Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1986, Blaðsíða 8
8 DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 1986. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Kjarnorku- sérfræð- ingar í Moskvu Þrír forsvarsraenn þeirrar stofnunar Sameinuðu þjóðanna er fer með kjamorkumál eru komnir til Moskvu til viðræðna við stjómvöld um afleiðingar slyssins í Chemobyl kjamorkuverinu. Sovásk yfirvöld hafa staðfest komu þremenninganna en segja að engar áœtlanir séu uppi um að láta fuiltrú- ana skoða verksummerki í Chemo- byl. Talsmaður Sovétstjórnarinnar sagði í morgun að geislavirkni við verið væri nú í algeru lágmarki og þegar væru l.afnar stórvægilegar aðgerðir til að hreinsa upp nágrenni Chernobyl af geislavirkum úrgangs- efnum. Sovésk yfirvöld .hafa aldreí viður- kennt annað en að daglegt líf hafi verið með eðlilegum hætti á flestum byggðum svæðum í nánd \nð Chemobyl þrátt fyrir slysið og til- kynntu það fyrir skömmu að fyrir- hugað alþjóðamót hjólreiðamanna, er halda átti í Kiev, yrði formlega sett í dag, samkvæmt áætlun. Níu lönd hafa aflýst þátttöku sinni í alþjóðamótinu vegna geislunar á svakiinu umhverfis Kiev, þar á með- al nágrannariki Sovétn'kjanna í Austur-Evrópu, Rúmenía og Júgó- slavía. Gagnaðgerðir gegn Chernobyl geislun Vísindamenn og sérfrasðingar í heil- brigðis- og kjarnorkumálum víðs vegar að úr heimimun funda í Kaup- mannahöfh í dag að frumkvæði alþjóða heilbrigðismálastofnunar- innar um hugsanlegar afleiöingar kjamorkuslyssins í Chemobyl. Markmið fundarins er að samein- ast um aðgerðir í heilsuvemdarmál- um vegna geislunar í lofti og regnvatni á stórum svæðum Evrópu. Sænskir sérfræðingar sögðu í morgun að búast mætti við þvi að allt að 8 þúsund manns, flestir í Sov- étríkjunum og nágrannaríkjum þess í Austur-Evrópu myndu þróa með sér krabbameinstilfelli vegna geisl- unar frá Chemobyl á næstu árum. Banna ferskt grænmeti Austurríkismenn hafa bannað sölu á fersku grænmeti eftir að uppgötv- aðist um óeðlilega mikið magn geislavirkra efna í fersku grænmeti er selt var í Austurríki og yfirvöld hafa varað foreldra við því að böm þeirra séu að leik í sandi eða mold, er gæti hugsanlega verið geislavirk, auk of náinnar snertingar við ýmis gæludýr er hugsanlega gengju með geislavirkan jarðveg á feldi sínum. Búist er við því í dag að Efhahags- bandalag Evrópu tilkynni um sameiginlegar aðgerðir bandalags- ins við að fylgjast með hugsanlegri geislavirkni í innfluttum matvælum frá ríkjum Austur-Evrópu. Blaðamannafundur í dag Fjölmörg ríki Vestur-Evrópu hafa þegar bannað allan innflutning mat- væla fró Austur-Evrópuríkjum vegna hættu á geislavírkum efnum. Búist er við blaðamannafúndi al- þjóða heilbrigðismálastofnunarinn- ar síðdegis í dag þar sem niðurstöður fundarins verða kynntar almenn- ingi. Aukin samvinna á sviði gjaldeyrismála Samþykkt leiðtogafundarins í Tokýo í moigun Leiðtogar sjö iðnríkja, er nú halda árlegan leiðtogafund sinn í Tokýo, komust í morgun að samkomulagi um víðtæka samvinnu í efnahags- málum, þar á meðal aukið sameigin- legt eftirlit með þróun á gjaldeyris- mörkuðum og gengismála. Michele Massaloux, einn fulltrúa Frakka á leiðtogafundinum, sagði í morgun að samkomulagið hefði náðst á vinnufundi í gærkvöldi og í morgun og yrði brátt opinberað. Ljóst er að Bandaríkjastjóm hefur lengi beitt sér fyrir aukinni sam- vinnu iðnríkjanna sjö á sviði eftirlits með gengisþróun og vom drög þeirra tillagna er samkomulag náðist um í morgun upprunalega af bandarískri gerð. Að sögn Massaloux er í samkomu- laginu hvergi beinlínis minnst á kröfur Japana um hjálp hinna iðn- ríkjanna sex við að stemma stigu við ört hækkandi gengi japanska Yens- ins á gjaldeyrismörkuðum heimsins að undanfomu. Fundurinn samþykkti ennfremur í morgun breskar tillögur um aukna áherslu á alþjóðleg tryggingamálefrii auk afleiðingar aukinnar tölvuvæð- ingar