Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1986, Síða 30
-42 sm^ SÚ BESTA SIMPLE MINDS - ALL THE THINGS SHE SAID (VIRGIN) Það er með ólíkindum hversu mörg lög Simple Minds geta tínt af breiðskifunni Once Upon A Time og öll i sérstök- um gæðaflokki. Þetta lag er ekki undantekning þar á, hér sameinast allt: stórbrotið lag, söngur, útsetning og flutningur. AÐRAR GÓÐAR BIG COUNTRY - LOOK AWAY (MERCURY) Ef önnur lög á væntanlegri breiðskifu Big Country eru i svipuðum gæðaflokki og þetta lag er fyllsta ástæða til að bíða spenntur. Lagið fer frekar rólega af stað, kannski dáldið lahgt í við- lagið en eftir að þvi er náð er keyrt á fullu STYLE COUNCIL - HAVE YOU EVER HAO IT BLUE (POLYDOR) Það er stíll yfir þessu, suð- ræn sveifla með saxa og öllu tilheyrandi. DEPECHE MODE - A QUESTION OF LUST (MUTE) Það er engin spurning um það að maður fær ágirnd á þessu lagí þegar við fyrstu áheyrn. Lagið er frekar i ró- iegrí kantinum eins og margt af því sem Depeche Mode. sendir frá sér. Gæðapopp. BRONSKI BEAT - C'MON C'MON (LONDON) Suðræna sveiflan virðist vera í tisku, hér öllu meiri hraði á henni en hjá Style Council þannig að tærnar og alft er komið á fleygiferð áður en maður veit af. DREGGJARNAR A - HA - TRAIN OF THOUGHT (WB) Þetta lag verður eflaust vin- sælt en þær vinsældir hafa ekkert með gæði lagsins að gera. Þetta er frekar ómerki- legt glanspopp, vantar gott viðlag og þá er ekki mikið eftir til að byggja á, eða hvað? SAMATHA FOX - TOUCH ME (I WANT YOUR BODY) (JIVE) Það verður að segjast eins og er að ekki bjóst ég við að þessi stúlka gæti sungið enda hefur hún flaggað öðru en röddinni opinberlega um langan tíma. Hún getur engu að síður sungið en þyrfti betra lag til að glíma við ef reynsla á að komast á þetta. -SÞS- IMPERIET - 2:A AUGUSTI Sænskir risar AiHska þjóðarráðið, ANC, var stofh- að áttunda janúar nítján hundruð og tólf, tveim árum eftir að Englendingar höfðu veitt hvíta minnihlutanum í Suður-Afríku sjálfstæði. Það var stað- fest í lögum að landið væri tvískipt, að svertingjum bæru alls ekki sömu réttindi og hvítum, en ANC var - og er - sameiningarafl innfæddra gegn drottnurunum. í dag eiga þeir hvítu áttatíu og sjö prósent af landinu, þar af öll frjósöm- ustu svæði þess, því þrátt fyrir ötult starf Þjóðarráðsins er óréttlætinu við- haldið með lögreglu- og hervaldi, nú undir stjóm hins illræmda Botha. Þeir sem kaupa nýjustu plötu Im- periet, 2:a Augusti 1985, styrkja baráttu svartra í Afríku fyrir sjálf- stæði því 10 krónur sænskar, eða tæpar 60 íslenskar, af hveiju seldu ein- taki renna til ANC. En það eru náttúrlega ekki allir sem finna fyrir bróðurkærleika gagnvart svo fjarlæg- um sálum og þeim sem Afríku byggja og sjá því enga ástæðu til að eyða peningum í þessa sænsku hljómleika- plötu, 2:a Augusti. Þess vegna langar mig að fara nokkrum orðum um hana og benda á að flestir kaupa Imperiet af eigingirni einni saman og láir þeim það enginn því hún er vægast sagt stórgóð eins og þeir vita sem séð hafa grúppuna á hljómleikum hér á Fróni. Spilið fyrsta lagið dálítið hátt og sannfærist, finnið hárin rísa, kalda vatnið renna milli skinns og hörunds, Du ska va presi- den; ofboðslega kröftugur og skemmti- legur flutningur á dúndurlagi. Frúbært er