Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Síða 8
8 DV. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1986. Útlönd Utlönd Utlönd Utlönd Dobrynin, sendiherra Sovétmanna í Bandarikjunum, ásamt frú sinni við brottförina frá Washington fyrir skömmu. Ekki fara neinar sögur af því hvort gutlaði í vodkaflöskum i farteski Dobrynin hjónanna. Vodka handa Dobiynin Gizur Helgason, fréttaritari DV í Ziirich: Anatoly F. Dobrynin, sendiherra Sovétríkjanna í Bandaríkjunum, hélt til síns heima fyrir skömmu eftir að hafa verið sendiherra lands síns í 24 ár í Washington. Síðustu dagana þar vestra notaði hann til að heimsækja og kveðja gamla vini og stjómmálamenn, svo sem öldungadeildarþingmennina Ed- ward M. Kennedy og Gary Hart. Þeim var báðum boðið í veglegt kveðjuhóf sem hann hélt skömmu fyr- ir brottfor. Vinátta Kennedys og Dobrynins nær allt til þess tímabils er John F. Kennedy var forseti Bandaríkjanna fyrir rúmum 20 árum. Gary Hart haföi heyrt um baráttu Gorbatsévs Sovétleiðtoga gegn of- neyslu vodka og fleiri sterkra drykkja í Sovétríkjunum og notaði skilnaðar- stundina með Dobiynin til að færa honum flösku af Baileys Irish Cream og aðra af rússnesku vodka og sagði um leið. „Baileys-flaskan á að minna þig á mig en vodkaflaskan er til þess að þú gleymir ekki hvemig þær líta út.“ Onassis í fjármálasvindli? Gizur Helgason, fréttaritari DV í Zurich: Fjórði eiginmaður margmilljóna- mæringsins og „skipadrottningarirm- ar“ Christina Onassis hefur nú heldur betur lent í því. Franska dómsmálaráðuneytið hefur gefið út ákæm á hendur Thirry Rouss- el vegna peningasmygls. Margmilljónagjaldþrot Thirry Roussel Onassis er ákærður fyrir að hafa ásamt frænda sínum flutt sjö milljónir franskra franka í heimild- arleysi yfir til Sviss. Astæðan er talin gjaldþrot eins af dótturfyrirtækjum fyrirtækjasamsteypu er Roussel á en þar var um að ræða hundrað milljóna franka gjaldþrot. Þegar verið var að fara yfir bókhald fyrirtækisins rákust endurskoðendur á grunsamleg atriði. Meðal þeirra var yfirfærsla upp á sjö milljónir franka til skúffúfyrirtækis í Panama sem síð- an hafði peningana á reikningi hér í Sviss. Dómstóll í París á nú að upplýsa hvort eiginmaður Christina Onassis sé sekur um fyrirframákveðið gjald- þrot. Finnar ætla að opna flugvöllinn Finnsk yfirvöld hafa í hyggju að opna flugvöllinn í Helsinki aftur en hann hefúr lokast vegna verkfalls opinberra starfsmanna. Sömuleiðis er ætlunin að koma aftur af stað lestarsamgöngum við Sovétríkin sem em Finnlandi mjög mikilvæg. Um 42 þúsund opinberir starfs- menn taka þátt í verkfallinu sem ekki sér fyrir endann á. Bygginga- verkamenn í S-Finnlandi hafa hótað að leggja einnig niður vinnu en raf- virkjar ætla að framlengja vikulangt verkfall sitt hjá kjamorkuverunum. Helsinki-flugvöllur hefúr verið iokaður í tvær vikur, en flugmálaráð sagðist í gær hafa sent annað starfs- lið til flugvallarins að leysa af hólmi verkfallsmenn svo að innanlands- flug gæti hafist að hluta í dag. Jámbrautaryfirvöld leita einnig ráða til þess að hrinda lestarsam- göngiun við Sovétríkin í gang að nýju, en um 80% útflutnings Finna til Sovétríkjanna em flutt með jám- brautarlestum. 20% af Finnlandsút- flutningi Rússa fara þann veginn, en Moskvustjómin hefur lagt að Finnlandsstjóminni að opna þá flutninga aftur þrátt fyrir verkfallið. Bandalag opinberra starfsmanna hefúr hótað hefndaraðgerðum ef reynt verði að bijóta verkfallið. Kanslarinn fór í megrunarkúr yfir páskana Ketilbjöm Tryggvason, fréttaritari DV í V-Berlin: Kanslari Vestur-Þýskalands, Helmut Kohl, á við ýmis vandamál að etja þessa dagana. Erfiðir mála- flokkar liggja til ákvörðunar, kosningar nálgast og síðast en ekki síst liggur fyrir kæra á hendur hon- um vegna aðildar hans að Flick málinu svokallaða. Fyrir utan þessi kannski eðlilegu vandamál kanslarans er það samt aukalega eitt sem meira og meira segir til sín, en það er offita. Það er ekki neitt launungarmál hérlendis að æðsti maður þjóðarinn- ar hefur verið að gildna frá því að valdatími hans hófst fyrir um það bil 3 árum. Það er heldur ekkert launungarmál að til þess að vinna á þessu vandamáli fer kanslarinn reglulega á sérstaka megrunarkúra á heilsuhæli einu í Austurríki. Páskamir vom að þessu sinni eng- in undantekning og dvaldi Kohl ásamt forseta Þýska