Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1986, Side 18
18
íþróttir
• Hér sést Amór Guðjohnsen leggja knöttinn fyrir sig og skömmu siðar hafnaði hann í sovéska markinu við gífurieg-
an fögnuð áhorfenda. DV-mynd Brynjar Gauti.
ísland átti 11 skot
að marki Sovétmanna
- ísland fékk 5 homspymur, Sovétmenn 3
í leik Islendinga og Sovétmanna í
gærkvöldi átti íslenska liðið 11 skot
að sovéska markinu en leikmenn Sov-
étríkjanna skutu 9 skotum að okkar
marki.
•Ásgeir Sigurvinsson, sem átti stór-
leik, átti 5 skot, 3 voru varin, eitt fór
framhjá og eitt yfir markið.
•Amór Guðjohnsen, sem skoraði
mark Islands, átti 2 skot að sovéska
„Mjog glaður"
- sagði Lárus Loftsson
„Ég er mjög glaður. Þetta var í
einu orði sagt stórkostlegt," sagði
Lárus Loftsson en hann var aðstoð-
armaður Sigi Held í gærkvöldi í
fjarveru Guðna Kjartanssonar sem
dvelur á Akureyri með U-21 árs
landsliði okkar sem mætir Tékkum
nyrðra á morgun.
„Það var miklu meiri barátta í
strákunum í þessum leik en gegn
Frökkum og leikskipulagið var mun
betra. Með smáheppni heíðum við
átt að geta sigrað, 2-1. Ég held að
landslið okkar, sem lék í kvöld, sé
alsterkasta lið sem við höfum átt í
langan tíma. Við verðum að hlúa
vel að þessu liði. Við stefhum á efri
hluta riðilsins og getum hæglega
lent þar. Við höfum sannað það í
síðustu leikjum okkar að við getum
unnið hvaða landslið sem er í heim-
inum,“ sagði Lárus Loftsson.
-SK
•Lárus Loftsson.
markinu, eitt mark og hitt skotið var
varið.
•Atli fyrirliði Eðvaldsson skaut
einu sinni og fór skotið framhjá.
•Pétur Pétursson átti einn skalla
yfir markið.
• Ómar Torfason skaut einu skoti
yfir sovéska markið.
•Islenska liðið fékk tvær hom-
spymur í fyrri hálfleik en það sovéska
•Gytfi Þórðarson.
„Frábært“
- sagði Gyffi Þórðarson
„Því verður ekki á móti mælt að
það er hreinlega frábær árangur að
ná jafiitefli við Frakkland og Sovét-
ríkin. Sovétmenn voru hér með svo
til sama lið og þeir tefldu fram í
heimsmeistarakeppninni í Mexíkó,“
sagði Gylfi Þórðarson, formaður
landsliðsnefndar.
„Bæði landslið Frakka og Sovét-
manna eru með allra bestu landslið-
um í heiminum i dag. íslenska liðið
lék allt skínandi vel en ég verð þó
að segja að ég hef ekki séð Ásgeir
Sigurvinsson leika betur hér á Laug-
ardalsvelli en hann gerði í kvöld.
Okkar möguleikar í riðlinum felast
að sjálfsögðu í góðum árangri á
heimavelli. Ég er mjög bjartsýnn
fyrir leikinn gegn Austur-Þjóðveij-
um sem fram fer 29. október,“ sagði
Gylfi Þórðarson. SK
eina. I síðari hálfleik fékk íslenska lið-
ið þrjár homspymur, sovéska liðið
tvær. Samtals fekk íslenska liðið því
fimm homspymur og sovéska liðið
þrjár.
• Nokkra athygli vekur að aðeins
einu sinni lyftu línuverðir flöggum
sínum til merkis um rangstöðu. Þar
áttu þeir sovésku hlut að máli.
-SK
„Virkilega
gaman
- sagði AUi Eðvaldsson ,
„I síðari hálfleik komust leikmenn
sovéska liðsins hvorki afturábak né
áfram. Þeir vissu langtímum saman
ekki hvað þeir áttu að gera við bolt-
atnn. Auðvitað er maður hæstánægð-
ur með þessi úrslit. Þetta var
virkilega garnan," sagði Atli Eð-
valdsson, fyrirliði íslenska liðsins.
„Nú er takmarkið hjá okkur að
vinna Norðmenn og Austur-Þjóð-
veija. Möguleikar okkar í riðlinum
felast í því að standa hraustlega í
mótheijum okkar á heimavelli og
kroppa af þeim stig á útivöllunum.
Ég er mjög ánægður með okkar leik
að þessu sinni. Það gerðu allir sitt
besta. Ég er viss um að ef Ungveijar
hefðu spilað eins og við í kvöld þá
hefðu þeir sigrað Sovétmenn í leik
liðanna í síðustu heimsmeistaru-
keppni en ekki tapað 0-6,“ sagði
Atli Eðvaldsson hress í bragði.
-SK
•AUi Eövakfsson.
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1986. FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1986.
•Amór Guðjohnsen hefur hér skorað mark íslands gegn Sovétríkjunum í gær °9 hleypur fagnandi frá markinu. Dassaev, markvörður Sovétmanna, liggur sigraður á vellinum. DV-mynd Bjarnleifur
Glæsiieikur í Laugardalnum:
„Útlending£ihersveitin“ undir stjóm
Sigi Held skaut íslandi heldur betur
upp á stjömuhimin evrópskrar knatt-
spymu á Laugardalsvellinum, eftir að
myrkt hefur verið í hugum íslendinga
- eftir 0-19 skell íslensku félagsliðanna
í Evrópukeppninni. íslensku lands-
liðsmennimir sýndu í gærkvöldi besta
leik sem íslenskt landslið hefur leikið.
