Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Síða 19
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986.
19
Fréttir
Austurríski triðarboðinn Waluliso er þekktur meðal fréttamanna um allan
heim. Alls staðar þar sem þingað er um heimsmálin mætir hann ótrauður
til leiks. DV-mynd BG
Friðarsinninn Waluliso:
„Ég er fómar-
lamb friðarins"
„Það er of seint að byrja að hugsa
þegar sprengjan situr á höfðinu á
þér,“ sagði hinn þrælhressi friðarsinni
Waluliso í samtali við DV í miðri
Bakarabrekkunni. Hann er sjötíu og
þriggja ára gamall og hefur árum sam-
an lagt á sig óteljandi ferðalög og
ómælt erfiði til þess að kynna mönnum
heimsfriðinn. Við komuna til íslands
væri synd að segja að honum hefði
verið fagnað á sama máta og friðar-
boðunum tveimur úr'austri og vestri
Waluliso var stöðvaður í tollinum
og fékk ekki að fara inn í landið fyrr
en skeyti frá Vínarborg staðfesti að
hann væri einn almesti íriðarsinni
heimsins.
„Ég er fómarlamb síðari heimsstyrj-
aldarinnar og fæddist í þeirri fyrri,“
heldur Waluliso áfram. „Og nú er ég
fómarlamb friðarins. Sem hermaður
barðist ég á austurvígstöðvunum og
særðist þar. Núna helga ég líf mitt
friðarboðskapnum í heiminum og veit
að ef allir hugsuðu eins og ég væri
aldrei stríð.
Friðurinn fyrst
Alls staðar þar sem heimspressan
saíhast saman við meiri háttar tæki-
færi skýtur þessi aldni friðarboði upp
kollinum, ævinlega í hvítum serk, með
lárviðarkrans á höfði og epli í hægri
hendinni. Fjarlægðir skipta litlu máli
þegar friðurinn er annars vegar og
sama gildir um íjárhæðir. Varla geta
ferðalögin verið útgjaldalaus fyrir
Waluliso?
„Ég er kominn á þann aldur að fá
launagreiðslur frá ríkinu. Sumir kjósa
að eyða peningunum í át, fatakaup eða
jafrivel skartgripi. Ég segi bara friðinn
fyrst og lúxusinn svo!“
Og þetta er ekki síðasta skrefið hjá
þeim aldna kappa því hann er ekkert
að gefast upp.
„Síðast var ég í Sviss þegar Genf-
arviðræðumar stóðu yfir og nú vona
ég bara að mér endist aldur til þess
að mæta í Washington þegar Reagan
og Gorbatsjov hittast næst. Verði ég
á lífi verð ég í Washington.“
-baj
Gestgjafi friðarboðans:
„Hvað ertu með?“
„Mér brá fyrst alveg hroðalega,"
sagði húsmóðir í austurbænum í við-
tali við DV þegar hún innt eftir því
hvemig henni hefði litist á nýja leigj-
andann. Hún er ein þeirra sem fór út
í það að leigja erlendum gestum í til-
efhi leiðtogafundarins og friðarboðinn
Waluliso reyndist hennar hlutur í
kaupunum. Þess skal getið að í útliti
er friðarsinninn þannig að engin
hætta er á því að hann hverfi í fjöld-
ann.
„Þegar ég opnaði dymar og sá að
út úr leigubílnum steig maður í hvítum
kyrtli með lárviðarsveig á höfði og
koparlugt og epli átti ég ekki til orð
í eigu minni. Ég spurði samt leigubíl-
stjórann hvað hann væri eiginlega að
færa mér! Hann var hinn rólegasti og
sagði mér að maðurinn væri gersam-
lega hættulaus. Ég gat ekki stillt mig
um að fara inn í stofu til gestanna
minna og segja þeim að koma og heilsa
nýja leigjandanum."
Það em nú nokkrir dagar liðnir og
Wa'.uliso vekur mikla athygli hvar
sem hann fer í Reykjavík. Reyndar er
hann í vandræðum með íslensku lög-
regluna sem handtekur hann alltaf
annað slagið en sleppir honum jafhan
fljótlega aftur.
„Núna finnst mér hann mjög indæll
og það er gott að hafa hann,“ sagði
leigusali friðarboðans að lokum, en
hún vill ekki láta nafns síns getið.
„Hann hræðist að fá ekki afgreiðslu
héma á veitingahúsum og þess vegna
elda ég alltaf súpu handa honum dag-
lega. Hann er mesta gæðablóð.“ Þess
skal getið að títtnefndur friðarboði er
eini leigjandinn á því heimilinu.
-baj
STÓRKOSTLEGIR
örbylgjuofnar með DELTAWAVE dreifingu frá
^Oóíuba
Sparnaður, hagkvæmni, árangur og kennsia eins og
best verður á kosið.
Leiðbeiningarog
uppskriftir á
íslensku. Upp-
skriftaklúbbur fyrir
Toshibaeigendur.
Persónulegkennsla.
Kvöldnámskeiðfyrir
bæðihjóninán
endurgjalds.
Þú nærðgóðum
árangri.
10 gerðir af ofnum. Verð frá 12.900,- stgr..
Úrvals kjör: útborgun frá 5.000,-, eftirstöðvar á 6 mánuðum.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐAST RÆT I I0A - SlMI 16995
Hver er munurinn á páfagauki og
SK-1 hljómborði ??????
iiiiiiiii pe)|JBUi)|ej9 i)|S uo
uinQofiijsuueui qqz q tj n ijqa juuai| jnjaB uuumineBejed :jbas
er ekki fyrir hermikrákur
SK1 gefur _ _ _
sköpunargáfunni lausan .. Q i|||
tauminn og gerir tónverkin að leik. I\f. (J ■ f UU
SK-1 er óviðjafnanlegt svo að páfagaukurinn fell-
ur i stafi við samanburðinn. Páfagaukur getur
að sjáifsögðu likt eftir mannsröddum en til sam-
anburðar getur þú með notkun SAMPLINGS
eiginleikanna útsett og fullgert tónverk, allt und-
ir þér sjálfum komið.
-1 CASIO
Laugavegi 26.
Sími 91-21615.
SAMPLIIMG
KEYBOARD
Möguleikarnir eru margvislegir. Byrjaðu með að
nota innbyggða hljóðnemann til að geyma öll
hljóð sem þú hefur áhuga fyrir i innbyggða
minniskubbnum, hvort heldur mannsraddir eða
önnur hljóð sem þú getur siðan breytt i tónverk
á hljómborðinu. Þetta er mjög auðvelt og
skemmtilegt og útkoman er siðan undir þér kom-
in.
Þú getur einnig valið um átta mismunandi inn-
byggð hljóðminni sem hafa fimm gerðir af PCM
(pulse, code, modulation) raunverulegum hljóð-
færum og þér til stuðnings getur þú valið um
ellefu sjálfvirka hljóðtakta (rythma).