Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Qupperneq 26
26 DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1986. Jóna Guðbjörg Sigurðardóttir lést 25. apríl sl. Hún fæddist á Þorsteinsstöð- um í Grýtubakkahreppi í Suður- Þingeyjarsýslu. Foreldrar hennar voru Guðrún Jónasdóttir og Valdi- mar Guðmundsson. Jóna giftist Kristjáni Karli Péturssyni en hann lést árið 1972. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið. Útför Jónu verður gerð frá Kópavogskirkju í dag. Helga Þórðardóttir lést 27. apríl sl. Hún fæddist 25. september 1905 í Litlu-Tungu í Holtum. Foreldrar hennar voru Guðrún Ólafsdóttir og Þórður Tómasson. Eftirlifandi eigin- maður Helgu er Stefán Guðmunds- son. Þau hjónin eignuðust eina dóttir. Útför Helgu verður gerð frá Bústaðakirkju í dag kl. 13.30. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 102. tölublaði Lögbirtingablaðsins I984, og 2. og 8. tölu- blaði þess 1985 á eigninni Þverholti v.A/esturlandsveg, Mosfellshreppi, þingl. eign Sameignarfélagsins Hengils, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Mosfellshreppi á eigninni sjálfri föstudaginn 9. maí 1986 kl. 16.15. __________________Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 29., 38. og 41. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign- inni Akurholti 4, Mosfellshreppi, þingl. eign Sturlu Fjeldsted, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Mosfellshreppi og Jóhannesar Jóhannessen hdl., á eigninni sjálfri föstudaginn 9. maí 1986 kl. 15.30. _________Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 102. tölublaði Lögbirtingablaðsins I984 og 2. og 8. tölu- blaði þess 1985 á eigninni Hjarðarlandi 4, Mosfellshreppi, þingl. eign Jóns Sveinssonar og Guðrúnar Sveinsdóttur, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka ís- lands og Amar Höskuldssonar hdl., á eigninni sjálfri föstudaginn 9. maí 1986 kl. 16.00. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Bugðutanga 1,1. haeð, Mosfellshreppi, talin eign Halldórs Gíslasonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 9. maí 1986, kl. 15.00. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 105., 107. og 108. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Urðarholti 1, íb. 0101, Mosfellshreppi, þingl. eign Hermanns Her- mannssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn 9. maí 1986 kl. 14.30. ___________________Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Hliðsnesi, Bessastaðahreppi, þingl. eign Hall- dórs Júliussonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 9. maí 1986. kl. 17.00. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. ÍBR _____________________ KRR REYKJAVIKURMÓT MEISTARAFLOKKUR 3. sætið. VALUR - VÍKINGUR í kvöld kl. 20.30. Á GERVIGRASINU I LAUGARDAL Umboðsmann vantar á Breiðdalsvík. Uppl. gefur Geirlaug í síma 5662 og afgreiðsla DV í síma 91-27022. Kristinn Hans Hákonarson lést 28. apríl sl. Hann fæddist á Stað á Reykjanesi i Barðastrandarsýslu 9. júlí árið 1897, sonur hjónanna Arn- dísar Bjarnadóttur og Hákonar Magnússonar. Árið 1937 réðst Krist- inn sem lögreglumaður til Keflavík- ur. Árið 1948 var hann skipaður varðstjóri í lögreglunni í Hafnarfírði og yfirlögregluþjónn varð hann árið 1962. Því starfi gegndi hann þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1968. Eftir það sinnti hann ýms- um mikilvægum störfum fyrir bæjarfógetaémbættið um langt ára- bil eða meðan heilsan leyfði. Krist- inn var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Stefanía Ingimundardóttir og