Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Page 13
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986.
13
Heimshlaupið:
Forréttindi
okkar
er friður
- sagði Vigdís Finnbogadóttir forseti
til þess að friður mætti fylgja þessum
loga. Þessu næst tók Vigdís Finn-
bogadóttir við kyndlinum og flutti
stutt ávarp. Hún minntist fyrst ein-
kunnarorða heimshlaupsins: Veitum
þeim tækifæri - börn þarfhast friðar.
„Nú höfum við fengið neista af þessum
íriðareldi og er það við hæfi þar sem
leiðtogafundurinn stendur nú yfir á
fslandi," sagði forsetinn. Hún sagðist
vona að kyndillinn yrði vegvísir til
varanlegs fiáðar og sagðist hún finna
til stolts að halda á kyndlinum sem
þjóðarleiðtogi friðelskandi þjóðar sem
aldrei hefði farið með ófriði á hendur
nokkurri þjóð.
„Forréttindi okkar er íriðursagði
Vigdís Finnbogadóttir um leið og hún
afhenti ungri stúlku, Kristínu Péturs-
dóttur, kyndilinn. Hún bar hann niður
af sviðinu, að Reykjavíkurkyndlinum
sem logaði á 200 ára afmæli borgarinn-
ar. Steingrímur Hermannsson tók
þessu næst við friðarkyndlinum og
tendraði með honum eld á Reykjavík-
urkyndlinum. Þessu næst söng kór
Öldutúnsskóla íslenska þjóðsönginn.
Athöfmnni lauk svo með því að
Lúðrasveit verkalýðsins lék fjörugt
göngulag á meðan mannQöldinn tínd-
ist j burtu. Það var áberandi hve
margir íþróttamenn, bæði ungir og
aldnir, voru meðal þeirra fjölmörgu
sem lögðu leið sína niður í Hljóm-
skálagarð um hádegisbilið í gær.
Athöfhin var öllum, sem að henni
stóðu, til mikils sóma. Hlaupið hófst
í Keflavík kl. 7 um morguninn þegar
júdókappinn Bjarni Friðriksson lagði
af stað með kyndilinn en síðan tóku
40 íslenskir íþróttamenn þátt í að
hlaupa með hann til Reykjavíkur og
sem fyrr segir hljóp Einar Vilhjálms-
son með hann síðasta spölinn. Kynnir
yið athöfhina var Hermann Gunnars-
son.
-S.dór.
Ekki bara að tala
heldur framkvæma
- sagði Ludmila Bragina
„Við tölum ekki bara um frið, við
reynum að framkvæma eitthvað
raunhæft til þess að efla heimsfrið-
inn,“ sagði hin heimsfræga íþrótta-
kona, Ludmila Bragina frá
Sovétríkjunum, að loknu friðar-
hlaupinu í gær. Ludmila tók þátt í
friðarhlaupinu á Spáni á^dögunum
og fór þaðan til London og til ís-
lands með friðarkyndilinn. Hún
hljóp svo í gær síðasta spölinn í
broddi fylkingar við hlið Einars Vil-
hjálmssonar.
Ludmila Bragina varð ólympíu-
meistari í 1500 m hlaupi 1972 og setti
þá heimsmet í þessari erfiðu íþrótta-
grein. Hún átti síðan heimsmetið
allt til ársins 1978 en það ár hætti
hún keppni.
„Ég hef alltaf æft síðan ég hætti
keppni, svona til að halda mér við,
ég gæti hreinlega ekki hugsað mér
að hætta að skokka,“ sagði Ludmila.
Hún sagði að það eina sem skyggði
á þessa athöfn í Hljómskálagarðin-
um væri veðrið, það hefði mátt vera
betra.
„Þið eigið dásamlega fallegt land,
ég vildi sjá það í sínum fegursta sum-
arskrúða," sagði Ludmila en bætti
því svo við að vissulega væm haust-
litirnir hér fallegir, alveg einstakir.
Sem fyrr segir kom Ludmila hing-
að frá Spáni í gegnum London með
kyndilinn. Hún sagðist svo verða
með þegar hlaupið verður í Japan
og Kína og sagðist njóta þess mjög
að fá að vera með í þessu einstaka
heimsfriðarhlaupi. -S.dór
Ludmila Bragina kemur hlaupandi
inní Hljómskálagarðinn á eftir Einari
Vilhjálmssyni kyndilbera. Mynd EJ
Það var tilkomumikil sjón þegar
Einar Vilhjálmsson spjótkastán kom
hlaupandi inn í Hljómskálagarðinn
með friðarkyndilinn og eitt þúsund
íslensk skólaböm hlupu á hæla honum
inn í garðinn. A sviði, sem komið hafði
verið fyrir í Hljómskálagarðinum, biðu
forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir,
Steingiámur Hermannsson forsætis-
ráðherra, Sveinn Björnsson, forseti
fSÍ, Magnús L. Sveinsson, forseti borg-
arstjórnar, Dan Gerson, sá er átti
hugmyndina að þessu heimshfaupi, og
nokkrir fleiri gestir. Einar afhenti
Gerson kyndilinn og hann ávarpaði
mannfjöldann og sagði að ástæðan
fyrir því að hlaupið væri hér á landi
væri augljós og það væri dásamlegt
að vera kominn hingað til lands þótt
veðrið hefði mátt vera betra.
Þessu næst afhenti Gerson Stein-
grími Hermannssyni kyndilinn og
sagði Steingrímur að hann vonaðist
Einar Vilhjálmsson kemur hlaupandi
með friðarkyndilinn inn í Hljómskála-
garðinn. Mynd EJ
Fréttir
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra lyftir friðarkyndlinum.
Mynd EJ
'
K ENWOOD
Verð
kr. 11.875.-
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
LAUGAVEGl 170, SlMAR 695500 - 695550.