Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986.
61
dv Sérstæð sakamál
Susanne Ekels. Gerda Lennox.
við hliðina á bílnum rétt á eftir því
einhver hafði heyrt skotin. Morðing-
inn sást hins vegar hvergi. Það var
eins og jörðin hefði gleypt hann.
Nú kom Dagan Jeffries fyrst við
sögu rannóknar morðmálanna. Það
var ljóst að hann hafði næga ástæðu
til þess að myrða konu sína. Það var
hins vegar ekki annað að sjá en hann
hefði gilda fjarvistarsönnun; ekki
bara er Peggy kona hans var myrt
heldur einnig er Craiger og Ekels
voru skotin.
í 350 kílómetra fjarlægð
Dagan Jeffries sagði lögreglunni
að hann hefði verið langt í burtu er
kona hans var skotin. Þá hefði hann
verið í borginni Baton Rouge en hún
er 350 kílómetra frá Shreveport.
Kvaðst hann hafa búið þar í Parkside
Inn mótelinu. Það fékkst staðfest þar
að Jeffries hefði komið þangað þann
dag sem Peggy var myrt. Þar hafði
hann líka verið þau kvöld er Craiger
og Ekels voru myrt. Það þótti lög-
reglunni sýna að Dagan Jeffries væri
ekki við málið riðinn en þó var
ákveðið að rannsaka einkamál hans
betur. Jafnframt var leitin að morð-
ingjanum hert. Brátt kom þó þar að
lögreglan fór að velta því fyrir sér
hvernig á því stæði að Dagan Jeffri-
es, sem var félítill maður, skyldi hafa
efni á því að búa í móteli svo oft.
Fjórða morðið
30. júní var Gerda Lennox, sem var
fimmtíu og eins árs, á leið til starfa
í veitingahúsi. Hún var á gangi eftir
vel lýstri götu er ókunnur maður
kom til hennar og spurði hvort hún
gæti gefið honum eldspýtur. Hún leit
framan í manninn en var óhrædd
enda var allmargt fólk á ferli þarna.
Hún hafði þó varla snúið baki við
ókunna manninum er hún fékk skot
í bakið og svo annað og svo það
þriðja.
Að þessu sinni voru vitni að dráp-
inu. Sumir áhorfenda hlupu strax á
eftir Jeffries en við því hafði hann
ekki búist. Einn þeirra sem tók á rás
á eftir honum var Cal Fennore. Hann
var lögregluþjónn. Er Jeffries hafði
hlaupið kílómetra fór hann inn í
götu sem var lokuð í annan endann.
Þar lyfti hann skammbyssunni og
ætlaði að skjóta á þá sem eltu hann
en Cal Fennore varð fyrri til og skaut
hann.
Dagan Jeffries dó strax.
Gátan leyst
Nú fékkst svar við spurningunni
sem svo lengi hafði verið spurt:
Hvers vegna skaut einhver fólk í
bakið að tilefnislausu? Lausnin var
auðvitað fólgin í þeirri einkamála-
flækju sem Jeffries hafði verið að
glíma við. Það var þó ekki ljóst enn
hvernig á því stóð að hann hafði fjar-
vistarsönnun i þremur fyrstu tilvik-
unum. Hafði hann í raun og veru
verið i mótelinu í Baton Rouge? Eða
kom einhver annar við sögu? Lög-
reglan reyndi að hraða rannsókninni
sem mest hún mátti. Strax var því
hringt til mótelsins í Baton Rouge
og spurt hvort þar væri maður að
nafni Dagan Jeffries. Svo reyndist
vera. Lögreglan í Shreveport gerði
nú strax ráðstafanir til þess að láta
handtaka þennan „Dagan Jeffries"
og er það var gert kom í ljós að um
Tommy nokkurn Ansell var að ræða.
Hann reyndist vera afar líkur Jeffri-
es í útliti; reyndar svo líkur að vel
mátti halda að um einn og sama
manninn væri að ræða.
Tommy Ansell skýrði svo frá að
Dagan Jeffries hefði greitt sér tvö
hundruð dali fyrir að búa í mótelinu
þau fjögur kvöld sem morðin höfðu
verið framin. Ansell neitaði með öllu
að hafa haft minnstu hugmynd um
hvers vegna Jeffries hefði beðið hann
að gera það. Honum hefði hins vegar
þótt þetta auðfengið fé og því tekið
tilboðinu. Lögreglan gekk hart að
honum en allt kom fyrir ekki. Hann
neitaði að vita nokkuð um morðin
fjögur.
Lögreglunni tókst ekki að sanna
að Tommy Ansell hefði vitað hvað
Dagan Jeffries gekk til og þvi- var
hann látinn laus. Gátan um óða
morðingjann, sem skaut fólk í bakið,
var leyst en málið er aðeins eitt af
fleiri þar sem menn hafa gripið til
þess að drepa saklaust fólk til þess
að dylja hagnaðarvon eða aðra
ástæðu til þess að þeir vildu ryðja
einum þeirra myrtu úr vegi.
Dagan Jeffries.
qxpHúsnæðisstofnun rikisins
Auglýsing
um dráttarvexti
Af lánum, sem verðtryggð eru
með lánskjaravísitölu, eru
reiknaðir dráttarvextir á 15. degi
frá gjalddaga.
Af lánum, sem verðtryggð eru
með byggingarvísitölu, verða
reiknaðir dráttarvextir einum
mánuði eftir galddaga.
Reykjavík, 7. nóvember 1986.
Húsnæðisstofnun rikisins
VW Goif City dísil árg. 1982, ekinn Toyota Corolla LP 1600 SE árg.
98.000 km. Verð kr. 220.000,-. Fall- 1981, ekinn 42.000 km. Verð kr.
egur bill, nýupptekin vél. 285.000,-. Sóllúga, 5 girar og fl.
450.000,-, ekinn 22.000 km.
MMC Galant GLX 1800, turbo dís-
il, árg. 1985, ekinn 141.000 km.
Verð kr. 470.000,-.
Toyota Tercel árg. 1986, 4 wd.,
ekinn 22.000 km. Verð kr.
540.000,-.
Subaru station 4 wd. árg. 1983,
ekinn 73.000 km, sjálfskiptur. Verð
kr. 380.000,-.
G0TT ÚRVAL NÝLEGRA BÍLA Á
STAÐNUM TÖLVUVÆDD ÞJÓNUSTA
RUMGOÐUR SÝNINCARSALUR
— REYNDIR SÖLUMENN —
OPIÐ:
Mánud.-föstud. kl. 9.00-18.30.
Laugard. kl. 10.00-17.00.