Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1986, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR 5. JÚLl 1986.
63
Katharine Hepburn og Frances Dee í Little Woman árið 1933.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Katharine Hepburn er goð-
sögn í lifanda lífi en hefur
tekist að halda einkalífi utan
við vinnuna.
Fjórðu óskarsverðlaunin hlaut Hepburn fyrir leik i On Gold-
en Pond 1982, hér ásamt Jane Fonde.
Hepburn
Konan sem kyndir ofninn
En hver er Katharine Hepburn í
raun og veru? Imynd hennar í kvik-
myndunum hefur verið mörgum
fyrirmynd. Hún er hin frjálsa, gáf-
aða, sterka og heiðarlega kona.
Um einkalíf hennar er hins vegar
ekki mikið vitað. Utan vinnu hefur
hún ævinlega klæðst mjög frjáls-
lega og gerði víðar síðbuxur og
strigaskó að nokkurs konar vöru-
merki sínu. Hepburn er mjög
varkár í viðtölum og ummæli henn-
ar í viðtali fyrir tæpu ári lýsa vel
þeim skörpu skilum sem hún dreg-
ur milli atvinnu og einkalífs:
„Nýlega hélt ég ræðu um Kathar-
ine Hepburn. Eg hef ásamt öðrum
skapað framkomu og ímynd fyrir
hvíta tjaldið. Og svo er það ég
sjálf. Ég er mjög ólík þeirri sem
allir þykjast þekkja. Sú er goðsögn
sem sköpuð hefur verið íyrir al-
menning. Ég er ekki ósvipuð
konunni sem kyndir ofninn. Ég
held henni gangandi."
Hepburn hefúr aldrei gefið leyfi
til að tekin yrði saman ævisaga
hennar, en ýmsir hafa gert tilraun-
ir til að skrifa slíka bók. Sú nýjasta,
A Remarkable Woman: A Biograp-
hy of Katharine Hepbum, er
skrifuð af Anne Edwards. Höfund-
urinn er enginn viðvaningur í ritun
ævisagna frægra kvenna: Sonya
Tolstoy, Vivien Leigh, Judy Gar-
land, Margaret Mitchell og Breta-
drottning hafa allar verið
viðfangsefni hennar. Katharine
Hepburn kann þó að hafa verið
erfiðasta viðfangsefnið og leikkon-
an hefur meðal annars haft þetta
um ævisagnaritun að segja: „Ég tel
að þessi innrás í einkalíf fólks sé
óheiðarleg og röng og ég hef mót-
mælt henni harðlega," og „Ég mun
aldrei ræða einkamál mín. Þau
verða ekki einkamál ef ég geri þau
opinber."
Uppljóstranir og nafnleynd
Þó Hepburn hafi aldrei fengist
til að ræða við Anne Edwards
finnst mörgum að sú síðamefnda
hafi unnið nokkra sigra yfir við-
fangsefninu. Edwards hefúr verið
óþre^rtandi við heimildarsöfnun og
dregur sitt af hveiju fram í dags-
ljósið, allt fi*á því Hepburn leit fyrst
dagsins ljós í Hartford, Connecti-
cut, 8. nóvember 1907.
Margir af vinum leikkonunnar
þvemeituðu líka að ræða við Ed-
wards en þeir sem leystu frá
skjóðunni njóta nafnleyndar. Og
auðvitað var margt um ævi Hep-
burn á allra vitorði: 42 kvikmyndir,
sem hún lék í, dómamir, stöku við-
töl, umsagnir samstarfsmanna,
ummæli í ævisögum Hollywood-
stjama sögðu sína sögu. En
auðvitað vantar ferskleikann í frá-
sögn sem ekki er frá fyrstu hendi.
Hvemig veit Anne Edwards að
1927 sagði Hepbum við kærastann
sinn: „Ég ætla að verða mesta leik-
kona í veröldinni? Talaði Edwards
við Robert J. McKnight? Hvernig
veit höfundurinn að hjónaband
Hepburns og fyrsta og eina eigin-
manns hennar, Ludlow Ogden
Smith (þau skildu 1934), hafi ein-
ungis verið til málamynda?
Edwards sýnist lítið um Hepbum
unga gefið. Hún lýsir henni í æsku
sem ofdekraðri frekjudós en erfitt
er að sjá hvað hún hefur fyrir sér
í þvi. Katharine þroskast þó fljótt
og breytist til batnaðar. Brautin til
frægðar og frama var hvorki breið
né bein og Hepburn mátti þola að
vera rekin frá leikhúsum. En hæfi-
leikarnir og útlitið mæltu strax
með henni. Hepbum var rauðhærð,
með skarpt þóttalegt andlitsfall,
hávaxin, grönn eins og fjöl, með
sérkennilegt göngulag og sér-
kennilega rödd, með há kinnbein,
gráblá augu, sem sagt sérlega aðl-
aðandi.
Ásjálf sitt einkalíf
Edwards eyðir talsverðu púðri á
samband Hepburn við Spencer
Tracy sem var á sínum tima umtal-
að í Hollywood. Tracy var kaþólsk-
ur og vildi ekki skilja við
eiginkonu sína. Samleikur hjóna-
leysanna í kvikmyndum allt frá
Woman of the Year til síðustu
myndar Tracys, Guess Who’s Com-
ing to Dinner,lýsir þó sambandi
þeirra ef til vill betur en nokkur
frásögn.
Leikkonan Katharine Hepburn
hefúr verið lengi í sviðsljósinu og
hæg heimatökin að draga upp
skýra mynd af henni. Anne Ed-
wards hefur sem sagt tekist að lýsa
ofninum ágætlega, en konan, sem
kyndir ofninn, hefur enn einu sinni
komist undan og á sjálf sitt einka-
líf.
Heimildir: American Film mars ’86
og Films maí ’82. .gjjj
Þegar Katharine Hepburn vann til óskarsverðlauna fyrir
leik sinn í On Golden Pond árið 1982 var það í fjórða sinn
sem bandaríska kvikmyndaakademían gaukaði þessari
frægu styttu að henni. Áður hafði Hepburn fengið óskar
fyrir frammistöðu sína í kvikmyndunum Morning Glory,
1933, Guess Who’s Coming to Dinner, 1967, og The Lion in
Winter, 1968. Það kom líklega engum á óvart að jafnvirt
og mikilhæf leikkona og Katharine Hepburn skyldi hljóta
margháttaðar viðurkenningar um ævina en þegar hún varð
númer sjö á lista yfir það fólk sem bandarískir unglingar
kölluðu hetjur sínar árið 1984 urðu margir hissa. En þegar
betur er að gáð hafa óvenjulegir hæfileikar Hepburn og
sjálfstæðar skoðanir hennar haft gífurleg áhrif á marga,
ekki síst konur, í hartnær hálfa öld.
Rooster Cogburn reyndist ekki vel heppnuð mynd, þótt þar
mættust stjörnurnar Katharine Hepburn og John Wayne.
——■*-» ..—I ......................... ^ . .... !!■
Gary Grant starir á Katharine Hepburn gegnum rimlana í Bringing up Baby. Spancer Tracy og Hepbum, skærustu stjörnur MGM í áratugi, í Woman of the Year.