Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1986, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986. Préttir Varðskipsmenn tóku Sirius á vald sitt - Greenpeace-menn fóm í óleyfi inn fyrir hafnarmórk Reykjavíkur Tólf varðskipsmenn af Óðni fóru um borð í skip Greenpeace-samtakanna, Sirius, og tóku það á vald sitt við Akurey klukkan 10.20 í morgun. Grænfriðungar höfðu þá óhlýðnast fyrirmælum Landhelgisgæslunnar um að fara ekki inn fyrir sjöbaujuna svo- kölluðu, ytri mörk Reykjavíkurhafn- ar. Landhelgisgæslunni barst tilkynn- ing klukkan 8.45 um að Sirius hefði farið úr Hafnarfjarðarhöfn án hafri- sögumanns, án þess að greiða hafnar- gjöld og án skipsskjala, sem voru í vörslu hafnsögumanns. Virtist þá Ijóst að Greenpeace-menn ætluðu að sigla inn í Reykjavíkurhöfn, væntanlega til að ná athygli heimspressunnar. Varðskipið Óðinn og þyrlan Sif fóru til móts við Sirius. Varðskipið Týr fór í viðbragðsstöðu við Örfirisey. Skip- herra þess, Sigurður Ámason, stjórn- aði aðgerðum. Landhelgisgæslan sagði Greenpe- ace-mönnum að þeir hefðu brotið alþjóðalög með því að fara úr Hafnar- fjarðarhöfn án mælibréfs, eins skips- skjala, sem verða að vera um borð í öllum skipum á siglingu. Jafhframt var þeim tilkynnt að þeim væri óheimilt að fara inn fyrir mörk Reykjavíkurhafhar. Þau fyrirmæli höfðu grænfriðungar að engu, sam- kvæmt upplýsingum Landhelgisgæsl- unnar. Varðskipsmenn höfðu fyrirmæli um að stöðva Sirius með öllum tiltækum ráðum færi skipið inn fyrir hafnar- mörkin. Varðskipið Týr sigldi í veg fyrir Sirius og neyddi hann til hægja á sér. Óðinn lagðist svo upp að Siriusi og tólf varðskipsmenn stukku yfir. Ekki kom til átaka þegar varðskips- menn tóku skipið undir stjóm sína. Sigldu þeir því út á Faxaflóa. Var ætlunin að fara ekki með það í höfh fyrr en eftir klukkan 15 þegar mesta umstangið vegna leiðtoganna væri yfirstaðið. Greenpeace-menn sögðu ffétta- mönnum að þeir hefðu ætlað að vekja athygli á baráttu samtakanna gegn Varðskipin Oðinn og Týr neyða Sirius til að stöðva við Akurey í morgun. Skömmu siðar tóku varðskipsmenn skip kjamorkuvopnum. grænfriðunga á sitt vald. DV-mynd S -KMU DV skoðaði Itfið í miðbænum í gærkvöldi Aðsókn á skemmtistaðina minni en búist var við en landinn mætti Vonir starfsfólks og eigenda á veit- ingahúsum og skemmtistöðum um miklar annir í kjölfar þess að hingað kæmu hátt í tvö þúsund blaðamenn vegna leiðtogafundarins virðast hafa bmgðist að nokkm leyti. DV brá sér í bæinn seint í gærkvöldi og kann- aði ástandið á nokkrum veitjnga- húsum í Reykjavík. Það var ekki að sjá að íslendingar létu það á sig fá þó hér væm staddir tveir mektar- menn til að ræðast við, landinn tók út sína helgi að vanda. Þeir erlendu fjölmiðlamenn sem við hittum á þessu rölti okkar vom flestir þreytt- ir eftir annir undanfarinna daga og sögðust því miður ekki hafa haft mikinn tíma aflögu til að kynnast skemmtanalífinu í höfðuborginni. Öll borð upptekin Veitingastaðurinn Við sjávarsíð- una var sneisafullur og vom nær eingöngu útlendingar þar inni. Yftr- þjónn staðarins sagði okkur að það hefði verið mjög mikið að gera hjá þeim alveg frá því að fyrstu ffétta- mennimir kornu til landsins og nánast öll borð upptekin hvert