á alþjóðaverslun á fundum iðnríkjanna sjö í framtíðinni. Samkomulag náðist einnig um aðra breska tillögu varðandi offram- leiðslu matvæla og aðgerðir til að koma í veg fyrir slíkt. Búist er við því í dag að leiðtoga- fundurinn sameinist í yfirlýsingu um málefhi blökkumanna í Suður-Aff- íku, þar sem stefna hvíta minnihlut- ans verður fordæmd og hvatt til gagngerra breytinga á stjómkerfi landsins. Engar tillögur hafa komið fram á leiðtogafundinum um sameig- inlegar refsiaðgerðir gegn ríkisstjóm Suður-Afríku. Yasuhfro Nakasone, forsætisráðherra Japan og jafnframt fundarstjóri á leið- togafundi sjö helstu iðnríkja heims, ásamt Reagan Bandaríkjaforseta við setningu fundarins á sunnudag. Leiðtogafundurinn samþykkti i morgun bandarískættaðar tillögur um aukna samvinnu á sviði gengis- og gjaldeyris- mála. Bobbysocks finnst Sandra of ung Björg Eva Erlendsdóttir, fréttaritari DV í Osló: Norðmenn eru afar ánægðir með frammistöðu sína og norska sjón- varpsins í sambandi við Evrópu- söngvakeppnina á laugardag. Útsendingin telja þeir að hafi heppn- ast alveg frábærlega og verið frábær landkynning og því er ekki að neita að einskis var til sparað til að auglýsa Noreg í gegnum keppnina. Keppendur frá öllum þátttökuríkj- um vom sýndir í norskri umgjörð um landið þvert og endilangt. Áse Kleve- land, er kynnti keppnina, er talin hafa staðið sig með mikilli prýði og hennar hlutverk gekk áfallalaust og virðulega fyrir sig. Þess má geta að hún hefur verið nefhd sem hugsanlegur menningar- málaráðherra í minnihlutastjóm Stöllumar i Bobbysocks hafa látið hafa það eftir sér að þeim finnist hm fjórt- án ára gamla Sandra Kim, er hér sést á myndinni, of ungur sigurvegari i keppni sem Eurovision söngkeppninni. V erkamannaflokksins. En eins og gefur að skilja vom Norð- menn óánægðir með hversu neðarlega norski söngvarinn lenti. Hann átti betra skilið, segja þeir. íslenska lagið vakti enga athygli í Noregi og Norðmenn gáfu því heldur ekki nein stig. Flestum þykir belgíska stúlkan Sandra Kim er sigraði alltof ung til að vera með í svona keppni. Bobby- socks, sigurvegurunum frá því í fyrra, leist ekkert á hvað hún er ung. Sú skoðun kom úr hörðustu átt vegna þess að Hanne Krogh, annar helming- ur Bobbysocks, var aðeins 15 ára sjálf er hún tók fyrst þátt í Evrópusöngva- keppninni í gamla daga. Þá var hún yngsti þátttakandi er nokkm sinni hafði verið með og það met var ekki slegið fyrr en nú í ár. Uggur í Spánverjum vegna kjamorkuslyss Kjamorkuslysið í Chemobyl hefur skapað mikla umræðu á Spáni um öryggismál í sjö spænskum kjamorkuverum og notkun kjamorku til orkuframleiðslu Pétur Pétursson, fréttaritari DV i Barcelona: Slysið í kjamorkuverinu í Chemo- byl í Sovétríkjunum hefur vakið mönnum ugg hér ó Spáni. Þótt ekki hafi mælst nein geisla- virkni hér og talið ólíklegt að hún berist hingað em menn þegar famir að líta innfluttar mjólkurafurðir homauga. Foiráðamenn spænskra kjam- orkuvera liggja undir miklum þrýstingi þessa dagana. Hér em starfandi sjö kjamorkuver og fram- leiða þau um 22 prósent þeirrar raforku sem hér er seld. Nokkur kjamorkuveranna hafa átt við tæknileg vandamál að stríða á síðustu árum og er einn helsti syndaselurinn kjamorkuverið í Al- amaraz í Austur-Madura. Verið, sem hefur verið lokað síð- ustu tvær vikur vegna álags á flutningslínum, hefur átt við vand- ræði að stríða frá því það var tekið í notkun. Nú fyrir skömmu kom upp leki ó kælivatni og fyrir tæpu ári slapp út umtalsvert magn af geisla- virku gasi. Stjóm kjamorkuversins hefur ver- ið gagnrýnd fyrir að halda þessum slysum leyndum og hefúr umhverfis- vemdarráðunautur fylkisstjómar Austur-Madura krafist þess að kjamorkuverið verði ekki opnað aft- ur fyrr en rannsakað hafi verið til hlítar hvað farið hafi úrskeiðis og gagngerar endurbætur gerðar á ör- yggiskröfúm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.