Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Page 9
DV. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1986. 9 Útlönd Útiönd Útlönd Útlönd 1 UMSJÓN: GUÐMUNDUR PÉTURSSON Gaddafi vHjar særðra Grein um Marcos fékk Pulitzer Lagt á ráðin um brott- flutninga Vesturiandabúa Muammar Gaddafi, lciðtogi Líbýu, vitjaði í gær á sjúkrahúsi í Trípólí særðra úr loftárásinni í vikunni, sam- kvæmt fregn líbýska sjónvarpsins í gærkvöldi, sem greindi um leið frá því að „píslarvottamir“ úr loftárásinni á Benghazi yrðu jarðsettir í dag. Sýndi sjónvarpið mynd úr sjúkra- húsheimsókn Gaddafis ofursta, þar sem læknaliðið tók á móti honum hrópandi byltingarslagorð. Fregnir frá líbýsku höfuðborginni herma að þar sé óðum að færast ró yfir bæjarbraginn. Þó var borgin myrkvuð í gærkvöldi um stund en samtímis heyrðist mikil loftvamaskot- hríð. Ekki er vitað um neina árás samt. í sendiráðum Vesturlanda í Trípólí hafa menn borið saman bækur sínar um hvemig best megi koma löndum þeirra burt úr Líbýu með stuttum fyr- irvara ef nauðsyn krefur. Milli 7 og 8 þúsund ítalir em í Líbýu og um 5 þúsund Bretar. Alls em taldir vera hartnær 20 þúsund Vesturlandabúar í Líbýu sem ástæða þykir til að óttast um. Ein íslensk flugáhöfn er í Trípólí. Friðaiverð- laun afhent í minningu Olofs Palme Gunnlaugur A. Jónsson, frétta- ritari DV í Lundi: Lisbet Palme, ekkja Olofs Palme, gekk í gær ásamt Jóakim syni sín- um á fund Craxi, forsætisráðherra Italíu, í Róm og tók þar á móti friðarverðlaunum sem veitt voru í minningu eiginmanns hennar. Craxi rseddi við frú Lisbet Palme um baráttu manns hennar „fyrir friði og réttlátari heimi“ og sagð- ist vonast til að boðskap Palme yrði haldið lifandi „sérstaklega á órólegum tímum sem þessum“. Þrír blaðamenn frá Kalifomíu, sem flettu ofan af spillingu í Filippseyjum, nöldursamur dálkahöfundur í New York og Texasbúi með hugann bund- inn við villta vestrið fengu allir hin eftirsóttu Pulitzer-verðlaun í Banda- ríkjunum en þau voru veitt í gær. En í fyrsta sinn i tólf ár vildi verð- launanefndin ekki tilgreina leikrit, sem þætti verðlaunavert, og þykir með því endurspegla þá kreppu sem sé í bandarísku leikhúsi i dag. Þetta er sjötugasta árið sem Pulit- zer-verðlaunin em veitt fyrir störf á sviði blaðamennsku, bókmennta og lista. Larry McMurtry, Texasbúi, sem hef- ur einskorðað sig við sögur úr gamla vestrinu, sagðar af harðbökuðum kú- rekum er horfðu á tilveru sína hverfa, hlaut skáldsöguverðlaunin fyrir 850 síðna bók sína „Lonesome dove“. Hann var heilan áratug að vinna að bókinni. Verðlaunin fyrir fréttaflutning mnnu til þriggja Kalifomíublaða- manna við Mercury News í San Jose fyrir greinaflokka þeirra um stórkost- lega fjármunaflutninga Marcosar, sem þá var Filippseyjaforseti, og hans nán- ustu til útlanda. Þau skrif em talin hafa haft bein áhrif á framvindu stjómmálanna á Filippseyjum. Fréttamenn í Tripólí, höfuðborg Líbýu, segja að ró færist nú yfir borgina eftir róstur síðustu daga í kjölfar loftárásar Bandaríkjamanna. Borgin var myrkvuð í gærkvöldi og af og til hleyptu hermenn úr loftvarnabyssum. Engar árásir munu þó hafa verið gerðar á borgina. Brottflutningur Banda- nkjamanna frá Túnis Bandaríkjastjóm telur Líbýumenn íbyrga fyrir hermdarverkaöldu síð- jstu sólarhringana er beinst hefur Jegn Bretlandi og Bandaríkjunum. I jærkvöld fyrirskipaði Bandaríkja- itjóm brottflutning þúsunda banda- riskra ríkisborgara frá Súdan, nágrannaríki Líbýu. Bandarískur stjómarerindreki var alvarlega særð- ur í Kartúm, höfuðborg Súdan, í fyrradag, og hafa samtök araba, er mótmæla vildu árás Bandaríkjamanna á Líbýu, lýst ábyrgð á hendur sér vegna tilræðisins. Mikil reiði ríkir nú í Bretlandi vegna morðanna á þrem breskum ríkisborg- urum er rænt var í Líbanon fyrir nokkrum vikum og árásarinnar á embættisbústað breska sendiherrans í Beirút í gæmiorgun. Samtök, er segja sig hliðholl Líbýu, hafa