Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Side 16
60 Sérstæð sákamál LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986. VERSLAIMIR! Hin sívinsæla og myndarlega JÓLAGJAFAHANDBÓK kemur út 4. desember nk. Þeir auglýsend- ur sem áhuga hafa á að auglýsa í JÓLAGJAFAHANDBÓKINNI vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild Þverholti 11, eða i síma 27022 kl. 9-17 virka daga sem alira fyrst. Peggy Jeffries. Tommy Ansell. St. Jósefsspítalinn Landakoti Ársstaða aðstoðarlæknis við lyflækningadeild St. Jósfesspítala, Landakoti, er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. janúar 1987. Umsóknarfrestur er til 1. desember nk. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og fyrri störf skal senda til yfirlæknis lyflækningadeildar. Reykjavík, 5.11.1986. Að leysa vandann Bronco árg. 1974, m]ög góður, 6 cyl., beinskiptur m/vökvastýri, sportfelgur, ný dekk, kassettutæki. Fiat Ritmo árg. 1982, 5 dyra, sil- ver, sjálfskiptur, ekinn 57 þús. km. Góður bíll á góðum kjörum. Óður morðingi kom fram úr myrkr- inu og skaut saklaust fólk í bakið. Hvers vegna? Að baki bjuggu ástæð- ur sem rekja métti til skilnaðar. Dagan Jeffries gat aðeins hugsað um hvernig hann gæti rutt konu sinni úr vegi. Hann var sannfærður um að dauði hennar myndi leysa all- an vanda sinn. Skilnaðarmálið, sem hann stóð í við Peggy Jeffries, myndi hafa þær afleiðingar að hann yrði félaus á eftir. Hjónabandið hafði far- ið út um þúfur vegna framhjáhalds hans og nú fannst honum blasa við að hann yrði að greiða fyrir það til æviloka. Blekkingin mikla Dagan Jeffries stóð því aðeins ein leið opin að eigin mati. Hún var sú að drepa konu sína. Það yrði hann hins vegar að gera þannig að engan grunaði hann. Hann valdi því þá leið sem er nokkuð vel þekkt í sögu af- brotanna en hún er sú að villa um með því að myrða marga og þar á meðal konuna. Þannig yrði erfitt að tengja hann morðinu. Jeffries hafði að sjálfsögðu gert sér grein fyrir því að grunurinn myndi strax falla á hann ef kona hans ein yrði myrt. Hann yrði þegar grunaður því hann stóð í skilnaðarmáli og það þyrfti ekki að rannsaka fjárhag hans lengi til þess að komast að því að hann myndi standa uppi slyppur og snauður eftir skilnaðinn. Hann þyrfti því að láta Peggy hverfa af yfirborði jarðar. . M Fyrsta morðið Dagan Jeffries ákvað að hrinda morðáætlun sinni í framkvæmd og það gerði hann 13. júní síðastliðinn. Hann þekkti alls ekki fórnardýrið. Það var Ben Craiger. Hann var sex- tíu og átta ára og var á leið að kaupa sér vindlinga. Craiger fékk varla ráðrúm til þess að líta á morðingja sinn. Jeffries gekk út úr myrkrinu í útjaðri Shreveport, í Louisianafylki í Bandaríkjunum. Þar bjuggu bæði hann og Craiger. Svo skaut hann þremur skotum. Þau hittu öll í bakið á Craiger og hann var látinn áðúr en hann lá á gangstéttinni. Stundarfjórðungi síðar var lögregl- an komin á vettvang. Þegar þótti ljóst að rán hefði ekki verið ástæðan til morðsins því sá látni var með peninga á sér. Kenning kom fram um að einhver hefði viljað koma fram hefndum á Craiger en lengra komust menn ekki í bili. Krufning leiddi svo í ljós að kúlurnar, sem orðið höfðu Craiger að aldurtila, voru úr .38 hlaupvíddar byssu. Annað morðið Lögreglan var enn að rannsaka morðið á Craiger er hún fékk til- kynningu um annað morð. Þá voru liðnir fjórir dagar frá því fyrra, en morðstaðurinn var aðeins í kíló- metra fjarlægð frá þeim fyrri. I þetta sinn var fórnardýrið tuttugu og eins árs gömul stúlka, Susanne Ekels. Hún var á leið heim til sín seint um kvöld þegar bíll hennar bil- aði. Rétt á eftir bauð maður, sem átti leið hjá, henni aðstoð sína. Sá hjálpsami reyndist vera Dagan Jeffries. Unga stúlkan fannst með þrjár kúlur í bakinu. Lá hún ofan á bílvél- inni en hlífin yfir henni var uppi. Lögreglan gat ekki fundið neina ástæðu til morðsins. Ljóst var að kynferðisafbrotamaður hafði ekki verið þarna að verki og ekki var um rán að ræða því Susanne Ekels var með peninga á sér. Það kom hins vegar fljótt í ljós að morðið var fram- ið með sömu skammbyssunni og Ben Craiger hafði verið skotinn með. Allt þótti nú benda til þess að geðveikur morðingi væri á ferðinni. Maður sem skaut fólk þrisvar í bakið án nokk- urrar sérstakrar ástæðu hlaut að vera geðveikur. Þriðja morðið Níu dögum síðar fannst kona að nafni Peggy Jeffries látin. Lögreglan vissi að sjálfsögðu ekkert um það þá hve mikið hún kom við sögu í þessu óhugnanlega máli. Peggy var myrt að kvöldi 26. júní á bílastæði. Er hún var að ganga að bíl sínum gekk að henni maður í myrkrinu og skaut hana þrisvar sinnum í bakið. Hún fannst svo látin V Opið laugardag kl. 12-16. Til sölu notuð skrifstofuhúsgögn skrifborð - stólar - fundaborð - afgreiðsluborð, laus skilrúm og margtfleira. EINSTAKT TÆKIFÆRI Opið í dag kl. 14-16. Komið í Síðumúla 12, 2. hæð. Dagblaðið-Vísir Ben Craiger.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.