Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Side 15
SUNNUDAGUR 12. OKTÖBER 1986.
16
Fréttir
Sovéskir kafarar fara i sjóinn um lúgu á skemmtiferðaskipinu Georg Ots sem
Gorbatsjov-hjónin búa í.
Varðskip
og varðbátar
gæta hafnar-
svæðisins
Varðskipin Öðinn og Týr halda uppi
gæslu á ytri höfninni meðan leiðto-
gamir gista Reykjavík. Landhelgia-
gæslan hefur einnig tvo litla varðbáta
til gæslu inni í gömlu höfrnnni.
Gæslan beinist að sjónum úti fyrir
fundarstaðnum Höfða annars vegar
og skemmtiferðaskipinu Georg Ots,
gististað Gorbatsjov-hjónanna, hins
vegar.
Kafarar, sem reglulega kafa undir
skipið, em ekki á vegum Landhelgis-
gæslunnar heldur Sovétmanna.
Umferð skipa og báta um höfhina
hefur verið takmörkuð um helgina.
Tilkynna þarf um brottför og allar
hreyfingar um hafnarsvæðið. Öll um-
ferð er bönnuð um sundið milli
Engeyjar og Laugamess.
Ur lofti annast Landhelgisgæslan
öryggisgæslu með þyrlunum SIF og
GRÓ, þó aðallega minni þyrlunni,
GRÓ. Þyrla flýgur alltaf á undan bíla-
lest leiðtoganna. Ökuleiðin er könnuð
úr lofti skömmu áður en bílalestin fer
um.
Bandarískir öryggisverðir hafa í
sumum tilvikum verið urn borð í
Gæsluþyrlu.
-KMU
\oS
X\\
Bón- og þvottastöðin hf.
Sigtúni 3
AUGLYSIR:
Bifreiðaeigendur, vitið þið að það tekur aðeins 15 minútur að
fá bílinn þveginn og bónaðan, ótrúlegt en satt.
Ath. eftirfarandi:
Móttakan er í austurenda hússins, þar er i
bíllinn settur á færiband og leggur síðan af
stað í ferð sína gegnum húsið. Eigendur
fylgjast með honum.
Fyrst fer bíllinn í hinn ómissandi há-j
þrýstiþvott, þar sem öll lausleg óhrein-
indi, sandur og því um líkt, eru skoluð j
af honum, um leið fer hann í undir-
vagnsþvott. Viðskiptavinir eru mjög
ánægðir með þá þjónustu, því óhrein-
indi safnast mikið fyrir undir brettum
og sílsum.
Síðan er hann þveginn með mjúkum burst-
um (vélþvottur), þar á eftir kemur hand-
þvotturinn (svampar og sápa). Hægt er að
sleppa burstum og fá bílinn eingöngu
handþveginn.
Næst fer bíllinn i bónvélina og er þar
sprautað yfir hann bóni og siðan herði.
Að þessu loknu er þurrkun og snyrt-
ing.
8 bílar eða fleiri geta verið í húsinu í einu,
t.d. einn í móttöku, annar i háþrýstíþvotti,
þriðji í handþvotti o.s.frv.
Bill, sem þveginn er oft og reglulega,
endist lengur, endursöluverð er hærra
og ökumaður ekur ánægðari og
öruggari á hreinum bii.
Tíma þarf ekki að panta.
Þeir sem koma með bilinn sinn í fyrsta
skipti til okkar undrast hvað margt
skeður á stuttum tíma (15 mínútum).
A’ y\.9-\6 <VÖ
Bón- og þvottastöðin hf.
Sigtúni 3,
Sími 14820.
Varðbátur Landhelgisgæslunnar við skip Gorbatsjovs. DV-myndir S.
/WAD 14%ÁRSVEXTIfí
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF.