Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1986, Qupperneq 5
DV. LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1986.
49
tvö viðurkenningarskjöl sem flug-
stjórinn undirritar. Annað þeirra
sýnir að viðkomandi hafi flogið
hraðar en hljóðið, hafi rofið
hljóðmúrinn. Hitt vottar að hann
hafi komið norður fyrir heim-
skautsbaug. Þetta þykir mjög
sérstakt," sagði Norman.
Karlmannslaus í Concord
Að sögn Normans hafa þessar
dagsferðir verið mjög vinsælar hjá
eldri piparmeyjum. Þetta eru oft
konur sem á sínum tíma tóku
starfsframann fram yfir hjóna-
bandið. Þegar þær svo fara á
eftirlaun standa þær upp með góð-
ar tekjur en engan til að eyða þeim
með. Og það er ekkert gaman að
fara einn í langt frí. Þess vegna
fara þær í dagsferð með Concord.
Concordinn bætir þeim upp eigin-
mannsleysið.
Síðan á Concord-þotan sína
fastagesti. Eins og fótboltafrik elta
liðið sitt hvar sem það keppir elta
Concordaðdáendurnir vélina sína.
Áfangastaðurinn skiptir ekki máli.
Þangað sem Concordinn fer fara
þeir líka.
Og Concordaðdáendurnir eru
engir smástrákar sem langar til að
verða flugmenn þegar þeir verða
stórir. Þetta er fullorðið fólk, bæði
konur og karlar, sem eyðir miklu
fé og tíma í þetta áhugamál sitt.
Herra Kent með flugbókina sina. Skjalið sem sést er viðurkenning fyrir
að hafa rofið hljóðmúrinn.
Eins og eiturlyf
Fröken Marjorie B. Dalzell heitir
glaðleg skosk kona á sjötugsaldri.
Hún er ein af fastagestunum.
Hreinlega elskar Concordinn.
„Þetta er besta þota í heiminum.
Það er engin vél eins og Concord-
inn. Maður verður háður henni
eins og eiturlyfi,“sagði hún og hló
hjartanlega.
„Það er alveg sama hvað þú heit-
ir eða hvað þú gerir. Um borð í
Concord eru allir M.M.M. Meiri-
háttar mikilvægar manneskjur og
það er farið með þig eins og þú
sért konungborin. Og það er svo
mjúkt að fljúga með Concord. Þú
líður áfram, enginn hristingur eða
óþægindi, það hellist ekki niður
svo mikið sem dropi af kaffi.“
Fröken Dalzell var mjög ánægð
með íslandsferðina. Sérstaklega
þótti henni áhugavert að skoða
Vestmanneyjar. „Maður sér ver-
öldina í öðru ljósi eftir að hafa séð
með berum augum hvað gerðist
þarna,“ sagði hún. En Marjorie var
ekki jafn ánægð með verðlagning-
una út í eyjum. „Ég safna bóka-
merkjum og ákvað því að kaupa
eitt í Vestmanneyjum. og veistu
hvað það kostaði? Hvorki meira
né minna en þrjú pund og sextíu
pens. Heima myndi svona bóka-
merki kosta svona sextíu pens.“
Marjorie hristi höfuðið af hneyksl-
an. Og skyldi engan undra.
Flug númer 117
Herra Kent er flugsjúkur. Ekki í
þeim skilningi að honum líði illa í
flugvél. Þvert á móti. Hann er sjúk-
ur í að fljúga. Og hann flýgur þetta
fimmtán til tuttugu ferðir á ári.
Sem farþegi, vel að merkja, því
Kent hefur aldrei lært að stjórna
flugvél.
Hann heldur bókhald yfir flugið
sitt. I stóra svarta möppu færir
hann samviskusamlega inn upplýs-
ingar um hverja flugferð. Hann
Fröken Marjorie Dalzell: Maður
verður háður Concordinum eins
og eiturlyfi.
skráir númerið á fluginu og tegund
flugvélarinnar. Hvaðan er flogið
og hvert, klukkan hvað og hvaða
dag, ásamt ýmsum öðrum upplýs-
ingum sem tengjast flugferðunum.
„Ferðin til Vestmannaeyja var
hundraðasta og sextánda flugferð-
in mín. Ferðin heim verður því flug
númer hundrað og sautján. Og
jafnframt fjórða skiptið sem ég flýg
með Concord," sagði hann.
- En skiptir það hann máli hvert
er flogið?
Hann dró við sig svarið. Kannski
hræddur um að særa íslendinginn.
„Mér fannst ákaflega gaman að
koma hingað. ísland er mjög sér-
stakt land. Þetta er í fyrsta skipti
sem ég kem hingað og það eina sem
ég vissi um ísland var að hér væru
ræktaðir bananar í gróðurhúsum,"
sagði hann. Bætti síðan við: „En
flugið er nú samt aðalatriði. Og að
fljúga með Concord er eitt af því
sem er of dásamlegt til að því verði
lýst með orðum.“
Ógleymanleg afmælisgjöf
Herra og frú Legg hittum við í
sundlauginni á Loftleiðum. - En
hvers vegna fóru þau í dagsferð til
íslands? Varla til þess eins að fá
sér sundsprett?
„Maðurinn minn er sextugur í
dag og mig langaði til að gefa hon-
um eitthvað óvenjulegt í afmælis-
gjöf. Eitthvað sérstakt og
ógleymanlegt og ferð til íslands er
óneitanlega sérstök. Það eru ekki
margir Englendingar sem halda
upp á sextugsafmælið sitt á ís-
landi. Ég vissi líka að manninn
minn hafði lengi dreymt um að fá
að fljúga með Concord," sagði frú
Legg.
