Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Blaðsíða 29
A trúar-
legum grunni
„Þú ert mér nær“ er nafn á hljóm-
plötu sem kom út á sumardaginn
fyrsta. GunnbjörgÓladóttir, rúmlega
tvítugur guðfræðinemi, er skrifuð
fyrir henni og útgefandi er Samhjálp
Hvítasunnumanna. Þetta er fimmta
plata Samhjálpar, en þær sem á und-
an eru komnar hafa allar selst í
stórum upplögum, þar af ein í um það
bil fimmtán þúsund eintökum, sem
slagar hátt upp í sölumet „Hjálpum
þeim“. „Þessari er ætlað að slá öll
met, hver veit nema hún seljist jafn-
mikið og allar fyrri plötur okkar til
samans," segir Kristinn Ólason,
bróðir söngkonunnar. „Við erum
sem sagt hæstánægð með hana, enda
fengum við til liðs við okkur Björn
Thoroddsen, sem síðan hóaði saman
landsliðinu, eða svo gott sem: Þóri
Baldurssyni, Bjólunni, Skúla, Stein-
grími og Stefáni Stefánssyni.
Það var því ekki að ástæðulausu
að blaðamaður ræddi við þessi bjart-
sýnu ungmenni, aldrei að vita nema
von þeirra rætist, að „Þú ert mér
nær“ eigi eftir að gera stóra hluti.
„Hún er, eins og aðrar plötur sem
Samhjálp gefur út, til styrktar starfi
okkar,“ segir Gunný, „burðarliður-
inn í starfinu," bætir bróðir hennar,
Kristinn, við. „En fólk er ekki að
gefa peninga með því að styrkja okk-
ur, það situr eftir með toppplötu,
ákaflega skemmtilega," heldur hann
áfram. „Allt er þetta samt á trúarleg-
um grunni," skýtur Gunný inn í.
- Trúarlegum grunni, segirðu,
hvað ef þér byðist nú að syngja eitt-
hvað annað en trúarlega tónlist,
værir þú fáanleg til þess?
„Ja...það yrði allavega takmörkun-
um háð, það kæmi til dæmis ekki til
að ég færi að syngja á böllum, og svo
færi það allt eftir innihaldi söngv-
anna hvort ég væri til í það eða ekki.
En annars er söngurinn bara hobbí,
ég er það upptekin í öðru. Ég er í
Háskólanum að læra guðfræði, byrj-
aði i vetur og mér likar ofsalega vel,
það kom mér satt að segja nokkuð á
óvart hvað þetta er skemmtilegt og
gott nám. Það víkkar sjóndeildar-
hring minn og kemur mér að mjög
góðum notum í starfi mínu.“
- Sem er að koma drykkjumönnum
á réttan kjöl, ekki satt?
„Jú, okkar trúarhugsjón er að
hjálpa öðrum og ég lít ekki á það sem
eiginlega vinnu þó að ég sé upptekin
við það flestar stundir. Það er svo
gefandi þó kröfumar séu miklar."
-JSÞ
Kraftakerling
Þótt bensín fari hríðlækkandi þá er eftir sem áður full þörf á að spara í
rekstri bifreiða. Á þessum tímum vaxtarræktar hefur komið í ljós að svokall-
aðir tjakkar eru þarflaus útbúnaður. Það má því spara nokkum skilding
með því að sleppa því að kaupa þetta tæki sem gagnast engum nema mátt-
leysingjum. Stúlkan hér á myndinni á að baki frækinn feril í vaxtarræktinni
og fer létt með að aðstoða bónda sinn við viðgerðir á fjölskyldubifreiðinni.
Ólyginn
sagði...
Gunnbjörg Óladóttir, guðfræðinemi og söngvari með meiru.
Gitte Hænning
muna margir frá þeim tíma erhún
heimsótti Island og lék í Rauðu
skikkjunni. Þessi danska leikkona
segir líf sitt í rústum núna. Hrunið
hófst þegar hún ákvað að yfirgefa
sambýlismann sinn, Pit Weyrich,
þvi hann tók þvi ekki aðeins mjög
illa heldur var hundurinn hálfu
verri. Þegar seppi sá Gitte með
allar töskurnar á leið út úr forstof-
unni reyndi hann í örvæntingu að
stöðva brottflutningana með þeim
afleiðingum að Gitte er afskræmd
af bitsárum i andliti. Öllum sýn-
ingum og sjónvarpsupptökum
hetur verið aflýst og beðið eftir
að lýtalæknar treysti sér til að
tjasla saman sárunum.
