Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Blaðsíða 10
54 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986. l""'™................. ............ ......................... 1 .......................""""""" ............ " " ...................... ..................sswwuw'i Lena og Árn Minninga Nú í byrjun vetrar er væntanleg á markaðinn bók eftir Lenu og Áma Bergmann. Bókin er óvana- leg að því leyti að hún fjallar um bernsku og unglingsár þeirra hjóna á svipaðan hátt en við gjör- ólík uppvaxtarskilyrði þar sem Lena er alin upp í Sovétríkjunum en Árni á íslandi. Framsetnig bókarinnar er einnig með öðrum hætti en fólk á að venjast því þau Ámi og Lena skiptast á um að skrifa. Bókina kalla þau Blátt og rautt. Hvers vegna? „Við vomm búinn að láta okk- ur detta í hug ýmsa titla. Ein hugmyndin var til dæmis sú að ganga út frá því sem maðurinn æti, við vorum jafnvel að hugsa um að kalla bókina Saltfiskur og kálsúpa en okkur þótti sá titill líkjast um of nafni á matreiðslu- bók svo við söðluðum um og ákváðum að nefna bókina Blátt og rautt. Það nafn tengist líka gmnnlitunum í þjóðfánum ís- lands og Sovétríkjanna. hvernig bókin ætti að vera, ég hafði ekki hugmynd um hvað Lena var að skrifa fyrr en ég fór að lesa handritið. Bókin þróaðist áfram og við gengum ekki frá endanlegri kaflaskiptingu fyrr en handrit okkar beggja voru tilbú- in. Þetta kom nokkurn veginn af sjálfu sér. Við erum jafngömul og hlutimir hafa gerst á svipuð- um tíma í lífi okkar. En við settum þetta aldrei upp á þann hátt að nú skrifuðum við um bamaskólann og því næst um miðskólann eða eitthvað þvíum- líkt,“ segir Árni og bætir við eftir smáumhugsun, „ég veit ekki hvort svona endurminningabók hefur verið skrifuð áður, ég hef að minnsta kosti aldrei lesið neina slíka.“ eða minnisbækur frá unglingsár- unum. En það er svo merkilegt hvað maður man og hvað ekki, ég á bróður sem er fimm árum eldri en ég og við vomm að rifja það upp hvað við myndum frá bernsku og unglingsárum okkar og það kom í ljós að við mundum sömu hlutina. Stundum hef ég verið að velta því fyrir mér hvað geri það að verkum að maður man ákveðna hluti öðmm frem- ur,“ segirLena. Hvenær byrj aðir þú að punkta hjá þér, Árni? „Það er fyrst frá vetrinum 1952-53 sem ég á eitthvað sam- fellt en frá fyrri tíð er þetta ansi gloppótt.“ Bókin fjallar um þau ár þar sem oft var sakleysisblámi yfir fólki og vonandi líka einhver rauð ólga. Endanlegt nafn bókarinnar var ákveðið út frá þessum þátt- um,“ segir Ámi Bergmann. Er langt síðan að þið tókuð ákvörðun um að skrifa saman bók og hver átti hugmyndina? „Það var Árni sem átti hugmynd- ina, í byrjun var ég ekkert mjög spennt en þegar ég var sest niður og byrjuð að skrifa þótti mér mjög gaman,“ segir Lena, Ámi heldur áfram og segir: „Það var einhvem tímann í fyrrahaust sem ég byrj- aði á mínum hluta, við tókum okkur frí í janúar og fórum norð- ur í Skagafjörð og þar tók Lena til við að skrifa sinn part. Hún skrifaði á rússnesku og ég þýddi jafnóðum yfir á íslensku. Við höfðum ekki ráðgert neitt um það I stíl hvers manns - Við lestur bókarinnar fannst mér vera svipaður stíll yfir henni, er skýringin kannski sú að Ámi bæði semur og þýðir? „Sjáðu til, úr því að ég gekk frá íslenskunni er