sambands- þingsins, Jenninger (sem reyndar er sjálfúr vel í holdum) á heilsuhæli þessu í heila viku. Það má með sanni segja að þýskir fjölmiðlar fylgist með sínum mönn- um því eftir megmnarkúrinn vom strax birtar tölur um árangur erfiðis- ins. Kanslarinn á að hafa lést um ein 6 kíló á sama tíma á seinasta ári. Vaxa hraðar og kjötið betra Vísindamenn í Astralíu sögðust í gær hafa fundið leið til að ala svín á þann hátt að þau yxu hrað- ar og gæfu af sér betra kjöt. Vísindamennimir, sem rannsak- að hafa svínaeldi við háskólann í Adelaide, segja að tilraunir þeirra með kynbætur á þrem svínum að undanfömu hafi sýnt fram á stór- aukna möguleika með kynbætur er komið geti svínabændum og neytendum til góða í lækkuðu vömverði og mun betri afurð. Svaf dómarinn? Ketilbjöm Tryggvason, fréttaritari DV i V-Berlín: Undarlegt ákærumál kom fyrir hér- aðsdómstól j Berlín nú nýverið. Iögfræðingur einn, sem hafði verið verjandi í dómsmáli, ákærði dómara málsins fyrir að hafa sofið á meðan á vitnisburði stóð. Héraðsdómstóllin vék málinu á bug með þeirri ályktun að þó svo að dóm- ari sýnist hafa augun lokuð og halli höfði lítt á eina hlið, þá sé þar með ekki sannað að hann fylgist ekki með málaflutningi réttarins. Kærandinn var ekki alveg sáttur við niðurstöður réttarins og í yfirlýsingu hans sagði að það væri rétt ályktað hjá réttinum að dómari gæti vel verið að fylgjast með þó svo að hann hefði augu lokuð og hallaði höfði á eina hlið, en það væri fjarska erfitt fyrir viðkomandi að fylgjast með ef sá hinn sami gæfi samtímis frá sér djúp reglu- bundin kokhljóð eins og hinn ákærði gerði. Við fjölmiðla sagði lögfræðingurinn seinna að ályktun réttarins mætti skilja á þá leið að dómari svæfi fyrst þegar hann væri byrjaður að hrjóta. Gyðingar herða árásir á Kurt Waldheim Gizur Helgason, fréttaritari DV í Zúrich: Nýverið upplýsti heimsráðstofna gyðinga sem haldin er í New York að fúndist hafi skjöl frá „úthreinsun- arskýrslu“ nasista grískum föður- landsvirium og að skjölin hafi verið undinrituð af Kurt Waldheim. Talsmaður ráðstefnunnar segir að skjölin hafi fúndist í síðustu viku í þjóðskj alasafninu og þau séu dagsett 11. ágúst 1944. Stríðsglæpamaður á flótta Skjölin eru merkt sem leyndarmál og einnig upplýsir ráðstefnan að júgóslavneska stríðsglæpanefndin ■ hafi árið 1947 lýst Waldheim sem „stríðsglæpamanni nasista á flótta'1. Waldheim sem nú býður sig fram til forseta í Austurríki hefur alfarið neitað því að hafa komið nálægt né vitað um stríðsglæpi. Ráðstefha gyðinga segir að skýrsl- an sem Waldheim undirritaði hafi verið lesin upp við Númberg réttar- höldin árið 1947, en þá hafi meðal annars tíu þýskir foringjar verið sek- ir dæmdir um fjöldamorð á gíslum og andspymuhreyfingarmönnum í hundruðum þorpa og bæjum á Balk- ansvæðinu á stríðstímabilinu. Myrti Waldheim 114 manns? Skýrslan sem merkt er NOKW-935 lýsir ástæðum Þjóðveija fyrir aftök- um griskra föðurlandsvina. í skýrsl- unni kemur nákvæmlega fram að hér sé um að ræða ákvörðun frá aðalstöðvum E-deildar þýska hers- ins, en í þeirri deild var Waldheim foringi. Uppgötvun þessarar skýrslu segja gyðingar að hafi gjörbreytt gangi mála og sýni svo ekki sé um að vill- ast að Waldheim hafi verið kunnugt um þessar aftökur og hafi átt sinn þátt í þeim. Heimsráðstefna gyðinga upplýsti í síðasta mánuði að júgóslavneska nefndin sem kennd er við árið 1947 hafi sýnt og sannað að Waldheim hafi verið ábyrgur fyrir dauða að minnsta kosti 114 manna svo og að hafa brennt og jafnaö við jörðu þrjú þorp. Waldheim hefur nýverið látið hafa það eftir sér að Júgóslavar ættu að leyfa Austurríkismönnum að skoða þessa skýrslu svo þeir geti sjálfir um þetta dæmt fyrir kosningamar. Kvenkyns flugmenn hjá Lufthansa! Ketilbjöm Tryggvason, fréttaritari DV í V-Berlín: í fyrsta skipti í sögu þýska flugfé- lagsins Lufthansa fá konur möguleika til þess að verða flugmenn. Nýlega vom nefnilega 2 konur meðal þeirra umsækjenda sem fengu að hefja flug- mannsnám hjá flugfélaginu. Þó svo að hlutfallið gagnvart 2000 karlmönnum sé ekki mikið þá má telja þetta stórt skref framávið í jafnréttis- málum Þjóðveija. Að minnsta kosti sögðust hinar ungu konur vera við ekkert smeykar og ætluðu þær að sanna karlmönnum svo um munar hvað þær væm færar um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.