„Henni tókst líka svo sannarlega
að koma mér á óvart. Þegar ég
mætti út ú flugvöll hafði ég ekki
hugmynd um hvert ferðinni væri
heitið. Og þetta hefur verið mjög
ánægjuleg ferð. Alveg ógleymanleg
afmælisgjöf," sagði herra Legg.
Óánægð með
flugvallarskattinn
„Farþegarnir okkar hafa yfirleitt
verið mjög ánægðir með þessar
ferðir. Það eina sem hefur verið
kvartað yfir er flugvallarskattur-
inn. Á öllum hinum stöðunum, sem
við fljúgum til í svona dagsferðir,
hefur flugvallarskatturinn verið
felldur niður.
Það hefur ekki þótt rétt að inn-
heimta þennan skatt fyrir svona
stutta ferð. Svo má ekki gleyma því
að þetta fólk verslar yfirleitt mikið.
Það er komið til þess meðal annars
að versla.
Og hjá mörgum verður dagsferð
til þess að kveikja áhuga á að koma
aftur til að vera lengur og sjú
meira. Þessar ferðir eru auglýsing
íyrir landið og á flestum stöðum
hafa menn skilning á því. Ég veit
hins vegar ekki hvort til standi að
breyta þessu hér,“ sagði Norman
Gilham fararstjóri.
-VAJ
Legghjónin I sundlauginni á Loftleiðum. Konan kom mér svo sannar-
lega á óvart með þessari afmælisgjöf, sagði hann.
DV-myndir Óskar Örn
ÚTBOÐ
Byggingarnefnd flugstöðvar óskar eftir til-
boðum í lóðarfrágang nýrrar flugstöðvar á
Keflavíkurflugvelli.
Verkið nær til frágangs akbrauta, gangstétta,
bílastæða og gróðursvæða umhverfis flug-
stöðvarbygginguna ásamt tilheyrandi raflögn-
um, snjóbræðslulögnum o.fl.
Utboðsgögn verða afhent væntanlegum bjóð-
endum á skrifstofu Almennu verkfræðistof-
unnar að Fellsmúla 26, Reykjavík frá og með
mánudeginum 7. júlí 1986 gegn 20.000 króna
skilatry ggingu.
Fyrirspurnir ásamt óskum um upplýsingar
skulu berast Almennu verkfræðistofunni,
Fellsmúla 26 eigi síðar en 6 dögum fyrir opnun-
ardag tilboða.
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 14 hinn 21. júlí
1986 til
Byggingarnefndar flugstöðvar
V arnarmálaskrifstofunni,
Skúlagötu 63,
105 Reykjavík.
Byggingarnefnd flugstöðvar.
HLUTHAFAFUNDUR
í Arnarflugi hf.
Arnarflug hf. heldur hluthafafund laugardaginn 12. júlí nk.
að Hótel Sögu og hefst hann kl. 15.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar félagsins um niðurfærslu hlutaíjár í
félaginu
2. Tillaga stjórnar félagsins til breytinga á samþykktum
félagsins
3. Tillaga stjórnar félagsins um hækkun hlutafjár með
áskrift nýrra hluta.
Tillögur stjórnar félagsins um ofangreind málefni liggja
frammi ásamt fylgigögnum á skrifstofu félagsins, Lágmúla
7, Reykjavík, til athugunar fyrir hluthafa.
I tillögu um niðurfærslu hlutafjár er lagt til að hlutafé fé-
lagsins verði lækkað í 10% af nafnverði, þannig að hlutafé
félagsins verði eftir niðurfærsluna kr. 4.836.000.
I tillögu til breytinga á samþykktum félagsins er lagt til
að ákvæði samþykktanna um forkaupsrétt hluthafa við
hlutafjárhækkun skuli ekki eiga við um þá hækkun hluta-
fjár með áskrift nýrra hluta sem ákveðin kann að verða á
fundinum. I tillögu um hlutafjárhækkun er lagt til að
hlutafé félagsins verði aukið um allt að kr. 96.720.000 með
áskrift nýrra hluta og að hluthafar hafi ekki forkaupsrétt.
Stjórnin.
KRABBAMEINS-
RANNSÓKNIR -
staða forstöðumanns
Krabbameinsfélag íslands hefur ákveðið að
verja hluta af söfnunarfé „þjóðarátaksins 1986“
til rannsókna í frumu- og sameindalíffræði.
Rannsóknaraðstaða verður tilbúin í ársbyrjun
1987 í húsi félagsins í Skógarhlíð 8.
Forstöðumaður verður ráðinn frá 1. desember
1986, eða eftir nánara samkomulagi til þriggja
ára í senn. Sérhæft starfslið verður síðan ráðið
í samráði við forstöðumann.
Auk vísindarannsókna mun forstöðumaður og
starfslið rannsóknarstofunnar skipuleggja og
annast söfnun lífsýna fyrir Krabbameinsfélag-
ið.
Umsóknir um starf forstöðumanns berist for-
stjóra Krabbameinsfélagsins fyrir 15. septemb-
er 1986 og veitir hann jafnframt allar nánari
upplýsingar.
Auk upplýsinga um menntun, starfsferil og
vísindastörf skulu umsækjendur senda með
umsókn sinni áætlun til þriggja ára um þær
rannsóknir sem þeir hyggjast beita sér fyrir.
Krabbameinsfélag íslands
Skógarhlíð 8, Box 5420
125 Reykjavík.