kvöld. Hún sagði að fiskréttimir þeirra nytu greinilega mikilla vin- sælda og það mætti segja að gestimir pöntuðu ekkert annað en fiskinn. ítalskur blaðamaður, sem við hitt- um, sagði okkur að starfsfélagar hans væm yfir sig hrifhir af landinu og langflestir þeirra ráðgerðu ferð hingað síðar þegar þeir gætu gefið sér tíma til að skoða landið á annan hátt en núna. Hvíta húsið og Time Á Lækjarbrekku vom bæði ís- lenskir og erlendir fjölmiðlamenn þegar við litum þar inn í gærkvöldi. Við eitt langborðið sátu saman nokkrir starfsmenn Hvíta hússins og blaðamenn ffá Time Magasine. Þau vom sammála um það að að- staða þeirra hér væri alveg til fyrir- myndar og það væri kraftaverki líkast hvað Islendingum hefði tekist að gera á þessum stutta tíma. „Þetta er betra en í Genf,“ sögðu þau. Við vorum spurð hvaða dansstað við mæltum með, blaðamaður tiltók tvo, þrjá staði og bætti því síðan við að þau þyrftu að mæta frekar snemma til að lenda ekki í biðröð. „Biðröð, nei takk.“ Þar fór það, enda sögðust þau vilja fara heim og hvíla sig eftir erfiðan dag. íslendingar i meirihluta Við komum við á kránum í mið- bænum og þar var landinn mættur að vanda. Við Gaukinn var hin sí- gilda biðröð og töluverð örtröð á öðrum stöðum. Á Fógetanum var okkur sagt að aðsóknin hefði verið ffekar dræm undanfama daga, en í gærkvöldi var svipaður fjöldi þar og venjulega. { Duus var sama sagan, svipaður fjöldi og venjulega og mest Islendingar. Á Gullna hananum við Suður- landsbraut var hvert borð skipað og sagði Birgir, einn eigandi staðarins, að íslendingar hefðu mætt vel und- anfama daga og þeir hefðu ekki verið með mikið af útlendingum í mat. Við hittum þar starfsmenn frá NBC sem vom á leið austur í Hvera- Á veitingastaðnum Við sjávarsíðuna, en þar voru nær eingöngu erlendir fjölmiðlamenn. DV-myndir Brynjar Gauti NBC fólkið slakaði á eftir erfiðan dag á barnum á Gullna hananum á meðan það beið eftir borði. gerði en þeir gista á Hótel Örk. „Við erum að hvíla okkur eftir erfiðan vinnudag," sagði einn þeirra og bætti síðan við miklu hrósi um ís- lenska fiskinn og matreiðslu á honum. Rólegt í íþróttahúsinu íþróttahúsi Hagaskóla var lokað rétt eftir miðnætti en þar hefur fjöl- miðlamönnunum verið boðið upp á léttar veitingar og ýmsar uppákom- ur. Þar var samt slæðingur af fólki í gærkvöldi og að sögn starfsmanns meira en á föstudags- og fimmtu- dagskvöld. Að sögn þjónsins á bamum vom erlendu fjölmiðla- mennirnir lítt hrifhir af þeirri hugmynd hans að skella sér á dans- leik að loknum vinnudegi. Þeir sögðust vilja fara heim og hvíla sig en ef það væri opið firam eftir í kvöld þá mundu þeir svo sannarlega skella sér á dansleik. Móttaka á Kjarvalsstöðum I dag verður móttaka á Kjarvals- stöðum hjá Matthíasi Á. Mathiesen, utanríkisráðherra og Davíð Odds- syni borgarstjóra fyrir fjölmiðla- menn í tilefhi leiðtogafundarins. -SJ Hvita húss mennirnir vinstra megin við borðið og Time fólkið hægra megin á Lækjarbrekku í gærkvöldi. Hans Peter Rieze frá ARD - vestur-þýska útvarpinu og Andreas Lorenz frá Spiegel-Magazin voru á Kreml og sögðu þetta vera fyrsta kvöldið sem þeir gæfu sér tima til að kanna skemmtanalifið í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.