Rússneski bjöminn var heppinn að
ná jafritefli, 1-1, gegn ákveðnum leik-
mönnum Islands sem vom í veiðihug.
Það munaði ekki miklu að bjöminn
félli ofan í giyfjuna sem Sigi Held og
veiðimenn hans höfðu komið fyrir á
Laugardalsvellinum. Rússneski bjöm-
inn reikaði ráðvilltur um eftir að
Amór Guðjohnsen hafði veitt honum
þungt högg á 29.58 mínútu. Heppnin
var svo með honum því hann fann
útgönguleið rétt fyrir leikhlé og lyfti
upp hramminum, 1-1.
Það var stórgóð knattspyma sem
leikmenn íslenska liðsins sýndu gegn
Rússum. Þeir léku yfirvegað og vom
baráttuglaðir. Vamarleikurinn var
traustur og miðvallarspilið undir
stjóm Ásgeirs Sigurvinssonar mjög
gott. Þá vom þeir Amór Guðjohnsen
og Pétur Pétursson með á nótunum
og keyrðu á fullu allan leikinn. Ásgeir
átti sjömuleik og sýndi hvað eftir ann-
að stórgóða spretti sem gerðu mikinn
usla í vöm Rússa. íslensku leikmenn-
en rússneski bjöminn reikar raðvilltur um á sléttunni
imir gáfu Rússum aldrei f'rið til að
skipuleggja snögg áhlaup sem þeir em
frægir fyrir. íslensku leikmennimir
sögðu við þá: „Lok, lok og læs og allt
í stáli."
Það var strax ljóst í leiknum að
Rússar óttuðust íslendinga. Þeir
reyndu að gera út um leikinn með
langskotum. Það vopn dugði ekki. Is-
lendingar vörðust vel og beittu
hættulegum skyndisóknum. I einni
slíkri var Amór Guðjohnsen á réttum
stað og sendi knöttinn í netið hjá
Rússum, 1-0.
Greinilegt var að þetta mótlæti fór
í skapið á Rússum. Tveir þeirra fengu
að sjá gula spjaldið rétt eftir markið.
Þeir tóku gleði sína á ný á 44.37 mín-
útu þegar Sulakvelidze skoraði
heppnismark. Knötturinn lenti á
vamarmönnum íslands og rúllaði
fram hjá Bjama Sigurðssyni mark-
verði sem var búinn að kasta sér til
að góma knöttinn. Knötturinn breytti
um stefhu og Bjami kom engum vöm-
um við.
Björninn slapp á ótrúlegan hátt
Islendingar vom ekki langt frá því
að gera út um leikinn í seinni hálf-
leik. Bjami Sigurðsson varð aðeins
einu sinni að taka á honum stóra sín-
um þegar hann varði skot frá Blokhin
með snöggu úthlaupi. Hinum megin á
vellinum mátti Dassajev, markvörður
Rússa, hrósa happi að þurfa ekki að
hirða knöttinn úr netinu hjá sér. Hann
varði tvö föst skot frá Ásgeiri og Ás-
geir átti þrumuskot eftir aukaspymu
sem skall á vamarmanni Rússa og
aftur fyrir endamörk. Þá átti Ásgeir
þrumuskot sem fór rétt fram hjá marki
og Ómar Torfason skaut yfir mark
Rússa. Já, það var stórskotahríð en
rússneski bjöminn slapp á ótrúlegan
hátt.
Ásgeir meö snilldarleik
Allir leikmenn íslenska liðsins léku
mjög vel. Það hallar þó á engan að
segja að Ásgeir Sigurvinsson hafi ver-
ið bestur þeirra. Hann átti snilldarleik.
íslenska liðið lék mjög skipulagða
knattspymu. Leikmenn drógu sig aft-
ur og lokuðu svæðunum sem Held var
búinn að fyrirskipa. Þeir geystust sið-
an fram í skyndisóknir, knötturinn
gekk manna á milli. Snöggar sending-
ar kantanna á milli sáust, stungusend-
ingar og krosssendingar gerðu
Rússum lífið leitt. Ef þeir voguðu sér
of framarlega og inn á vallarhelming
Islendinga þá var þeim refeað með
snöggum áhlaujium. Barátta miðvall-
arleikmanna Islands var geysileg.
Ásgeir, Ómar Torfason, Sigurður
Jónsson og Ragnar Margeirsson gáfu
ekki tommu eftir. Ágúst Már Jónsson,
Gunnar Gíslason og Sævar Jónsson
voru alltaf á ferðinni. Þá lagði Atli
Eðvaldsson allt sitt í leikinn og mátti
sjá hann geysast fram á gamlar slóðir,
er hann brá sér í sóknina. Pétur Pét-
ursson og Amór Guðjohnsen voru á
fullri ferð allan tímann, ógnuðu stöð-
ugt með hraða sínum og snerpu. Bjami
Sigurðsson var öryggið uppmálað í
markinu. Sem sagt, enginn veikur
hlekkur í sterkri liðsheild Sigi Helds.
6.370 áhorfendur fóm ánægðir heim.
Það var bjart yfir í myrkrinu í Laug-
ardalnum. íslendingar vom aftur
komnir upp á stjömuhimininn.
sos