Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1986, Blaðsíða 17
DV. LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1986.
61
Sérstæð sakamál - Sérstæð sakamál
ílagátur
meðferðaí mál sem enn er óleyst.
Þá um sumarið hafði Dowling-
byggingarfyrirtækið fengið það
verk að brjóta niður nokkrar gaml-
ar byggingar. Við það var notaður
krani með kúlu eins og venja er í
slíkum tilvikum. Er starfsmenn fyr-
irtækisins komu til vinnu sinnar
einn morguninn var kúlan, sem var
fimm smálestir á þyngd, horfin.
Hún hafði þó hangið í rúmlega sex-
tíu metra hæð og varð ekki með
neinu móti séð hvernig hún hafði
verið fjarlægð því að ekki var hægt
að lækka hana þótt kraninn væri
settur í gang.
Á hverju ári hverfur fjöldi fólks
að heiman frá sér í ýmsum löndum
og spyrst síðan aldrei til þess síð-
an. Þannig hverfa í rauninni
tugþúsundir manna árlega. í flest-
um tilvikum er ekki um glæpi að
ræða. Fólkið, sem ekki verður fórn-
ardýr glæpamanna, virðist einung-
is kjósa að snúa baki við heimili
sínu og ættingjum og kjósa annað
líf annars staðar.
Þó koma glæpamenn við sögu
slíkra hvarfa eins og fyrr segir og
þótt lögreglunni takist stundum að
upplýsa slík mannshvörf þá tekst
það vissulega ekki alltaf.
í Vermont í Bandaríkjunum er
160 kílómetra löng göngubraut,
sem nefnist Langistígur, í hálendi
sem nefnist Grænufjöll. Á fimm ára
tímabili, frá því í nóvember 1945
og fram til ársloka 1950, hurfu þar
sex manns og fannst aðeins eitt lík.
Fyrst hvarf 75 ára maður sem hét
Middie Rivers. 12. nóvember 1945
fór hann í fjögurra daga veiðiferð
við Glastenburyfjall. Hann hafði
átt heima þarna skammt frá alla
ævi og þekkti svæðið mjög vel.
Hann sneri þó aldrei aftur og eng-
inn veit hvað varð um hann.
í desember 1946 hvarf svo átján
ára skólastúlka að nafni Paula
Welden. Hún hafði sagt herbergis-
félaga sínum að hún yrði ekki lengi
í burtu. Brátt fóru að ganga sögu-
sagnir um að brjálaður maður bæri
ábyrgð á þessum hvörfum.
Vorið 1950 hvarf svo Frieda Lan-
ger sem hafði þekkt Langastíg frá
því í æsku. Lík hennar fannst svo
12. maí 1951 en þá var svo langt
um liðið að ekki var hægt að ganga
úr skugga um dánarorsök.
Næst hvarf svo Martha Jones.
Var það 6. nóvember 1950. Enn var
hafin umfangsmikil leit en ekkert
fannst. Tæpum mánuði síðar lagði
Frances Christman í tæplega fimm
kílómetra langa gönguferð til þess
að heimsækja vinkonu sína. Hún
sást aldrei framar. Þetta var síð-
asta hvarfið. En hvað varð um allt
þetta fólk? Var einhver vitfirringur
á ferð á þessum slóðum? Enginn
veit það og hugsanlegt er að um
röð tilviljana hafi verið að ræða.
Hvarf Þjóðverjanna þriggja, sem
hurfu frá Múnchen í Vestur-Þýska-
landi í september 1962, var þó engin
tilviljun.
Eldflauga-
leyndarmál
Dr. Heins Krug átti verksmiðju í
Stuttgart þar sem framleiddir voru
þýðingarmiklir hlutir í eldflaugar
sem Eygptar voru þá að smíða.
