Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Side 7
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986. 7 Fréttir Amerísk vinnubrögð: Láttu hann ekki sleppa „Ekki láta hann ekki sleppa í þetta sinn, skelltu þér á hann. Nú er tækifærið, láttu hann hafa það óþvegið, sparkaðu í rassinn á for- setanum.“ Setningar sem þessar mátti heyra við Höfða í gær þegar verið var að hleypa útvöldu liði frétta- manna inn í húsið rétt áður en viðræður leiðtoganna hófust. Þama áttu hlut að máli banda- rískir fréttamenn sem með þessu vildu hvetja samlanda sína og starfsfélaga til dáða innandyra. Linntu þeir ekki látum fyrr en sið- asti maður var kominn inn. Vinnubrögð þessi komu innlend- um fréttamönnum á óvart. Þeir eru vanir að vera prúðari á innlendum vettvangi. -EIR Konu nauðgað í Hljómskála- garðinum Ráðist var á unga konu á Sóleyj- argötunni milli kl. 3 og 4 í fyrrinótt. Dró árásarmaðurinn hana inn í Hljómskálagarðinn og nauðgaði henni. Rannsóknarlögreglan hefur nú mál þetta til rannsóknar og biður þá sem urðu varir við mannaferðir um Sóleyjargötuna á þessum tíma, eða geta einhverjar upplýsingar veitt um málið, að hafa samband við lögregluna. Ekki tókst að fá nánari upplýs- ingar um þetta mál hjá lögreglunni í gær vegna þess hve óljóst það var þá en nauðgunin átti sér stað milli Skothúsvegar og Bjarkargötu þannig að árásarmaðurinn hefur dregið konuna töluverðan spöl. -FRI Einn af okkur á þing Prófkjörsstofa ASGEIRS HANNESAR, Templarasundi 3, III. hæð. Símar 28575 - 28644. Lítum inn. Allir virtust skilja rússnesku Það varð að sjálfsögðu uppi fótur og fit þegar byrjað var að sýna frá komu Gorbatsjovs hingað til lands í fréttamiðstöðinni í Hagaskóla í gær. Fréttamenn þustu tugum sam- an, ef þeir voru þá ekki á annað hundrað, að sjónvarpinu og fylgdust með. Þó kastaði fyrst tólfúnum þegar hann öllum á óvörum talaði við sjón- varpsmenn. Þessu áttu fréttamenn greinilega ekki von á. Rifu nú allir upp skriffæri og skrifuðu það sem Gorbatsjov sagði og virtust allir skilja rússnesku. Um leið og ræðan var búin þustu menn í ritvélar eða telexa og hirtu ekkert um ensku þýðinguna. Þetta voru fréttamenn frá Japan, Banda- ríkjunum, Italíu, Spáni og ýmsum fleiri löndum. Menn virðast þurfa að skilja rússnesku til þess að gera sig gildandi sem fréttamenn í al- þjóðapólitík. -S.dór. BiTvelta við Kópavogslækinn: Ökumaðurinn stakk af Bílvelta varð við Kópavogslæk- inn um hádegisbilið í gær. Fólks- bíll með fjórum í, á leið sunnan af Suðumesjum, rakst á staur við brúna yfir lækinn, fór út af og valt. Er lögreglan kom á staðinn hafði ökumaðiu bifreiðarinnar ásamt einum farþeganna stungið af af slysstað og var þein-a leitað í gær en grunur leikur á að ökumaður hafi verið ölvaður. Engin slys urðu á farþegum bif- reiðarinnar en hún er mikið skemmd eftir slysið. -FRI NU I VIKUNNI KEMUR UNDRATÆKIÐ NISSAIM UNNY 3JA DYRA, 5 DYRA OG 4RA DYRA SEDAN Nissan Sunny Sedan Nissan Sunny 3ja dyra Hatchback GERIÐ EKKI BÍLAKAUPIN I ÁR FYRR EN ÞIÐ HAFIÐ SÉÐ UNDRATÆKIÐ IMISSAIM SUNIM BETRIBÍLL MUW VARLA BJÓÐAST DÆMI UM VERÐ Á NISSAN-BÍLUM Nissan Micra DX, kr. 290.000 Nissan Sunny Coupé LX, kr. 430.000 Nissan Sunny Sedan LX, kr. 364.000 Nissan Sunny Hatchback, 3ja dyra, SLX, kr. 394.000 Nissan Sunny Hatchback, 5 dyra, LX ,kr. 343.000 Nissan Sunny Wagon L, kr. 431.000 STORSYNING UM NÆSTU HELGI laugardag 18. okt. og sunnudag 19. okt. kl. 14-17 báða dagana. -p_ J_L INGVAR HELGASON HF Rauðagerði, sími 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.