orðið sem við á og best að segja það eins og er: Þegar ég hafði hlýtt á nokkra tóna fór ég að skelli- hlæja óg tárin að streyma af einskærri hrifhingu. Ég hafði aldrei heyrt í Im- periet áður og hugsaði: Vá, þetta eru risar. Hljóðfæraleikurinn er æðisleg- ur, bassinn dimmur og kúnstugur, trommumar minna svoh'tið á Magga Stef, gítarinn fremur grófiir en hljóm- borðið nett og gefur tónlistinni alveg sérstaklega flottan blæ. Söngurinn er einhver sá grófasti sem ég hef heyrt, hálfskrollandi. Upptakan er fín og stemmningin góð. C.C. Cowboys kemur næst og Guld och döda skogar þar næst; Imperiet gefur ekkert eftir, þetta er pottþétt plata og sumt á henni frábært. Ég bíð spenntur eftir að heyra hvað kemur út úr samstarfi þessara sænsku risa og Bubba. -JSÞ THE GAP BAND - THE GAP BAND SJÖ Dáirtið þokkalegt Bræðrahljómsveitin The Gap Band hefur nýlega sent frá sér sína sjöundu plötu og er hún fáanleg hér á landi fyrir nokkur hundruð krónur. Ef ein- hverjum þykir þetta stórfrétt þætti mér gaman að hitta þann hinn sama því vafalaust er hann dálítið sérstak- ur. Gap Bandið er nefnilega svo langt frá því að vera nokkuð sérstakt. Hvorki sérstaklega gott né vont. Þó bræðumir Charlie, Ronnie og Robert dyttu allir niður dauðir á sama augna- bliki kæmi alveg ömgglega ekkert gap í tónlistarhimininn. Það er sorglegt hvað má segja þetta um marga sem kalla sig listamenn og kannski ekki rétt að láta pirring minn út af því óvenjumikið í ljós í umfjöllun um sjöundu plötu Gap-bræðra. En það er bara eitthvað svo fjandi lítið hægt að segja um þann grip, diskó-funk í þokkalegum gæðaflokki? - hljóðfæra- leikur? Jú, stundum dálítið flottur, en þokkalegt og dálítið hitt og þetta em líka bestu orðin sem vogandi er að nota. Lögin em svona þokkalega góð - sem þýðir í raun að þau séu nauðaó- merkileg og söngurinn líka. Það sem helst grípur mig á sjöundu plötu Gap-bræðra er það að hún er dálítið töff - eins og diskó-funk er oft - alls konar smellir og skemmtileg hljóð, takturinn svo skýr og ákveðinn, eina sekúndu er allt hljóðið, hina ekk- ert. Og það hefur mikið að segja að bræðumir hafa sjálfir gaman af því sem þeir gera, þannig að það er tilfinn- ing í tónlistinni þeirra. En hún virkar á mig eins og ódýr sýning, ærslaleikur þar sem ekkert er falið og tilgangurinn ekki annar en vagga sér og hlæja smástund, fara síðan heim og allt er búið. -JSÞ MATT BIANCO - MATT BIANCO Léttdjössuð danstónlist við verkið. Þeir njóta aðstoðar margra ágætra tónlistarmanna sem söngvara og er þar fremstur í flokki baríton- saxófónleikarinn Ronnie Ross sem gefur lögunum virkilega skemmtileg- an blæ með leik sínum, sem er í hæsta gæðaflokki, þó að sjálfsögðu séu það Reilly og Fisher sem bera þungann af tónlistinni. Lögin á plötunni em öll eftir þá fé- laga að undanskildu einu, Yeh, Yeh, sem er gamalt lag og var mjög vin- sælt á sjöunda áratugnum. Ekki að furða að Matt Bianco skyldi velja þetta lag því það passar einstaklega vel við tónlistarstefhu þeirra. Matt Reilly sér um sönginn og hefur hann sér til aðstoðar Jenni Evans sem kemst vel frá sínu og eitt lag á hún ein, Fly By Night. Það er greinilegt að þótt þeir Reilly og Fisher hafi áhuga á jasstónlist og tónsmíðar þeirra séu kiyddaðar með jasssólóum þá