Paul Görke prófessor og dr. Wolf-
gang Pliz störfuðu aftur í eld-
flaugaverksmiðju sem var í
úthverfi Kaíró. Krug sást síðast á
Marienplatz í Múnchen síðast í
september. Þá var hann með Araba
sem hét Saleh. Tveimur dögum síð-
ar fannst bíll Krugs yfirgefinn í
útjaðri borgarinnar. Samtímis
hurfu Görke og Pilz og hefur aldri
spurst til þeirra síðan. Orðrómur
hefur lengi gengið um að ísraelska
leyniþjónustan hafi rænt mönnun-
um til þess að koma í veg fyrir að
Egyptum tækist að fullkomna eld-
flaugar sínar. Auðvitað er ekki
hægt að fullyrða að Þjóðverjarnir
séu ekki á lífi, þótt það þyki ólík-
legt. Og sama er að segja um Jimmy
Hoffa.
Verkalýðsleiðtogi
Jimmy Hoffa var forseti samtaka
vörubílstjóra í Bandaríkjunum frá
1957 og þar til hann var fangelsað-
ur 1967 í kjölfar rannsóknar sem
fyrirskipuð var er fram komu ásak-
anir um að hann hefði misnotað fé
samtakanna. 1975 var Hoffa látinn
laus eftir að varaforseti samtak-
anna, Frank Fitzsimmons, hafði
lýst því yfir við starfsmenn í Hvíta
húsinu að Hoffa myndi ekki taka
við embætti forseta samtakanna á
ný fyrr en 1980. Hoffa reiddist hins
vegar mjög mikið er hann komst
að því hvemig hann hafði fengist
látinn laus. Hótaði hann að skýra
frá því sem hann vissi um sambönd
samtakanna við undirheimana en
á því leikur enginn vafi að ýmsir
kærðu sig ekki um slíka uppljóstr-
un.
Bílferö
30. júlí 1975 ákvað Hoffa að
snæða hádegisverð í Detroit með
tveimur mönnum, Tony „Jack“
Giacalone, sem talinn var glæpa-
maður, og Tony „Pro“ Provenzano
sem var starfsmaður samtakanna
og hafði setið í fangelsi með Hoffa.
Þessir tveir menn komu þó ekki í
veitingahúsið. Síðdegis hringdi
Hoffa heim til sín til þess að athuga
hvort nokkur skilaboð hefðu kom-
nið frá þeim. Síðar um daginn sást
hann svo í bíl með einhverjum
mönnum. Var sagt að hann virtist
hafa verið að tala við ökumanninn.
Síðan hefur hann ekki sést.
Lögreglan leitaði hans lengi og
spurði marga, en án árangurs.
Hvarf í fallhlíf
Þyki einhverjum leika á því vafi
hvort Hoffa hafi verið óheiðarlegur
þarf enginn að efast um að Dan
Cooper var það. Hann varð frægur
um öll Bandaríkin.
Að kvöldi 21. nóvember 1971 var
hann um borð í Boeing 727 þotu
Northwest Airlines er hún fór frá
Seattle. Hann var með fallhlíf og
200.000 dali sem yfirvöld höfðu
fengið honum er hann rændi þo-
tunni nokkru eftir að hún hafði
lagt af stað frá Portland í Oregon-
fylki fyrr um daginn.
Er þotan var komin nokkuð frá
Seattle skipaði Cooper flugstjóran-
um að halda í suðurátt og hægja
ferðina í um 540 kílómetra hraða á
klukkustund og þegar komið var
að Lewisánni við vesturhlíðar
Cascadefjalla opnaði flugræning-
inn afturdyrnar - og stökk. Hann
var ekki í neinum sérstökum hlífð-
arfötum, þótt úti væri hellirigning,
og virtist alveg viss um að allt
myndi ganga vel enda var ekki
annað að sjá en hann hefði valið
staðinn, þar sem hann stökk út,
með mikilli nákvæmni.
Fallhlífin fannst en Cooper ekki.
1980 fannst svo dálítið af peningun-
um sem höfðu verið merktir.