kannski ekkert óeðlilegt við að einhverra áhrifa gæti frá mér í texta Lenu. 1 stíl hvers manns eru ákveðin ein- kenni sem hann losnar ekki við. En munurinn á stíl okkar Lenu liggur í því að hún skrifar miklu gagnorðari texta en ég og það er minna um útleggingar hjá henni. Ég átti líka frá þessum tíma alls konar plögg og það munar mikið um það þegar maður er að reyna að ná fram hugblæ liðins tíma, að eiga þó ekki sé nema glop- pótta dagbók. Minn texti verður af þessum sökum allt að því helm- ingi lengrí en Lenu,“ segir Árni. „Ég lét Áma eftir þýðinguna og fór aðeins lauslega yfir hana til að sjá hvort að allt væri rétt. Ég átti hins vegar ekki neinardag- Ekki uppgjör - Er bókinni ætlað að vera uppgjör við bernsku- og unglings- t' , „Ekki mundi ég segja það. Bækur em stríð við tímans tönn. Það væri kannski nær að spyrja af hveiju fólk á okkar aldri sest niður og skrifar bók af þessu tagi. Ég hef lesið mikið af endurminn- ingabókum og mér finnst oft að öli áherslan sé lögð á bernskuár- in og foreldruna. En þegar fólk fer að skrifa um unglingsárin er oft eins og frásögnin gliðni og það koma eyður í hana. Síðan fer frá- sögnin að gerast í stökkum. En með því skrifa endurminninga- bók um fimmtugt held ég að það sé hægt að halda betur utan um hlutina, ekki bara bernskuna heldur líka unglingsárin en þau ár móta mann hvað mest. Það er nauðsynlegt að hafa ein- hverja sjálfsíroníu og líta á vissa hluti, sem gerðust í gamia daga, með smáglotti og það getur fólk á okkar aldri,“ segja þau hjón. - Þegar ég las bókina fékk ég það á tilfinninguna að hjörtu Við vorum að hugsa um að kalla bókina Saltfiskur og kálsúpa. Hér á eftir fara tvö brot úr Bæði eru þau að fjalla um sk( en sögusvii Það er leikur að læra Við vorum fjörutíu stelpur í bekknum og fertug kennslukona, Ékaterína Vassílévna, satyfir okk- ur með stáltennur í munni, í flókastígvélum með grátt ullarsjal á herðum. Það var ekki kynt í skól- anum, við sátum allar margvafðar í klúta og peysur og öðru hvoru lét Ékaterína okkur standa á fætur og sveifla höndum í erg og gríð og stappa niður fótum svo okkur hlýn- aði. I löngu frímínútunum fengum við allar rúgbrauðsbita og teskeið af sykri. sandi til að slökkva með íkveikju- sprengjur. Daginn eftir slíkar nætur sofnaði bekkurinn öðru hvoru fram á borðin og kennslu- konan okkar líka. Undir lok stríðsins sáum við oft þýska stríðsfanga í borginni. Þeir gengu til vinnu í löngum fylkingum og vopnaðir hermenn höfðu á þeim gætur. Við horfðum á þá með ótta- blandinni forvitni. Á þessum fyrsta vetri lærðu allir, sem ekki kunnu áður, að lesa og skrifa. Stílabækurnar voru úr gróf- um dagblaðapappír og fyrirgáfu hvorki villur né blekklessur, það var ekki nokkur vegur að afmá þær og eins gott að vanda sig og vera ekki utan við sig. Þennan fyrsta skólavetur minn héldu Þjóðverjar enn áfram að kasta sprengjum á Rjazan, venju- lega að næturlagi. Við hlupum þá í skjól í kjallaranum, en pabbi fór upp á hanabjálkaloft, þar stóðu vatnstunnur og kassar fullir af Fangamir hreinsuðu til í rústum eftir loftárásir og meðal annars endurreistu þeir skólann okkar - settu rúður í glugga, fylltu í holur eftir sprengjubrot, máluðu veggi. Við vissum fyrir víst að þetta voru óvinir, illmenni og skrímsli, og