Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1986, Blaðsíða 15
DV. LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1986.
59
Umsjón:
Sigurður Hreiðar
BŒiAR
Rennilegur fákur og traustvekjandi. - Eru þetta ekki sömu hurðirnar og á SAAB 9000?
Lancia Thema
LANCIA THEMA 8-32
Þegar ég átti nokkra daga á Ítalíu
í vetur að skoða tiltekinn bíl fór
ekki hjá því að annar bíll vekti
nokkra athygli mína. Bæði er að
þetta er nokkuð fallega teiknaður
bíll og svo hitt að maður hafði hann
alls staðar fyrir augunum að kalla.
Við lá að mér þætti sem fimmti hver
bíll væri af þessari gerð. Þetta var
Lancia Thema, flaggskip Lancia flot-
ans, lúxusbíll af temmilegri stærð.
I vor gafst mér svo færi á að skoða
þennan bíl nokkru nánar og setjast
undir stýri í honum nokkurn spöl,
þegar ég var staddur á Sardiníu til
að skoða Lancia Delta, sem þegar
hefur verið sagt frá á bílasíðu DV.
Þar er skemmst frá að segja að ég
skil betur eftir en áður hvers vegna
hann virðist svo vinsæll bíll heima
fyrir sem raun ber vitni.
Sem fyrr segir er þetta bíll af
temmilegri stærð. Lengd hans er 4,59
m, breidd 1,755 m. Hann er einn
þeirra bíla sem er afrakstur uppruna-
legrar samvinnu fjögurra verk-
smiðja: Lancia, SAAB, Fiat og Alfa
Romeo. Þrír bílar hafa þegar litið
dagsins ljós sem afrakstur þessarar
samvinnu: Lancia Thema, SAAB
9000 og Fiat Croma, en Alfan er enn
á leiðinni.
Sama faðerni
Það leynir sér ekki að þessir bílar
eru af sama faðerni. Allt eru þetta
aflmikilir lúxusbílar með mikla akst-
urshæfni, allir með þverstæðri vél
og framhjóladrifi, allir meira eða
minna áþekkir í útliti. Ég hef ekki
enn öðlast þann heiður að setjast inn
í SAAB 9000, en hina tvo hef ég feng-
ið að prófa, Lancia Thema og Fiat
Croma. Ég er þess ekki umkominn
eftir skömm kynni að gera upp á
milli þeirra tveggja. Báðir eru ein-
staklega þægilegir í viðkynningu,
bæði gott og gaman að aka þeim,
báðir mjög vel útbúnir og vel úr garði
gerðir - en í mínum huga hefur
Thema vinninginn hvað útlit snertir.
Og svo þetta sem gerir Lancia bílana
svo áhugaverða í mínum augum:
Þeir virka svo þéttir, skröltlausir og
stabílir.
Að innan er Theman enn rúmbetri
en ætla mætti eftir þeim tölum sem
ég nefndi hér að framan. Þar við
bætist að sætin í henni eru fjarska-
lega þægileg, jafnvel i mýksta lagi
fyrir mig, sem nýt mín ekki til fulls
í því sem ég hef stundum kallað dún-
poka. Áklæðið á bílnum, sem ég
prófaði, var rúskinnsliki af gerðinni
alcantara, sem bæði er mjög þægilegt
viðkomu og auðvelt að þvo. Fram-
sætin stillir maður með rafinagni
fram og aftur, upp og niður, og auð-
vitað bakhallann líka, og hægt er að
fá aukreitis svipaðan stillibúnað á
aftursætið. Það fer vel um mann i
aftursætinu á Themunni, og „hjóna-
djöfullinn” - armpúðinn sem hægt
er að fella niður í miðju sætinu þeg-
ar farþegarnir eru aðeins tveir - er
breiður og góður til síns brúks. Og
þó að þetta sé skottbíll en ekki skut-
bíll er hægt að fá hann þannig að
hægt sé að fella sætisbakið niður,
hálft í senn eða allt, ef flytja þarf
mikinn farangur.
Að sjálfsögðu eru rafmagnsrúður á
svona lúxusbíl og rafknúin miðlæs-
ing á öllum hurðum og skotti.
Armhvílurnar innan á framhurðun-
um eru á réttum stað fyrir ökumann-
inn, en á því vill stundum verða
nokkur misbrestur hjá hönnuðum. I
framhaldi af þeim eru handföng inn-
an á hurðunum og húnarnir til að
opna innanfrá nánast fyrir vísifingur
ofan á þeim. Við vorum að vísu með
nokkrar vangaveltur um hvort það
væri ekki einum of aðgengilegur
staður fyrir innihún, ef fiktgjarnir
farþegar opnuðu kannski hurðirnar
af rælni á fullri ferð. Bót í máli er
þó að barnalæsingar eru á aftur-
Svona liti gripurinn úr ef yfirbyggingin væri glær.
hurðunum, og séu þær á er þessi
hætta úr sögunni.
