Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1986, Blaðsíða 40
FRETTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá i síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.500 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 4.500
krónur.
Fulirar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1986.
Friðrik Sophusson:
Erum
bjart-
>sýnir
„Þetta virðast vera litlar sveiílur og
innan eðlilegra marka, miðað við fyrri
kannanir. En það er auðvitað ánægju-
legt að við sjálfstæðismenn bætum
heldur stöðu okkar,“ sagði Friðrik
Sophusson, varaformaður Sjálfetæðis-
flokksins, um niðurstöður skoðana-
könnunar DV í dag.
„Á næsta ári verða alþingiskosning-
ar og þá gilda úrslitin. Við erum
byrjaðir að búa okkur undir þá bar-
áttu og erum ákveðnir í að auka okkar
hlut. Málstaðurinri er góður og við
erum bjartsýnir." HERB
Svavar Gestsson:
Verð-j
um
með mk
20% Wmn „Þetta er ekki slæm tala hjá okkur
Tollverðir
samþykktu
^ Tollverðir samþykktu í gær nýgerð-
an sérkjarasamning milli Tollvarðafé-
lagsins og ríkisins. Atkvæðagreiðsla
innan félagsins fór þannig að 76
greiddu atkvæði með og 10 voru á
móti. -APH
M BM, *
r ^ r- 1
TRÉ-X
TRÉSMIÐJA I ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF., IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK. í SÍMAR: 92-4700-92-3320.
LOKI
Næst kaupir Hag-
kaup Sláturfélagið.
Forsætisráðherra ekki talsmaður aprílkosninga:
Undrandi á sjálf
stæðismönnum
„Það er alrangt sem Ólafur G.
Einarsson, formaður þingflokks
sjálfetasðismanna, haldur fram, að
ég hafi í einhverju blaðaviðtali gerst
talsmaður aprílkosninga á sömu for-
sendum og þeir sjálfstæðismenn tala
um nú. Ég er satt að segja ákaflega
undrandi á þeim sjálfetasðismönnum
að opna kjördagsmál með þessum
hætti,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra þegar
DV ræddi við hann í París í gær.
„Ég hef hins vegar sagt að ég vildi
-frekar vetrarkosningar en haust-
kosningar og þá því aðeins ef sér-
stakar aðstæður kretöust þess, til
dæmis kjarasamningamál eða annað
þvíumlíkt. Þess vegna koma apríl-
kosningar auðvitað til greina. Ég
mun beita mér fyrir þvi í fullri al-
vöru að um kosningadag verði
samkomulag á breiðum grundvelli.
Yfirlýsingar sjálfetæðismanna eru
ekki í neinu samráði við mig sem
hef þó þingroferéttinn," sagði Stein-
grímur Hermannsson.
HERB
núna í aðdraganda kosningavetrar. í
vor hötöum við 15,3% í könnun DV
Wn fengum 19-20% í sveitarstjómar-
kosningunum og vorum langstærsti
andstöðuflokkur íhaldsins," sagði
Svavar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, um stöðu síns flokks í
skoðanakönnun DV nú.
„Þessi tala nú sýnir að við munum
gegna sama hlutverki í alþingiskosn-
ingunum og munum fá 20% atkvæða,
enda er Alþýðubandalagið eini raun-
vemlegi andstæðingur frjálshyggjuaf-
lanna.“ HERB
Nær allir atvinnumennirnir okkar í landsliðinu í knattspyrnu héldu utan kl. 7.30 í morgun í einkaþotu Þotuflugs
hf. frá Reykjavíkurflugvelli. 8 knattspyrnumannanna fóru um borð í þotuna en það er sá farþegafjöldi sem hún
er skráð fyrir. Förinni var heitið beint til Lúxemborgar en þaðan sjá þeir svo um að koma sér áfram um
Evrópu. Að sögn Stefáns Sæmundssonar hjá Þotuflugi hf. eru þeir ánægðir með reksturinn hingað til. ef
undan er skilinn ágústmánuður þar sem lítið eða ekkert var að gera. Þotan hefur mest verið notuð a innan-
landsleiðum, aðeins tvisvar hefur hún verið notuð til flugs erlendis. -FRI
Ebenezer verður leiguliði
í dag mun að öllum líkindum verða
gengið frá sölu á Vörumarkaðinum á
Seltjamamesi. Kaupendur era nýtt
hlutafélag sem að standa heildverslun-
in Sund og Sláturfélag Suðurlands.
