskil hjá Nýju lífi og skipbrot fyrir þá stefnu sem ég hef reynt að fylgja,“ sagði Þráinn. „Ég hef trúað á nauðsyn þess að hér væri fyrirtæki með stöð- uga framleiðslu. Nú erum við komnir niður á það plan sem sjóður- inn vill hafa okkur. Stefhan þar er að kvikmyndagerðarmenn geri útrás með nokkurra ára millibili og glutri svo öllu sem upp hefur verið byggt niður þess á milli. Mikill hluti af vinnu okkar síðustu árin er farinn fyrir lítið.“ Þráinn sagði að það væru fyrst og fremst skuldir vegna myndarinnar Skammdegis sem hvíldu svo þungt á félaginu að óhjákvæmilegt væri að selja eigur þess. Tækin verða til sölu hér innanlands ef kaupandi fæst. Þráinn sagðist vona að kaupandi fyndist hér en að öðrum kosti verða þau seld úr landi. „Við sóttum ekki um tapstyrk vegna Skammdegis enda bað enginn okkur að gera myndina. En ef fram- leiðsla fellur niður hjá fyrirtækinu stöndum við ekki undir þeirri byrði," sagði Þráinn. Þráinn á nú í samningaviðræðum við þýska sjónvarpsstöð um töku myndar. Sótt var um styrk til undir- búnings því verkefni en hann fékkst ekki. Því er óvíst hvort af því verður „nema ég gerist launþegi erlendra aðila eins og flestir hinir sem hafa verið að gera hér myndir. Ég^lái þeim ekki en vona að ég eigi eftir að verða langlífari í kvikmyndagerð- inni en skrifstofumennimir sem nú ráða ferðinni," sagði Þráinn Bertels- son. -GK KVIKMYNDAFRAMLEIÐENDUR ATHUGIÐ!! Kvikmyndafélagið NYTT LÍF býður til sölu eftirfarin tæki til kvikmyndageröar: 1 ttk Aaton Super 16 kvikmyndatokuvél með 3 magatínum og 1 stk C P -16 Sound Camera með súmlinsu 12-120 1 stk Ronlord þrllótur. 15 • 15 1 stk Stereó-Nagra hl|óðupptokulaeki með .trmecode sem nýtt. ennfremur hljóðnemar ste(nuhl|óðnemar. radróhl|óðnemar og tilhevrandi (ylgihlutu 1 stk Sunbury hl|óðy1irlærslutæki 16 mm og 35 mm 2 stk Super 16 mm klipprborð INTERCINE 1 stk pick -sync og vinduborö 4 stk l|ós 2 kw . blondar 8 stk l|ós. 800 w rauðhausar Emmg kaplar standar og ýmsrr lylgihlutir Chevrolet Custom 4rg 74. með nýupptekmm vél og gvkassa F|allatrukkur með húsi lynr 7 manns 8uk ylirbyggingar úr áli Oll þessi tæki ery r 1 flokks éstandi og tilbúm trl notkunar „Endalaust uppeldi á byrjendum" - segir Þorsteinn Jónsson, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna „Það er endalaust verið að ala upp nýja byrjendur í kvikmyndagerð- inni. Fyrst svo stendur á að 22 milljónir eru enn i ríkissjóði af því fjármagni sem Kvikmyndasjóður á samkvæmt lögum að hafa til ráðstöf- unar þá teldi ég eðlilegt að styrkja færri myndir,“ sagði Þorsteinn Jóns- son, formaður Félags kvikmynda- gerðarmanna, um síðustu úthlutun styrkja úr Kvikmyndasjóði. Ákveðið var að styrkja sex leiknar myndir og þórar heimildarmyndir. Þorsteinn sagði að við þessar að- stæður hefði verið eðlilegt að styrkja ekki fleiri en tvær leiknar myndir þannig að eitthvað munaði um styrkinn. Einnig taldi Þorsteinn það ranga stefnu að veita styrki til fólks sem ekki hefði lært kvikmyndagerð. „Þessi stefna sem nú er uppi leiðir ekki til annars en að stöðugt er ver- ið að ala upp nýja og nýja kynslóð kvikmyndagerðarmanna sem svo snúa sér að öðru eftir að hafa lent í kröggum með fyrstu myndina. Fáir þeirra sem mesta reynslu hafa af kvikmyndagerð sækja um styrk núna. Þannig leiða þessir lágu styrk- ir til þess að samhengið í kvik- myndagerðinni glatast,“ sagði Þorsteinn. >- Nú eru þeir sem mesta reynslu hafa í kvikmyndagerð ýmist farnir eða að fara til að vinna að verkefn- um erlendis. Þýðir þetta endalok kvikmyndagerðar hér á landi? „Ég sé ekkert að því