eignuðust þau fjögur börn. Kristinn og Stefanía slitu samvistum. Eftirlif- andi eiginkona Kristins er Sólveig Baldvinsdóttir. Þau eignuðust eina dóttur. Útför Kristins verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag kl. 15. Stefanía Hansen lést 27. apríl sl. Hún fæddist á Sveinsstöðum á Snæfells- nesi 3. desember árið 1900. Foreldrar hennar voru hjónin Guðmundur Jó- hannesson og Guðbjörg Sigríður Sigurðardóttir. Stefanía giftist Ulrich Z. Hansen en hann lést árið 1938. Þau hjónin eignuðust fjögur böm. Árið 1972 missti Stefanía báða syni sína með fárra vikna millibili. Stefanía vann við hin ýmsu störf, m.a. var hún lengi þerna á m.s. Esju og verkstjóri hjá Hamilton á Kefla- víkurflugvelli. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 15. Bárður Óli Pálsson lést 26. apríl sl. Hann fæddist 27. ágúst 1910 á Ytri- Skógum undir Eyjafjöllum. Foreldr- ar hans voru Margrét Oddsdóttir og Páll Bárðarson. Oli lauk búfræði- prófi frá Bændaskólanum á Hvann- eyri árið 1930. Hann gekk í lögregluna í Reykjavík árið 1932 þar sem hann starfaði í röskan áratug. Hann starfaði síðan hjá Almenna byggingarfélaginu og um hríð hjá Póst- og símamálastofnuninni og Olíufélaginu hf. Hann hóf síðan rekstur eigin fyrirtækis, verktaka- fyrirtækisins Jarðýtunnar sf. sem varð starfsvettvangur hans allt fram til ársins 1980 að hann seldi fyrirtæk- ið. Óli var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Anna Tómasdóttir en hún lést árið 1974. Þeim hjónum varð þriggja sona auðið. Eftirlifandi kona hans er Hallfríður Bjamadóttir. Út- för Óla verður gerð frá Fríkirkjunni í dag kl. 13.30. Unnur Sveinsdóttir lést 28. apríl sl. Hún fæddist í Hafnarfirði 27. október árið 1904. Foreldrar hennar voru Sveinn Árnason og kona hans Vil- borg Þorgilsdóttir. Unnur giftist Snorra Lárussyni en hann lést fyrir 6 árum. Þeim hjónum varð tveggja barna auðið. Þau Unnur og Snorri bjuggu sín fyrstu búskaparár á Seyð- isfirði en fluttu til Akureyrar árið 1939. Þaðan fluttu þau til Reykjavík- ur árið 1950. Útför Unnar verður gerð frá Garðakirkju í dag kl. 15. Knútur Ragnarsson, Aratúni 20, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 7. maí kl. 13.30. Leó Sveinsson, fyrrverandi bruna- vörður, Hávallagötu 5, andaðist á öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10 B, sunnudaginn 4. maí. Jóna S. Ágústsdóttir frá Sauðholti, Laugarnesvegi 48, lést á Reykjalundi 4. maí. Ingibjörg Jónína Jónsdóttir, Hrafn- istu, Hafnarfirði, andaðist 4. maí í Landakotsspitala. Jón Eiríkur Jónsson, Skipasundi 75, andaðist í Borgarspítalanum 4. maí. Kristrún E. Haraldsdóttir, Drápuhlíð 40, lést í Landspítalanum aðfaranótt laugardagsins 3. maí. Pétur Lárusson, Suðurgötu 15-17, Keflavík, lést í sjúkrahúsinu í Kefla- vík 4. apríl. Guðmundína Oddný Marteinsdóttir, sem lést á Hrafhistu í Hafnarfirði 27. apríl, verður jarðsett frá Hafnar- fjarðarkirkju miðvikudaginn 7. maí kl. 13.30. Magnús V. Sörensen lögregluþjónn verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni miðvikudaginn 7. maí kl. 15. Brynjólfur Símonarson, Garðavegi 15 B, Hafnarfirði, verður jarðsung- inn frá Hafnarfjarðarkirkju mið- vikudaginn 7. maí kl. 15. Þómnn Hanna Björnsdóttir ljósmóð- ir verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 7. maí kl. 15. Ymislegt Aðalfundur SPOEX 3. apríl sl. var samþykkt ó aðalfundi samtakanna að fá einn exemsjúkling inn í stjórn félagsins. Dagný Björk Pjetursdóttir hefur tekið það að sér að vera fulltrúi exemsjúklinga. Þessa dagana er verið að senda út bréftil allra exemsjúklinga