Ljúflingur í akstri
Mælaborðið er næsta klassískt og
ekki mikið um það að segja, það er
fundið að þessum bíl í akstri við þessi
stuttu kynni var ofurlítil tilhneiging
til yfirstýringar þegar gefið var í
í beygju. Þennan sama ágalla hafði
Croma og mér er sagt að SAAB sé
ekki laus við hann heldur. Gaman
fylgir, kosti um 620 þúsund krónur.
Bíll eins og við prófuðum yrði líklega
um 150 þúsund krónum dýrari, en
þá verður líka í honum alls konar
aukabúnaður sem ekki er í ódýrari
gerðinni, þannig að miðað við búnað
er verðmunurinn kannski ekki ýkja
mikill.
Og þá er bara að bíða og sjá hversu
Lancia Thema líkar á Islandi og
hversu vel hún kemur til með að
standa sig.
verður að vita hvort Alfan kemst
fram hjá þessari ótukt.
Thema er að koma
Búist er við fyrstu bílunum af þess-
ari tegund hingað til lands seinni
partinn í sumar. Líklega verða þar á
ferðinni bílar af gerðinni 2000 i.e. -
sem er nauðalíkur bíll þeim sem við
prófuðum lítillega í vor þar ytra,
nema ekki með túrbínu og því „að-
eins” 120 ha. Búist er við að sá bíll,
með þeim aukabúnaði sem honum
Rúmgóður bíll og þægilegur. Takið eftir handföngunum á hurðunum. Fram-
arlega á þeim er innihúnninn. Takið aðeins í hann og hurðin er opin.
á engan hátt sérlega minnisstætt, þó
það sé vel mælum búið. Að ítölskum
sið gengur mikill stokkur niður úr
því miðju niður á gírstokkinn, sem
raunar þyrfti alls ekki að vera svona
fyrirferðarmikill á framdrifsbíl. En á
þessum miðstokk eru ýmis stjóm-
tæki, svo sem fyrir hitakerfið í
bílnum, sem er tölvustýrt. Maður
velur einfaldlega hitastigið sem á að
gilda í bílnum og hefur svo ekki
áhyggjur af því meira. í akstri er
bíllinn eins og hugur manns. Bíllinn,
sem við prófuðum, var af gerðinni
Thema i.e. turbo, 165 ha v/5500 sn/
mín., en þannig er hann 7,2 sek. úr
kyrrstöðu í 100 km hraða. Þetta er
2000 cc vél með tveimur jafnvægisás-
um sem snúast hvor á móti öðrum
þannig að fjögurra strokka vélin
verður sérstaklega þýðgeng. Þannig
búinn er bíllinn einstaklega kraft-
mikill, léttur í í vöfum og svarar
hverju einu eins og best verður á
kosið. Bíllinn, sem við prófuðum, var
með ABS bremsum, sem aldrei læsa
hjóli, heldur tryggja hámarkshemlun
á stystri mögulegri vegalengd hvern-
ig svo sem færðin er. Þetta er
aukabúnaður. Standard er bíllinn
með diskabremsur á öllum fjórum
með vacuum átaki. Gírarnir fimm
ganga ljúft og örugglega milli skipt-
inga, og fjöðrunin er þýð án þess að
vera lin. Að aftan var hún sjálf-
stillandi þannig að bíllinn á ekki að
síga undan fullri hleðslu, en það er
aukabúnaður sem verður að kaupa
sérstaklega. Það eina sem ég gat
Thema í tölum:
Val um fjórar vélar:
Thema i.e.: 2000 cc, 120 ha„ bein inn-
spýting og rafeindakveikja. Há-
markshraði 195 km/klst. Eyðsla pr.
100 km 6,4 1 á 90 km hraða, 8,4 á 120
og 9,6 i borgarakstri, Eigin þyngd
1120 kg.
Thema i.e.: 2000 cc, turbo og over-
boost, 165 ha., bein innspýting og
rafeindakveikja. Tveir jafnvægisásar
með andstæðum snúningi. Hámarks-
hraði 218 km/klst. Eyðsla pr. 100 km
sama og Thema i.e, nema 9,9 í borgar-
akstri. Eigin þyngd 1150 kg.
Thema V6: 2890 cc, 150 ha„ bein inn-
spýting og rafeindakveikja. Há-
markshraði 208 km/klst. Eyðsla pr.
100 km 7,2 á 90 km hraða, 8,9 á 120
og 15,4 í borgarakstri. Eigin þyngd
1160 kg.
Thema turbo ds.: 2445 cc dísilvél, 100
ha. Hámarkshraði 185 km/klst.
Eyðsla pr. 100 km 5,2 á 90 km hraða,
6,9 á 120 og 8,5 í borgarakstri. Eigin
þyngd 1240 kg.
Allir bílarnir eru með 5 gíra kassa.
Sjálfskipting fáanleg.
Lengd 4590 mm
Breidd 1755 mm
Hæð 1433 mm
Gripurinn sem við fengum að prófa á Sardiníu. Fallegur gripur og eigulegur.