Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Síða 3
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986. 3 Fréttir Hún var alveg ágæt - sagði 5 ára stelpa sem talaði lengi við Raisu „Hún var alveg ágæt. Mér leist bara vel á þessa konu. Eg veit alveg hver hún er,“ sagði 5 ára Reykvíkingur, Hafdís Inga Hinriksdóttir, í samtali við DV. Hafdís Inga komst aldeilis í sviðs- ljósið í gær. Hún var stodd með móður sinni við innganginn í sundlaugamar í Laugardal þegar Raisu og fylgdarlið bar að garði. Raisa beygði sig niður að telpunni, klappaði henni á kollinn og talaði til hennar á rússnesku. Sú litla varð hálfhiðurlút og feimin og hljóp til mömmu sinnar sem stóð innar í húsinu. En Raisa lét það ekki á sig fá og gekk til telpunnar og gaf sig á ný á tal við hana. Tugir ljósmyndara og sjónvarpsmanna mynduðu þær stöllur. Raisa stillti sér upp með Haf- dísi Ingu og brosti, talaði við hana og klappaði á koll telpunnar dijúga stund. „Hún er í hálfgerðu sjokki," sagði móðirin á eftir, enda er þetta kannski fullmikið sviðsljós fyrir fimm ára stelpu. Þ'etta á þó áreiðanlega eftir að verða þeirri stuctu eftirminnilegt enda ekki á hveijum degi sem heimspressan beinir augunum að fimm ára stelpu úr Reykjavík. -KÞ Hafdís Inga var hálffeimin við Raisu en henni leist samt bara vel á hana. DV-mynd KAE Tíminn stendur ekki í staö hjá PANASONIC. Þeir vinna stöðugt að framförum og fullkomleika sem endur- speglast í þessu nýja, stórglæsilega og háþróaða myndbandstæki NV-G7. VHS-HQ. Fullkomið myndgæðakerfi. Quarts-stýrðir mótorar. Hraðanákvæmni 99,999%. Rafeindastýrðir snertitakkar. 99 rásir. 32 stöðva minni. Læsanlegur hraðleitari með mynd. Leitari með mynd áfram. Leitari með mynd afturábak. 14 daga upptökuminni með 4 prógrömmum. 24 tíma skynditimataka. Dagiegt 14 daga upptökuminni. 43 liða þráðlaus fjarstýring. Stafrænn teljari (digital). Myndskerpustilling. Kyrrmynd. Sjálfvirk bakspólun. Sjálfvirk gangsetning við innsetningu spólu. Hæð tækisins aðeins 9,9 cm. Tækið byggt á steyptri álgrind. Og margt, margt fleira. Um áreiðanleika PANASONIC tækjanna er ekki deilt. PANASONIC hefur lang minnstu bilanatíðni allra myndbands- tækja, og eru þar af leiðandi öruggustu og áreiðanlegustu tækin á markaðnum. Verð aðeins 39.850,- stgr. WJAPIS BRAUTARHOLT 2 SÍMI 27135 EKKI KASTA KRÓNUNNI OG SPARA EYRINN. PANASONIC - VARANLEG FJÁRFESTING í GÆÐUM. jurti-sf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.