í félaginu til að fá hugmyndir þeirra um hvern- ig best verði staðið að þeirra hagsmunamálum. Við vonum að allir félagar með exem láti frá sér heyra og einnig eru nýir félagar velkomnir. Skrifstofa SPOEX er að Baldurs- götu 12, 101 Reykjavík, sími 25880. Opið er virka daga frá 13 -17. Átthagafélag Stranda- manna í Reykjavik verður með kaffiboð fyrir eldri Strandamenn í Domus Medica fimmtudaginn 8. maí kl. 15. Aðal- fundur félagsins er á sama stað 15. maí kl. 20.30. SÍBS með ferð til Ítalíu SÍBS býður félögum sínum og fjöl- skyldum þeirra í hagstæða ferð á ítölsku ríveríuna í þrjár vikur 26. maí nk. Þeir sem hafa áhuga á þátt- töku hafi samband við skrifstofu SÍBS, Suðurgötu 10, sími 22150. Ferðalög Útivistarferðir Útivistar-dagar í Grófinni 7.-11. maí Dagskrá: 1. Miðvikudagur 7. maí kl. 20: Kvöldganga í Geldinganes. Náttúru- paradís í nágrenni höfuðborgarinn- ar. Ca. 2 klst. létt ganga. Verð 250 kr„ frítt f. börn. Brottför úr Grófinni og BSÍ, bensínsölu. 2. Uppstigningardagur (fimmtud.) 8. maí: Kl. 10.30. Bjargfuglaskoðun á Krísu- vikurbergi. Kjörið tækifæri til að skoða fuglabjarg og læra að þekkja nokkrar sjófuglategundir. Létt gönguferð. Leiðbeinandi verður Árni Waag. Verð 450 kr„ frítt f. börn með fullorðnum. Kl. 10.30. Grindaskörð-Langahlíð, gönguskíðaferð. Verð 450 kr. Kl. 13.00. Bæjarfell-Arnarfell-Bleiks- mýri. Gengið á fornum slóðum i Krísuvík. Verð 450 kr. Brottför í ferð- irnar úr Grófinni (bilastæðinu milli Vesturgötu 2 og Vesturgötu 4). Einn- ig frá BSÍ, bensínsölu og v. kirkjug. Hafnarf. 3. Föstudagur 9. maí kl. 14-19 og laug- ardagur 10. maí kl. 9-12: Kynning á sumarferðum Útivistar ásamt ferða- útbúnaði í versluninni Geysi (ferða- vörudeild), Vesturgötu 1. Fararstjór- ar o.fl. veita upplýsingar. Ýmislegt til skemmtunar. 4. Laugardagur 10. maí kl. 10.30: Fuglar, selir, hvalir og fjörulíf á Suð- urnesjum. Kjörin fjölskylduferð í samvinnu við Náttúruverndarfélag Suðvestur- lands. Skoðaðir verða fuglar og selir á Hraunsvík og við Reykjanestá. Möguleiki að sjá hvalavöður. Skeljar og kuðungar í Stóru-Sandvík og fjöl- breytt fugla- og fjörulíf við Hafnir og Garðskaga. Leiðbeinendur verða Árni Waag, Jón Bogason og Einar Egilsson. Farið frá bílastæðinu milli Vesturgötu 2 og Vesturgötu 4 (Gróf- inni), bensínsölu BSl og kirkjug. Hafnarf. Verð 450 kr„ frítt f. börn m. fullorðnum. 5. Sunnudagur 11. maí: Reykjavikurganga Útivistar. Við- burður á afmælisári Reykjavíkur. Kynnist fjölbreyttri gönguleið um höfuðborgina mikið til í náttúrulegu umhverfi. Brottför kl. 13 úr Grófinni og 13.30 frá BSÍ, bensínsölu. Ekkert þátttökugjald. Rútuferðir til baka frá Elliðaárstöð. Leiðbeinendur um jarðfræði, skógrækt o.fl. verða með. Gengið um Öskjuhlíð, Fossvog i Ell- iðaárdal. Ath. Höfuðborgarbúar, íbúar nó- grannabyggða sem aðrir eru hvattir til þátttöku i Útivistar-dögunum. Sjáumst sem flest. Tapað - Fundið Myndavél tapaðist aðfaranótt laugardagsins 19. apríl. Vélin var í svörtu hulstri og tapaðist á leiðinni Broadway - vesturbær - Kópavogur. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 98-1514. im 80 ára verður á morgun, miðvikudag- inn 7. maí, Ólafur Daðason hús- gagnabólstrari, Rauðalæk 4. Hann og kona hans, Guðný Guðjónsdóttir, taka á móti gestum í sal Meistara- sambands byggingarmanna, Skip- holti 70, II. hæð, 7. maí eftir kl. 20. 50 ára afmæli á í dag, 6. maí, frú Valgerður Valdimarsdóttir, Arnar- hrauni 32, Hafnarfirði. Hún er að heiman. Eiginmaður hennar er Axel Magnússon kaupmaður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.