lýst ábyrgð á hendur sér fyrir aðgerðimar gegn Bretum síðustu tvo sólarhringa. Bætt samband Súdan og Líbýu Talsmaður Bandaríkjastjómar sagði í morgun að stjóm sín hefði auknar áhyggjui' af nánara sambandi Súdan og Libýu er þróast. hefði að undan- förnu og að útsendarar Líbýu ættu auðvelt með að komast í færi við bandarísk skotmörk í Súdan. Brott- flutningur Bandaríkjamanna frá Súdan hefst í dag. Tvær heimildarbækur, sem fjölluðu um samskipti kynþáttanna í Banda- ríkjunum, fengu verðlaun. Jimmy Breslin, dálkahöfundur hjá New York Daily News, fékk verðlaun fyrir dálka sína, þar sem hann stöðugt talaði máli hins óbreytta borgara gegn bákn- inu. Jules Feiffer hjá Village Voice var verðlaunaður fyrir skopmyndir sínar og Edna Buchanan lögreglu- fréttamaður Miami Herald fyrir almenn fréttaskrif. Ljósmyndaverð- launin runnu til Carol Guzy og Miochel Ducille hjá Miami Herald fyrir fréttamyndir af eldgosi Nevado del Ruiz í Kólómbiu. Ljósmyndaverðlaun Pulitzer í ár runnu til blaðaljósmyndara dagblaðsins Miami Herald, þeirra Carol Guzy og Miochel Ducille, fyrir ljósmyndir þeirra af hörmung- um eldgossins í eldfjallinu Nevado de Ruiz í Kólombiu. Fjaðrafok í Bret- landi vegna hefnda Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, mætir mjög harðri gagnrýni heima fyrir vegna stuðnings hennar við loftárásina á Líbýu. Fer sú gagnrýni harðnandi eftir því sem fréttir berast af fleiri hefndaraðgerðum sem beinast gegn Bretum. Eftir að tíðindi bárust um að Bretum hefði veríð rænt, þeir drepnir og til- raun hefði verið gerð til þess að sprengja farþegaflugvél yfir Englandi, kvaddi David Steel, leiðtogi Frjáls- .lynda flokksins, sér hljóðs í breska þinginu í gær: „Það er þetta sem skeð- ur þegar breska bolabítnum er breytt í kjölturakka Reagans," sagði hann. Neil Kinnock, leiðtogi Verka- mannaflokksins, lagði einnig orð í belg í þessum umræðum þingsins: „Ég held að með því að gerast vitorðsmenn í árás Bandaríkjanna hafi ráðherrarn- ir látið fólk, sem var gíslar þar eystra, sigla sinn sjó og ekki hirt um örlög þess.“ í hæðunum austan Beirúts fundust í gær lík þriggja Breta, sem verið hafa gíslar múhameðsmanna þar eystra. Allir höföu þeir verið skotnir í höfúð- ið, sennilega morguninn eftir loftárás- ina. Þá var breskum blaðiunanni rænt þegar hann var á leið frá flugvellinum til höfuðborgarinnar. Eins var eld- flaugum skotið að sendiráði Breta. BBC-útvarpið hefúr reglubundið sent út viðvaranir til breskra borgara í Líbanon og lagt að þeim að halda sig innan dyra. Thatcher forsætisráðherra tók til máls í umræðunum í neðri málstof- unni og sagði meðal annars: „Ef þið látið hótanir um frekari hryðjuverk aftra ykkur frá því að spyma við fótum þá hafa hryðjuverkaöflin sigrað og þau munu kúga ykkur.“ Þrjár skoðanakannanir, sem gerðar hafa verið síðan á þriðjudag, sýna að sjö af hveijum tíu Bretum em and- snúnir hlutdeild Thatcher-stjórnar- innar í loftárásinni. Herforingjar ánægðir Bandaríkjastjórn birti í gær ljós- myndir er teknar vom úr sérstakri ljósmyndavél á trjónu einnar F-lll árásarvélarinnar og sýna þær að tölu- vert tjón hefúr orðið á líbýsku skotmörkunum. Ein mynd sýnir sprengjur falla á Bab-al Aziziya búðimar í Tripólí þar sem Gaddafi hefúr aðsetur og Bandá- ríkjamenn segja að séu höfúðstöðvar hryðjuverkastarfsemi Líbýu. Áætlað- ur dvalarstaður Líbýuleiðtogans, stórt og mikið tjald í búðunum, sást greini- lega á myndunum. Onnur mynd sýndi greinilegt tjón á herflugvelli við Tripólí þar sem 3-5 risastórar 11-76 flutningaflugvélar, byggðar í Sovétríkjunum, stóðu í björtu báli. „Þessi aðgerð á sér enga hlið- stæðu,“ sagði bandarískur herforingi og sagði að „næstum fullkominn'1 ár- angur hefði náðst í loftárásinni, „flug- mennimir og búnaður okkar stóðu sig með ólíkindum vel ef tillit er tekið til mikils álags og erfiðra aðstæðna".

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.