„Það liggja engar endanlegar niður-
stöður fyrir en ég neita því ekki að
þreifingar hafa farið fram,“ sagði Óli
K. Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Heildverslunarinnar Sund.
Jón H. Bergs, forstjóri Sláturfélags-
ms, neitaði því í samtali við DV í
gærkvöldi að fyrirtæki sitt væri að
kaupa Vörumarkaðinn: „En það era
ýmsar hræringar í verslunarmálum á
Reykjavíkursvæðinu um þessar
mundir," sagði Jón.
Vörumarkaðurinn á Seltjamamesi
er á fjóram hæðum og verður bygging-
in öll seld. Ebenezer Þ. Ásgeirsson,
stofhandi Vörumarkaðarins og fyrrum
eigandi áður en langt um líður, mun
taka tvær efstu hæðir hússins á leigu
af hinu nýja hlutafélagi og halda
áfram að versla með húsgögn og raf-
tæki. Jarðhæð og kjallari verða hins
vegar matvælaverslun á vegum nýrra
eigenda.
-EIR
Veðrið á morgun:
Smáskúrir og
lítils háttar
súld um
mestallt land
Sunnan- og suðaustanátt á
landinu, víðast gola eða kaldi.
Smáskúrir eða lítils háttar súld öðra
hverju á víð og dreif um mestallt
land.
Guðmundur Einarsson:
Stór-
alvar- Br ^
leg tíð- il £*^\l
indi V 11
Þetta era stóralvarleg tíðindi fyrir
BJ. Við höfðum af því nokkum pata
miðað við fyrri skoðanakannanir að
fylgi okkar væri á niðurleið. Við erum
að draga okkar lærdóm af þvi þessa
dagana og ákveða framhaldið. Nú er
að byija kosningavetur með þeirri
pólitísku starfsemi sem því fylgir. Það
er í aðdraganda kosninga sem örlög
ráðast fremur en á sumrum milli kosn-
inga. -KB
Halldór Ásgrimsson:
Kem-
„Mér koma þessar niðurstöður á
óvart því okkur hefur fundist gengi
flokksins vera upp á við eftir nokkra
lægð en við verðum að taka þessu og
reyna að bæta okkar hag,“ sagði
Halldór Ásgrímsson, varaformaður
Framsóknarflokksins.
„Hins vegar hefur okkur ávallt þótt
undarlegt að Sjálfetæðisflokkurinn
hefúr fremur notið árangurs ríkis-
stjómarinnar í þessum skoðanakönn-
unum þótt við teljum okkur hafa haft
forystu þar um ýmis mikilvæg mál,“
sagði Halldór Ásgrímsson. -KÞ
ión Baldvin Hannibalsson:
„Mér sýnist þetta í lagi. Það lofar
góðu að við skulum vera næststærsti
flokkurinn," sagði Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins, í samtali við DV.
„Annars er þetta svipað fylgi og skil-
aði sér í sveitastjómarkosningunum
síðast. Það sýnir að við höfum stöðugt
fylgi,“ sagði Jón Baldvin Hannibals-
son. _KÞ
Sigríður Dúna:
Kjósend-
ur ekki í
kosninga-
skapi
Þessar tölur sýna að fylgi flokkanna
hefúr ekki tekið miklum breytingum
yfir sumarmánuðina og ljóst að kjós-
endur era ekki komnir í kosningaskap.
Þetta hálfa prósent, sem fylgi okkar
kvennalistakvenna hefur færst til um,
er vart merkjanleg breyting, því lítið
um hana að segja. -KB
I