Deborah Kerr
er aftur komin í sviðsljósið með
aðaihlutverkinu i sjónvarpsþátt-
unum um Emmu. Aður var hún
þekkt stjama á blómatima
Hollívúddáranna en hafði alveg
horfið af sjónarsviðinu. Skýringin
er sú að Deborah gekk í klaustur
■ eða þannig. Hún giftist og flutti
með eiginmanni til borgarinnar
Kloster i Sviss. Þar hefur leikkon-
an dvalið innan fjögurra veggja
heimilisins en stigur nú skref til
menningarinnar með Emmuþátt-
unum, gömlum og nýjum að-
dáendum til óblandinnar gleði.
Stefanía
prinsessa
hefur fundið sér nýjan kærasta
og sá er með bensín i blóðinu.
Stefán heitir hann, er sænskur
sonur þarlends loðlófa og síöast
en ekki sist - drengurinn er sí-
stækkandi á stjörnuhimninum
sem kappaksturshetja.
Clint Eastwood
fékk ekki að byggja við sánabaðið
sitt vegna andstöðu yfirvalda i
heimabænum Carmel við Kyrra-
hafiö. Hann varð öskuvondur,
bauð sig fram til borgarstjóra og
vann kosningarnar með glæsi-
brag. Núna eru framkvæmdir
hafnar á viðbyggingunni og bæj-
arbúar i þessu þekkta snobbþorpi
eru alsæiir með þróun mála á
staðnum.
St. Jósefsspítali, Landakoti
Fóstrur
Okkur vantar fóstrur til starfa á barnaheimilið Brekkukot
(börn á aldrinum 3ja til 6 ára) og á leikstofu barnadeildar
spítalans. Upplýsingar veittar í síma 19600-300 (leikstofa)
og 19600-250 (Brekkukot) alla daga.
Reykjavík 5. maí 1986.
Toyota HI-ACE bensfn árg. '81, ek- Isuzu Trooper árg. '82, bensin, ek-
inn 100.000, gulur. Verö 285.000. inn 70.000, hvftur. Verð 450.000.
Toyota Carina GL árg. '82, sjálfsk., Mazda 323 árg. '84 1300, ekinn 20.
ekinn 50.000, grár. Verð 300.000. 000. Verð 290.000.
Toyota Land Cruiser station disil árg. '82, ekinn 80.000, rauður. Verð 650.000. Toyota Crown dfsil árg. '80, 5 gfra, ekinn 92.000, rauöur. Verö 290.000. (vegamælir).
kSi?
Toyota Camry DX árg. '83, sjálfsk., ekinn 51.000 beige-met. Verð 365. Toyota Corolla árg. '82 GL, sjálfsk., ekinn 50.000, rauður. Verð 250.000.
000.
SAAB 900 GLE árg. '83, ekinn 23. Mazda 626 árg. '82 2000, sjálfsk.,
000, brúnn. Verð 440.000. ekinn 46.000, grár. Verö 260.000.
Toyota HI-ACE dfsil árg. '83, ekinn
99.000, rauður. Verö 510.000.
Einnig árg. '84, ekinn 100.000, hvit-
ur. Verð 570.000.
Toyota Land Cruiser II árg. '85, ek-
inn 9.000, grár/dökkbrúnn. Verð
775.000. Aukamælar, rafmrúður,
útvarp/segulb., grillguard, dráttar-
kúla.
Toyota Dyna disil, pallbíll, árg. ’81, ekinn 80.000. Verð
560.000.
Volvo 245 árg. 79, ekinn 120.000. Verð 260.000.
Corolla árg. '81, sjálfsk., ekinn 68.000. Verð 190.000.
Subaru 4X4 árg. ’82, ekinn 65.000. Verð 280.000.
Tercel árg. ’81, ekinn 70.000. Verð 175.000.
Mark II árg. 73, ekinn 90.000. Verð 65.000.
TOYOTA
Nýbýlavegi 8 200Kópavogi S. 91—44144