er langt í frá að hægt sé að tala um jass; til þess er danstakt- urinn of sterkur. Besta lagið á plöt- unni er einmitt Just Can’t Stand It, sem er ekta danslag með grípandi melódíu. Eins og áður sagði er platan gríp- andi við fyrstu kynni en verður nokkuð innantóm þegar hlustað er nokkrum sinnum á hana. Mark Reilly og Mark Fisher eru aftur á móti hæfi- leikamiklir strákar sem eiga framtíð- ina fyrir sér. HK. geti ég neitað að eftir nokkra hlustun verður tónlist þeirra nokkuð einhæf og þreytandi. Best fannst mér hún við fyrstu hlustun, fersk og óumdeilanlega með nokkra sérstöðu. Eins og gefur að skilja með tónlist sem byggir á svo mörgum. tónlistar- stefnum þá dugar ekki að tveir séu Matt Bianco er tiltölulega ný hljóm- sveit. Hún hefur vakið nokkra athygli á undanfómum misserum fyrir gæða- tónlist sem er mjög undir jassáhrifum, á köflum með suður-amerískum takti. Matt Bianco, sem em tveir ungir menn, Mark Reilly og Mark Fisher, hefur tekist nokkuð vel að samræma þessi ólíku tónlistarform, þótt ekki DV. FOSTUDAGUR 18. APRÍL 1986. smælki Sæl nú!.. .Þaö á ekki af Big Country að ganga á hljóm- leíkaferðinni um Bretlands- eyjar. Fyrst var allt rafmagnslaust á hljómleik- um í Newcastle, svo fékk einn liðsmanna hljómsveit- arinnar ekki afgreiðslu á hótelbar i Lundúnum vegna þess að barþjónnínn af- greiddi ekki pönkara að sögn og allt er þá þrennt er; nú hefur illkynjaður virus lagt Stuart Adamson og Bruce Watson i bælið svo ferðinni hefur verið frestað í bili... Bandaríska rokkhljómsveit- in Toto er nú með nýja plötu i burðarliðnum og á henni fær hljómsveitin aðstoð frá ekki ómerkari manni en Mil- es Davis. Þykir mörgum þetta nokkuð lágt lagst fyrir kappann en ekki hneykslast menn minna er þeir frétta að Toto semur og leikur eitt lag á nýrri plötu með Miles Davis!.. .Þær sögur ganga nú fjöllunum hærra að Mic- hael Jackson sé búinn að taka upp tvær plötur sem komi út innan skamms. Þetta eitt myndi nægja sem frétt en það fylgir sögunni að ekkert lag á piötunum sé eftir Michael sjálfan heldur innihaldí þær útgáfur hans á lögum eftir Bítlana sem náð hafa efsta sæti vin- sældalistans i Bandaríkjun- um. Þetta hefur ekki verið staðfest en þess má geta að Michael Jackson keypti í fyrra útgáfuréttinn á fjöl- mörgum lögum Bitlanna... Sade náði þeím stóra áfanga nú á dögunum að fá birta mynd af sér á forsiðu hins virta tiniarits Times. Þennan heiður hafa aðeins örfáir popparar hlotið, þar á meðal John heítinn Lennon og Bruce Spríngsteen. . .Eins og allir vita eru Roiling Stones með eldri hljómsveit- um enn starfandi. Og þar sem sömu menn hafa skipað hljómsveitina svo að segja frá upphafí eru þeir allir komnir nokkuð til ára sinna lika. Þeir eru svo gamlir að samanlagður aldur þeirra er yfir 200 ár!! Geri aðrar hljómsveitir betur.. .Góð- semi og manngæsku popp- ara eru engin takmörk sett. Nú hefur stórhljómsveitin U2 ákveðið að halda eina tónleika í sumar á Irlandi þar sem ágóðanum verður varið til styrktar atvinnu- lausum meðal annars. Aðrir sem fram koma á þessum tónleikum eru meðal annarra Elvis Costello, Van Morri- son, Boomtown Rats, Clannad. Chris Rea, Light A Big Fire og Rory Gallagher.. .Við þangað. ., -SÞS-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.