Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1986, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1986.
Utlönd
Ættingi
Ortega fiær
hæli í
Banda-
rikjunum
Karlmaður, er kveðst vera fjar-
skyldur ættingi Ortega, leiðtoga
Nicaragua, og kúbönsk fjöl-
skylda báðust hælis sem pólitísk-
ir flóttamenn í Miami í
Bandaríkjunum í gær eftir að
flugvél Iberia flugfélagsins hafði
orðið að nauðlenda á Miamiflug-
velli sökum vélarbilunar
skömmu eftir flugtak frá Havana
á Kúbu.
í flugtaki frá Havana sprungu
að minnsta kosti þrír hjólbarðar
á Boeing 727 þotu spænska flug-
félagsins auk þess sem flug-
mennimir áttu í vandræðum með
önnur stjómtæki vélarinnar er
ekki störfuðu eðlilega.
Talsmaður bandaríska inn-
flytjendaeftirlitsins sagði í
morgun að flóttamennimir
fengiu líklegast landvistarleyfi í
Bandaríkjunum.
Sænskl miðflokkurinn:
Engin kjam-
orkuver
C5unnJaugur Jónssan, DV, Lundi'
„Við göngum út frá því að
kjamorkan sé raunverulegt
vandamál,“ sagði Lennart Da-
hleus, talsmaður sænska mið-
flokksins, þegar hann í gær
kynnti stefnu flokksins í kjam-
orkumálum.
Miðflokkurinn vill nú að þegar
fyrir næsta sumar verði hafist
handa um að leggja niður sænsk
kjamorkuver. Strax á næsta vori
verði kjamorkuverið í
Barsebáck lagt niður svo og
helmingur kjamorkuvereins í
Ringhals. Eftir það leggur flokk-
urinn til að hægar verði f'arið í
sakimar en eftir 1992 verði að
jafhaði lagður niður einn kjama-
ofn á ári þar til ekkert kjam-
orkuver verði eftir.
„Það verður auðvelt að velja
hvar ætti að byija. Allir vita að
sífelld vandamál hafa tengst
Ringhals kjamorkuverinu og
Barsebáck fellur á staðsetningu
sinni,“ sögðu talsmenn mið-'
flokksins á blaðamannafiindin-
um.
Miðflokkurinn hefúr um langt
árabil verið helsti andstæðingur
kjamorkunnar í sænskum
stjómmálum.
Mikiö úrval af CASIO hljómborðum, synthesizerum og fylglhlutum (RZ-1 trommuheili,
SZ-1 sequencer) í okkar rúmgóöu nýju verslun aö Laugavegi 26.
Togo ásakar Ghana um
aðild að byltingartilraun
Stjómvöld í Afríkuríkinu Ghana
segjast í morgun vera að kanna full-
yrðingar ganískra landamæravarða
um skothríð hermanna frá nágranna-
ríkinu Togo yfir landamærin í
gærkvöldi og nótt þar sem ótalinn
fjöldi ghamskra ríkisborgara á að hafa
særst.
Á skothríðin að hafa komið í kjölfar
fregna frá Togo í gær þar sem skýrt
er frá árás vopnaðra manna á forseta-
bústað Togoforseta og hugsanlegri
byltingartilraun í landinu.
Sendifulltrúum Togo í Accra, höfuð-
borg Ghana, var í gær aflient
mótmælaorðsending þar sem sagt er
að stjómvöld í Ghana líði ekki áfram-
hald falskra ásakana Togomanna um
aðild Ghana að byltingartilraun í
Togo.
Togomenn höfðu fyrr skýrt frá vopn-
aðri árás byltingarmanna, er smyglað
höfðu sér inn í landið frá nágrannarík-
inu Ghana, á vistarverur Gnassingbe
Eyedema Togoforseta þar sem að
minnsta kosti þrettán manns eiga að
hafa látið lífið.
Talsmaður utanríkisráðuneytis
Ghana hefúr harðlega vísað ásökun-
um Togo á bug og fúllyrti að byltingar-
mennimir í Togo hefðu ekki komið
um ghaníst land á leið sinni til Togo
né notið fúlltingis ghanískra yfirvalda
Jose Napoleon Duarte, forseti El
Salvador.
Duarte svartsýnn
Yitzhak Rabin, vamarmálaráðherra
ísrael, fullyrðir í gærkvöldi að ísraels-
menn hafi engin áform uppi um að
gera innrás í Líbanon, en áskilji sér
rétt til að gera skyndiárásir á bæki-
stöðvar skæruliða í landinu.
„Ófremdarástandinu í Líbanon
linnti ekki þrátt fyrir þriggja ára
stríðsrekstur í landinu," sagði Rabin
á blaðamannafundi í gær og átti þá
við ástandið í landinu á meðan hluti
þess var hemuminn af ísraelsher. ísra-
elsmenn gerðu sem kimnugt er innrás
í Líbanon árið 1982 og drógu herlið
sitt ekki til baka fyrr en þrem árum
síðar.
Rabin sagði að innrás leysti engan
vanda og að ísraelsher hefði aðrar og
árangursríkari leiðir til að kveða
hermdarverkamenn í kútinn.