Fundust þeir í leirbakka við Kól-
umbíaána. Sumir eru þeirrar
skoðunar að Cooper hafi týnt líf-
inu. Hann stökk út yfir skógi
vöxnu og lítt könnuðu svæði. Hafi
hann ekki lifað af stökkið kann
einhver að hafa fundið hann og
flutt til fallhlífina og tekið pening-
ana. Þeir sem trúa því að ævintýri
af þessu tagi fái góðan endi trúa
því hins vegar að hann hafi komið
til jarðar heilu og höldnu og lifi
nú góðu lífi einhvers staðar undir
fölsku nafni.
En það er þó ekki víst að við fáum
nokkurn tíma að heyra sannlei-
kann um hann frekar en svörin við
svo mörgum öðrum óleystum saka-
málagátum.
AÐALFUNDUR
Sendibílastöðvar Kópavogs verður haldinn Laugardaginn
12. júlí kl. 15.00 að Hamraborg 11. II. hæð.
Stjórnin
UTBOÐ
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í Snæ-
fellsnesveg í Helgafellssveit.
(Lengd 10,5 km, fylling og burðarlag 150.000 m3)
Verki skal lokið 1. júlí 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
í Borgarnesi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá
og með 8. júlí 1986.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 21. júlí 1986.
V egamálastj óri
VEGAGERÐIN
LANDHELGISGÆZLAN
60ÁRA
Varðskip og þyrlur til sýnis á laugardaginn.
Varðskip og þyrlur Landhelgisgæzlunnar verða til sýn-
is almenningi laugardaginn. 5. júlí klukkan 13-16.
Varðskipin ÓÐINN og ÆGIR munu liggja við Ingólfs-
garð en þyrlurnar TF-SIF og TF-GRÓ verða við
flugskýli Landhelgisgæzlunnar á Reykjavíkurflugvelli,
ofan Nauthólsvíkur.
Þyrla Landhelgisgæzlunnar, TF-SIF, mun bráðlega
heimsækja ýmsa staði úti á landi svo að öðrum lands-
mönnum gefist kostur á að skoða hana.
Um þessar mundir eru 60 ár liðin frá því fyrsta varð-
skipið, sem smíðað var fyrir Íslendinga, kom hingað
til lands og eiginleg landhelgisgæsla hófst. Skip og
flugvélar Gæzlunnar eru oft í fréttum, nú á dögum
hvað helst vegna björgunaraðgerða. Almenningi gefst
hins vegar sjaldan tækifæri til þess að skoða þessi
dýrmætu tæki og vonast Gæzlan til þess að sem flest-
ir sjái sér fært að koma í himsókn á laugardaginn.
Varðskipsmenn og flugliðar munu leiðbeina gestum
og fræða þá um starfsemi Landhelgisgæzlunnar.
(Nánari upplýsingar veita Gunnar Bergsteinsson eða
Helgi Hallvarðsson, sími 10230.)
Saab 99 GL árg. 1982. 2ja dyra, Ijós-
drapp, beinskiptur. 5 gira, ekinn 64
þús. km. Verð kr. 300 þús.
Saab 900 GL árg. 1983, S dyra, Ijós-
blár, beinskiptur, 4ra gíra, ekinn 40
þús. km. Mjög góður biil.
Seljum
í dag
Saab 900 GLE árg. 1980. 5 dyra, Ijós-
blár, beinskiptur, 4ra gíra, vökvastýri
og litað gler, ekinn 89 þús. km. Verð
kr. 300 þús.
Saab 900 GLE árg. 1982, 4ra dyra, silv-
er, sjálfskiptur + vökvastýri, sólþak,
rafmagnslæsingar á hurðum, ekinn 89
þús. km. Verð kr. 390 þús.
Opið laugardag kl. 12-16. Ath. breyttan opnunartíma.
rÖGCURHR
UMBOÐ FYRIR SAAB OG SEAT
Bíldshöfða 16, símar 681530 - 83104.