Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986. 49 sígarettum. Hann leitaði undir set- unum og niðri í öllum geymsluhólf- um. „Hvaða fliótandi hótel eru þetta?“ spurði ég og benti út í myrkvaðan sj óndeildarhringinn. „Nei, olíuborpallar," hrópaði hann upp yfir sig. Hann útskýrði fyrir mér að rauða ljósið, sem ég sá, væri stórir gaslogar efst á borpöllunum þar sem þeir brenndu aukagasi. Síðan hélt hann leitinni áfram og hvarf ofan í lúkar. Seinni daginn var steikjandi sól- skin og öldurnar höfðu að mestu gengið niður. Nú komst ég í flipp gott skap og bakaði pönnukökur. Vegna þess að mjólkin var hálfsúr notaði ég bjór í staðinn og áhöfnin hafði aldrei smakkað jafnbragðgóðar pönnukökur. „Já, íslenskar pönnukökur, þær eru bestar,“ sagði stúlkan og hafði fengið matarlystina á ný. Um kvöldið fengum við fínan kvöldverð; steiktar pylsur og hrís- grjón. í okkar augum var það eins og fínasta resturant í Róm. Og við borðuðum úti á dekki. I desert var súkkulaði molakaffi. Eftir kvöldmat- inn var ég á vakt og stúlkan sat hjá mér. Glampa sást í einn borpall langt í Qarska. „Múkki,“ kallaði ég og veifaði til fuglanna. „Af hverju talarðu við fuglana?" spurði stúlkan. Ég sett mig í sögustellingar. „Veistu ekki að Island er konungs- ríki allra fugla? Þar er konungur þeirra, allir heimsins fuglar eru ís- lenskir og skilja aðeins íslensku. En það veit það enginn nema ég og þú.“ Henni var skemmt. „Nei, þú ert að ljúga.“ Við áttum 20 mílur eftir og það var byrjað að dimma. Ég horfði fram fyr- ir spenntur; fengi ég nú loksins að sjá Noreg? Að sjá landið sem víking- arnir höfðu yfirgefið? Seinna um kvöldið stóðum við þrír uppi á dekki að bíða eftir landsýn. En ekkert kom. Myrkur var að skella á. Allt í einu sá ég blikk úti í rökkr- inu. Og um leið greindi ég litla eyju. Árni taldi blikkið á vitanum. Jú, við vorum að koma inn í norska skerja- garðinn. Ég var spenntur. Myndi þetta land gera drauma mína að veruleika? Gæti ég strokið frjálst um mitt eigið höfuð? Myndi þetta land gefa skáld- skap mínum betri byr? Fengi ég nýjan innblástur? Lengi stóð ég uppi á dekki með andlitið móti vindi og fylgdist með sífellt fleiri ljósmerkjum. Við Reidar stýrðum í kolniðamyrkri og ég sá ljós frá húsum í landi. Enn á ný var maurildi í sjónum og það kom brælu- skítur. Skerjagarðurinn var stór- hættulegur. Mér fannst aftur og aftur sem við værum að sigla upp á land. Sífellt fjölgaði ljósunum. Brátt vissum við ekkert hvað var viti og hvað hús, og hvaða viti hvað. Ég taldi blikk og skoðaði kort. En svo mættum við stórum skipum, þá hlut- um við að vera á réttri leið. Og Reidar þekkti brátt kennimerki. Ég ætlaði að halla mér aðeins í kojunni en steinsofnaði. Ég vaknaði og sólin skein inn, mótorinn malaði rólega. Ég hljóp upp á dekk. Og nú sá ég það. Við vorum að sigla inn lítinn fjörð. Ég sá skógivaxnar brattar hlíðar, tré og tré og tré. Lítil hús stóðu í hverju rjóðri. Bátar biðu við litlar bryggjur og bátar dóluðu í bólfærum, bókstaf- lega bátur í hverri vík. Aldrei séð eins fallegt land. Við sigldum að smábátahöfn sem var full af seglbátum og mótorbátum. Við eina bryggjulengjuna hefði allur seglbátafloti íslendinga komist. Þarna settum við Reidar í land sem ætlaði að sækja okkur á litla bátnum sínum. En heimahöfn Gutterdrömm- en var á lítilli eyju skammt frá. Við sigldum upp að eyjunni og lögðumst að lítilli prívatbryggju. Ég steig á land. Vindurinn fitlaði við trén, golan var hlý og ég fann nýjan ilm sem ég hafði aldrei fundið áður. Ég var kominn á fornar slóðir. Við höfðum siglt 900 mílur þvert yfir Atlantshafið. Ég myndi aldrei fara aftur til íslands á meðan fullorðnu fólki er bannað að drekka bjór, sama hversu mikla heimþrá ég fengi. Þetta var nýtt land, betra land þar sem fólk fær bjór til æviloka. Reidar kom á dekkuðum súðbyrð- ingi sem hafði lítið hús og gaffalsegl. Báturinn hé MAGGI. En um borð var óþekkt stúlka. Dökkhærð. Er hún steig upp á bryggiuna sá ég full- fallegan kvenmann með tignarlegan limaburð. Eins og fullskapað epli. Þetta var fallegasta fjallið í öllum siglingatúrnum. Fegurð hennar gaf heiminum gleði og birtu. Ég get svar- ið það, en ég öfundaði stúlkuna. Ég vildi geta gefið heiminum fegurð. En hvað gat ég gefið. Allt i einu þaut sterk tilfinning í gegnum líkama minn. Jú, ég gat skrifað, ég gat fegr- að heiminn með ljóðum, leikritum og sögum. Og nú kom sterk löngun til að skrifa eitthvað stórt og kraft- mikið. Stúlkan brosti og ég sá loga í augum hennar. Það var stórkost- legt að heyra hvislið i trjánum. Sjálfstæðismenn, eflum flokksstarfið, gerum skil á heimsendum happdrættismiðum HAUSL HAPPDRÆTTI SJ ALFSTÆÐISFLOKKSINS VERÐMCIIR VINMNGAR GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA HRINGIÐ í SÍMA 82900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.