Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Síða 17
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986.
17
Fréttir
Það var hellirigning á föstudagskvöldið á meðan friðarstund íslenskra friðarhreyfinga stóð yfir. Töluverður fjöldi fólks tók þátt í athöfninni og var sérstök hátiðarstemmning á torginu
og kyndlar loguðu vitt og breitt i mannþrönginni. -SJ/DV-mynd GVA
Rólegt á leigu-
námshótelunum
Hótelin Jirjú, Hótel Saga, Hótel ■
Loftleiðir og Hótel Esja, voru öll
fullnýtt núna um helgina. Þrátt fyrir
það sogðu starfsmenn í gestamót-
töku hótelanna að það hefði ekki
verið mikið að gera hjá þeim um
helgina.
Á Hótel Sögu eru sovéskir frétta-
menn og hluti af sendinefnd Sovét-
manna og sagði starfsstúlka þar að
þeir væru öðruvfei en allir aðrir gest-
ir sem hún myndi effcir á hótelinu.
Hún sagði að það færi afekaplega
lítið fyrir þeim og helst væri mikið
að gera í kringum blaðamannafúnd-
ina sem Sovétmenn halda á Sögu.
Starfemenn Hvíta hússins og
fréttamenn Hvita hássins hafa að-
setur á Hótel I/jftleiðum og sagði
starfsstúlka í móttökunni þar að
helgin heföi verið frekar róleg þó svo
að hótelið væri fúllt. Af Hótel Esju
var sömu sögu að segja, fullt hótel
og rólegir gestir. -SJ
Matvælakynningin:
Stormandi lukka
Matvælakynning sú sem fram fer
fyrir erlendu fréttamennina í íþrótta-
húsi Hagaskóla hefur svo sannarlega
slegið í gegn ef marka má aðsóknina
að henni sem og ummæli þeirra frétta-
manna sem DV ræddi við þar í gær.
Það er fyrst og fremst hangikjötið,
rækjumar og síldin sem menn áttu
vart orðið yfir og ef til vill hangikjötið
fyrst og fremst. Fréttamaður DV stóð
nærri kynningarborðinu og hlustaði á
hvað fólk sagði eftir að hafa smakkað
á hinum fjölbreyttu smáréttum. Hver
einasti lofaði hangikjötið og margir
sögðust ekki hafa smakkað annað eins
lostæti.
Tveir fréttamenn frá spánska sjón-
varpinu voru þama og aðspurðir um
matinn sögðu þeir hann sælgæti. Og
íslenska fiskinn sögðu þeir vera <iri-
stætt lostæti.
„En mikið óskaplega er matu 'nr
dýr hér á landi. Hann er áreiðanlegr
sá dýrasti í heiminum," sagði Rodriqe;.
og hann bætti þvi við að sér þætti
verðlag hér hátt. Einnig sagðist hann
hafa heyrt um að verðlag hér á landi
hefði þotið upp vegna leiðtogafúndar-
ins.
Honum var þá bent á að hótel í hei-
malandi hans hækkuðu um meira en
helming þegar hápunktur ferða-
mannastraumsins er í júní, júlí og
ágúst.
„Þetta er rétt, svona er lifið," sagði
hann og yppti öxlum að spönskum sið
þegar staðreyndir blasa við.
-S.dór.
Möig hverfi blind
Belgísk hjónarúm
úr kirsuberjaviði
gagnvart Stöð tvö
- útsendingin næst á norðanverðu Snæfellsnesi
Stöð tvö næst illa eða alls ekki á
mörgum svæðum við sunnanverðan
Faxaflóa. Mörg hverfi á höfuðborgar-
svæðinu lenda í skugga.
Sendir Stöðvar tvö er á Vatnsenda.
Sendir hann geisla í 180 gráður í átt
til borgarinnar.
Á Vatnsenda er einnig sendir ríkis-
sjónvarpsins. Geisla ríkissjónvarpsins
er hins vegar endurvaipað til blindu
svæðanna með nokkrum endurvarps-
stöðvum.
Norðurhluti Kópavogs og Fossvogur
fá endurvarp frá stöð á Borgarspítala.
Heimahverfi og Teigahverfi í
Reykjavík fá endurvarp frá sjónvarps-
húsinu við Laugaveg.
Seljahverfi í Breiðholti fær endur-
varp frá stöð i Digranesskóla.
Mosfellssveit nýtur endurvarps frá
Víðinesi.
Sandgerði og Grindavík þurfa einnig
sérstakar endurvarpsstöðvar tii að sjá
ríkissjónvarpið.
Líklegt er íbúar á áðurgreindum
svæðum nái Stöð tvö ekki eða illa
enda hefur Stöð tvö engar endurvarps-
stöðvar, aðeins sendi á Vatnsendahæð.
í sumum tilfellum geta menn bætt
úr með tilfæringum á sjónvarpsloft-
neti. Um slíkt ættu menn að ráðfæra
sig við kunnáttumenn. Með stærri
loftnetum mætti hugsanlega ná henni
betur.
Utan Reykjavíkursvæðisins virðist
Stöð tvö nást vel í Keflavík og á Akra-
nesi. Borgarnes lendir í skugga. Á
norðanverðu Snæfellsnesi, svo sem í
Stykkishólmi og á Hellissandi, næst
stöðin en óskýrt.
-KMU
Hringbraut 121 Sími 10600
Húsgagnadeild, sími 28601