við áttum erfítt með að sætta okkur við að þeir litu út alveg eins og venjulegir menn, það vár svo skrý- tið og óvænt. Sumir brostu til okkar og reyndu að strjúka okkur um kollinn. Stundum gengum við um basar- inn á leiðinni heim úr skólanum. Þar var iðandi mannlíf, ekki síst á flóamarkaðnum. Fólk var að selja föt og stígvél, diska og nagla, kast- arholur og allskonar óskiljanlegt járnamsl. Þar vom á stjákli sí- gaunakonur í síðum og litríkum pilsum og með úfið hár. Annarri hendi héldu þær utan um smáböm í reifum en hinni gripu þær í ermar kvenna sem áttu leið hjá: Æ, gæskan mín fríða, lofaðu mér að skoða á þér höndina, ég skal spá fyrir þér, segja þér allt satt og rétt... Þama var líka einhentur karl og páfagaukurinn hans vitri. Fyrir rúblu dró páfagaukurinn miða upp úr kassa með spásögn um við- skiptavininn. Við stelpurnar vomm hræddar við sígaunakon- urnar, en ef einhver átti rúblu var erfitt að standast páfagaukinn. Miðamir sem hann tók í gogginn spáðu gæfu og gengi, löngum ferða- lögum og „endurkomu vinarins sem hjartað þráir“. Rétt til hliðar var svo freistingin mesta: hljómsveitarkarlinn. Hann spilaði á hnappaharmoníku, blés í munnhörpu sem fest var við varir hans og með fótunum barði hann bumbur og sló málmgjöll. Hann kunni lagið um Katjúsju, sem gekk fram á árbakkann háa og söng um þann sem hún elskaði, valsinn Dónáröldur og margt fleira. Við hlið hans sat á einskonar kassabíl fótalaus öryrki í vattjakka frá- hnepptum, undir honum sá í flösku með tusku í tappa stað. Hann söng með hljómsveitarmanninum og öðru hvoru æpti hann hásri röddu: Borgarar! Bræður og systur! Vík- ið góðu að örkumlamönnum sem börðust fyrir föðurlandið. Á jörðunni lá húfan hans og fólk henti í hana þvældum rúbluseðlum. Ætli það hafi ekki verið í þriðja bekk að ég fór að „vinna mig upp“? Ég átti auðvelt með að læra og tungan í mér gekk eins og hún væri smurð. Svo kom að því að við vorum teknar í Ungherjahreyfing- una. Allir nemendur á ungherja- aldri (níu til fjórtán ára) stilltu sér upp í stóra salnum og við nýliðarn- ir fórum í kór með Eiðstaf ung- herjans: Ég, ungherji Sovétríkjanna, sver þess hátíðlegan eið að fylgja í einu og öllu boðorðum félaga Stalíns og Alsovéska Kommúnistaflokksins - bolsévíka, að þjóna með heiðri og sóma málstað Leníns og Stalíns... Síðan voru bundnir á okkur splunkunýir rauðir hálsklútar. Hjartað sló ört af hrifningu, trún- aðartrausti og þrá eftir að þjóna, þjóna sem mest og best... Ég var skipuð fánaberi ungherja- sveitar skólans, bæði vegna þess hve vel mér gekk í námi og vegna þess hve löng ég var. Og þegar ég bar ungherjafánann við lúðrablást- ur og trumbuslátt inn í salinn á hátíðafundi og allar skólasystur mínar stóðu teinréttar í röðum með höndina upp að enni í ungherja- kveðju, þá var enginn í heiminum hamingjusamari og stoltari en ég. En það kostar sitt að öðlast frægð og frama. Enginn var í raun og veru góður nemandi nema hann tæki þátt í „félagsstarfi“. Frá því í fjórða bekk gáfum við út hand- skrifað veggblað - í tilefni sjöunda nóvember, fyrsta maí, afmælisdags Stalíns, Stjórnarskrárdagsins og Dags Rauða hersins. Blekið var varla þornað áður en við þurftum að byrja á nýju blaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.