Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Qupperneq 10
10
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986.
Fréttir
733.8MMA
Bifreið Gorbatsjovs kemur akandi frá Ægisgarði á leið til fyrsta fundarins í Höfða. DV-mynd BG
Beðið eftir Gorbatsjov:
Omar er ekki hér
Slæðingur af blaðamönnum og
áhorfendum var niðri á Ægisgarði í
gærmorgun til að fylgjast með för
þeirra Gorbatsjovs og Raisu frá so-
véska skipinu Georg Ots, hans á
fund Reagans og hennar í sérstaka
dagskrá dagsins.
Veður var frekar milt og menn
notuðu tímann til að spjalla um dag-
inn og veginn. Tveir skoskir sjón-
varpsmenn skeggræddu um
möguleika Glasgow Rangers í
skosku deildinni. Einn af blaða-
mönnum Hvíta húsins ræddi við
einn áhorfandann sem kominn var
með krakkana sína þrjá, þar af eitt
komabam, til að fylgjast með her-
legheitunum og einn breskur blaða-
maður, dúðaður í úlpu og trefla,
furðaði sig á því hve Islendingarnir
klæddu sig illa í kuldanum.
Skömmu áður en sovésku Ieið-
togahjónin stigu frá borði var komin
rúta með nokkrum blaðamönnum
sem fengu að fara 10 metrum nær
skipinu en almúginn. Er Gorbatsjov
og fiú stigu út á landganginn vant-
aði víst einhvem frá íslenska sjón-
varpinu um borð í rútuna og var
öskrað í áhorfendahópinn: „Er ein-
hver frá sjónvarpinu þama?“ Einn
af lögreglumönnunum á svæðinu
kallaði á móti: „Nei, Ómar er ekki
hér.“
Sá sem mættur var með krakkana
sína lýsti atburðum fyrir þá af mik-
illi innlifun: „Sko, þama koma þau
út, sko, þama fara þau niður stig-
ann, sko, þama fara þau inn í bílinn
og nú koma þau keyrandi hingað.“
Krakkamir störðu dolfallnir á þenn-
an heimsviðburð. Raunar var ekki
rétt að segja þau því þarna var Ra-
isa ein á ferð á leið í skipulagaða
dagskrá dagsins en skömmu síðar
lagði Gorbatsjov svo af stað inn í
Höfða. Tók sú ökuferð aðeins örfáar
mínútur enda stutt að fara.
-FRI
Miðstöð öiyggismála í lögreglustöðinni:
Fjórir menn víð-
búnir að stjóma
neyðaraðgerðum
Þeir voru afslappaðir, Böðvar Bragason og Þorsteinn Geirsson, við að fara
yfir stöðu mála þegar DV heimsótti þá á lögreglustöðina. DV-mynd S
Það veltur á viðbrögðum fjögurra
manna nefndar hvernig brugðist
verður við óvæntum uppákomum
vegna fundar Reagans og Gor-
batsjovs í Reykjavík.
Þessir menn eru Böðvar Bragason
lögreglustjóri, Þorsteinn Geirsson
ráðuneytisstjóri, Árni Sigurjónsson
hjá útlendingaeftirlitinu og Þorgeir
Þorsteinsson, lögreglustjóri á Kefla-
víkurfiugvelli.
Þeir Böðvar og Þorsteinn eru á
lögreglustöðinni í Reykjavík og það-
an verður aðgerðum stjórnað ef
eitthvað ber út af.
Þeir tveir hafa yfirumsjón með ör-
yggisgæslu af hálfu Islendinga vegna
leiðtogafundarins. Komi eitthvað
óvænt fyrir kemur það í þeirra hlut
að stjórna aðgerðum og halda sam-
bandinu við Árna Sigurjónsson hjá
útlendingaeftirlitinu og Þorgeir Þor-
steinsson, Iögreglustjóra á Keflavík-
urflugvelli.
Böðvar Bragason sagði i samtali
við DV að „samstarf allra þeirra sem
tengjast öryggisgæslu vegna leið-
togafundarins hafi gengið með
ágætum. Til þessa virðist því skipu-
lagið ætla að ganga upp.“
Þeir eru og í stöðugu sambandi við
yfírmenn öryggisgæslu af hálfu
Bandaríkjamanna og Sovétmanna.
„Við leyfum okkur að sjálfsögðu
að leggja okkur stund og stund en
við verðum ræstir tafarlaust ef þörf
krefur," sagði Böðvar.
Almannavarnir tengjast skipulag-
inu en í þeirra hlut kemur að
bregðast umsvifalaust við ef eitthvað
ber út af á ferðum leiðtoganna á
milli Keflavíkur og Reykjavíkur.
Meðal verkefna yfirnefndarinnar
er að fylgjast með grunsamlegum
útlendingum sem hugsanlegt er að
ætli að leggja leið sína til landsins.
„Það er nokkur fjöldi útlendinga sem
þarf að fylgjast með,“ sagði Böðvar.
„Okkur berast upplýsingar að utan
um slfka aðila.“
Vitið þið um einhverja grunsam-
lega aðila sem komnir eru til lands-
ins?
„Nei, en við fylgjumst grannt með
ferðum slíkra manna. Við erum í
sambandi við Flugleiðir og fáum
upplýsingar um hvort einhverjir
grunsamlegir menn leita eftir fari til
laridsins. En eins og alltaf, þegar
þjóðhöfðingjar koma til landsins, þá
lítum við í kringum okkur.“
Áttu þá við að þið lítið eftir grun-
samlegum íslendingum?
„Já, við geruin það.“
- Hverjir eru þeir?
„Þvf get ég því miður ekki svarað
þér.“
- Nú hefur orðið þekktur hér furðu-
fugl nokkur sem kominn er hingað
vegna fundarins. Hafið þið fylgst
með honum?
„Já, við höfum athugað hann. Við
lftum svo á að hann sé með öllu
hættulaus. Hann er ekkert að fela
sig. Það eru hins vegar þeir sem fara
leynt sem við höfum ástæðu til að
óttast. Enn sem komið er vitum við
ekki um að slíkir menn hafi komið
til landsins.“.
- En hvað með borgarbúa, hvernig
hafa þeir tekið röskuninni sem leið-
togafundinum hefur fylgt?
„Þeir hafa brugðist við af þolin-
mæði. Þessu hefur fylgt einhver
röskum á daglegu lífi á vissum svæð-
um en árekstrar hafa engir orðið
þess vegna. Þetta hefur allt gengið
vel vegna góðrar samvinnu mörg
hundruð manna. Það var helst að
vinir okkar á Siriusi vildu ekki sætta
sig við lokun hafnarinnar. Þeir urðu
þó að sjálfsögðu að gera það eins og
aðrir,“ sagði Böðvar Bragason. -GK