að menn leiti eftir samvinnu við erlenda aðila eða fái erlent fjármagn til að gera ís- lenskar myndir. Við verðum aftur á móti að vara okkur á að erlendir aðilar gleypi kvikmyndagerð okkar. íslenskar kvikmyndir verða að hafa íslenskt sjónarhom,“ sagði Þor- steinn Jónsson -GK „Rútustríð" í upp- siglingu í Eyjum Framundan er mikil samkeppni um ferðamenn í Vestmannaeyjum og „rútustríð" tveggja aðila. Ferðaskrifstofa Vestmannaeyja hf. hefúr sótt um sætaferðaleyfi. Samhliða hefúr verið stofnað nýtt félag: Kynnis- ferðir í Vestmannaeyjum sem þeir Púlmi Lorenzson og Ásmundur Frið- riksson eru skráðir eigendur að. Þeir em stjómarmenn í Ferðaskrifstofú Vestmannaeyja hf. Það er greinilegt að ferðaskrifstofu- menn ætla í samkeppni við Pál Helgason sem hefúr rekið ferðaþjón- ustu í Eyjum undanfarinn áratug. Páll hefúr ekið þúsundum ferðamanna þvers og kmss um Eyjar. Hann hefúr komið sér upp góðum bílakosti, á bát og rekur einnig gistiheimili. Vildu 50% af tekjum Forleikur „rútustríðsins" hófst með því að Engilbert Gíslason, fram- kvæmdastjóri Ferðaskrifstofunnar, hafði samband við Pál og fór fram á að Ferðaskrifstofa Vestmannaeyja fengi 50% af öllum þeim tekjum sem Páll hefði af skoðunarferðum um Eyj- ar. Púll var ekki tilbúinn að verða við þessari ósk. í framhaldi af því sendi Ferðaskrifstofan Páli símskeyti þar sem drög vom lögð að samskiptum. „Jú, það er rétt að ég gaf engin svör við drögunum um samskipti fyrir þann tíma sem óskað var eftir svari. Ástæð- an fyrir því var að á sama tíma stóðu yfir þreifingar á milli mín og Ásmund- ar Ériðrikssonar um kaup á öllum mínum rekstri. Ásmundur sagði mér að að baki sér stæðu Engilbert Gísla- son, Páll Lorenzson og Ólafur Gránz, þ.e.a.s. stjóm Ferðaskrifstofú Vest- mannaeyja hf. Eftir miklar þreifingar og umræður gekk ekki saman þar sem hvorki reyndust vera til peningar né trygging sem hægt væri að benda á. Og maður- inn fyrir sunnan, sem Ásmundur og Engilbert sögðu mér frá, kom ekki fram. í beinu framhaldi af skeytinu sendi ég Ferðaskrifstofunni bréf sem þetta kom m. a. fram í: „Vegna fyrr- nefndra ástæðna var ekki ástæða fyrir mig að svara erindi ykkar að svo stöddu um samskiptasamninginn. Því að ef af sölu hefði orðið var það ykkar að semja við sjálfa ykkur.“ Páll sendi Ferðaskrifstofunni bréf þar sem hann afþakkaði samstarf og sagði: „ Ferðaskrifstofa Vestmanna- eyja hf. vill hækka verð á allri þjónustu til muna. Ég er ekki tilbúinn að fallast á að hækka verð upp úr öllu valdi. Mitt kjörorð er: Fleiri ferða- menn til Eyja. Það er okkar styrkur að bjóða hagstætt verð þannig að fleira ferðafólk komi til Eyja.“ „Ég vil gjaman eiga samskipti við Ferðaskrifstofú Vestmannaeyja hf. En er ekki tilbúinn til að leggja alla starf- semi mína niður. Ég er ekki ánægður með að mér sé hótað. Ég er ekki í neinu stríði en mun halda mínu striki. Ég er með margar bókanir frá innlend- um og erlendum ferðaskrifstofúm sem ég mun veita sömu þjónustu nú og sl. tíu ár. Ég stend við gerða samninga," sagði Páll Helgason. -SOS Vorum að taka upp sendingu af hjöruliðum, dragliðum, kúluliðum og öxulendum, m.a. í AMC, BRONCO, GMC, DODGE 0G JEEP VARAHLUTAVERSLUNIN Eigum einnig: tímahjól og keðjur, mæla, höggdeyfa, bremsuklossa, kveikjuhluti, upphækk- anir, dráttarbeisli, drullutjakka, öryggis- belti, kúplingar, o.fl. □ANA Spicer' RILMULI Bf SÍÐUMÚLA3 ~ J (1S3®37273 Sendum um allt land. Wm mm Húsgagnasýning um helgina Laugardag kl. 9-17 Sunuudag kl. 14-17 Síðumúla 30 Sixni 686822 HUSGOGN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.