Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Side 8
8
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986.
Fréttir
Fyrsti leiðtogafundurinn:
Sól skein á Höfða
Fyrsti fundur þeirra Reagans og
Gorbatsjovs i Höfða hófst klukkan
10.30 í gærmorgun í roki og rign-
ingu. Honum lauk nákvæmlega
tveimur tímum síðar í glampandi
sólskini. Himinninn ruddi sig
skömmu áður en leiðtogarnir yfir-
gáfu Höfða, skýin hopuðu fyrir
sólinni og blár himnahringur myn-
daðist yfir hvíta húsinu við Sundin.
Um árangur þessa fyrsta fundar er
ekki vitað. Leiðtogamir mættu bros-
andi til leiks og voru jafnbrosandi
þegar þeir fóru. Hins vegar er óvíst
að þeir hafi brosað þar sem þeir sátu
tveir fyrir luktun dyrum og ræddu
heimsmálin og framtíð mannkyns.
Með trompi
Það var samdóma álit allra þeirra
fréttamanna, er fengu að fara inn í
Höfða að mynda leiðtogana áður en
viðræðumar hófust, að Gorbatsjov
hefði leikið á als oddi og tekið heims-
pressuna með trompi eins og einn
orðaði það. Reagan var hins vegar
fámáll, allt að því stífur, og virtist
ekki í fullkomnu jafnvægi.
„Ég var að skoða blöðin i morgun
og sá allar myndimar af okkur.
Þetta er bara eins og í Genf,“ sagði
Gorbatsjov og hló við. „Ef við hefð-
um ekki hist í Genf værum við ekki
hér nú.“
Reagan sagði ekkert.
„Passaðu þig á kertastjakanum,
ekki brjóta hann,“ kallaði sovéski
leiðtoginn til ljósmyndara sem fór
ógætilega um. „Við eigum hann
ekki, þetta er eign íslenska ríkisins."
Fyrsti misskilningurinn
Þetta var fyrsti misskilningurinn
sem kom upp á leiðtogafundinum því
kertastjakinn er eign Reykjavíkur-
borgar. Davíð Oddsson gat ekki
leiðrétt aðalritarann þvi borgar-
stjórinn hafði yfirgefið Höfða fimm
mínútum eftir að leiðtogamir komu
í húsið eftir að hafa tekið á móti
þeim í andyrinu.
Reagan og Gorbatsjov á tröppum Höföa í gærmorgun. Sovéski leiötoginn lék á als oddi en Bandaríkjaforseti
virtist stífur. DV-myndir GVA.
Það var ekki aðeins Gorbatsjov
sem lék á als oddi fyrir hádegi í
gær. Veðurguðimir vom einnig i
essinu sínu og virtust gefa mönnum
einkunnir eftir því sem þeir birtust.
Þegar bifreið Reagans ók upp að
Höfða var allt að því logn. Þegar
Gorbatsjov kom nokkrum mínútum
síðar gekk vindhviða yfir viðstadda,
það gustaði af leiðtoganum i eigin-
legri merkingu. Svo skein sólin
þegar fundinum lauk. Sumir drógu
ályktanir, töldu þetta táknrænt.
Ekkert nema hatturinn
Athygli vakti hversu vel varinn
Gorbatsjov var í bifreið sinni er hann
ók frá Höfða. Minnst fimm lífverðir
sátu um hann i aftursæti bílsins
þannig að ekki varð neitt greint af
leiðtogamnn annað en hatturinn.
Reagan sat hins vegar óvarinn i bif-
reið sinni með Shultz utanríkisráð-
herra við hlið sér. Hann hefur hins
vegar tvo lífverði í skottinu eins og
fram kom í fréttum DV á laugardag.
Þeir héldu kyrrn fyrir á sínum stað
á meðan leiðtogamir ræddust við í
gær. -EIR
Fyrsta leiðtogafundinum lokið, Reagan gengur út í sólina.
Davíð Oddsson tók á móti leiðtogunum í Höfða en yfirgaf húsið fimm mínút-
um eftir að leiðtogarnir voru komnir inn.