Rabin sagði að nýlegar sprengjuár-
ásir arabískra hermdarverkamanna er
fellt hafa saklausa borgara í Líbanon,
Karachi, París, og Istanbul, auk nok-
kurra friðargæsluliða Sameinuðu
þjóðanna í Líbanon, væm allar liður
Jose Napoleon Duarte, forseti E1
Salvador, segir í blaðaviðtali er birtist
í dag í bandaríska blaðinu New York
Times að hann sé svartsýnn á að
stríðsaðilum í landinu takist að finna
friðsamlega lausn á ágreiningsefnum
sínum og að friði verði komið á í
landinu. Borgarastríðið í E1 Salvador
hefúr nú staðið í sjö ár og orðið þús-
undum að fiörtjóni.
„Ég efast stórlega um að þeir vilji
nokkrar samningaviðræður," sagði
Duarte um foiystumenn vinstri
skæruliða í landinu. Á síðustu tveim
árum hefúr ríkisstjóm Duartes, fyrir
tilstilli þriðju ríkisstjómar, árangurs-
laust reynt að koma á varanlegum
viðræðum við skæraliða vinstri
manna um frið í landinu.
í viðtalinu viðurkenndi Duarte að
hann ætti við sívaxandi erfiðleika að
etja heima fyrir sökum stríðsátak-
anna, efriahagsöngþveitis, óróa í
verkalýðsfélögum og gagnrýni yfir-
manna hersins á ríkisstjómina.
„Mér var fenginn í hendur deyjandi
sjúklingur," sagði forsetinn er komst
til valda fyrir þrem árum eftir almenn-
ar forsetakosningar. „Meðul þau er
ég beiti eru beisk og sjúklingurinn
kemur til með að kvarta meira.“
israelskar bardagasveitir að æfingu skömmu fyrir innrás Israel í Líbanon árið 1982. Rabin, varnarmálaráðherra lands-
ins, segir innrás ekki leysa neinn vanda, ísraelsher beiti nú öðrum aðferðum til að berjast gegn skæruliðasamtökum
múslima í Líbanon.
í herferð arabískra öfgasamtaka til að
koma í veg fyrir áframhald friðarvið-
ræðna í Miðausturlöndum.
Sagði ráðherrann að leiðtogafundir
Egypta og ísraelsmanna í þessum
mánuði auk viðræðna ísraelskra
stjómvalda við Jórdaníu og bættari
samskipti ríkjanna að undanfömu
heföi aukið ofetopa arabískra öfga-
manna.
„Viðbrögð öfgafullra arabaríkja og
andstæðinga ísraels, svo sem Sýrlands
og Líbýu, auk ýmissa samtaka hermd-
arverkamanna vora skjót. Þau mega
ekki sjá neina slökun í samskiptum
okkar við nágranna vora. Hermdar-
verk era þeirra eina lausnarorðsagði
ísraelski vamarmálaráðherrann.
Afmæli
fundar
Ameríku
loks
tekið af
dagskrá
Ólafior Axnaraon, DV, New Yorfc
Gamalt umræðueini á allsheij-
arþingi Sameinuðu þjóðanna hefur
loksins' verið tekið af dagskrá.
Umræðuefnið var það hvemig
Sameinuðu þjóðimar skyldu halda
upp á fimm alda afinæli fúndar
Ámeríku 1492.
Þetta umræðuefhi hefúr vakið
miklar deilur og hefúr verið mikið
tilfmningamál síðan það var fyrst
borið ffarn á allsherjarþinginu fyr-
ir fiórum árum. Það var 6endinefhd
Spánar sem lagði fram tillöguna
um að Sameinuðu þjóðimar héldu
upp á fimm alda afinæli Ameríku.
Áðalfúlltrúi íslands hjá Samein-
uðu þjóðunum á þeim tíma,
Hörður Helgason, mótmælti þess-
ari tillögu Spánveija vegna þess
að í henni væri ekki minnst neitt
á heimsókn Leife Eiríkssonar til
Norður-Ameríku.
Afríkulönd sögðu að tillagan
væri til dýrðar nýlendustefnu og
fulltrúar írlands héldu því fram að
írskir munkar heföu einnig heim-
sótt nýja heiminn.
Spánski fulltrúinn, Jaime de
Piniés, sagði eitt sinn í umræðunni
að Spánverjar heföu ekki komið
til þess að stofha nýlendu heldur
til þess að blandast innfæddum á
þessu nýja meginlandi.
Þessu lauk öllu á fimmtudaginn
þegar hinn nýi forseti allsheijar-
þingsins, Humayum Rashiid
Choudhury frá Bangla Desh, fyrir-
skipaði að þetta umræðuefhi
skyldi tekið út af dagskrá. Sló
hann síðan hamrinum í borðið og
neitaði að hlusta á mótmæli. Hann
sagði að Ameríka væri þegar fúnd-
in og því væra frekari umræður
ónauðsynlegar.
Rabin útilokar nýja
innrás í Líbanon
JjjjJ ICJ - umboðið, Laugavegi 26. Sími 91-21615.